Tíminn - 20.11.1977, Blaðsíða 36

Tíminn - 20.11.1977, Blaðsíða 36
36 Sunnudagur 20. nóvember 1977 80 ára Karólína Árnadóttir Merkiskonan Karólina Árna- dóttir, Böömóösstööum, Laugar- dal, er 80 ára i dag. Karólina er dóttir hjónanna Guöninar Jónsdóttur og Arna Guöbrandssonar. Þau bjuggu i Miödalskoti I Laugardal, eignuö- ust fimmtán börn, en átta þeirra dóu á unga aldri. Karólina fædd- ist 20. nóvember 1897, I Miödals- koti. Þar ólst hún upp viö sára fá- tækt, en mikiö ástriki góöra for- eldra. Hún dafnaöi vel, óx upp og þroskaöist i fulltiöa konu. Haustiö 1918 gekk hún aö eiga Guömund Njálsson, granna sinn f rá Snorra- stööum, glæsilegan ungan mann. Fyrsta búskaparár sitt bjuggu þau meö foreldrum hennar i Miö- dalskoti. Næstaár fluttust þau aö Kringlu i Grimsnesi og bjuggu þar i eitt ár. Þá bauöst þeim jörö- in Ketilvellir i Laugardal, þar bjuggu þau til ársins 1924, aö þau fluttust aö Böömóösstööum I Laugardal. Þar bjuggu þau siöan saman i sátt og samlyndi. Þau eignuöust fimmtán börn. Komust fjórtán þeirra til fullorö- insára, og eru þrettán þeirra nú á lífi. A Böömóösstööum hjá þeim var einnig ölafia, móöir Guö- mundar, mikil merkiskona. Oft- ast var og einnig fleira fólk á Böö- móðsstööum, svoþarvar aö jafn- aöi átján til nitján manns I heim- ili. Mikiö uröu hjónin aö vinna og oft litíll timi til svefns. Hann afl- aöi heimilinu matar, og hún ann- aöistheimiliö af miklum myndar- brag, var heimiliö annálaö fyrir snyrtimennsku og hreinlæti. Kvöldin og næturnar munu oft hafa veriö húsmóöurinni nota- drjúg til sauma og viögeröa á fatnaöi. Þaö er afreksverk sem nálgast kraftaverk aö ala upp svo stóran barnahóp. Þaö er ekki á hvers manns færi aö sjá fjórtán börnum fyrirnægum mat, sauma á þau fötin og halda þeim hrein- um. Þaö vildi til, aö hjónin voru samtaka og ólafia einstaklega hjálpsöm. Eitt er vist, aö börnin voru aldrei svöng. Þau höföu nóg aö bita og brenna, voru ham- ingjusöm, frisk og kát. Barnahóp- urinn þótti vist jafn fallegur og hann var stór. Guðmundur lézt 18. nóvember, 1971. Þaö var óhjákvæmilegt, en sannarlega var stórt skarö höggviö i f jölskylduna. Meiri sómamann mun erfitt aö finna. Hann var hvers manns hugljúfi, og vinahópur þeirra hjóna var stór. Betra hjónaband og ham- ingjusamara mun og vandfundið. Ekkjan bar harm sinn eins og hetja. Hún hélt áfram aö búa á Böömóösstööum og býr þar enn i litla húsinu sinu. Þar unir hún bezt. Börn Karólinu og Guömundar eru: Guöbrandur (dó á fyrsta ári), Guöbjörn, ólafia, Aðalheið- ur, Kristrún, Sigriöur, Valgeröur, Fjóla, Lilja, Njáll, Ragnheiöur, Ami, Guörún (d. 20/4 ’74), Herdis og Höröur. Afkomendur þeirra munu nú vera hátt á annað hundraö. Elsku amma min. Ég óska þér innilega til hamingju á þessu merkisafmæli. Margs er aö minn- ast, er horft er tilliöinna ára. Litil óstýrilát telpa grætur heila nótt i stóru baöstofunni i gamla bænum á Böömóösstöðum. Enginn ræöur viö hana. Undir morgun er henni stungiö i rúmiö tilafa ogömmu. í hlýjunnihjáþeimfæristyfir hana værö og hún sofnar. Seinna er hún á Böömóðsstöðum um hávetur. Allt er á kafi i snjó. Litlir fætur eiga erfitt um gang og eru loks fastir, komast hvorki aftur á bak né áfram. Tárin læöast fram. Stóri sterki afi kemur, tekur litla telpu og ber hana til ömmu. Þangaö er gott aö koma, og hún brosir á ný. Litla stúlkan hefur vaxiö og er nú oröin fulloröin kona. Hún þakkar þér fyrir allar ánægju- stundirnar, sem hún hefur átt með þér. Aldrei telur þú eftir þér feröirnar til Reykjavikur til aö gleöjast meö okkur, ef eitthvaö er um aö vera, svo sem um ferming- arog giftingar. Heimsóknir þinar eru okkur dýrmætar, og viö ósk- um þess af heilum huga að mega hafa þig á meöal okkar sem lengst. Fimmtán barna móöir, marg- föld amma og langamma, er allt- af jafn ungleg og alltaf jafn kát, þrátt fyrir mótlæti lifsins. Til þin er alltaf gott aö koma. Meö út- breiddan faðminn tekur þú á móti okkur öllum og býöur okkur vel- komin i litla kotiö þitt. S.ó. Hitaveita Suðurnesja óskar að ráða vélstjóra með réttindi i vél- virkjun. Umsóknum sé skilað til Hitaveitu Suður- nesja, Vesturbraut lOa, Keflavik, fyrir 1. desember. lesendur segja Dj öfulæði Birzt hefur i blöðum grein, sem ber yfirskriftina ,,Rally- keppni eöa djöfulæði”. Þar er viss tegund bifreiðaaksturs- iþróttar tekin fyrir og fordæmd réttilega. Greinin er rökvis og mjögröggsamlegogá höfúndur hennar fyllstu þakkir skildar, þvi að vel mætti svo fara að hún vekti einhverja til umhugsunar. Lika er gott, ef einhver hefur dug til aö vita vankanta og vit leysur misjafnra gerða. Ekki er ráð að þegja við öllu röngu. í áðurnefndu tölublaði Dags, eru auglýstar vörur fyrir rjúpnaskyttur. Já, ekki er ráð nema i tima sé tekið. Á vissum timabilum verða vissar teg- undir lifvera fyrir ofsóknum hinnar grimmu mannskepnu. Þegar konungur vatnanna — laxinn — hefur loksins fengið grið fyrir þeim, sem ganga upp i hinni finu ,,sport-iþrótt”. Þegar útrunnið er það timabil, sem leyfilegt er að kvelja úr honum lifið eftir kúnstarinnar reglum og hrósa sigri yfir hon- um á land komnum. Og þegar liðinn er sá timi, sem fara má um öræfaslóðir og lita þær blóði hreindýranna, og elta uppi grá- gæsina, þegar hún er I sárum og murka hana niður — þá kemur röðin að rjúpunni. Þeim mönn- um, sem finnst „sport” og skemmtan i þvi að ráða hana af dögum virðist oft á veiðiferðum sinum i brjóst lagt það æði, sem hér að framan er nefnt. Svo seg- ir ágætur maður og um eitt skeiö rjúpnaskytta i minninga- bók sinni, ,,Er liða tók á september og október voru rjúpnabreiður um allar brúnir, og sátu þær oft svo þétt að leikur einn var að hæfa margar i skoti, ef komizt var hæfilega nærri. Varð drápfýsnin og vigamóður- inn þá svo mikill og villimann- legur, að ekki festi auga á hinu ljóta og djöfullega i þessu at- hæfi. Að þessum prúðbúnu, fögru sakleysingjum var laum- azt á lævislegasta hátt og búið vel um sig i hæfilegri fjarlægð með byssuna viö vangann Litiö þrusk aðeins og breiðan lyftir sér til flugs, en þá er skotinu rennt i hópinn og dauðar og hálfdauðar hrynja þær niður, sumar strax, aðrar siðar. Villi- maðurinn hleypur og hleypur, móður og másandi, blóðugur um hendur og blindaður af græðgi eltir hann vængbrotinn vesaling, slær honum við eða héngir i greip. Og þetta eru sennilega vinir minir frá sumr- inu, fæddir rétt við túngarðinn og höfðu hlaupið velfelstir gæfir og „mumpandfci” með mæðrum sinum inn á túniðog tint sér fræ. Augun i þessum fórnardýrum minum á dauðastundinni kröfð- ust þess af mér, að ég legði frá mér byssuna og hætti þessum ómenningarlega, ókristilega og svivirðilega fjáröflunarhætti. Ég hlýddi þessum rétttlátu, ásakandi augum. Haglabyssuna hef ég ekki snert um það bil i fjörutiu ár”. Betur að einhverjir færu að dæmi þess manns, sem gjörir þessa hreinskilnislegu játningu. En á rjúpnaveiðitimanum geysast menn um fjöll og heið- ar, helga daga sem virka og ganga margir hverjir úr öllum mannlegum ham i ákafanum við að myrða þennan hvita sak- leysingja. En enginn verður meiri af þvi verki, né auðnurik- ari. Ilaglaskot er morðtæki, sem ætti að banna með lögum. En til þess brestur viðkomandi stjórnvöld dug til þess og svo margs annars, sem betur má fara. Einhvern tima hefði það verið taliö helgidagsbrot aö tortima lifi t.d. um messutimann á sunnudegi. En nú liðst allt og dæmi munu til um, aö meira að segja þjónar kirkjunnar hafi farið á rjúpnaveiðar og að sjálf- sögðu i rúmhelginni. Lotningin fyrir lifinu á sér ekki alltaf djúpar rætur, hvorki hjá lærð- um né leikum. En staðreynd er það eigi að siður, að sælla er að bjarga lifi en eyða þvi. Eigi mun 20. aldar fólki, sem ofmettað er, fært að fordæma atferli „gæða- konunnar” i kvæðinu hans Jón- asar Hallgrimssonar. Morð af sporti framið eða hungri — á þvi er stigsmunur. Mitt i þessu er svo stofnað Tófuvinafélag á Is- landi. (Frétt i dagbl. Timanum 226. tölubl. 13. okt. sl.). Þar stendur að „markmið félagsins sé að vinna markvisst að út- breiðslutófunnar um land allt”. Ekki kann ég við orðið „út- breiðsla” i þessu sambandi, rétt eins og hér væri um að ræða blað eða kennslutæki, en það er þó aukaatríði hjá öðru hér að lútandi. Krafizt er „fullrar frið- unar” á tófutetrinu. Já, vist er, að ekki hefur verið hlýleikanum fyrir að fara i sambýli manns og tófu i landi hér. Tófan hefur verið talin réttdræp hvar sem var og verið ofsótt án allrar miskunnar, svo að hreint djöful- æði má heita stundum. Saman- ber elt á vélsleða. Og er þvi á engan hátt bót mælandi. Lág- markið i sambandi við eyðingu hennar er, að hún sé fram- kvæmd á sæmilega mannúð- legan hátt. En yrði eyðingu hennar hætt, yrði það áreiðan- lega á kostnað ýmissa annarra lifvera og það með átakanlegum hætti. Þei^ sem eru stofnendur áðurnefnds félags hafa visast aldrei séö lamb illa leikið af tófu eöa rjúpu sem hefur rifiö af sér vænginn i gini vargsins til að bjarga lifinu stundarkorn til þess svo máske að verða skot- mark siðar. Tófan er sem sé skæður óvinur rjúpunnar eins og valur- inn. Hinn fremsti er þó auðvitað tvifætlingurinn með vigahuginn og vopnfimina — og vitið mikla. „Blessuð rjúpan hvita”. Jórunn ólafsdóttir frá Sörlastööum. Athugasemd við leikdóm 1 umsögn Jónasar Guðmunds- sonar um leikritið Fröken Margréti i Timanum laugar- daginn 12. nóv. sl. er eftirfar- andi klausa: „Dálitil umræða hefur orðið nýverið um að taka leikrit til kennslu i framhalds- skólum og þar eð „kúpp” ákveðinnar bókaútgáfu um að koma óþekktu leikriti um ein- hvern Salin til kennslu á fram- haldsskólastigi, virðist nú kjörið tækifæri til samstarfs milli skóla og Þjóðleikhúss, án þess bókaútgefandi segi leikhúsinu fyrir verkum”. Með þvi mál þetta hefur borið á góma i öðrum blöðum, án þess umgetendur nafngreindu sig, þvkir rétt að taka tram eftir- farandi: 1. Leikritaval Þjóðleikhússins fer fram á þann hátt, að leik- ritavalsnefnd fjallar um hugsanleg verkefni, oft i sam- ráði við þá leikstjóra, sem i hús- inu starfa. Niðurstöður nefndar- innar eru siðan lagðar fyrir Þjóðleikhúsráð til samþykktar. Fjallað var um umrætt leikrit á haustmánuðum i fyrra, en verk- efnaskrá endanlega lögð fyrir leikhúsráð i mai sl. 2. Eftir að æfingar hófust upp- lýsti höfundur forráðamenn Þjóðleikhússins um það að áhugi væri hjá bókaútgáfunni Iðunni að birta leikritið á prenti og hvort leikhúsið sæi nokkuð athugavert við það. Þvi var svarað svo sem venja er, að það væri 'siður en svo: hins vegar þætti i leikhúsinu eðlilegt, að leikritið birtist ekki á bók fyrr en það væri frumsýnt. Þó að þvi miður sé minna um það en skyldi aðleikriti komi út á bók á íslandi. hefur það þó komið fyrir og þá sami háttur hafður á, t.d. um leikrit Halldórs Lax- ness, að þau hafa komiö út á frumsýningardag. 3. Það hlýtur að vera hverju leikhúsi gleðiefni, þegar úr hópi skólamanna ber á áhuga á þvi sem I leikhúsinu gerist. Þarna er gerð tilraun til að fjalla um samtimabókmenntir nánast þegar þær eru varla þurrar af pennanum og gefur auga leiö, að fróðlegt er fyrir nemendur að bera saman textann eins og hann er frá höfundarins hendi og svo sjálfa sýninguna. Það hefur stundum borið á áhuga af þessu tagi áður, en ekki alltaf verið unnt að sinna honum, sér- staklega ef ný islenzk leikrit hafa tekið miklum breytingum nánast fram á frumsýningar- dag. Hins vegar má, fyrst áhugi hefur vaknað, benda á tvö verk- efni, sem i vændum eru i leik húsinu, sem ugglaust mætti einnig nýta við kennslu: ödipus konung eftir Sófókles í islenzk- um búningi Helga Halfdánar- sonar og Son skóarans og dóttur bakarans eftir Jökul Jakobsson. Með þökk fyrir birtinguna Sveinn Einarsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.