Tíminn - 08.11.1977, Qupperneq 18
18
Þriðjudagur 8. nóvember 1977
Páll
skoraði
12
mörk
þegar Vikingar
unnu sigur
(29:23) yfir
Leikni
PALL BJÖRVINGSSON, hand-
knattleikskappi úr Vikingi, var
óstöðvandi þegar Vikingar, sem
léku án 8 fastamanna sinna, unnu
auðveldan sigur (29 :23) yfir
Leikni i Reykjavikurmótinu i
handknattleik. Páll skoraði
hvorki meira né minna en 12
mörk i leiknum. Ungur leik-
inaður, Siguröur Gunnarsson,
vakti mikla athygli I Vikingslið-
inu — hann lék mjög vel og skor-
aði 6 mörk. Sigurður er maður
framtiðarinnar — mjög skort-
fastur leikmaður með mikinn
stökkkraft og þá gefur hann góðar
linusendingar.
HÖRÐUR Sigmarsson... lék
ekki með Leiknisliðinu — meidd-
ur- IR-ingar ... unnu sigur
24:20 yfir KR-ingum í jöfnum
leik, IR-ingar náðu að tryggja sér
Framstúlk-
urnar urðu
Reykjavikur-
meistarar
Framstúlkurnar tryggðu sér
Reykjavikurmeistaratitilinn i
handknattleik á sunnudaginn,
þegar þær unnu yfirburðarsigur
(15:9) yfir Valsstúlkunum.
Framliöiö, sem er lang sterkasta
kvennaliðið, lagði alla mótherja
slna aö velli 1 mótinu.
Simonsen 1
mL - jjnBBf og félagar ' hans hjá ' „Gladbach” ’
eru heldur betur búnir að ná sér á strik. Peir hafa skorað 17 mörk
PALL BJÖRGVINSSON í þremur siðustu leikjum sínum (
sigur undir lokin. Sigurður
Svavarsson, 7 mörk, og Asgeir
Eliasson, 5 skoruðu flest mörk
IR-inga, en Björn Pétursson var
markhæstur hjá KR — 9 mörk.
FYLKIR.... lagði Þrótt að velli
— 24:19 í mjög slökum leik. Kon-
ráð Jónsson skoraði flest mörk
Þróttar cða 9,en þeir Guðmundur
Baldursson og Einar Agústsson
skoruöu 5 mörk hvor fyrir Fylki.
VALSMENN'.... sem léku án
landsliðsmannanna Jóns H.
Karlssonar, Jóns Péturs Jónsson-
ar, Þorbjörns Guðmundssonar,
Bjarna Guðmundssonar og Þor-
bjarnar Jenssonar, unnu sigur
(14:13) yfir Fram i daufum leik.
Gisli Blöndal skoraði flest mörk
Vals, eða 5 en Steindór Gunnars-
son skoraði 3. Brynjar Kvaran
markvörður Vals átti góðan leik I
markinu — hann varði t.d. tvö
vitaköst undir lok leiksins. Guð-
jón Marteinsson og Pétur Jó-
hannesson skoruðu 3 mörk hvor
fyrir Fram, en Gústaf Björnsson,
sem var bezti maður liðsins skor-
aði 2 mörk. —SOS
Meistaralið Borussia Mönchengladbach er nú heldur
betur komið á skrið i v-þýzku /,Bundesligunni" — 17
mörk leikmanna liðsins í síðustu þremur leikjum „Glad-
bach" tóku Saarbrucken i kennslustund á laugardaginn
og unnu stórsigur 6:1. Alan Simonsen — danski landsliðs-
maðurinn, sem er nú talinn bezti sóknarleikmaður í V-
Þýzkaiandi/ skoraði 2 mörk, en Jupp Heynckes (2), Witt-
kamp skoruðu einnig, eneitt markanna var sjálfsmark.
Úrslitin i 14. umferð þýzku
„Bundesligunnar” urðu þessi:
Keisersl — Dusseldorf.....3-2
,,Gladbach”-Saarb ........6-1
Hamborg — Bochum..........3-1
Stuttgart — St. Pauli.....1-0
Frankfurt — Köln..........2-2
1860Munchen — Bremen .....0-0
Duisburg — Bayern.........6-3
Hertha — Braunsch.........1-0
Dortmund — Schalke........2-1
Bayern haföi 3-2 yfir Duisburg
er 74 minútur voru liðnar af leik
liðanna i Duisburg. En á þessum
16 minútum er eftir voru skoraði
Duisburg fjögur mörk, og staðan
breyttist skyndilega i 6-3. Dietz
skoraði fjögur mörk fyrir Duis-
burg, hin gerðu Worm og Stolzen-
burg. Fyrir Bayern skoruðu Mull-
er (2) og KUnkel.
Kaiserslautern vann heppnis-
sigur yfir Díisseldorf. Dússeldorf
hafði 2-0 i hálfleik með mörkum
frá Schmitz og Köhnen, en i seinni
hálfleik skoraði Kaiserslautern
þrivegis, Toppmöller, Meyer og
eitt sjálfsmark.
Hamborgvann góðan sigur yfir
Bochum, Keller skoraði tvivegis
og Hidien skoraði þriðja mark
ALAN SIMONSEN....
skoraði 2 mörk á laugar-
daginn.
Hamborg, en Eggert minnkaði
muninn fyrir Bochum. Stuttgart
vann St. Pauli með marki frá
Kelsch, og Hertha Braunschweig
með marki frá Grau. Landsliðs-
mennirnir Grabowski og Hölzen-
bein gerðu mörk Frankfurt i
leiknum við Köln.en Dieter Múll-
er og Flohe skoruðu fyrir Köln.
Leikur þessi þótti bjóða upp á allt
hið bezta sem þekkist i þýzkri
knattspyrnu. Dortmund vann
heppnissigur á Schalke, með
marki frá Theis á siðustu minútu
úr vitasrpyrnu. Aður hafði Burgs-
muller náð forystunni fyrir Dort-
mund, en Fischer jafnaði fyrir
Schalke.
Nú er Dieter Múller marka-
hæstur i Þýzkalandi, hefur skorað
16 mörk, en nafni hans Gerd frá
Bayern, fylgir fast á eftir með 15
mörk. Þriðji er Burgsmuller frá
Dortmund með 11 mörk skoruð.
ÓO
( Verzlun & Pjónusta )
f/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^
Eigum fyrirliggjandi
höggdeyfa i flestar
gerðir bifreiða á
sérstaklega hagkvæmu
verði.
Fullkomin þjónusta
við ísetningu.
Höggdeyfir
*
2 Handunnið isienzkt víravirki.
7.
Dugguvogi 7 — Sími 30-154 ^ ^
Gerum við skartgripi úr silfri
og gulli.
2
7. Handgröfum í gull, silfur og plett.
5 Þræðum perlufestar. — Gyllum og
2 hreinsum.
verziið hjá gullsmið. í
PÓSTSENDUM.
ogörugg0 Verzlanahöllin Í
þjónusta vagi 26 i
rjO Sími 1-;
’/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/a
5 2_ ° t
/-Æ ^/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/já
101 Reykjavík k
-77-42. $
I
Lucas CAV
Ljósastillum
alla bila
BLIISSI
SKIPHOLTI 35 v,r,lun rf-E*8,3í0
revkjavik ssjí
Rafmagnsviðgerðir
fyrir Lucas og CAV
»LOSS][
SKIPHOLTI 35 Ve,ll‘ jn é - B 13 SÓ
REYKJAVIK UM ÍM IMs,