Tíminn - 20.10.1977, Síða 3
Fimmtudagur 20. október 1977
3
áþ-Rvik. Þaö var litið um að
vera i flugturninum, er Tima-
menn lögðu þangað leið sina i
gær. í deild þeirri er sér um
utanlandsflug sat aðeins einn
flugumferðarstjóri við af-
greiðslu, en sæti eru fyrir fimm
menn. Sömu sögu var að segja
um deildina er sér um innan-
landsflug, þar sátu tveir flug-
umferðarstjórar og höfðu það
ósköp náðugt. Eðlilega voru þar
radarar i gangi og voru okkur
sýndar flugvélar er voru á flugi
yfir landið en þær drógu á eftir
sér hala einn mikinn. En flug-
vélar i innanlandsflugi komu
fram eins og punktur. Starfsem-
in er öll i lágmarki og er engu
sinnt nema að undanþága hafi
fengist fyrir ferðinni.
— Yfirleitt verða flug-
mennirnir að fljúga i 1000 til
1500 feta hæð, en eins og veðrið
er i dag, má búast við að hæðin
sé eitthvað minni, sagði Guð-
mundur Matthiasson, deildar-
stjóri flugumferðarþjónustu, er
við inntum hann eftir þvi
hvernig innanlandsflugiö gengi.
—Sem betur fer hafa skilyrði til
sjónflugs verið góð undanfarna
daga og umferðin þvi gengið
vel. En ef allt væri með felldu
myndu t.d. Vængir og Flugfélag
tslands fljúga með blindflugs-
heimild, og hið sama gildir um
þá, sem t.d. fljúga áætlunar-
leiðir.
Islenzka flugumsjónarsvæðið
nær yfir gifurlega stórt svæði.
Að norðan liggur það við pólinn,
þá fer þaö vestur fyrir Græn-
land og að sunnan um 200 milur
út i haf. Svæðið er með þeim
stærstu i heiminum.
— Sú spurning kom eitt sinn
upp, hvort ekki væri rétt að
sameina svæði og gera þau
færri og stærri, sagði Guðmund-
ur. — En það var áður en is-
lenzka svæðið var stækkað.
Fyrir stækkun náði það t. d. að-
eins að austurströnd Græn-
lands. Til stóð að reka flugum-
ferðarstjórnina frá Bretlandi,
en siðan var gerð á þessu hag-
kvæmnisáætlun og þá kom i
ljós, að það myndi vera betra að
reka flugumferðarstjórnina frá
íslandi.
Uröu að hætta við flug til
Stykkishólms.
— Það hefur gengið erfiðlega
að halda uppi flugi núna, þar
sem ekki er leyft að fljúga
annað en sjónflug, sagði Jóhann
Kristinsson aðstoðarflugmaður
hjá Vængjum, er Timinn ræddi
við hann i — í gær flugum við til
Blönduóss, Siglufjarðar, Mý-
vatns, Gjögurs, Hólmavlkur og
Bildudals. En i morgun
ætluðum við að fara til Stykkis-
hólms, en urðum frá að hverfa.
Eftir um það bil tiu minútur ætl-
Skilyrði til sjón-
flugs hafa verið
góð að undanförnu
Guðmundur Matthiasson og Ernst Glslason varðstjóri ræða við einn af flugumferðarstjórunum.
Timamyndir: Róbert
um við að fara til Vestfjarða og
það eru nokkuð góðar vonir til
þess, að það flug heppnist.
Þar sem aðeins er leyft að
fljúga sjónflug, verða velarnar
að halda sig i 1000 til 1500 feta
hæð, en ef allt væri eðlilegt væri
flogið blindflug. Það eru nær
eingöngu einkaflugmenn sem
ólafur Finnsson. Hann var að
tefla skák er okkur bar að garði.
fljúga sjónflug, enda eru vega-
lengdir skammar. Farþegafjöld-
inn hjá Vængjum er tiltölulega
litill og er ástæðan einkum sú að
fólk treystir ekki fullkomlega að
áætlun standist. Hinsvegar var
slæðingur af fólki i biðsal
Vængja er við litum þar inn og
var mannskapurinn greinilega
Jóhann Kristinsson aðstoðar
flugmaður hjá Vængjum.
ákveðinn i að komast vestur.
— Það er nokkuð erfitt að
fljúga og treysta á að komast til
ákvörðunarstaðarins sagði Jó-
hann. — Við fáum ekki veður-
fréttir nema frá Veðurstof'.nni.
Það er ekki hægt aö hringja á
flugvellina til að fá fréttir, þar
sem starfsmenn þar eru rikis-
Leifur Magnússon vara-flug-
málastjóri.
starfsmenn. Það verður þvi að
fá fréttir frá mönnum, sem ekkí
hafa hlotið neina þjálfun til að
gefa slikar upplýsingar. Verk-
fallið kemur sér aö sjálfsögðu
illa þvi að ef blindflug hefði
verið leyft heföum við eflaust
komist á áætlunarstaði og ef
veðurfréttir hefðu verið eðlileg-
ar, væru ekki farnar fýluferðir.
Flugumferð um
helmingur þess sem ger-
ist og gengur
— Umferðin, sem hefur farið I
gegnum flugstjórnarsvæðið og
ekki þurft að nota islenzka flug-
velli, hefur gengið sæmilega,
sagði Leifur Magnússon vara-
flugmálastjóri . — Áöur en
verkfallið hófst var flugfélögum
sent svokallað Notam skeyti,
þar sem var tilkynnt aö flugum-
ferð yrði takmörkuð. Það má
búast við þvi að flugumferð sé
um það bil helmingur af þvi sem
gengur og gerist. Hægagangur
brezkra aðstoðarflugumferðar-
stjóra hefur lika haft þau áhrif,
að umferðin gengur ekki eins
greiðlega og ef aðeins Islenzku
aðstoöarmennirnir væru i verk-
falli. Flugfélög hafa orðið aö
fara suður fyrir svæðið og eins
norður fyrir það en sennilega
hafa þau dregið úr ferðum og
sameinað i vélar.
tslenzka rikið hefur tekiö að
sér að sinna flugumferð á
Norður-Atlantshafssvæðinu og
að þessari þjónustu standa þrir
aðilar. Það er flugmálastjórn,
Veðurstofan og Póstur og Simi.
Hjá Flugmálastjórn eru tiu að-
stoðarmenn i flugstjórnarmiö-
stöð, en hjá Pósti og Sima er
Gufunesstöðin lömuð að nokkru
leyti.
— Er það rétt að aðstoðar-
maðurinn, sem hefur leyfi til að
starfa, vinni einkum að flugum-
ferð sem er á vegum hersins?
— Ekki bara fyrir herinn.
Málið er þannig aö flugstjórnar-
miðstöðin sinnir að sjálfsögðu
öllu flugi sem fer um svæðið. Og
á undanförnum árum hefur um
það bil 20% af öllu flugi verið á
vegum hersins. Stofnunin starf-
ar að mestu eftir alþjóðareglum
(ICAO), og þessar reglur gilda
nær einungis fyrir borgaralegt
flug. I stofnskrá ICAO er grein
sem undanþiggur hernaöarlegt
flug að fara eftir reglunum. Þvi
er það, að eftir þessari reglu og
Framhald á bls. 19.
Lögreglan er
ekki „óvirk”
áþ-Reykjavik. t viðtali iblaðinu I
gær, við tvo lögreglumenn á mið-
borgarstöð lögreglu, komu upp
fáeinatriði, sem orka tvimælis og
þurfa nánari skýringa viö. Þess
skal getið að viötalið var nokkru
lengra, en á prenti birtist og þaö,
sem fellt var niður, olli þessum
misskilningi.
Guðmundur Ami Stefánsson,
lögreglumaður, ræddi um
„Ovirkt eftirlit” lögreglunnar.
Skýrði hann þetta að auki þannig,
að lögreglan gæti vart talist virk
á meðan gangandi lögreglumenn
væru ekki á ferli og t.d. sektarað-
gerðum þar með ekki beitt eins
stift og ella. Það var þó ekki átt
við, að lögreglan væri óvirk i
þeirri merkingu, aö horft væri
upp á lögbrot án aðgerða af lög-
reglunnar hálfu.
Einnig máttiskilja af viðtalinu,
að lögreglumenn horfðu almennt
á óða ökumenn aka um borgina
án þess að hreyfa legg né lið.
Þarna hefði átt að koma til við-
bótaraðlögð var rik áherzla á, að
óeinkennisklæddir (og utan
vinnu) horfðu lögreglumenn upp
á alvarlegt brot, og þá án þess að
geta gert neitt afgerandi, annað
enaðtilkynna brotið. Þá væri það
ári hart að geta ekki komið i veg
fyrir þessi brot með fyrirbyggj-
andi aðgerðum, eins og öflugu
eftirliti. Þá sagði Guðmundur
einnig, að mikið af fólki hefði
komið á lögreglustöðvarnar og
klagað yfir brotlegum ökumönn-
um. Þessu hefði að sjálfsögðu
verið reynt að sinna eins og kost-
ur væri, en það segir sig sjálft, að
erfitt er að hafa hendur i hári
brotlegra ökumanna, nema með
öflugu eftirliti.
Þessi atriði eru ef til vill ekki
veigamikil i sjálfu sér, en nauð-
synlegt þótti að fyrirbyggja þann
misskilning, að lögreglan hafi
verið bókstaflega aðgerðarlaus
undanfarna daga.
Deilt um græðlinga, sem
liggja undir skemmdum
GV-Reykjavik. Kjaradeilunefnd
hefur i bréfi dagsettu 18. okt.
heimilað tollafgreiðslu á
græðlingum að beiðni dánarbús
Gunnars Björnssonar i Hvera-
gerðiá þeirri forsendu að varzla
og viðhald meiriháttar verð-
mæta falli undir þau öryggis-
sjónarmið sem henni ber að
starfa eftir. Hefur nefndin
gengið úr skugga um með við-
tali við garðyrkjufræðing að
sending þessi liggur undir
skemmdum og þarsem um um-
talsvert eignartjón yrði að ræöa
telur nefndin ákvörðun um toll-
afgreiðslu sendingarinnar vera
i sinum verkahring.
1 fréttatilkynningu frá BSRB
er þessu harðlega mótmælt og
þar segir, að þessi afstaða
kjaradeilunefndar sé hrein lög-
leysa og þar fari nefndin langt
út fyrir þann verkahring, sem
henni er afmarkaöur i 26. gr.
laga 29/1976. Um þá grein
stendur i greinagerö með lögun-
um: „Hér er gert ráö fyrir að
verkfallsrétti verði þau tak-
mörk sett að öryggi og heilsu
fólks verði ekki stefnt i hættu.”
Hér er starfsvettvangur kjara-
deilunefndar skýrt afmarkaður.
Þvi er ljóst aö um er að ræða
valdþurrð, þar sem kjaradeilu-
nefnd heimilar tollafgreiöslu
blóma eða plöntusendingar.
Slikt getur á engan háttvarðaö
lif og heiisu manna. — segir I
fréttinni frá BSRB.
Engin vegaheflun verkfalls
GV-ReykjavIk. 1 upphafi verk-
falls stöðvaðist starfsemi Vega-
gerðarinnar að mestu, þvi allir
rekstrarstjórar og langflestir,
sem stjórna vegavinnu út um
landið, eru i verkfalli, sagði Hjör-
leifur óiafsson, sem vinnur hjá
Vegaeftirliti Vegagerðarinnar, I
viðtali við Timann I gær.
Vegagerðin er rikisrekin, en þó
er það ekki nema hluti starfs-
manna, sem eru opinberir starfs-
menn og þiggja laun samkvæmt
launasamningum BSRB. Auk
þeirra vinna hjá Vegagerðinni
fólk i ýmsum stéttarfélögum.
Þó að litill hluti starfsmanna
Vegargerðarinnar séu i verkfalli.
stöðvast framkvæmdir að mestu,
þvi að verkstjórar eru i verkfalli.
Lagning vega, vegaheflun og
önnur þjónusta við vegfarendur
liggur niður að mestu, einnig
Framhald á bls. 19.