Tíminn - 20.10.1977, Side 9

Tíminn - 20.10.1977, Side 9
Fimmtudagur 20. október 1977 fitmwiii tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 80.00. Áskriftargjald kr. 1.500 á mánuði. . Blaðaprent h.f. Það er vandi að fara með vald í umræðum þeim, sem fóru fram utan dagskrár á Alþingi siðastliðinn mánudag um verkfall opin- berra starfsmanna, lagði Einar Ágústsson utan- rikisráðherra orð i belg og gat einkum tveggja at- riða. I fyrsta lagi rifjaði Einar Ágústsson upp, að lögin um samningsrétt opinberra starfsmanna frá 1976, veittu þeim aðeins takmarkaðan verkfallsrétt eða á tveggja ára fresti og gæti rikisstjórnin ekki veitt þeim frekari verkfallsrétt, nema Alþingi breytti lögunum. 1 öðru lagi minntist hann svo á framkvæmd verkfallsins. Um fyrra atriðið fórust Einari Ágústssyni svo orð: „í fyrsta lagi langar mig til að vekja athygli á þvi, að hér hefur ævinlega verið bæði af hálfu opinberra starfsmanna og eins þeirra hv. alþingismanna, sem að lagasetningunni stóðu, verið vitað að hér var um það sem kalla má áfanga eða áfangasigur að ræða fyrir opinbera starfsmenn, þar sem þeir hlutu með lögum frá 1976 takmarkaðan verkfallsrétt. Ég held að það þurfi ekki að koma okkur neitt á óvart, þeim sem voru á þingi 1976, og tókum þátt i afgreiðslu þessara laga, að það gerðu sér allir ljóst, að verk- fallsréttur sá, sem veittur er með þessum lögum er/ ekki fyllilega sambærilegur við þann verkfallsrétt,'- sem aðrir launþegar hafa, og þá kannski ekki sizt þeir, sem eru félagar i Alþýðusambandi Islands... Þetta segi ég vegna þess verkfallsréttar, sem talað er um að þurfi til að koma á timabilinu. Miðað við þær forsendur sem lögunum fylgdu og þau eru byggð á og miðað við orðalag þeirra lagagreina, sem hér er um að tefla, þá er rikisstjórninni ekki gefin heimild til þess frá Alþingi að semja um verk- fallsrétt á timabilinu oftar en á tveggja ára fresti. Ef slik heimild á til að koma, þá þarf hún að koma til rikisstjórnarinnar frá Alþingi á nýjan leik, sem þýðir það, að þetta mál verður þá rætt hér að nýju i ljósi þeirra staðreynda, sem nú liggja fyrir en ekki lágu fyrir áður”. Um siðara atriðið fórust Einari Ágústssyni þann- ig orð: „Hitt atriðið, sem mig langar til að benda á, er það, að hér er eins og margsinnis hefur verið bent á, um frumraun að ræða I verkfallsmálum opinberra starfsmanna og ég hygg að við þurfum ekki að undrast það, þó nokkur ágreiningsatriði hafi komið fram i framkvæmd sliks verkfalls, sem er eins og ég áðan sagði alger frumraun hér og satt að segja kalla ég það hreint ekki mjög illa sloppið að það skulu þó ekki vera nema sex atriði sem komið hafa fram i þessari viku sem verkfallið hefur staðið, sem deilan stendur um, enda hygg ég það hljóti að vera keppikefli forystumanna BSRB að þetta verkfall fari vel úr hendi. Það hlýtur að vera sameiginlegur áhugi okkar sem stóðum að lagasetningunni og þeirra sem framkvæma hana af hálfu opinberra starfsmanna, að hún fari þannig úr hendi, að það megi halda þvi fram — og við getum haldið þvi fram — að við höfum gert rétt þegar þessi réttindi voru látin i té. Ég hef trú á þvi, að nú, ef framhald verður á þessu verkfalli, sem ég raunar vona að ekki verði, þá muni framkvæmd þess ganga eðlilegar en gert hefur til þessa. Ég hef trú á að fyrstu byrjunar- örðugleikarnir muni vera yfirstignir og menn hafi áttað sig á þvi hver réttur þeirra er og hvert vald þeirra er. Það er vandasamt að fara með vald og það er kannski ekkert óeðlilegt, þó að það taki ein- hverntimaað læra það”. Einar Ágústsson lét að lokum þá ósk i ljós, að á deilunni fengist sú lausn, sem allir mættu við una og þjóðfélaginu væri fyrir beztu. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Lögfræðingar aðstoða hryðj uverkahópana Talið að þeir hafi flutt boð og fyrirmæli ÞAÐ hefur vakið mikið lof um allan heim, hve vel þýzku vik- ingasveitinni tókst við að frelsa gislana á flugvellinum i Mogadishu. Svipaða furðu hefur það hins vegar vakið, að þri'r leiðtogar Baader-Mein- hofs-hópsins skyldu geta framið sjálfsmorð i þýzku fangelsi skömmu eftir, að þeir fréttu um frelsun gislanna, þar af réðu tveir sér bana með skotvopni. Bersýnilegt er af þessu, að vopnum hefur verið smyglað með einhverjum hætti til fanganna og að tekizt hefur að koma boðum milli þeirra og þeir þvi getað sam- ræmt aðgerðir sinar. Hér hefur ótvirætt komið 1 ljós mikill brestur á hinu þýzka réttarkerfi, þrátt fyrir alla hina þýzku nákvæmni. Helzt verður ályktað af þessu, að skæruliðarnir hafi verið biínir að tryggja sér aðstoö innan kerfisins. Það hefurlengi veriö grunur þýzku leynilögreglunnar, að lögfræðingar þeir, sem tekið hefðu að sér að verja Baader- Meinhof-hópinn og aðra hlið- stæða hryðjuverkahópa, hafi veitt þeim margvislega að- stoð ma. með þvi að flytja orð milli fanganna. Af um 37 þiís- und lögfræðingum i Þýzka- landi, sem stunda málflutn- ingsstörf, hefur sérstakur grunur fallið á eina 60-70 mál- flutningsmenn, sem hafa verið grunaðir um samúð með hryðjuverkahópunum, og sumir þeirra þykja liklegir til að hafa veitt þeim beina að- stoð, m.a. með þvi að flytja orð milli þeirra og boð og fyrirskipanir til þeirra liðs- manna, sem enn fóru frjálsir ferða sinna. Flestir þessara lögfræðinga voru stúdentar, þegar mest bar á uppreisnar- hug meðal vestur-þýzkra stú- denta, og eru enn taldir undir áhrifum frá þeim tima. TVEIR lögfræðingar hafa einkum verið tilnefndir i þessu sambandi. Annar þeirra er Klaus Croissant, 47 ára gam- all, en hann tók að sér aö verja mál þeirra Ulrikke Meinhoff og Andreas Baaders á sinum tima og siðar mál fleiri með- lima hópsins. Það þótti svo áberandi, að Croissant veitti sakamönnunum, sem hann varði svo óbeinan og jafnvel beinan stuðning, auk mál- flutningsins, að dómstóllinn svipti hann réttindum til að annast vörnina áfram. Jafn- framt myndaðist svo orðróm- ur um, að risið hefði upp nýr herskár skæruliðahópur I kringum málflutningsskrif- stofu hans. Lögreglan mun þvi hafa fyrirhugað mál á hendur honum, en hann varðfyrri til, og flutti til Frakklands i júli siðastliðnum. Vegna kröfu vestur-þýzkra yfirvalda hefur hann nú verið settur i gæzlu þar. Margir þeirra, sem unnu á skrifstofu hans eða höfðu samband við hana, fara nú huldu höfði og grunar lög- reglan þá um að vera valda að ýmsum helztu hryðjuverkum, sem hafa verið framin að und- anförnu, eins og morðið á Jurgen Ponto bankastjóra. Annar lögfræðingur, Sieg- fried Haag, hefur ekki aöeins veriö ákæröur fyrir beina þátttöku i hryðjuverkum, heldur er talinn hafa verið stjórnandi margra þeirra. Þannig er talið, að hann hafi skipulagt árásiraa sem gerð var á sendiráð Vestur-Þýzka- lands i Stokkhólmi 1975. Hann var upphaflega einn af verj- endum Andreas Baaders. Siðan i mai 1975 hefur Haag verið i fangelsi, en lögreglan grunar hann nú um, að hann hafi stjórnað þaðan gerðum hryðjuverkahópanna og hafi hann m.a. lagt á ráðin um morðin á Siegfried Buback rikissaksóknara og Ponto bankastjóra og rániö á Hans Martin Schleyer, sem mest hefur verið á dagskrá að und- anförnu. Þetta á Haag að hafa tekizt með þvi að láta lögfræð- inga þá, sem vörðu mál hans og máttu eiga einkaviðtöl við hann, flytja frá sér skilaboð og fyrirmæli. Jafnframthafi þeir flutt honum fréttir frá liös- mönnum hans utan fangelsis- veggjanna. Beinar sannanir hafa ekki fengizt fyrir þessu, en miklar líkur eru taldar til þess, að slikt hafi gerzt. Sieg- fried Haag, sem er 32 ára gamall,er alinn upp við allgóð efni. Hann tók mikinn þátt i uppvöðslustarfsemi stúdenta um og eftir 1960. ÞAÐ VORU þessi tengsli, sem voru talin vera á milli um- ræddra sakamanna og lög- fræðinga þeirra, sem áttu mikinn þátt i þeirri löggjöf, sem vestur-þýzka þingiö setti fyrir skömmu, eða nokkru eftir ránið á Schleyer og haföi þann tilgang að hefta starf- semi hryðjuverkahópanna. Samkvæmt hinum nýju lögum hefur lögreglan heimild til að fylgjast með viötölum milli sakborninga og lögfræðinga þeirra. Jafnframt fékk hún heimild til að takmarka þau með öllu. Taliö er, að þau hafi verið bönnuð að mestu eöa öllu siðan lögin voru sett, og slikt bann talið réttlætanlegt meðan Schleyer-málið væri á döfinni. Lögfræðingarnir eða aðrir aöstoöarmenn fanganna hafa að þvi er virðist fundið aðrar leiðir til að hafa sam- band við þá. Alla vega er það ljóst, að hér hefur hið þýzka réttarkerfi bilað og hin nýju lög ekki komið að þvi gagni, sem ætlað var. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.