Tíminn - 20.10.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.10.1977, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 20. október 1977 13 Ný barna- bók eftir Astrid Lindgren Lina langsokkur og Emil I Katt- hoiti eru frægar bækur eftir Astrid Lindgren. Nd hefur Mál og menning gefiö út nýja barnabók eftir hana, Elsku Mió minn, meö styrk frá norræna þýöingarsjóön- um. Þessi nýja saga hefst með þess- um oröum: „Hlustaöi nokkur á útvarp 15. október i fyrra? Heyröi nokkur, að auglýst var eftir týndum dreng? Auglýsingin var svona: Lögreglan I Stokkhólmi lýsir eftir BUa Vilhjálm Ólasyni, niu ára, sem hvarf frá heimili sinu, UK>landsgötu 13, klukkan 18 i fyrradag. Búi Vilhjálmur Ólason er ljóshæröur og bláeygur. Hann var klæddur brúnum stuttbuxum, grárri peysu og meö rauöa koll- húfu. Þeir, sem geta veitt upplýs- ingar um Búa Vilhjálm Ólason, eru beönir aö hafa samband viö rannsóknarlögregluna. Já, þaö var svona, sem þau auglýstu. En enginn gat veitt upplýsingar um Búa Vilhjálm Ólason. Hann er horfinn. Enginn fékk nokkru sinni aö vita, hvaö um hann haföi oröiö....” Átta krossaðir Forseti tslands hefir i dag sæmt eftirtalda islenzka rikisborgara heiöursmerki hinnar islenzku fálkaoröu: Benedikt Gröndal, fv. formann Vinnuveitendasambands íslands, stórriddarakrossi, fyrir störf aö félagsmálum, Einar Bjarnason, prófessor, stórriddarakrossi, fyr- ir embættis- og fræöslustörf, Gunnar Guöbjartsson, formann Stéttarsambands bænda, Hjarö- arfelli, Snæfellsnesi, riddara- krossi, fyrir störf aö landbúnaö- armálum, Halldór Þorsteinsson, útgeröarmann, Vörum i Garöi, Geröahreppi, riddarakrossi, fyrir störf aö sjávarútvegsmálum, Ingólf Guöbrandsson, forstjóra, riddarakrossi, fyrir störf aö tón- listarmálum, Jóhann Gunnar Ólafsson, fv. bæjarfógeta, stór- riddarakrossi, fyrir embættis- og fræöistörf, Pál Þorsteinsson, fv. alþingismann, Hnappavöllum, öræfum, riddarakrossi, fyrir störf aö félagsmálum og Þorvald Skúlason, listmálara, stórridd- arakrossi, fyrir myndlistarstörf. Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla t David Graham Phillips: j 43 SUSANNA LENOX (jánHelgason jakkann svo að þér vektuð síður athygli þótt einhver vegfarandi kynni að verða yðar var". t „Þér eruðsvei mér hugkvæmur", hrópaði Susanna og hristu jakkann úr brotunum. Nú raðaði hann matnum á dúkinn. Hann skar í sundur einn kjúklinginn, opnaði glasið, sem aldinmaukið var í, og hagræddi brauðinu, grænmetinuog smjörinu. „Og nú byrjum við", sagði hann. Sólin var sigin að baki hæðanna í norðvestri. Fuglarnir voru byrjaðir kvöldsöngva sína. Vindblær þyrlaði til lausum lokkum í dökku hrokknu hári hennar, um leið og hann þaut framhjá. Og þau sátu með krosslagða fætur sitt hvorum megin við dúkinn og hlógu og gerðu að gamni sinu og mötuðust. Loks tóku stjörnurnar að blika á hinni óravíðu, ópalbleiku festingu himinsins. Þegar þau höfðu matazt, hallaði hún sér á olnbogann og hlustaði á hann segja frá lífi sínu meðal blaðamannanna í Cincinnati. Rökkrið hafði færzt yf ir og varð að dumbrauðu myrkri. „ Við leggjum af stað, þegar tunglið kemur upp", sagði^ hans. „Þér getið setið fyrir minnsta kosti eitthvað leiðarinnar". Sársauki skilnaðarstundarinnar fór að gera vart við sig i huga hennar. Ó, hve allt yrði tómlegt, þegar hann væri farinn. „Éq hef ekki saqt vður, hvað éq heiti", mælti hún. Steinsteypunámskeið Dagana 1. til 10. nóvember n.k. verður haldið námskeið um útreikninga og hönn- un steinsteypuvirkja fyrir starfandi verk- fræðinga, tæknifræðinga og nemendur á siðasta námsári i byggingarverkfræði. Ingeniördocent Ervin Poulsen flytur fyr- irlestra og stjórnar æfingum á námskeið- inu. Prófessor Július Sólnes hefur skipu- lagt námskeiðið og verður Ervin Poulsen til aðstoðar. Hann veitir og nánari upplýs- ingar um námskeiðið i sima 25088. Dagskrá Þriðjudagur 1. nóvember kl. 17-19. Forsendur útreikninga og staölar. Miðvikudagur 2. nóvember kl. 17-19. Beygjubrotþol, aöferö A. Fimmtudagur 3. nóvember kl. 17-19. Beygjubrotþol, aöferö B. Föstudagur 4. nóvember kl. 17-19. Súlur og bitasúlur, aöferö I. Laugardagur 5. nóvember kl. 10-12. Bjálkasúlur, aöferö II. Mánudagur 7. nóvember kl. 17-19. Bjálkasúlur undir skökku álagi. Þriðjudagur 8. nóvember kl. 17-19. Aöferö Vianellos. Miðvikudagur 9. nóvember kl. 17-19. Kiknun ramma. Fimmtudagur 10. nóvember. kl. 17-19. Tölfræöilegt gæöaeftirlit meö steinsteypu. Væntanlegir þátttakendur eru beönir um aö tilkynna þátt- töku sina i námskeiöinu til skrifstofu Verkfræöingafélags tslands, sfmi 19717, sem fyrst. Fjöldi þátttakenda er tak- markaöur viö 40, og er þvf áríöandi aö láta skrá þátttöku sina og greiöa þátttökugjald, kr. 10.000,-, til skrifstofu VFl, Brautarhoiti 20, Reykjavik. Aðlokum er vakin athygli á háskólafyrirlestri um sprung- ur I steinsteypu, sem Ervin Poulsen mun flytja þriðjudag- inn 1. nóvemberkl. 15:15iTjarnarbæ (gamla Tjarnarbió). öllur er heimill aðgangur. Námskeiðið sjálft mun að öðru jöfnu fara fram i stofu 158 i húsi Verkfræði- og raunvisindadeildar við Hjarðarhaga. F.h. Verkfræðingafélags Islands og Verkfræði- og raunvisindadeildar H.l. Hinrik Guðmundsson, frkv.stj. „ Ég hef sagt yður hvað ég heiti — Roderick Spenser — með s, ekki c". „Ég man það", svaraði hún. „Ég gleymi því aldrei... Ég heiti Súsanna Lenox." „Hvað var það áður......?" Hann þagnaði snögglega. „Hvað það var áður?" Hún hugsaði sig um og reyndi að átta sig á þögn hans. „Ó", sagði hún með raddblæ, sem kom honum til þess að sjá eftir þeirri heimsku sinni að haf a minnt hana á þetta. „ Ég heiti Súsanna Lenox — og mun alltaf heita það. Lenox — það var ættarnafn móður minnar". Hún hikaði við, en ákvaðað segja allt af létta. Hún bætti því við af talsverðu stærilæti: „Móðir min tók ekki í mál að giftast neinum manni. Það segir, að hún haf i verið dregin á tálar, en nú skil ég, hvernig í öllu liggur. Hún vildi ekki leggjast svo lágt að giftast." Spenser velti vöngum yfir þessu en skildi ekki, hvað hún var að fara. Hann fann, að hann mátti ekki spyrja meira. !, Ég þarf ekki annað en líta f raman í yður til þess aðsannfærast um, að móðir yðar hefur verið góð kona", sagði hann. Oq til þess að leiða talið af þessari háska- samlegu braut vék hann aftur að ferðalaginu. „Og — hvað ferðalagi yðar viðvíkur, þá hef ég hugsað um, hvað skynsamlegt sé fyrir yður". „Þér ætlið að hjálpa mér?" sagði hún fil þess áð taká af öll tvímæli. „Hjálpa yður?" sagði hann innilega. „Eins og ég get. Nú skuluð þér hlusta á ráðagerð mína. Þér segist ekki geta farið með póstbátnum?" „Fólk þekkti mig. Ég — ég er f rá Sutherland". „Þér treystið mér — til fulls?". „Já, það geri ég sannarlega". „Hlustið þá á mig — eins og ég væri bróðir yðar. Viljið þér gera það?" „ Já". „Þér farið með mér til Cincinnati. Ég fer með yður í Félagsheimilið, þar sem ég bý, og segi, aðþér séuð systir mín. Og ég útvega yður vinnu. Svo — svo getið þér sjálf séð yður farborða úr því". „En þetta yrði svo mikil fyrirhöfn". „Ekki meiri heldur en aðrir tóku á sig mín vegna, þegar ég lagði út í líf ið með tvær hendur tómar". Þegar hún anzaði þessu ekki, spurði hann: „Hvað eruð þér að hugsa um. Ég sé varla framan í yður í þessu stjörnu- skini". „ Ég er að hugsa um, hve þér eruð góður maður", sagði hún blátt áfram. Hann hló vandræðalega. „Ekki er ég sakaður um það

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.