Tíminn - 25.11.1977, Síða 19
Föstudagar 25. nóvember 1977
19
Alyktanir miðstj órnarfundar SUF
STJORNMALAALYKTUN
Miöstjórnarfundur SUF vekur athygii á
þeim árangri/ sem náðst hefur á ýmsum
sviðum þjóðmála hin síðari ár fyrir for-
göngu Framsóknarf lokksins.:
1. Núverandi kynslóð hefur tryggt sér og
afkomendum sínum fuli og ótvíræð yfir-
ráð yfir auðlindum landsins. Sigurinn í
landhelgismálinu er lokaáfangi þeirrar
baráttu. í því sambandi minnir f undurinn
á að skynsamleg og varkár nýting lands-
gæða og fiskistofna sé meginforsenda
velsældar landsmanna í framtíðinni.
2. Bylting hefur orðið í atvinnumálum og
félagslegri þjónustu landsbyggðarinnar,
sem hefur snúið við röskun á búsetu í
landinu.
3. Áherzla hefur verið lögð á að ef la fram-
leiðsluatvinnuvegina og með því hefur
tekiztað halda uppi fullri atvinnu, meðan
atvinnuleysi hefur hrjáð flestar ná-
grannaþjóðir okkar.
Miðstjórnarf undurinn leggur áherzlu á að
milli núverandi stjórnarf lokka er djúpstæð-
ur ágreiningur í fjölmörgum málum. Því
hafa framsóknarmenn ekki náð öllum sín-
um stefnumálum fram í núverandi ríkis-
stjórn.
Framsóknarf lokkurinn er f lokkur þeirra,
sem aðhyllast félagshyggju og samvinnu-
stefnu. Því er flokkurinn höfuðandstæðing-
ur hægri aflanna í landinu. Stjórnarsam-
vinna viðsjálfstæðisf lokkinn hlýtur því ailt-
af að skoðast sem neyðarúrræði.
Miðstjórnarfundurinn beinir eftirfarandi
sérstaklega til ungra kjósenda:
Ný vinstri sinnuð umbótastjórn verður
ekki mynduð hér á landi nema Framsókn-
arf lokkurinn veiti henni forystu. Því verður
að leggja höfuðáherzlu á að Framsóknar-
flokkurinn komi sterkur út úr næstu al-
þingiskosningum.
Baráttan
gegn
verðbólgu
Núverandi ríkisstjórn hefur
leitazt við að draga úr þeirri
verðbólgu, sem geisað hefur hér
á landi siðustu ár, en ekki t'ekizt
sem skyldi.
Miðstjórnarfundur SUF hvet-
ur til þess að gerðar verði rót-
tækar ráðstafanir tii þess að
hamla gegn frekari verðbólgu.
1 þvi skyni eru eftirfarandi
ráðstafanir nauðsynlegar.
1. Rikissjóður verði rekin með
tekjuafgangi, þannig að unnt
verðiað endurgreiöa veruleg-
an hluta skuldasöfnunar und-
anfarinna ára.
2. Skipulag og stjórn fjárfest-
ingar verði aukin. A undan-
förnum árum hafa átt sér stað
mistök á þessu sviði sem hefði
mátt koma i veg fyrir með
meira skipulagi.
3. Dregið verði úr ráðstöfunar-
tekjum þeirra, sem hæst laun
hafa.
4. Jöfnunarsjóðir atvinnuveg-
anna verði efldir, svo draga
megi úr sveiflum i þjóðarbú-
skapnum.
5. Leitað veröi nú þegar sam-
starfs við samtök launþega,
bænda og vinnuveitenda til
þess að koma I veg fyrir fyrir-
sjáanlegar vixlhækkanir
kaupgjalds og verölags.
Samvinnu-
stefna —
framsókn-
arstefna
Miðstjórnarfundur SUF
minnir á að Framsóknarflokk-
urinn og samvinnuhreyfingin
eru tvær alisienzkar fjölda-
hreyfingar, sem sprottnar eru
úr sama jarðvegi og hljóta þv.
jafnan að eiga samleið.
Fundurinn fagnar þvi ómet-
anlega starfi sem unnið hefur
verið i mörgum kaupfélögum til
þess að bjarga heilum byggða-
lögum frá auðn og hefur sam-
vinnuhreyfingin þar verið sam
stiga með Framsóknarflokkn-
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna var haldinn 18. og 19. nóv. A fundinum fór fram ftarleg umræða um stjórnmála-
ástandið og ályktanir geröar um nokkur mál sem ofarlega er á baugi. A myndinni er Magnús ólafsson, formaður SUF, I ræðustóli.
um i framkvæmd byggðastefnu.
Fundurinn minnir á þá nauð-
syn, að starfsmenn samvinnu-
hreyfingarinnar aðhyllist hug-
myndafræði samvinnuhreyfing-
arinnar og jafnframt að Samb.
isl. samvinnufélaga er þjónn
kaupfélaganna en ekki hús-
bóndi.
Fundurinn fagnar fyrirhug-
aðri aukningu á fræðslustarfi
samvinnumanna og þvi
frumkvæði sem samvinnu-
hreyfingin hefur haft um at-
vinnulýðræði.
Fundurinn skorar á sam-
vinnuhreyfinguna að hvika ekki
frá hugsjónum sinum og halda
hátt á lofti merki þeirra fjöl-
mörgu manna, sem vilja félags-
hyggju að leiðarljósi.
Herlaust
land
baö er stefna Framsóknar-
flokksins, að erlent herlið eigi
ekki að vera á Islandi á friðar-
timum.
Þvl er miðstjórnarfundur
SUF eindregið andvigur þeim
hugmyndum, sem nú eru uppi i
þá átt að taka beri leigu fyrir af-
not Bandarikjanna af landi
undir herstöðina á Miðnesheiði,
enda verður slikt. einungis tií
þess að festa herinn i sessi.
Fundurinn leggur
áherzlu á að gerð verði
áætlun um brottför hers-
ins, sem tiltæk sé, þegar
andstæðingar herstöðva á
Islandi hafa náð meiri-
hluta á Alþingi.
Persónu-
kjör
þegnanna
Miðstjórnarfundur SUF legg-
ur áherzlu á að forystumenn
stjórnmálaflokkanna láti ekki
sitja við orðin tóm heldur beiti
sér fyrir nauösynlegum breyt-
ingum á kosningalögum.
Ekkert er þvi til fyrirstööu að
það verði gert á yfirstandandi
þingi.
Miðstjórnarfundurinn minnir
i þvi sambandi á sameiginlegar
tillögur ungra framsóknar-
manna, ungra sjálfstæðis-
manna og ungra jafnaðar-
manna um þessi mál, og leggur
áherzlu á að kjósendum verði
veitt raunverulegt frelsi til þess
að velja á milli einstakra fram-
bjóðenda.
Stuðningur
við frjálsa
félaga
starfsemi
Miðstjórnarfundur SUF legg-
ur áherzlu á eflingu allrar
frjálsrar félagastarfsemi i land-
inu. t þvi sambandi minnir
fundurinn á ráðstefnu þá, sem
SUF gekkst fyrir um þessi mál i
júni s.l. Fundurinn telur, aö
málefni hinna frjálsu félaga
hafi nú um nokkurt skeið nánast
gleymzt i hinni almennu þjóöfé-
lagsumræðu.
Fundurinn leggur áherzlu á:
1. Stjórn á öllu tómstundastarfi
verði sem mest færð i hendur
fólkinu sjálfu. Fjárstuðningur
og önnur aðstoð opinberra að-
ila við tómstundastarf veröi
stórefid.
2. Skólahúsnæði verði nýtt betur
en nú er gert, fyrir ýmiss kon-
ar félagastarfsemi, enda ber
að hafa i huga aukið samstarf
skólans og hinna frjálsu fé-
laga viö byggingu skólahús-
næðis i framtiðinni.
3. Horfið verði frá skattlagningu
þeirri, er nú viðgengst, á
starfsemi hinna frjálsu fé-
laga, sem innt er af hendi i
sjálfboðavinnu af f jölmörgum
einstaklingum.