Tíminn - 27.08.1977, Blaðsíða 16

Tíminn - 27.08.1977, Blaðsíða 16
16 Laugardagur 27. ágúst 1977 Biöm Jakobsson Fæddur 5. júnl 1894. Dáinn 17. ágúst 1977. Björn Jakobsson var fæddur 5. júni 1894. Foreldrar hans voru Jakob Jónsson Jónssonar frá Deildartungu og Herdis Sig- uröardóttir Vigfússonar frá Efstabæ. Björn ólst upp i foreldrahús- um. Nam organleik i Reykjavik — stundaöi nám i Hvitárbakka- skóla 1911-1912. Kennari við Hvitárbakka- skóla 1920-1926 og siöan kennari i Reykholti 1941-1964. Björn var fjölgáfaöur og naut sin vel meöal æskulýös. Hann var tónskáld og organisti og liggur mikiö verk eftir hann á þvi sviði. Féll þaö í hans hlut að kenna söng viö báða skólana. Sem gamall nemandi hans minnist ég ávallt með gleði kennslustunda hjá Birni, og man ég að viö Hvitbekkingar biöum meö nokkurri óþreyju eftir Birni, en hann kenndi ekki alla daga vikunnar og fór þá heim aö Varmalæk og dvaldi þar nokkra daga af viku hverri. Björn varð fyrir þeirri sorg að missa konu sina unga aö árum, Guönýju Kristleifsdóttur fræöi- manns að Stórakroppi. Hann dvaldi að Stórakroppi og Varmalæk hjá bróðursyni sín- um Jakob Jónssyni oddvita og konu hans Jaröþrúði Jónsdóttur þar til hann fluttist alfarinn til Borgarness þegar hann fyrir aldurssakir hætti kennslu i Reykholti.Björn var einn þeirra manna, sem aldrei unni sér hvildar og vann meðan dagur- inn entist, og raunar var orðiö æöi skuggsýnt, þegar hann loks gafst upp snemma á þessu sumri. Björn var hugsjónamað- ur og unni öllum framförum , hvort sem þær voru verklegar eöa á andlega sviðinu. begar hann kom i Borgarnes, gerðist hann forgöngumaður um útgáfu timarits Kaupfélags Borgfirð- inga, sem flytur jöfnum höndum þjóðlegan fróðleik og greinar um samvinnumál, fréttir og störf Kaupfélags Borgfirðinga. Hefur þetta rit reynzt ómetan- legur tengiliður milli hinna fjöl- mörgu viðskiptamanna á við- lendu félagssvæði og þeirra, sem störifin vinna fyrir kaup- félagið. Hlutur Björns Jakobssonar i samvinnumálum á félagssvæði K.B. er stór, Ég minnist þess, að oft kom ég tilhans, þegar hann vann af kappi við prófarkalestur og rit- störf. Var hann oft sjúkur, en aldrei missti hann marks á mál- efninu — sami áhuginn og hug- sjónaeldurinn knúði hann áfram. Hann sá inn i framtiðina ung- ur f anda og trúði á samtaka- mátt fólksins við alhliöa uppbyggingu velferöarþjóð- félags — og lykilinn að öllum raunhæfum velferðarmálum var aukin samvinna og sam- hjálp, sem samvinnufélags- skapurinn einn gat leitt til lykta til blessunar iyrir land og lvö. Björn var maður einlægur og traustur, vinfastur og trúði ávallt á sigur hins góða. Þaö verða margir, sem minn- ast Björns Jakobssonar og allir á einn veg — hann var mannkostamaöur, sem fórnaði ævinni fyrir hugsjónina um betra þjóöfélag. Við samvinnu- menn flytjum þér þakkir fyrir störfin. Fyrir hönd Kaupfélags Borg- firöinga flyt ég þér hlýjar sakn- aðarkveöjur, en i hugum okkar allra lifir minningin um góðan dreng, sem vann aö velferðar- málum lands og þjóöar meðan dagur entist. Hvil þú i friði góði vinur. Da nfel K rist jánsson frá Hreða vatni. f Fregnin um andlát Björns Jakobssonar kemur þeim ekki óvænt sem þekktu til hans sein- ustu árin. Hittvar meira undr- unarefni hversu lengi hann varðist sigö dauðans, en þar kom til mikiö andlegt þrek og hugarró, sem honum var veitt I rikari mælien almennt gerist og hann jafnframt þroskaði sjálf- ur. Að sjálfsögðu vissi hann hvað að fór i þeim efnum. Á það bendir meðal annars kveðju- stef, sem hann birti á siðustu blaðsiöu siðasta heftis Kaupfé lagsritsins, sem hann var rit- stjóri og ábyrgöarmaður fyrir frá 1964-1977. En kveðjustefið er svohljóðandi: Með síðasta hefti — sem er mitt sendi ég kveðju mina öllum, sem þau hafa hitt, — og hjálp mér veittu sina. Heftið með kveðjustefinu fékk ég i hendur fáum stundum áður en ég vissi um andlát hans. Björn var fæddur að Varma- læk I Bæjarsveit 5. júni 1894 og var þvi fullra 83 ára er hann lést. Foreldrar hans voru hin góðkunnu dugnaðar- og merkis- hjón Herdis Siguröardöttir frá Efstabæ I Skorradal og Jakob Jónsson frá Deildartungu. Var Björn þvi'annar ættliðurfrá hin- um merka bónda, Sigurði Vig- fússyni i Efstabæ. Móðir Jakobs, fööur Björns, var Helga, dóttir Jóns Amasonar stúdents og bónda á Leirá i Borgarfirði og var Björn þvi þriðji ættliður frá honum. Eru ættir þessar báðar þjóðkunnar og fjölmennar, einkum i' Borg- arfjarðarhéraði, og verða ekki raktar hér. Heimili þeirra Herdisar og Jakobs á Varmalæk, foreldra Björns, var eitt hið mesta myndar- og framkvæmda- heimili i Borgarfirði, einnig eftir að þau féllu frá og það komst i hendur sona þeirra og Jakobs sonarsonar þeirra, sem seinustu áratugina hefur rekiö þar búskap. Björn ólst upp hjá foreldrum sinum ásamt fjórum systkinum sinum,ervoru: Helga húsfreyja á Hæli i' Flókadal, kona Guð- mundar Bjarnasonar bónda þar, Jón bóndi á Varmalæk er kvæntur var Kristfnu Jónatans- dóttur frá Stórakroppi Sigurður, er bjó ásamt Jóni bróður sinum á Varmalæk, Magnús, er var bóndi á Snældubeinsstöðum en jafnframt kennari við Reykholtsskóla, kvæntur Svein- sinu Sigurðardóttur frá Akra- nesi. 011 voru systkini Bjöms eldri en hann eru látin fyrri en hann, enda náði hann hæstum aldri. Æskuár Björns fara saman við fyrsta áratug þessarar ald- ar, er mun mega teljast einn hinn merkasti ef litiö er á hvað þá var að gerast með okkar fá- mennu þjóð, er var aðeins rúm- lega riðjungur þess sem nú er. Þá fáum við innlenda rfkis- stjórn eftir langa og þráláta baráttu. Við hefjum til þroska mikilvægar félagshreyfingar eins og ungmennafélögin, sem á þær hugsjónir, sem allur æsku- lýður landsins verður hrifinn af i einu vetfangi að kalla og hefst handa um vekjandi starf og framkvæmdir. Þá er eftirtekt- arvert að stofnaður er almennur félagsskapur, Heilsuhælisfé- lagið 1906 sem nærsvo snöggum tökum að reist er Vifilsstaða- hælið svo fljótt, að störf þar hefjast 1910. Við set jum lög um fræðslu barna til logboðins náms. Háskólinn er undirbúinn og hefur störf 1911. Nýir skólar eru stofnaðir. Simasamband frá útlöndum og simi innan lands er komið i framkvæmd. Togara- og vélbátaútgerð hefst. Húsagerð öll breytist til batnaðar og rækt- un landsins eykst hröðum skrefum. Samvinnuhreyfingin færist i aukana með nýjum hætti. Þjóðin hrindir frá sér 1908 „uppkastinu” sem meðal annars hafði að geyma heitið „Det samlede danske rige” um tsland og Danmörku. Stjórn- málablöð voru gefin út sem höfðu að ritstjórum Björn Jóns- son, Einar Hjörleifsson, Hannes Þorsteinsson, Jón Ölafsson, Skúla Thoroddsen og Þorstein Gislason. Þeirhöfðu fulla einurð til að kunngera skoðanir sinar með orðum, sem vöktu athygli og menn hrifust af. Þama voru að starfi siðustu samtiðarmenn Jóns Sigurðssonar forseta og þjóðhátiðarkynslóðin frá 1874. Þótt hér verði ekki á fleira minnst frá fyrsta áratug þess- arar aldar hlaut sú kynslóð, sem þá var á unga aldri að tileinka sér annan og djarfari hugsunar- hátt en áður var. Sú kynslóð hefur hlotið nafnið aldamóta- menn eða aldamótakynslóð en er nú að hverfa af sjónarsviðinu að mestu leyti að þvi er til áhrifa kemur um þjóðfélags- mál, en ný tekin við sem alizt hefur upp undir áhrifum styrjaldartima og gæti þvi vel kallast styrjaldarkynslóðin. Björn Jakobsson var einn af aldamótamönnunum bæði að hugsun og starfi. Hann v'ar til náms i Lýðháskólanum á Hvitárbakka 1911-1912 en nam svo að leika á hljóðfæri um stundarsakir i Reykjavik. Annars hafði hann alltaf frá fermingu lagt sig eftir og leikið á hljóðfæri án þess að hafa notið kennslu annarra, og alla ævina var hann áhugamaður um tón- list og tók mikinn þátt i þeirri grein i heimabyggð sinni til ævi- loka. Kunnust er þátttaka hans og starf i söngfélagi „Bræðranna” um áratugaskeið, en formaður þess félags var Bjarni Bjarnason bóndi og kirkjusöngsstjóri á Skáney i Reykholtsdal. Framhald á bls. 19. ( Verzlun & Pjónusta ) SólurriS JEPPADEKK / Fljót afgreiðsla i Fyrsfa flokks dekkjaþjánusta BARÐINN? í ARMULA 7*30501 2 ^/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ 'é Dráttarbeisli — Kerrúr 'i KÍSIÍn \ V Klapparstlg 8 5 Sfmi 2-86-16 Heima: 7-20-87 f/Æ/Æ/Æ/Æz AAniVIV-»LAA / BOU3UI ^ ^ --» YÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ %r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/J§ VÆÆSÆ/Æ/ÆS’Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ Húsgagnaversliin i \Lk Heykjavíkur hf. ni)AiiTAniiAi*i a v \ P^riasis og Exem f \ kX’fötÍW úphyris snyrtivörur fyrir við- Ú Ú Til Laugarvi Kollagen Creamí Body Lotion Cream Bath (f urunálablað+5 Shampoo) ^ phyris er húðsnyrting og ^ hbrundsfegrun með hjálp y blóma og jurtaseyða. é phyris fyrir allar húð- gerðir Fæst f snyrti- B vöruverzlunum og já apotekum. % 11111 PÓBT Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/J^ \ vl H'01 1 \i Þríhjól kr, 5.900 ^ Tvíhjól kr. 15.900 ^ ^f^Póstsendum ^ Leikfangahúsið ^ ^Skólavörðustíg 10 Sími 1-48-06 á ^/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æsA BRAUTARHOLTI 2 f SÍMI 11940 /Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ//á V/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A 2 Svefnbekkir og svefnsófar yA 2 til sölu i öldugötu 33. 2 f Sendum í póstkröfu. 2 f, Sími (91) 1-94-07 ^ ^/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/J X/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ar/Æ/Æ/ÆS^ Einnig alls konar mat fyrir 2 allar stærðir samkvæma <£ ^ eftir yðar óskum. rry~'w Í Komið eða hringið f"] \ síma 10-340 KOKK^/hÚSIÐ^ Lækjargötu 8 — Slmi 10-340 t rSÆ/ÆSÆ/ÆÆ/.Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Já m/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ r------------- J i x . . ,. x y. ... Laugarvatns/ Geysis og t kvæma og ofnæmishuðV é Gullfoss aila daga \ Azulene sápa 4 t frá Bifreiðastöð islands. z Azulene Cream t t t. Azulene Lotion i i ö'afur Ketilsson. £ ár/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/d Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/i Leikfangahúsið Skólavörðustíg 10 Sími 1-48-06. Indiánatjöld Kr. 3.960 Póstsendum t r r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æj r/Æ/Æ/4 I ! ár/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/d f/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆSÆ/Æ/Æ/Æ/Ʊ t Ly,ðar* . iPíia t ^ Mnustu....... III| i 1111 ^ t ^Fasteignaumboðið p 6TH^STR » 4 ^ pZÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A Rafstöðvar til leigu 4 Flytjanlegar Lister 1 ^Pósthússtræti 13 — sími 1-49-75 Í CHeimir Lárusson — sími 2-27-61^ E gKjartan Jónsson lögfræðingur i E r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A y ki\|oi iau juiidóuii luyi i ccumyur y 'J0 Cbr/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/já %T/Æ/ •> dieselraf stöðvar. Stærðir: 2,5 kw, 3,5 kw og 7 kw Vélasalan h.f. Símar 1-54-01 & 1-63-41 r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/. SEDRUS-húsgögj Súðarvogi 32 — Reykjavík Sfmar 30-585 & 8-40-47 Sófasett á kr. 187.00 ^ Staðgreiðsluverð kr. 168.300 2 Greiðsluskilmálar: 2 Ca. 60.00 við móttöku og 15-20 þús. á mánuði 'Æ/Æ’/wsæ/Æ/Æ/J ^T/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/d

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.