Tíminn - 20.11.1977, Blaðsíða 27

Tíminn - 20.11.1977, Blaðsíða 27
Sunnudagur 20. nóvember 1977 27 50 ára Bent Jónsson skrifstofustjóri Akranesi A síðustu áratugum hefur Akranes vaxið úr litlu kauptúni i fjölmennan og myndarlegan kaupstað með öflugt atvinnulif og fjölbreytt menningarstarf. Veru- legur hluti af ibúum bæjarins — einkum þeirra sem nú eru á miöj- um aldri — eru aöfluttir, en hafa tekið virkan þátt i uppbyggingu bæjarins með ýmsum hætti um langt skeið. Af þeim munu Vest- firðingar — þar meö taldir Strandamenn — vera einna fjöl- mennastir. Hafa þeir að ýmsu leyti sett svip sinn á bæinn og reynzt hinir beztu þegnar. Or þessum hópi Vestfirðinga á Akranesi er Bent Jónsson skrif- stofustjóri, sem fagnar i dag fimmtiu ára afmæli sinu. Hann er fæddur i Meiri-Hattardal i Alfta- firði þann 20. nóv. 1927. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Guðna- dóttir, sem látin er fyrir skömmu, og Jón Bentsson bóndi i Meiri- Hattardal, sem enn er á lifi. Þau hjónin voru bæði Norður-fsfirð- ingar að ætt og uppruna. Þau eignuðust 5 börn. Eru tvær dætur þeirra búsettar i Meiri-Hattardal og tveir synir þeirra eru búsettir i Reykjavik. A unglingsaldri fór Bent til sjós og var i nokkur ár á ýmsum fiski- skipum, m.a. á togurum i nokkrar vertiðir. Rúmlega tvitugur að aldri fór hann til náms i Héraðs- skóianum á Laugarvatni og það- an i Samvinnuskólann veturinn 1952-’53. Þegar náminu lauk i Samvinnuskólanum, réðist hann til Kaupfélags Hvammsfjarðar i Búðardal, en haustið 1954 gerist hann bókari hjá Kaupfélagi Suð- ur-Borgfirðinga á Akranesi. Sið- an hefur heimili hans verið þar. Bent hefur unnið margvisleg störf á Akranesi og jafnan leyst þau af hendi með hinum mesta sóma. Auk bókarastarfa hjá K.S.B. var hann um árabil lög- reglumaður á Akranesi og lög- regluvarðstjóri, en hin siðari ár hefur hann veriö skrifstofustjóri hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækinu Haförninn h/f á Akranesi. Bent kvæntist þann 18. júli 1954, Gerði Rafnsdóttur frá Bildudal. Þau hafa eignazt þrjú börn: tvær dætur — Gyðu og Guðrúnu Eddu — sem báðar eru við háskólanám erlendis, önnur i Kaupmannahöfn en hin i Flórida, og einn son — Jón Bjarka — sem enn er á bernsku- skeiði. öll hafa börnin reynzt hin- ir mestu námsgarpar og góðir skólaþegnar. Gerður — kona Bents — hefur tekið mjög virkan þátt i tónlistarlifinu á Akranesi og lengi verið i forustusveit i Tónlist- arfélagi Akraness. Bent Jónsson hefur lengi starf- að i Framsóknarfélagi Akraness og verið ritari félagsins hin siðari ár. Þetta kjörtimabil hefur hann verið fyrsti varafulltrúi Fram- sóknarflokksins i bæjarstjórn Akraness og tekið verulegan þátt i störfum bæjarstjórnarinnar og ýmsum nefndum innan hennar. Hann á sæti i framtalsnefnd, byggingarnefnd leiguibúða, stjórn menningarsjóðs, stjórn verkamannabústaða o.fl. Þá var hann um langt skeið endurskoð- andi reikninga bæjarins. Málefni launþega hefur Bent lengi látið til sin taka og verið i forustusveit Verzlunarmannafé- lags Akraness. Þá hefur Bent verið virkur félagi i Lionsklúbbi Akraness og Bridgefélagi Akra- ness. Af þessari upptalningu má ljóst vera, að hann er mikill fé- lagsmálamaður — ötull og fórn- fús — og lætur sér fátt óviðkom- andi. Hitt skiptir þó meira máli, að hann er góður félagi og eftir- sóknarverður, sem hefur það fyr- ir mark og mið, að láta gott af fé- lagsmálastörfum sinum leiða. Hann er drengilegur i öllum sam- skiptum og vill gjarnan hafa það, er sannara reynist i hverju máli. Hann er vel máli farinn og fróður um marga hluti. Hann hefur rika samúð með þeim, sem höllum fæti standa i lifsbaráttunni og er góður málsvari þeirra. Bent er mikill unnandi islenzkr- ar náttúru. Hann er reyndur ferðagarpur og nýtur þess vel, þegar tækifæri gefast til ferða- laga um hálendi landsins. Þá er hann ótrauöur stuðningsmaður björgunar og slysavarnamála. Hér skal svo staðar numið. Ég vona að þessi ágæti Vestfirðingur eigi langa og góða framtið á Akranesi, sjálfum sér og bæjarfé- laginu til gagns og hagsældar. Við þessi timamót vil ég þakka Bent langt og ánægjulegt sam- starf i Framsóknrfélagi Akraness og fyrir störf hans að bæjarmál- um. Ég flyt honum og fjölskyldu hans beztu árnaðaróskir okkar, samherja hans og vina, og vænti þess að hann megi um langa framtið njóta margra hainingju- daga. Ég er þess fullviss að undir þær óskir munu hinir mörgu vinir og félagar hans taka. Lifðu heill um langa ævi. Dan. Agústinusson Frá Hofi Nýkomið fallegt úrval af gjafavörum úr capiz skeljum. Takmarkaðar bi rgðir. Einnig kinverskir listmunir, kristall og glervörur, púðar i miklu úrvali, dúkar og löberar, tilbúnir i metratali. 10% afsláttur fyrir elli- og örorkuþega. Verzlunin Hof Ingólfsstræti I Paddington-hreyfimyndabók Hjá bókaútgáfunni örn og ör- lygur kom nú nýlega út ný bók um feita bangsann Paddington. For- eldrar Lóu finna hann i tösku á brautarstöðinniog taka hann meö sér heim. Hann lendir i margs konar ævintýrum og óhöppum en bókin endar á þvi.aö hann sofnar vært heima hjá Lóu, eftir eril- saman dag. Bókin er hreyfimyndabók og eykur þaö á ánægju lesandans. Paddington á nú þegar stóran að- dáendahóp meðal vngstu kyn- slóðarinnar. Músik Et Sport Höfum opnað nýja verzlun með hljómplötur og sportvörur að Reykjavíkurvegi 60 HAFNARFIRÐI Verið velkomin! Músik & Sport , /), Reykjavíkurvegi 60 — Sími 5-44-87 Hverfisgötu 25 — w Sími 5-28-87 HAFNARFIRÐI F / A T Ódýr og rúmgóður 125p ÁRGERÐ 1978 Úrvalsbíll sem hentar sérlega vel íslenzkum aðstæðum, veðri og vegumJNý sending að koma. Nokkrum bílum óráðstafað FIAT EINKAUMBOÐ Á ISLANDI Davíð Sigurðsson h.f. SÍDUMÚLA 35 • SÍMI 85-8-55

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.