Tíminn - 02.09.1977, Page 12

Tíminn - 02.09.1977, Page 12
12 Föstudagur 2. september 1977 Alfreð Flóki og aðrir frægir menn Dagana 27. ágúst-4. september sýnir Alfreð Flóki myndir i Bogasal Þjóðminjasafnsins. Alls eru 31 mynd á sýn- ingu hans að þessu sinni, og virðist nú komin á einhversskon- ar hefð: að listamaður- inn haldi þar sýningar með vissu millibili. Alfreð Flóki Alfreö Flóki er einn þeirra listamanna, er ekki breytast neitt, a.m.k. svo hægt, aö viö skynjum þaöekki nema þá helzt tæknin hans, sem þegar er á mjög háu stigi. Hann er áfram skáld hins dularfulla, Edgar Allan Poe, dreginn upp úr svörtu bleki, enda likir í sjón. Myndefnin eru ávallt svipuö, Fæöing, Prinsinn, Elisabet Bathory, Djásniö, Leyndarmál- iö, Rökkurtafl, Nornaþing og Samsærið, og þeim fylgir yfir- lýsing.sem hljóöar á þessa leið: „Draumar okkar eru annaö lif. Það vekur mér ætið hroll aö fara innan um þessi filabeins eða hornlögðu hlið, sem skilja okkur og hina ósýnilegu veröld. Fyrstu andartök svefnsins eru i- mynd dauðans: dámóða lykur um hugsanir okkar og við getum alls ekki ákvarðaö augnablikið þegar sjálfið heldur i nýju formi áfram ætlunarverki tilverunn- ar. Smám saman birtir i óskýr- um neðanjarðarhellum og hinar bleiku, þungbúnu og hræringar- lausu verur, sem i undirheimum búa, greina sig frá skuggunum og nóttinni. Þá fær myndin lög- un, ný birta lýsir upp þessa svipi og gæðir þá hreyfingu. Hin and- lega veröld opnast okkur.” (Gérard de Nerval: ..Aurélia” ..úhjv.) Það sem vekur strax athygli okkar er aö listamaðurinn hefur tæknina á valdi sinu. Myndir hans eru, tæknilega séð, allar i sama gæðaflokki, nema hvað maöur hefur það á tilfinning- unni, að rauökrit og kol séu oft notuðá nýjan hátt, þar sem ekki er fylgt venjulegum ieikreglum, heldur sé beitt brögðum, og þarna sé raunverulega um past- elmyndir að ræða. Pappirinn leggur ekki til allt það hvita og kolið það svarta, heldur er „leiðrétt” með hvitri krit. Þetta dregur úr þvi meinlæta yfir- bragði, sem svo vel klæðir hinar dularfullu verur. Að baki hverri mynd liggur geysileg vinna, sem viröist lögð • fram af unaði og ljúfsárum trega. Listamaðurinn sjálfur er ó- spar á lofið. Ctnefnir sig tiðum sem snilling, og hann gefur út yfirlýsingar sem I engu gefa eft- ir Dr. Idi Amin og boxaranum fræga Muhamed Ali. Liklega er þetta að sumu leyti rétt. Ef veðja ætti á einhvern Islenzkan myndlistarmann til heims- frægöar þá kemur Alfreö Flóki vel til greina. Stórlistamenn heimsins veröa að sætta sig við það að vera alltaf aö gera sömu hlutina upp aftur, aftur og aftur, þviheimsfrægðin er haröur hús- bóndi, sem krefst fastmótaðra uppskrifta, en ekki nýjunga. Þau faðmlög eru banvæn eins og Byron myndi hafa orðað það. Félagið Myndkynning með Erro og fleirum. Félagið Myndkynning efnir nú öðru sinni til sýningar á verkum heimsþekktra grafik- listarmanna og meðal þeirra er Erro, sem nú er frægastur is- lenzkra myndlistarmanna, þeirra er enn eru á lifi. Það eru einkum þýzkir graf- iklistarmenn sem þarna eru sýndir, og höfum við séð sum þessara verka áður, og svo eru fólk í listum þarna verk eftir a.m.k. þrjá franska myndlistarmenn. Sýning Myndkynningar er viðburður, þótt segja megi sem svo, að grafikin hafi nú náð meiri fótfestu hér á landi en fyr- ir fáum árum siðan. Það sem einkum og sér i lagi hlýtur að vekja athygli okkar eru 20 myndir Erros, þar af þrjár nýjar serigrafiur, gerðar sérstaklega fyrir þessa sýningu og félagið. Serfgrafian er sérstök prent- aðferð, notuð til fjöl£öldunar á myndum og oft notuö af málur- um til þess að fjölfalda mál- verk. Þótt sérigrafian sé talin með grafik, og henni sé skipað þar á bekk, þá er ávallt nokkur keim- ur eftirprentunar af slikum verkum. A hinn bóginn sýna þessi verk okkur vel viðfangs- efni málara eins og Erros: og þótt sú spurning sé áleitin: hvað er eftir hvern? þá eru þetta þó óvenju áhrifamiklar myndir. 1 þeim er boðskapur, sem viðá á erindi — og þá á f jölföldun bet- ur við en eitt einasta eintak. Meðal listamanna, sem þarna eru kynntir eru margir sem hlotið hafa heimsfrægö fyrir verk sin, og það er sannarlega færeyska málarann Eyvind Mohr sýnd þarna, en þeirra hef- ur verið getið sérstaklega. Jónas Guðmundsson fengur af þessari sýningu fyrir alla sem láta sig myndlist varða. Auk þess eru málverk eftir Vörubifreið til sölu MAN, árgerð 1969, átta tonna, léttbyggð- ur, góður bíll, með drifi á öllum hjólum. Góðar sturtur og nýr pallur. Til sýnis hjá Karnbi, Hafnarbraut 10, Kópavogi. Upplýsingar f síma 4-39-22 og 4-00-86 Munið alþjóðlegt hjólparstarf Rauða krossins. Gironumer okkar ar 90000 RAOÐI KROSS ÍSLANDS Frá Flensborgarskóla Flensborgarskóla vantar stundakennara i dönsku. Upplýsingar gefur skólameistari i sima 5-05-60.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.