Tíminn - 08.11.1977, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 8. nóvember 1977
erlendar fréttir
Carter frestar
heimsókn til
níu landa
Washington-Reuter. t tilkynningu
frá Hvita húsinu var staðfest að
Carter forseti yrði að fresta opin-
berri heimsókn sinni tii niu landa
I þessum mánuði vegna þess að
erfiðlega gengur að fá þingið til
að samþykkja stefnu hans I efna-
hagsmálum. Eitt helzta atriðið i
stefnu forsetans er að Banda-
rikjamenn verði að draga úr
notkun oliu, sem keypt er frá öðr-
um rikjum.
Sovézkir leiðtogar leggja blómsveig aö grafhýsi Lenins
Afmæli rússnesku
byltingarinnar
Moskva-Reutar. Hátíðahöldum i
tilefni af 60 ára afmæli byltingar-
innar var fram haldið í gær.
Geysimikil hersýning var haidin,
og meðal annars var þar sýndur
nýr skriðdreki. Eftir hersýning-
una fóru Moskvubúar I skrúð-
göngu í fylgd hermanna og báru
rauö pappirsbióm og myndir af
sovézkum leiðtogum.
Meðalerlendra gesta, sem voru
við hátiðahöldin I gær, var Urho
Kekkonen forseti Finnlands og
foringjar kommúnistaflokka og
vinstrisinna hvaðanæva að úr
heiminum, sem komu tilMoskvu i
siðustu viku I tilefni af hátiða-
höldunum.
Alex Kitson frá brezka verka-
mannaflokknum var viðstaddur,
en ræða hans um helgina þar sem
hann hældi Sovétmönnum og
gagnrýndi ástandið heima fyrir
hefur valdið miklum ritdeilum i
Englandi.
f ræðu af svölum grafhýsis
Lenins sagði Ustinov marskálk-
ur, að sovézk vopn væru einvörð-
ungu ætluð til varna.
FerðCarters átti að hefjast 22.
nóvember, en forsetinn hefur nú
tilkynnt viðkomandi rikjum frest-
unina, og borið við önnum heima-
fyrir, að þvi er Cyrus Vance utan-
rikisráðherra sagði I gær. Vance
sagði að áherzla hefði verið lögð á
það við erlendu leiðtcgana að
vonazt væri til að i nánustu fram-
tið takist að finna heppilegan
tima til heimsóknanna.
Tilkynning Vance er fyrsta op-
inbera staðfestingin á þvi, að
Carter er hættur við ferðina til
Suður-Ameriku, Afriku og Evr-
ópu I nóvember.
Löndin sem heimsækja átti, eru
Brasilia, Venezúela, Iran, Saudi-
Arabia, Indland, Frakkland,
Belgia og Pólland.
Talið er óliklegt að þinginu tak-
ist að ljúka umræðum um stefn-
una i orkumálum. Vance sagði,
að forsetinn telji orkumálin ákaf-
lega mikilvæg fyrir bandariskt
efnahagslif, svo og fyrir þær þjóð-
ir sem flytja út orkugjafa ekki
siður en kaupendur þeirra.
Spænskir kommún-
istar ætla ekki að
minnast afmælis
byltingarinnar
Madrid-Reuter. Yfirvöld á Spáni
hafa bannað Sovétmönnum að
setja upp sýningu I tilefni af sex-
tiu ára afmæli byltingarinnar að
þvi er austur-evrópskar heimildir
herma.
Samkvæmt heimildunum,
munu spænsk stjórnvöld hafa
komið þeim boðum til sovézka
sendiráðsins, að sovézk vika, sem
halda átti væri „óheppileg af
stjórnmálalegum ástæðum".
Rikin tvö tóku úpp stjórnmála-
samband i febrúar siðastliðnum
eftir að hafa ekki haft slikt sam-
band sin á milli I nær fjörutíu ár.
Enn hefur ekki verið undirritað
neitt samkomulag um menning-
arleg samskipti, en sýning sem
þessi mundi heyra undir slik
samskipti.
Siðast var haldin sovézk vika á
Spáni stuttu áður en spænska
borgarastyrjöldin brauzt út 1936.
Sigurvegararnir I borgarastyrj-
öldinni notuðu siðar sovézku vik-
una sem sönnun þess, að lýðveld-
issinnar hefðu ætlað að innleiða
bolsévisma á Spáni.
Framámenn spænska
kommúnistaflokksins, en hann
fékk leyfi til að starfa I april
siðastliðnum, segja að ekki verði
gerðar neinar ráðstafanir til að
halda upp á afmælið. Stefna
spænska kommúnistaflokksins er
talin algerlega óháð stefnu vald-
hafanna I Kreml. Leiðtogi flcícks-
ins, Santiago Carillo, einn helzti
forvigismaður Evrópukommún-
isma hélt tjl Moskvu i siðustu
viku, en var meinað að ávarpa
Santiago Carillo
fundinn I Kreml, sem haldinn var
til að minnast afmælis byltingar-
innar.
Israelsmenn sakaðir
um að pynta fanga
OPEC hyggur
á 5% hækkun
olíuverðs
Vin-Reuter. Helztu ollufram-
leiðsluþjóðirnar hófu að ræða
um oliuverð fyrir árið 1978 i
gær. MeirihlutiOPEC-rikja hef-
ur lýst sig fylgjandi smávægi-
legum hækkunum á olluverði.
Fregnir herma að fáar af þrett-
án þjóðum I samtökunum muni
vera hlynntar miklum verð-
hækkunum á næsta ári.
Stjórnir OPEC-rikja munu
staðráðnar i að endurtaka ekki
deilur sem reyndu mjög á sam-
stöðuna á þessu ári. Viðræöurn-
ar þá enduðu með að sætzt var á
10% hækkun. Undirbúningur að
ákvörðun á verði hófst á fundi
efnahagsnefndar OPEC. Nefnd-
in er skipuð sérfræðingum, sem
ekki hafa ákvörðunarvald, en er
ráðgefandi aðili, sem tekið er
mikið tillit til. Endanleg
ákvörðun um oliuverð verður
tekin 20. desember i Caracas á
fundi oliuráðherra OPEC-rikja.
Verð á oliu var ákveðið 12,70
bandarikjadalir fyrir 159 litra
oliutunnu i júli síðastliðnum.
Þetta var ákveðið eftir að
stærsti oliuútflytjandinn, Saudi-
Arabia lagðist gegri 15% hækk-
un olíuverðs. Talið er að Saudi-
Arabia sé þvi hlynnt að halda
oliuverði óbreyttu fram á
seinnihluta árs 1978, en þá er
sýnt að allmörg oliufram-
leiðsluriki muni vilja semja um
5% hækkun.
Iranskeisari sagði i viðtali við
Newsweekigær, aðhann mundi
ekki hafa frumkvæði að
hækkunum að þessu sinni, en
Iranir hafa veriðjikafir stuðn-
ingsmenn hækkunar oliuverðs á
undanförnum árum.
OPEC-rikin, sem framleiða
daglega um 30 milljón tunnur af
oliu, reyna vanalega að ná al-
gerri samstöðu um verð. Þetta
reyndist þó ekki kleift I desem-
ber 1976 þegar 11 aðildarriki
hækkuðu verðið um 10% en tvö
hækkuðu verðið aðeins um 5%.
Eftir nokkurra mánaða deilur
sættust Saudi-Arabia og U.A.E.
á hækkanimar, með þvi skilyrði
að hin rikin féllu frá frekari
hækkunum á árinu 1977.
Stjórnvöld i Bandaríkjunum
hafa barizt fyrir verðstöðvun á
oliu, og i siðustu viku liktiCyrus
Vance, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, afleiðingum
væntanlegra hækkana við
náttúruhamfarir.
— franskir studningsmenn
PLO telja að pyntingar séu
leyfðar á föngum frá
Palestínu
Paris-Reuter. Sex samtök
franskra stuðningsmanna Pal-
estlnu-Araba sendu I gær frá sér
tilkynningu þess efnis aö yfirvöld
I tsrael leyfi pyntingar á föngum
frá Palestlnu og troði á mannrétt-
indum þeirra. Ásakanirnar voru
bornar fram á blaðamannafundi
sem haldinn var til að koma á
framfæri málum Palestinu-
manna, sem sitja i fangelsum i
ísrael.
Meðal þeirra sem studdu þess-
ar staðhæfingar var Lea Tsemel,
israelskur lögfræðingur sem oft
hefur varið palestinska skæruliða
fyrir rétti i Israel. Hún hefur lýst
sjálfri sér sem andstæðingi Zion-
isma og vinstrisinna, en segist
ekki vera kommúnisti.
Þeir sem skipuleggja fyrirhug-
aða herferð, segja að almenning-
ur sé nú hlynntari mannréttind-
um en áður, og áætlað er að halda
útifundi víða um Frakkland til að
gera grein fyrir ásökunum á
hendur Israelsmönnum.
Níu ríki óánægð með árangur
öryggisráðstefnunnar
Belgrad-Reuter Fulltrúar niu
hlutlausra rlkja á evrdpsku ör-
yggisráðstefnunni i Belgrad
hvöttu i gær til afvopnunarvið-
ræðna milli Austur- og Vestur-
landanna og sögðu að þörf væri
á þvi að stöðva vopnakapp-
hlaupið. Fulltrúi Finnlands,
sem mælti fyrir hönd þessara
niu þjóða, sagði að samhliða
þyrfti að slaka á spennu I
hernaðar- og pólitlskum mál-
um.
1 ályktun þessara niu þjóða
sagði að þær væru uggandi um
að nokkur árangur næðist á ráö-
stefnunia og telja þær, að her-
gagnakapphlaupið sé i fullum
gangi. Hlutlausu þjóðirnar
hvöttu þátttökurikin til afvopn-
unar um allan heim og til þess
að styðja fund allsherjarþings-
ins um afvopnun á næsta ári.
Hlutlausu þjóðirnar segjast
vera þvi fylgjandi að ráðstefnan
geri kunnugt hve gifurleg þörf
sé á að einhver árangur náist i
takmörkun vopnaframleiðslu og
afvopnun.
Einn fulltrúi hlutlausu þjóð-
anna sagði:
„Tilgangurinn er að lýsa ótta
okkar vegna þess að engin á-
hrifarik skref hafa verið tekin
til aö koma i veg fyrir vopna-
kapphlaupið. Við teljum, aö á
öryggisráöstefnu ætti að ræöa
afvopnun, en sú ræðulist sem
stunduð er I afvopnunarviðræö-
unum geti ekki leitt til árang-
ursríkra aðgerða”.
Þjóðirnar sem hér um ræðir
eru: Austurrikismenn, Kýpur-
búar, Finnar, Liechtensteinbú-
ar, Möltumenn, San Marinobú-
ar, Sviar, Svisslendingar og
Júgóslavar.