Tíminn - 02.09.1977, Side 10
10
Föstudagur 2. september 1977
Aðalfundi Stéttarsambands
bænda lauk aö Eiðum i
Eiðaþinghá laust fyrir hádegi síð-
astl. miðv. dag. A fundinum voru
samþykktar fjöldi ályktana um
verðlags- og framleiðslu- og lána-
mál landbúnaðarins.
1 stjórn voru kosnir til tveggja
ára: Ólafur Andrésson, Sogni,
Gunnar Guðbjartsson, Hjarðar-
felli, Guðmundur Ingi Kristjáns-
son, Kirkjubóli, Ingi Tryggvason,
Kárhóli, Þorsteinn Geirsson,
Reyðará, JÓn Helgason, Seglbúö-
um og Þórarinn Þorvaldsson,
Þóroddsstöðum. Þórarinn er sá
eini sem ekki átti sæti i fyrri
stjórn.
Alyktanir þær, sem samþykkt-
ar voru á fundinum, fara hér á
eftir:
Tillögur
Framleiðslunefndar
„Þar sem fram hefur komið að
útflutningsuppbætur á landbún-
aðarafuröir yfirstandandi verð-
lagsárs, duga ekki til þess aö fullt
grundvall"rverð náist, og allt
bend'r til þess, að svo veröi einnig
næsta ár, þá er aðalfundur
Stéttarsambands bænda þvi meö-
mæltur að eftirfarandi ráðstafan-
ir séu gerðar.
I. Að lagt verði verðjöfnunar-
gjald á framleiöslu yfir-
standandi verðlagsárs I
trausti þess, aö viðurkennt
verði mat framleiðsluráðs á
heildarverömæti landbún-
aðarframleiöslunnar.
II. Að lagt verði verðjöfnunar-
gjald á innfluttan fóðurbæti
alltað8% af cifverði. Gjaldið
veröi i vörslu framleiðslu-
ráðs og notað til verðjöfnun-
ar á framleiðslu hvers árs,
þó þannig aö hver búgrein
njóti þess framlags, sem frá
henni kemur, þar til hún hef-
ur náð grundvallarverði.
Gjaldið verði ákveðið af
f ra mleiðsluráði land-
búnaðarins, lengst til eins
árs i senn.
III. Að framleiðsluráði verði
veitt lagaheimild til þess að
greiða lægra verö fyrir
aukna framleiðslu á hverri
jörð, þó þannig, að þar sem
bú eru litil, verði fullt verð
greitt fyrir aukninguna að
ákveðnu marki. Þetta komi
aðeins til framkvæmda, þeg-
ar ekki er hægt að greiöa fullt
verð fyri alla landbúnaðar-
framleiðsluna. Þegar þannig
háttar verði jafnframt greitt
lægra verð fyrir framleiðslu
rikisbúa og þeirra sem hafa
landbúnaðarframleiðslu ut-
an lögbýla.”
Framleiðslunefnd veröi stjórn-
inni til ráðuneytis um fram-
kvæmd tillagnanna”
Tillögur framleiðslu-
nefndar
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda haldinn að Eiðum 29.-30.
ágúst 1977 telur brýnt að tryggð-
ur verði eðlilegur vöxtur og þróun
innlends fóðuriönaðar, svo hann
verði snar þáttur i kjarnfóður-
notkun landbúnaðarins”.
Framsögum. Sigurður Þórólfsson.
„Aöalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 felur stjórn Stéttar-
sambandsins að kanna eftirfar-
andi atriði I samvinnu við Fram-
leiðsluráð:
a) Hvers vegna mikill meiri hluti
af gærum er ekki I flokks vara
samkvæmt umsögn gærukaup-
enda. Leitaö sé samstarfs viö
sláturleyfishafa og söluaöila
svo og sérfræðinga Búnaðar-
félags íslands til að finna
orsakir gæruskemmda og leita
þegar ráöa til úrbóta.
b) Taka til endurskoðunar
þungahlutfallstölu milli gæru
og kjöts, þar sem athuganir
benda til aö það hlutfall, sem
nú gildir, sé ekki rétt”.
Framsögumaður Stefán Jónsson.
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda haldinn að Eiðum 29.-30.
ágúst 1977 telur brýnt aö jafna
flutningskostnað á fóðurvörum.
Sérstaka áherzlu leggur fund-
urinn á jöfnun flutningskostnaðar
á heykögglum, þar sem aðstaða
bænda er mjög misjöfn, til að
nýta þetta fóður, vegna fjarlægð-
ar frá verksmiöjunum”.
Framsögum. Jónas R. Jónsson.
Tillögur verðlagsnefnd-
ar
„Aöalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 itrekar fyrr'i
samþykktir aöalfunda um nauð-
syn þess að verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarvara gefi sem
réttasta mynd af hinum ýmsu
verð en nú er gert fyrir svo verð-
mætt hráefni”.
Framsögum. Jón Guömundsson,
Óslandi
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 bendir á, að við verð-
lagningu landbúnaðarvará sé
ávallt leitað nýrra upplýsinga um
skuldir bænda við Stofnlánadeild
landbúnaðarins.” Framsögum.
Kristófer Kristjánsson.
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 skorar á Fram-
vegna þeirra okurvaxta sem boð
ið er upp á á almennum lána-
markaði I dag. Skorar fundurinn
á landbúnaðarráðherra að hraða
afgreiðslu þessa máls og Seðla-
bankanum verði gert skilt að
leggja fram fjármagn 1 þessu
skyni.
IV. Fundurinn telur það ótvirætt
hlutverk Byggðasjóðs að veita
fjármagn til landbúnaðar eins og
annarra atvinnuvega. Bendir
fundurinn sérstaklega á, að
Ályktanir
aðalfundar
Stéttarsambands
bænda
Gunnar Guðbjartsson.
leiösluráð landbúnaðarins að
fylgjast sem gerst með kostnaði
við vinnslu og heildsöludreifingu
búvara með það markmið i huga,
að finna leiðir til að halda þessum
kostnaði niðri svo sem framast er
unnt.
Framsögum. Þórarinn Þor-
valdsson
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 telur einboðið, að
timakaup húsfreyju 1 verðlags-
grundvelli landbúnaðarvara
verði jafnhátt tfmakaupi bónda.”
Framsögum. Þórarinn Þor-
valdsson
sjóðurinn veiti viðbótarlán til
þeirra sem eru að hefja búskap,
með þvi að lána þeim til
jarðakaupa, bústofnskaupa og
vélakaupa. Ennfremur til bænda
á þeim svæðum, sem höllum fæti
standa með tilliti til búskaparað-
stöðu.”
Framsögum. Sveinn
Guðmundsson
Tillögur Allsherjar-
nefndar
kostnaðarliðum við búreksturinn
svo og afurðamagni.
Fundurinn bendir sérstaklega á
eftirfarandi:
1. Taka þarf tillit til óreglulegs
vinnutíma 1 sambandi við
ákvörðun vinnumagns og styöj-
ast þá við samninga verkalýðs-
félaganna um greiðslur fyrir
útköll og viðveruskyldu.
2. Leiðrétta þarf fjármagnsliði
verðlagsgrundvallarbúsins, en
vantalinn fjármagnskostnaður
mun vera ein aðalorsök þess
stórkostlega mismunar, sem er
á rauntekjum bænda og við-
miðunarstéttanna. Fundurinn
þakkar athugun þá, sem stjórn
Stéttarsambandsins hefur látið
fara fram á fjármagnsþörf
verðlagsgrundvallarbúsins og
telur eftir atvikum rétt að miöa
kröfur nú um fjármagnskostn-
að I verðlagsgrundvelli viö
niðurstöður athugananna.
3. Leiðréttur verði liðurinn
„annar kostnaður” f verðlags-
grundvelli.Er þar einkum bent
á rafmagnskostnaö, trygginga-
útgjöld, dýralæknakostnað og
ýmsar minni háttar rekstrar-
vörur.”
Framsögum. Kristófer Kristjáns-
son
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 beinir þeirri áskorun
til ríkisstjórnar að fella nú þegar
niður söluskatt af kjöti og kjöt-
vörum til samræmis við aörar
neyzluvörur s.s. mjólk, fisk
og ávexti-
Framsögum. Þórarinn Þorvalds-
son
„Aöalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 ítrekar ályktun síð-
asta aöalfundar um færslu vinnu-
skýrslna búreikninga og skorar
jafnframt á Búreikningastofu
ríkisins að vinna þannig úr vinnu-
skýrslum, að í ljós komi, hver
reiknaöur vinnutfmi bónda er
samkvæmt samningum
verkalýðsfélaganna um útköll og
viðveruskyldu”.
Framsögum. Jón Guðmundsson,
Óslandi
„Aöalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 telur verð á gærum i
verðlagsgrundvelli óviöunandi og
lýsir undrun sinni á þvi, aö ekki
skuli mögulegt að greiöa hærra
Tillögur lánamála-
nefndar
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda haldinn að Eiðum 29.-31.
ágúst 1977 telur það ástand sem
nú ríkir i lánamálum landbúnað-
arins óviðunandi og gerir kröfu til
þess að úrbætur verði geröar i
þeim efnum. Vegna verðbólgu og
einnig vegna stóraukinnar tækni-
væðingar i landbúnaði hefur
þörfin fyrir lánsfjármagn vaxið
hröðum skrefum og þær lagfær-
ingar, sem gerðar hafa verið,
hvergi nærri fullnægjandi, og
bendir þó sérstaklega á rekstrar-
og afurðalán og lán til þeirra, sem
eru að hefja búskap i þvi sam-
bandi.
I.
a) Rekstrarlán til sauðfjár-
búskapar verði aukin þannig
að þau verði að minnsta kosti
60% af skilaverði við upphaf
sláturtiðar og verði greidd' d
eftir þvi sem rekstrarkostnaö-
ur myndast.
b) Afurðalán miðist við það, að
sölufélögum verði gert kleift
að greiða minnst 90% af
grundvallarverði viö móttöku
afurðanna. Einnig að þau
hækki i samræmi við hækkun á
heildsöluverðmæti eins og það
kann að breytast á verðlags-
árinu.
c) Uppgjörslán nægi til aö greiða
bændum aö fullu grundvallar-
verð eins og það er í mai-
mánuöi á ári hverju.
d) Fóðurbirgðalán (hafislán)
miðist við það að tryggja næg-
ar birgðir fóöurvara á hafis-
svæöinu til 6 mánaða frá ára-
mótum.
II. Fundurinn telur háa vexti og
verðtryggingu á lánum til
landbúnaðarins mjög varhuga-
veröa vegna þeirra veröbólgu-
áhrifa sem hátt verðlag á bú-
vörum hefur. Telur fundurinn
óhæfu að haf^ verðtryggingu á
lánum til útihusabygginga og til
jarðakaupa.
III. Fundurinn vekur athygli á
hinni knýjandi þörf fjölda bænda
til að breyta lausaskuldum sínum
i föst lán til langs tima, og hefur
þessi þörf vaxið hröðum skrefum
1. a) Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1977 mótmælir
harðlega þeim hækkunum á tolli
og innflutningsgjöldum á jeppa-
bifreiðum til bænda sem komu til
fullrar álagningar á s.l. ári.
Jeppar eru nauðsynleg atvinnu-
tæki þeirra sem stunda landbún-
að. Þvi felur fundurinn stjórn
Stéttarsambandsins að vinna
ötullega að lækkun tolla og
innflutningsgjalda af jeppabif-
reiðum til bænda.
b) Þá leggur fundurinn rika
áherzlu á að tollar, vörugjald og
söluskattur af vélum til landbú-
aðar verði felidar niður svo
landbúnaöurinn fái notið sömu
kjara að þessu leyti og hinar
framleiðsluatvinnugreinarnar,
sjávarútvegur og iðnaður.
c) Fundurinn minnir á, aö nú
eru dráttarvélar með drifi á öll-
um hjólum tollaðar miklum mun
hærra en aðrar dráttarvélar og
ber að afnema það misrétti og
gera bændum með þvl móti kleift
að eignast þessi stórvirkutæki.
Framsögum. Einar Þorsteins-
son
2. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 samþykkir að fela
stjórn sambandsins og Fram-
leiðsluráði að láta kanna mögu-
leika á sölu heys úr landi og þá
helzt til Noregs og Grænlands,
eins fljótt og verða má”.
Framsögum. Einar Þorsteins-
son
3. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 hvetur stjórn þess til
að gangast fyrir könnun á út-
breiðslu atvinnusjúkdóma meðal
þess fólks sem starfar viö
landbúnað.”
4. „Aöalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 lýsir stuðningi viö
ályktun Búnaðarþings 1977 um
aukna fjölbreytni i atvinnulífi
sveitanna”.
Framsögum. Jón Guðbjörnsson
5. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 vitir harðlega þann
illgjarna áróöur, sem hafður er
uppi gegn landbúnaðinum I
vissum fjölmiðlum þar sem beitt
er jöfnum höndum staðlausum
fullyröingum, blekkingum og
rógi. Skorar fundurinn á fyrir-
svarsmenn bænda að mæta
þessum óhróðri hverju sinni af
fullri einurð og festu.
Jafnframt lýsir fundurinn þvi
yfir, að umræður og gagnrýni,
byggð á þekkingu og án fordóma,
er hverjum atvinnuvegi til góðs,
svo og þjóðinni I heild.”
Framsögum. Olafur Eggertsson.
5. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 felur stjórn Stéttar-
sambandsins að athuga hvort
koma megi á jöfnuði á ferða-
kostnaði héraðsdýralækna og þá
jafnframt fjárhagslegum stuðn-
ingi rikisvaldsins til þeirra
hluta”.
6. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 skorar á stjórn
Stéttarsambandsins og Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins aö
vinna að þvi að felldur verði niöur
söluskattur af kjöti og vatna-
fiski”.
7. „Fundurinn felur stjórn
Stéttarsambandsins að láta gera
athugun á hversu margar
dráttarvélar séu í notkun án
öryggisgrinda.
í öðru lagi hvort fáanlegar eru
öryggisgrindur sem henta, og i
framhaldi þess vinna að þvi að
bændur geti sameiginlega eða sitt
íhverju lagi orðið sér úti um þessi
mikilsverðu öryggistæki”.
Framsögumaður tillagna 5-7 er
Ólafur Eggertsson
8. „Fundurinn felur stjórn
Stéttarsambandsins að láta gera
itarlega athugun á hagkvæmni
þess og möguleikum á að
greiddar verði niður rekstrar-
vörur til búvöruframleiðslunnar I
stað núverandi fyrirkomulags á
niðurgreiðslum landbúnaða’rvara
til neytenda”.
9. „Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1977 samþykkir að fela
stjórninni að vinna áfram að
samningaumleitunum við trygg-
ingarfélögin um bætur á því búfé
sem ferst á vegum landsins.
Styður fundurinn samkomulags-
grundvöll þann, sem borizt hefur
frá Samvinnutryggingum og
Brunabótafélaginu”.
10. „Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1977 beinir þvi til
stjórnar Stéttarsambandsins að
vinna með öllum tiltækum
ráðum að þvi, að félagssamtök
bænda, svo sem búnaðar- og
ræktunarsamböndin, svo og ein-
stöku búnaðarfélögum verði ekki
gert skylt að greiða skatta af
rekstrartekjum og eignum. Jafn-
framt verði teknar til baka þær
kröfur sem þegar eru fram
komnar af skattayfirvöldum um
skattgreiðslur fyrrgreindra
aðila”.
11. „Fundurinn felur stjórn
Stéttarsambandsins að vinna að
þvi að jarðræktarframlög verði
greidd bændum fyrr en nú er og
helztsvo fljótt sem verða má eftir
að framkvæmd hefur verið tekin
út”.
Framsögum. Einar Þorsteinsson.
12. „Fundurinn felur stjórn sam-
bandsins að vinna að þvi, að
gerðar verði þær breytingar á
lögunum um framleiðsluráð land-
búnaðarins, að i stað þess hlut-
verks sem lögin ákveða
sex-manna-nefnd, komi beinir
samningar um verðlagningu
landbúnaðarvara milli Stéttar-
sambands bænda og ríkisstjórn-
arinnar”.
Framsögum. Helgi Jónsson.
13. „Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1977 beinir þvi til
stjórnar sambandsins, aö það
hlutist tilum að inn I frumvarp til
laga um vinnuaðstoö i sveitum,
sem samþykkt var á Búnaðar-
þingi 1977 (mál nr. 10) veröi tek-
inn ótvlræður fettur húsfreyju til
vinnuaðstoðar i veikinda- og
slysatilfellum”.
Framsögum. Böðvar Pálsson
14. „Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1977 telur, að tima-
bært sé fyrir bændasamtökin að
fara nú þegar að huga að land-
rými fyrir orlofsaðstööu fyrir
bændur og starfsfólk þeirra. Þvi
felur fundurinn stjórn sambands-
ins að taka þetta mál til athug-
unar og þá jafnframt meö hvaða
hætti mætti standa að uppbygg-
ingu á slikum svæðum”.
Framsögum. ’Jón Guðbjörnsson.