Tíminn - 13.12.1977, Side 11

Tíminn - 13.12.1977, Side 11
Þriöjudagurinn 13. desember 1977 n Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftif kl. 20.00: 86387. Verð i lausasöiu lir. 80.00. Askriftargjal^ kr. 1.500 á mánuði. ■ 1 - Blaðaprent h.f. Erjur um Aronskuna Siðustu daga hefur verið háð mikið strið i blöð- um sjálfstæðisflokksmanna um Aronskuna svo- nefndu. Að visu afneita öll blöðin orðið hinni upp- runalegu Aronsku, sem var á þá leið að Bandarik- in væru látin greiða sérstaka leigu eða gjald fyrir herstöðvar hérlendis. 1 staðinn er deilt um, hversu mikils fjár skuli krafizt af Bandarikjamönnum til vissra framkvæmda. sem eru beint eða óbeint i sambandi við hersetuna. Morgunblaðið og Visir eru þeirrar skoðunar, að þessi framlög eigi að tak- marka við herstöðvasvæðið sjálft, en þar er fyrst og fremst um Keflavikurvöll að ræða. Þar eigi Bandarikin að sjá um lagningu og viðhald flug- brauta og þess útbúnaðar, sem krafizt er af alþjóð- legum flugvelli. Einnig um vegagerð og vegavið- hald innan flugvallársvæðisins, svo og mannvirki sem leiða af nauðsynlegum aðskilnaði hernaðar- reksturs og farþegaflugs. í Dagblaðinu er gerð krafa um miklu meira, eða að Bandarikjamenn kosti ráðstafanir vegna almannavarna, sem tald- ar eru nauðsynlegar vegna þeirrar auknu hættu, sem borgurum geti stafað af herstöðinni, ef til striðs kæmi. Undir það gæti heyrt viðtæk vega- gerð. Þá verði varnarliðið látið greiða sömu tolla og skatta og landsmenn almennt. Enn fremur verði gerðar til þess margar aðrar fjárkröfur um- fram það, sem nú á sér stað. Af umræddum skrifum i blöðum Sjálfstæðis- flokksmanna mætti ætla, að um þetta efni stæði mjög djúptækur ágreiningur innan Sjálfstæðis- flokksins. Geir Hallgrimsson hefur skipað sér i sveit með Morgunblaðinu og Visi, en Gunnar Thor- oddsen og Albert Guðmundsson standa fast með Dagblaðinu, og hafa sér það til stuðnings, að i skoðanakönnun, sem fór fram i sambandi við próf- kjör Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik, hlaut stefna Dagblaðsins yfirgnæfandi fylgi. Þrátt fyrir stóru orðin, sem fallið hafa á báða bóga, er ekki mikil á- stæða til að ætla, að þessi ágreiningur veiki Sjálf- stæðisflokkinn i þeirri kosningabaráttu sem fram- undan er. Miklu fremur er ástæða til að ætla, að formaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hafi skipt með sér verkum til að geta haldið báðum örmum flokksins sem bezt saman, þegar til bar- áttunnar kemur. Sjálfstæðisflokknum hefur oft tekizt sú list vel, að vera flokkur margra og mis- munandi skoðana og það virðist hann ætla að reyna einu sinni enn. Þótt menn, samkvæmt framansögðu, taki þess- ar skilmingar innan Sjálfstæðisflokksins ekki sér- lega hátiðlega, verður eigi séð fram hjá þeirri staðreynd að innan flokksins er vaxandi hreyfing fyrir þvi, að krefjast meiri fjárgreiðslna af hálfu Bandarikjanna i sambandi við vamarmálin. Næði sú stefna fram, myndi ísland ótvirætt verða háð- ara Bandarikjunum i framtiðinni og margir kynnu að vilja halda i herstöðina af fjárhagslegum á- stæðum eftir að hennar væri ekki lengur þörf. Smáþjóðum hefur aldrei reynzt það gæfuvegur að vera fjárhagslega háð stórveldum á þennan hátt. Þess vegna ber að veita þessum innanflokksdeil- um i Sjálfstæðisflokknum nána athygli, enda þótt þær kunni að stafa nú að verulegu leyti af þvi, að Sjálfstæðisflokkurinn ætli nú sem oftar að tala tveimur tungum fyrir kosningar. ERLENT YFIRLIT Reynist Meroouri góður þingmadur? Staða Karamanlis veiktist í kosningoinum KARAMANLIS forsætisráð- herra hefur gert miklar breyt- ingar á rikisstjórn sinni eftir þingkosningarnar, sem fóru fram 20. f.m. Hann hefur losað sig viö þá ráöherra sem þóttu reynast misjafnlega, en faliö þeim, sem betur þóttu standa sig ábyrgöarmeiri störf. Þá hafa nokkrir nýir menn tekiö saeti i stjórn hans. Þaö mun ekki veita af því fyrir Kara- manlis aö styrkja stjórnina, þvi aö staöa hans á þingi er mun veikari en hún var áöur. Flokkur hans hefur aö visu áfram öruggan þingmeiri- hluta eöa 173 þingmenn af 300 alls. Aöur haföi hann hins veg- ar 220 þingsæti og þar aö auki fylgdi Miðflokkurinn, sem þá var næststærsti flokkurinn, honum oftast aö málum. Miö- flokkurinn haföi þá 60 þing- menn, en fékk nú ekki nema 15 þingmenn. Liðveizla hans viö Karamanlis er þvi ekki jafn- mikilvæg og áöur, og senni- lega veröur hann lika tregari til að fylgja honum aö mdlum eftir ósigurinn i kosningunum. 1 kosningunum 1974 fékk Þ jóö- arflokkur Karamanlis 54,3% greiddra atkvæöa, en nú ekki nema 41,8%. Þá fékk Miö- flokkurinn 20.5% greiddra at- kvæöa, en nú fékk hann ekki nema 11,9%. Þannig er staöa Karamanlis mun veikari eftir kosningarnar bæöi innan þings og utan, Þaö mun ekki auövelda honum aö leysa þau þrjú aöalmál, sem hann setti á oddinn i kosningabaráttunni, þ.e. Kýpurdeiluna, aöildina aö Efnahagsbandalaginu og deil- una viö Tyrki um lögsögu eyj- anna á Grikklandshafi. ÞAÐ VAR hinn róttæki jafn- aðarflokkur, Pasok, sem er undir forustu Andreas Papan- dreou, sem varö aöalsigur- vegari i kosningunum. Flokk- urinn fékk i kosningunum 1974 13,6% atkvæöanna og 12 þing- menn. nú fékk flokkurinn 25,3% atkvæöanna og 92 þing- menn. Hann veröur þvi helzti stjórnarandstööuflokkurinn og Papandreou leiötogi stjórn- arandstööunnar á þingi, en áöur var þaö Mavros, leiötogi Miðflokksins, sem stóö mál- efnalega nálægt Karamanlis en nú hefur sagt af sér flokks- formennskunni vegna kosn- ingaósigursins. Þaö má telja vist aö Papandreou veröi Karamanlis miklu haröari og skæöari andstæöingur en Mavros. Papandreou mun lika hafa nokkurn stuöning af Andreas Papandreou flokki kommúnista, sem fylgja Sovétrikjunum aö mál- um, en hann fékk 9,4% at- kvæðanna og 11 þingmenn. Alþýöubandalagiö, sem flokk- ur Evrópukommúnista tók þátt I, fór illa út úr kosningun- um. Þaö fékk aöeins 2,7% at- kvæöanna og 2 þingmenn. Þaö er talið, aö Papandreou hafi átt sigur sinn meira aö þakka þeim málum sem hann var á móti, en hinum, sem hann var meö. Papandreou beitti sér I kosningabaráttunni harölega gegn aöild aö Efna- hagsbandalaginu aöild aö At- lantshaf sbandalaginu og samningum viö Tyrki, sem ekki fælu i sér ýtrustu viður- kenningu á kröfum Grikkja. En þrátt fyrir hinn neikvæöa málflutning Papandreous, sem oft var talaö um af and- stæöingum hans i kosninga- baráttunni, var tónninn og blærinn á málflutningi hans talsvert annar en áöur. Papandreou sem er mestur ræöugarpur núlifandi griskra stjórnmálamanna, höföaöi ekki eins mikiö til tilfinninga manna og áöur, heldur lagöi meiri stund á hóflegan og rök- studdan málflutning. Þess vegna er búizt viö, aö hann muni á þingi leggja megin- kapp á rökfastan og hófsaman málflutning i trausti þess, aö þannig nái hann bezt til þess fólks, sem flokkur hans þarf að vinna frá Þjóöarflokknum og Miðflokknum, en Papan- dreou stefnir nú aö þvi, aö flokkur hans veröi stærsti flokkur Grikklands eftir næstu kosningar. Papandreou hefur þá náö sama marki og faðir hans, sem um langt skeið var aöalleiötogi frjálslyndu afl- anna iGrikklandi. Upphaflega ætlaði hann ekki aö fara i fót- spor fööur sins og þvi var hann prófessor i Bandarikjunum um talsvert árabil. ÞAÐ HEFUR vakiö sérstaka athygli, að i þingflokki Pasok eru tvær konur, sem vöktu á sérmikla athygli fyrir baráttu gegn herforingjastjórinni á sinum tima. Þær eru Amalia Fleming, ekkja visinda- mannsins fræga, og Melina Mercouri frægasta leikkona Grikkja, en hún var sérstak- lega fræg fyrir leik sinn i kvik- myndinni „Never on Sunday ”, en sú mynd var tekin i þvi kjördæmi, þar sem hún var framjóöandi nú. Þetta er þaö kjördæmi, þar sem fátækt er sögð einna mest i Grikklandi. Mercouri bauö sig fram þar 1974 og vantaöi þá aöeins 33 atkvæöitilþessaö ná kjöri. Nú sigraöi hún meö yfirburöum. Mercouri, sem er 52 ára göm- ul, segist ætla aö sinna þing- starfinu af kostgæfni, og telja sumir fréttaskýrenda, aö hún muni draga aö sér mesta at- hygli á þingi, aö þeim Kara- manlis og Papandreou einum undanskildum. Þ.Þ. Mercouri ræöir viö kjósendur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.