Tíminn - 18.10.1977, Síða 13

Tíminn - 18.10.1977, Síða 13
12 Þriðjudagur 18. október 1977 Þriðjudagur 18. október 1977 13 Mikill vöxtur í lauf- og barrtrjám á Hallormsstað Stórir könglar af sveigfuru, úr þeim á að fást talsvert magn af þroskuðu fræi. Myndir: Sigurður Blöndal. Aspirnar sem gróðursettar voru 1970 og eru nú orðnar 6,50 m. Nýmörk af siberisku lerki. Þennan skóg verður hægt að nytja eftir 30 ár. Óvenjulega mikill vöxtur hef- ur mælst i skógi viða um land á þessu hausti, en siðastliðið sum- ar og sumrin þar á undan hefur tiðarfar verið trjágróðri einkar hagstætt, eins og öðrum plönt- um. Timinn hafði i þessu sam- bandi tal af Sigurði Blöndal skógræktarstjóra og Jóni Lofts- syni skógfræðingi á Hallorms- stað. Vöxturinn grundvaliaður i fyrrasumar Jón Loftsson sagði, að góður vöxtur hefði verið i öllum skóg- inum i sumar. Enn hefði ekki farið fram nein allsherjarmæl- ing, en einstakir sprotar á lerki hefðu mælst 70-80 cm. langir. Jón sagði, að þessi mikli vöxtur væri ekki aðeins að þakka góðri tið i sumar, heldur væri þvi svo farið, að vöxtur hvert ár væri grundvallaður sumarið á und- an. Trjánum getur nú stafað hætta af frosti, þvi að ef mikið frost kemur snögglega getur sumt af þessum löngu sprotum kaliö. Þegar Jón var spurður, hvort trjágróður á Islandi yxi mun hægar en á hinum Norðurlönd- unum, sagði hann, að i eins hag- stæðri tið og hér hefði rikt und- anfarin ár væri trjáspretta hér jafngóð og annars staðar. Tré felld í giröingar- staura Enn sem komið er, eru tré til nytja aðallega felld á einu svæði á Hallormsstað, i Guttorms- lundi. Þar eru felld og not- uð i girðingarstaura, sagði Jón. Sigurður Blöndal kvaðst ætla, að framhald gæti orðið á góðum vexti skógar á Hallormsstað, ef ekki kólnaði verulega i veðri og meðalárshiti hrapaði niður eins og á árunum 1964-68, sem kölluð hafa verið „litil isöld”. Ef næstu sumur verða ekki kaldari en i meðal árferði má búast við, að trén lengist um 40-60 sm. Fyrsti eiginlegi aspar- skógur hér á landi Sigurður sagði, að 1970 hefði verið gróðursettur asparskógur á um 0,4 ha lands á Hallorms- stað. Plönturnar voru þá rúmir 2m á hæð, en sökkt niður um 30- 40 sm við gróðursetninguna. 1 fyrravetur mældist meðalhæð aspanna 5,90 m, en er nú vart undir 6,50 m að meðaltali. Þetta er fyrsti skógur af Alaskaösp á Islandi, og um leið fyrsti eigin- legi asparskógurinn. Meðal- lengd árssprota var i fyrra 90 cm og er ekki minni nú. Lengsti sprotinn, sem mældur var i fyrra, var 110 sm, sem er geysi- góður vöxtur, enda er Alaska- inu var plantað i sé i landi Haf- ursár og Mjóaness, alls um fjörutiu hektarar. Gróðursett var i afar rýrt land, þursa- skeggsmó, sem orðinn var út- pindur af aldalangri ofbeit. Engin innflutt nytjaplanta önn- ur er lerki getur vaxið i svo mögrum jarðvegi án áburðar. Sigurður gerði ráð fyrir, að um 2005 verði hægt að fletta borð- viði úr þessum lerkiskógi. Lerki vex hraðast milli 10-30 ára ald- urs og þvi á þessi skógur bezta vaxtarskeiðið framundan. ösp langhraðvaxnasta tré, sem komið hefur til landsins. Lerki flett í borðviö um næstu aldamót. A nýmörk af siberisku lerki frá Arkangelsk, sem gróðursett var á Hallormsstað 1968, eru trén nú komin upp i 2-3 m hæð. Lerkið hefur þvi vaxið i 12 sum- ur, og náð góðum þroska. Sig- urður sagði, að svæðiö sem lerk- Verulegt magn köngla af sveigfuru. Nú hefur i fyrsta skipti fengizt verulegt magn köngla af sveig- furu (Pinus flexilis), sem gróð- ursett var á Hallormsstað 1937. Sveigfura er ættuð vestan úr Klettafjöllum og er að sögn Sig- urðar ákaflega skrautleg furu- tegund. Hún er notuð sem garð- tré og i jólagreinar. Könglarnir sem nú fengust eiga að vera með þroskuðu fræi. Eins góð spretta i skógi hefur eki mælzt siðan 1959, en nú virð- ist sumarhitinn og veðráttan yf- irleitt vera komin i gott lag. — SKJ. Niutiu sentimetra vaxtarsproti á 10 ára gömlu sitkagreni. Myndir: Sigurður Blöndal. Siberiskt lerki I islenskri mold. Trén eru 2-3 m há þrátt fyrir rýran jarðveg. islenzkt birki i Arnaldsstaðaskógi I Suðurdal i Fljótsdal. Trén standa á hjöllum i snarbrattri hlið. '/ v''f'£í W8m r • ■ v •- ifcKÍ? • 'S'stí'/V-i/' s '/ Xj ' '\ "/ 's-/á''/'9xáý///v/téí' Skógurinn sem er að færa þetta hús Ikaf er þrjátiu ára, en i honum er birki, ösp og lerki. Lerkið fremst á myndinni var gróðursett I hreinan sand 1963, nú er það orðið 4-5 metrar á hæð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.