Tíminn - 02.09.1977, Qupperneq 23
Föstudagur 2. september 1977
23
flokksstarfið
Vestfirðingar
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Vestfjarðakjördæmi
verður haldið að Bjarkarlundi 3. og 4. september. Þingið hefst
laugardaginn 3. september kl. 14.
Auð hefðbundinna þingstarfa og stjórnmálaumræðna verður
gengið frá framboðslista fyrir næstu Alþingiskosningar. Gist-
ing verður fáanleg i Bjarkarlundi eða svefnpokapláss i ná-
grenninu.
Stjórn kjördæmisráösins
Héraðsmót framsóknarfélaganna i V-Skaftafellssýslu verður
haldinn i Leikskálum i Vik i Mýrdal laugardaginn 10. september
og hefst klukkan 21.00.
Avörp flytja Vilhjálmur Hjálmarsson menntam.ráðh. og
Jón Helgason alþm. Guðmundur Jónsson óperusöngvari
syngur, og hin frábæra eftirherma, og grinisti Jóhann
Briem skemmtir. Dansað til kl. ? Framsóknarfélögin.
Mið - Evrópuferð
Miðevrópuferð 3ja september. Þrjár vikur.
Komið til eftirfarandi staða: Sviss, ítaliu,
Austurrikis og Þýzkalands Notið þetta einstaka
tækifæri. Nánari upplýsingar á flokksskrif-
stofunni Rauðarárstig 18, simi 24480.
© Krafla
látið sitja á hakanum, meðan
gangsetningin var i undirbúningi.
Vonazt er til að þvi verki ljúki um
miðjan þennan mánuð og sama
máli gegnir um kolsýrukerfi i
sambandi við rafbúnað stöðvar-
innar. Athuganir verða gerðar á
þvi i þessari viku.
— Það tók ekki nema 12 tima að
náfóðringsskemmdinnii holu sjö,
og siðan hefur verið unnið að þvi
að undirbúa áð bora út kalkstífl-
una, sem er um það bil á 800
metra dýpi, sagði Einar. — Þegar
þvi verki er lokið á að reyna að
draga úr henni leiðarann. Það
sem viðerum aðgera með þessu
er að fá svar við spurningu um
hvort útfellingin er utan fóðr-
ingarinnar, þ.e. i berginu og má
sjá það á leiðaranum þegar hann
kemurupp. Sé það tilfellið, að út-
fellingin er i berginu, getur við-
gerð orðið erfið ðg raunar ill-
möguleg.
Einarsagði, að nú væri verið að
taka afstöðu til þess hvort nauð-
synlegt væri talið að „skerma af ”
efsta svæðið, en það er rikara af
kalki en hið neðra. Sérfræðingar
hafa mikinn áhuga á að svo verði
gert. M.a. var það álit. Gunnars
Böðvarssonar. Verði það gert
mun útfellingin verða viðráðan-
legri og holurnar auðveldari við-
ureignar.
Kennarar
héimilisfræðina svo sem hibýla-
fræði og umönnun barna. Kenn-
ari sem e.t.v. hefur kennt ræst-
ingu og matseld, hefur venju-
lega ekki lært hvernig kenna á
þessar greinar þegar hann bjó
sig undir starfið á sinum tima.
Stærstu námskeiðin i sumar
voru i handmennt og samfélags-
fræði. Tvö námskeið voru haldin
i báðu, þessum greinum, og
voru um 60 nemendur i hverju
þeirra, 120 i hvorri grein.
Kennaraháskóli Islands hefur
gengizt fyrir slikum námskeið-
um frá 1974, —En þetta erekki
eina fræðslustarfsemin, sem við
höfum sagði Pálina Jónsdóttir.
Við höfum haft bréfaskóla i
tveimur námsgreinum og lauk
honum með stuttum námskeið-
um. Einnig eru haldnir fræðslu-
fundir úti i fræðsluhéruðunum á
starfstima skólanna. Fyrir
þeim er lika mikill áhugi meðal
kennara. Virðast þeir ánægöir
með að fá stutta og hnitmiðaða
hjálp og geta siðan farið beint út
i starfið og hagnýtt sér hana
þar. ,
© Veiðihornið
veiðzt i ánni, en þyngri hafa þeir
ekki veiðzt nú i sumar. Mikið
hefur veiðzt af sex og átta punda
löxum i sumar.
— Það er verulegur fiskur i
ánni, en eitthvað minna um nýj-
ar göngur, sagði Sigurjón, —
Vatnsmagn hefur verið gott i
sumar. Áin er vatnslitil, nema
hvað hún varð mjög litil um
miðjanágúst, og þá veiddu tveir
hópar mjög litið. Vatnsmiðlunin
i Arnarvatni hefur reynztvel, en
sú miðlun var byggð fyrir ein-
um fjorum árum. Siðastliðin
átta ár hefur veiðifélagið Vopni
á Vopnafirði verið með ána, en
samningar renna út þann 10.
september. Ekki er ennþá ráðið
með framhaldið, en athugun
stendur yfir á framhaldssamn-
ingi.
Flókadalsá
— Veiðin hér hefur verið
heldurdræm, og hún hefur verið
svo i sumar, sagöi Ingvar
Ingvarsson á Múlastöðum — Ég
hef ekki nákvæmar tölur yfir
veiðina, en gera má ráð fyrir
þvi að hún sé hátt á þriðja
hundruð laxar. Það fór að rigna
á laugardaginn og þá kom svo-
litið lifi ána,en þaö er dauft yfir
henni i dag. Veiðin er mun
minni i sumar en i fyrrasumar,
og ég gæti trúað þvi að munaði
hundrað löxum. Hins vegar var
það sumar talið dauft. Hvað
veldur laxleysinu veit ég ekki,
en það var litill snjór i f jöllum I
vor og þvi litið vatn i ánni. Þá er
brúargerðniður i firði sem sum-
ir telja að fæli iaxinn frá.
Laxinn hefur hins vegar verið
með vænsta móti og taldi Ingv-
ar að meðaltalið yrði ágætt. Sá
stærsti.semhefur fengizt i sum-
ar, vóg 15 pund og i vor þegar
laxinn byrjaði að ganga var
mikið um mjög vænan lax. Eng-
inn lax hefur gengiö I sumar ef t-
irmiðjan júli, a.m.k. hefur ekki
orðið vart við neinn lúsugan lax.
Veiðitima i ánni er lokið þann
18. september. áþ.
O Miðstjórn ASÍ
semi eða einkaþarfa eigenda.
3. Hvaða áhrif yfirborganir og
undirborðsgreiðslur fyrir hrá-
efni hefur haft á rekstur fyrir-
tækjanna.
4. Hvort sölukerfi fiskiðnaöarins
skilar fyrirtækjunum réttu
raunverulegu verði, eða hvort
erlendar fjárfestingar þeirra
og rekstur taka til sin umtals-
verðan hluta þess.
3 Hvort draga megi úr rekstrar
kostnaði iyrirtækjanna með
bættum skilyrðum að þvi er
snertir t.d. raforkuverð, vexti
og önnur lánakjör.
4.. Hvort umrasddur vandi fisk-
iönaðarins er aðallega stað-
bundinn og hvorthann verði þvi
helzt leystur I samræmi við
það.
7. Hvort nákvæmur samanburður
á rekstrifrystihúsa á Islandi og
t.d. i Færeyjum leiði I ljós að
launakjör verkafólks hérlendis
geti talizt orsök þess vanda,
sem um er að ræða
Miðstjórn Alþýðusambandsins
álitur,°að meðan framangreind-
um spurningum og fleiri sem
skipta máli, hefur ekki verið
svarað með fuilnægjandi hætti,
opinberi þeir, sem nú bera verka-
lýðssamtökin sökum, aðeins
fjandskap sinn við verkafólkið i
landinu og samtök þess. Ber að
vita að slíkar órökstuddar sakar-
giftir skuli fram bornar^ af mál-
gögnum svokallaðra „ábyrgra”
aðila i stjórnsýslunni.
Miðstjórninni virðist augljóst,
að með þeim áróðri, sem nú er
rekinn gegn verkalýðshreyfing-
unni i framangreinda átt, sé haf-
inn undirbúningur að kjaraskerö-
ingu og hugsanlegri riftingu ný-
gerðra kjarasamninga I einu eða
öðru formi. Miðstjórnin varar al-
varlega við öllum slikum fyrir-
ætlunum og heitir á verkalýðs-
félögin og allan verkalýö að vera
vel á verði um hagsmuni sfna, og
að vera viðbúinn til að vernda
þær kjarabætur, sem um var
samið við atvinnurekendur og
rikisstjórn I júnimánuði, sl., með
öllum tiltækum ráðum.
o Hagstofan
að búast þvi að litlar iíkur eru til
að bæði hjón nái hundrað ára
aldri eða meira.
Hér verður staðar numið en af
miklu efni er að taka i Hagtiðind-
um, hvort sem menn hafa áhuga
á þvi að glugga i verzlunarskýrsl-
ur eða heimildir um mannfjölda
og það, hvernig islenzka þjóðin
skiptist i aldursflokka eða þá hitt,
hvernig mannfólkið flokkast
niður með tilliti til kyns og hjú-
skaparstéttar.
© íþróttir
skora sem flest mörk. — Það vill
oft fara svo, þegar þannig er i
pottinn búið að mörkin láta á sér
standa. Leikmennirnir verða of
ákafir upp við markið, sagði
Tony Knapp.
Belgiumenn ekkert á
við Hollendinga
— Ég hef trú á þvi að
strákarnir nái að velgja Belgfu-
mönnum vel undir uggum. Þeir
eiga að geta lagt Belgiumenn að
velli, ef þeir ná eins góðum leik
eins og i siðari hálfleik gegn
Hollendingum, en þá léku þeir
eins og þeir gera bezt.
Meiðsli i herbúðum ís-
lands
Knapp sagði að nokkrir leik-
menn islenzka liðsins ættu við
smávægileg meiðsli að striða. —
Ég held þó ekki, að þau komi i
veg fyrir að þessir menn geti
leikið á morgun. Knapp sagði,
að Guðgeir Leifsson hefði fengið
skurð á vinstri fót þegar brotið
var gróflega á honum i leiknum
gegn Hollandi. Þá eiga þeir
Gisli Torfason og Janus Guð-
laugsson einnig við smávægileg
meiðsl að striða. Fengu þeir
spörk eins og Guðgeir. SOS
Lítil
loðnuveiði
KEJ-Reykjavik — Þegar Tim-
inn hafði samband við Loðnu-
nefnd i gær höfðu 21 skipt til-
kynnt samtals rúmlega 6000
tonna afla. Um sama leyti var
farið að bræla á loðnumiðun-
um og bátarnir flestir á land-
leið. Virðist sem litið næöi ætli
að gefast við loðnuveiðarnar
þessa dagana, en þó er von að
úr rætist.
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Austurbrún
Akurgerði
Miðbraut
Melabraut
Hraunbraut
Skjólin
Lambastaða-
hverfi
SÍAAI 86-300
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreið og
jeppa bifreið.
Ennfremur 1 nokkrar ógangfærar bifreið-
ar er verða sýndar að Grensásveg 9,
þriðjudaginn 6. september kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
SALA VARNALIÐSEIGNA