Tíminn - 08.11.1977, Side 4
4
Þriöjudagur 8. nóvember 1977
„Sic transit gloria
mundi”, mætti
Sömu útreið fékk iitia húsið við Lækjargötu.
Hér stendur meginhúsið hálft eftir og brakiðlfkt og sprengja hafi falliðá það.
SKIL borvélar meö stiglausum hraöabreyti eru
gæddár þeim kosti, að þvi meir sem þú þrýstir á
gikkinn, þvi hraðar snýst þorinn. Þannig færðu rétta
hraðann fyrir það verkefni sem þú ert að vinna,
hvort sem þú ert að bora iflisar, stein, tré eða annað.
SKIL borvélar eru fallega hannaðar, kraftmiklar, og
auóvelt er að tengja við þær marga fylgihluti. Auk
borvéla framleiðir SKIL afsömu alúð og vandvirkni,
stingsagir, stórviðarsagir, hefla, slipivélar og fræs-
ara auk hinna heimsfrægu hjólsaga.
SKIL rafmagnshandverkfæri svara fyllstu kröfum
nútimans og henta jafnt leikmönnum sem atvinnu-
mönnum.
Póstsendum myndlista ef óskað er.
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI.VELJA SML
Einkaumboð á íslandi fyrir SKIL rafmagnshandverkfæri:
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Það er okkur mikil ánægja að geta nú boðið hin margreyndu
og viðfrægu SKIL rafmagnshandverkfæri.
SKIL verksmiðjurnar voru stofnaðar i Chicago i Bandarikjunum árið 1924 til framleiðslu
á nýrri einkaleyfisuppfinningu, rafknúinni hjólsög, hinni heimsfrægu SKIL-sög,
sem viðbrugðió var fyrir gæði. Siðan hafa verið framleidd mörg verkfæri og gerðar margar
nýjar uppgötvanir á rannsóknarstofu SKIL verksmiðjanna. sem hafa gert
SKIL handverkfærin heimsfræg og eftirsótt.
RAFMAGNSm HANDVERKFÆRi
JH-Reykjavik — Miöbærinn i
Reykjavik missti drætti úr svip-
móti sfnu nú um helgina, þegar
mikilvirkar vélar gengu i skrokk,
ef svo má segja, á gömium húsum
þar og brutu þau niður i grunn.
Annað þessara húsa var Smjör-
húsið, eins og fólki hefur verið
tamt að nefna það. Þar var nú á
siðustu áratugum bókabúð Braga
Brynjólfssonar. Þetta hús átti
harla fornar rætur, eftir þvi sem
gerist hér i Reykjavik, þvi að
þarna var upphaflegá reist verzl-
unarhús snemma á nitjándu öld,
þótt þvi væri siðar breytt og bylt á
ýmsa vegu á löngum tima.
Hitt húsið stóð við hliöina á
byggingu Iönaöarbankans viö
Lækjargötu, og var bókabúð Æsk-
unnar i þvi þar til fyrir tiltölulega
fáum árum.
Þessar byggingar, sem máðar
voru út um helgina, voru hvorki
háar i lofti né skrautlegar. Eigi að
siöur er tómlegt að ganga um
miðbæinn án þeirra, og svo mun
þeim ekki sizt finnast, er hafa
vanizt þvi frá blautu barnsbeini
að hafa þær fyrir augunum. Þetta
voru virðuleg hús á mælikvarða
sinnar tiðar og gegndu þvi hlut-
verki, að þangað áttu margir er-
indi.
Hafizt handa um að koma gömlu
húsaþyrpingunni við enda Hafn
arstrætis fyrir kattarnef. — Tíma
myndir: GE
Fleiri
konur í
framboð
— segir Kvenfél-
aga sambandið
Kvenfélagasamband tslands hef-
ur sent formönnum stjórnmála-
flokka og kjördæmaráða svo-
hljóðandi bréf:
„Þar sem kosningar til Alþingis
og sveitarstjórna fara i hönd á
næsta ári, vill Kvenfélagasam-
band Islands minna yöur á sam-
þykkt, sem gerð var á fjölmennri
ráðstefnu kvenna á Hótel Loft-
leiðum i júni 1975, þar sem skorað
var á alla stjórnmálaflokka i
landinu.aö stuðla að þvi, að það
margar konur taki sæti á listum
þeirra, bæði til alþingis- og sveit-
arstjórnarkosninga, að um helm-
ingur alþingis- og sveitarstjórn-
armanna verði konur.
Innan Kvenfélagasambands
Islands eru rösklega 24 þúsund
konur félagsbundnar og mikill
fjöldi kvenna i þeim hópi hefur
sannað með störfum sinum á veg-
um kvenfélaganna, að hverjum
stjórnmálaflokki væri sómi að þvi
að bjóða þær fram til trúnaðar-
starfa”.