Tíminn - 13.12.1977, Qupperneq 15

Tíminn - 13.12.1977, Qupperneq 15
Þribjudagurinn 13. desember 1977 15 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veburfregnir). 16.20 Popp 17.30 Litli barnatiminn Guð- rún Guðlaugsdóttir sér um timann. 17.50 Ab tafliGuðmundur Arn- laugsson flytur skákþátt. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Nýmótun umhverfis — umhverfisvernd Gestur Olafsson arkitekt flytur er- indi. 20.00 Fiblukonsert nr. 3 i g- moll op. 99 eftir Jenö Hubay. Aaron Rosand leik- ur með Sinfóniuhljómsveit útvarpsins i Lúxemburg: Louis de Froment stjórnar. 20.30 tJtvarpssagan: „Silas Marner” eftir Georg Eliot Þórunn Jónsdóttir þýddi. Dagný Kristjánsdóttir les (11). 21.00 Kvöldvakaa. Einsöngur: Svala Nielssen syngur is- lensk lög Guörún Kristins- dóttir leikur á pianó. b. Vib Hrútafjörb Guðrún Guð- laugsdóttir ræðir við Jón Kristjánsson fyrrum bónda á Kjörseyri. c. Alþýbuskáld á Hérabi Sigurður Ó. Páls- son skólastjóri les kvæði og segir frá höfundum þeirra fyrsti þáttur. d. Haldið til haga Grimur M. Helgason forstöðumaður handrita- deildar landsbókasafnsins flytur þáttinn. e. Alfkonan i Gammabrekku. Bryndis Sigurðardóttir les frásögu, hafða eftir sr. Matthiasi Eggertssyni f. Kórsöngur: Félagar I Tóniistarféiags- kórnum syngjalög eftir Ólaf Þorgrimsson. zdr Pall Isólfsson stjórnar. Orb kvötdsins á jólaföstu. 22.30 Veðurfregnir. Frétt- ir. Harmonikulög Carl Jularbo leikur með félögum sinum. 23.00 A hljóbbergi „Donna Klara” önnur ljóð eftir Heinrich Heini. Boy Gobert les. Baldvin Halldórsson les islenskar þýöingar sömu ljóða eftir Hannes Hafstein, Bjarna frá Vogi og Magnús Asgeirsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Þriðjudagur 13. desember 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sautján svipmyndir ab vori • Sovéskur njósna- myndaflokkur i tólf þáttum. 4. þáttur. Efni þriðja þátt- ar: Stierlitz biður yfirboð- ara sina 1 Moskvu um leyfi til aö hafa samband viö Himmler. Þannig te'Jur hann sig geta fengiö meira athafnafrelsi. A sama tima byrjar yfirmaöur Stierlitz i lögreglunni að safna upp- lýsingum um hann. Ferill hans i lögreglunni er rannsakaöur og maður er settur til að njósna um hann. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 22.05 Sjónhending Erlendar myndir og málefni. Um- sjónarmaöur Sonja Diego. 22.25 Landkönnubir. Leikinn breskur heimildamynda- flokkur- 9. og næstsiöasti þáttur Francisco Pizarro (l47l-l541).Arið 1532 réðust Spánverjinn Pizarro og konkvistadorar hans inn i riki Inka i Suður-Ameriku. Þeir fóru eyðandi hendi um landið og á skömmum tima höfðu þeir lagt undir sig land á stærð við hálfa Evrópu. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. Þessi þáttur er ekki viö hæfi ba rna. 23.15 Dagskrárlok. r * David Graham Phillips: J: 90 SUSANNA LENOX JónHelgason ði- Samt sem áður höfðu þær gamanyrði á takteinum hvor við aðra og við hinar verksmiðjustúlkurnar. Og þessi kæti hefði jafnvel verið meira en yfirborðsglens, sprott- ið af ungæðislegri hæfni til þess að sjá það/ sem skringi- legt var, jafnvel við átakanlegasta harmleik, ef þær hefðu aðeins getað hirt sig sæmilega. Skortur á nægum mat var þó þungbær þraut, því að báðar voru þær lystar- góðar. En það var ekki samt nema, þegar þær urðu alveg að sleppa máltiðum úr, að þetta var tiltakanleg áraun. Kuldinn var miklu verri. En það var hlýtt í verksmiðj- unni, og það var hlýtt i íbúð f rú Cassatts, þar sem glugg- arnir voru aldrei opnaðir f rá því veturinn gekk í garð þar til tók að vora. Verst af öllu illu voru sem sagt þau óyf ir- stíganlegu vandkvæði, sem á því voru að viðhafa hrein- læti. Allt frá því, að Súsanna byrjaði að vinna í öskjugerð- inni hafði sóðaskapur hinna stúlknanna verið henni til mikilla leiðinda. Hún vissi vel, að þetta var ekki þeirra sök. Hún öf undaði þær samt öðrum þræði af því, hve lítið þær f undu til þessa, því að það gerði þeim kleift að sætta sig við þetta ömurlega hlutskipti, sem hún var viss um, að ekki var hægt að ráða bót á, hvort eð var. Stundum furðaði hún sig á þeim ítökum, sem trúarbrögðin áttu i huga þessara ungu stúlkna — og þó einkum þeirra, sem afskeiðis hafði borið í lífinu og lengst voru komnar út á þá braut, sem prestar þeirra og prelátar sögðu, að væri syndin mesta í heimi hér. En hún sá líka, að áhrifavald trúarbragðanna fór siður en svo þverrandi. Einn dag sagði Emma Schmeltz, sem var að þýzku bergi brotin og þess vegna mótmælendatrúar: ,,Ja, ég lit að minnsta kosti á þetta allt saman eins og reynslutíma, og seinna mun allt snúast á betri veg. Ég trúi því, sem mér hefur verið kennt. Við hljótum áreið- anlega umbun í öðru lífi". Rebekka Lichtenspiel, sem var af Gyðingaættum, hló, eins og raunar flestar hinna, og svaraði: „Annað lif er ekki til. Hafið þið nokkurn tima sé lík? Eru lik lifandi eða dauð? Talið ekki við mig um annað líf". Allar stúlkurnar hlógu. Það var mánudagsmorgunn, og þetta samtal var miklu hressilegra og háfleygara en venja var til meðal verksmiðjustúlknanna. Þær voru endurnærðar eftir sunnudagshvíldina. Það sem Súsönnu var ógeðfelldast, var að láta þær koma við sig. En hún var allt of vingjarnleg, allt of nær- gætin, til þess að láta það í I jós. Hún gekk meira að seg ja svo langt í ákafri viðleitni sinni til þess að dylja tilfinn- ingar sínar, að hún ekki aðeins lét það óátalið, þótt þær héngu utan í henni, heldur bókstaklega gaf þeim færi á því, sem henni fannst þó hér um bil andstyggilegt, Því verður ekki lýst, hversu mikil ömun henni var til dæmis aðsífelldum vinalátum Lettu Southards. Þessi Letta var ung og falleg stúlka. Foreldrar hennar voru örsnauðir. Hún var einlægt óhrein, og fýluna af nærfötum hennar lagði gegnum garmana, sem hún var í utan yfir. Hún vildi sífellt vera að faðma og kyssa Súsönnu — og ef hún hefði ekki sætt sig við það, hefði hún auðvitað móðgað Lettu sárlega og styggt hinar stórum. Allt f rá því á morgnana, að hún kom í verksmiðjuna og hengdi hatt sinn og treyju á snagana hjá daunillum og óhreinum flíkum hinna, sem einnig voru oft morandi í lús — allt frá því snemma á morgnana, þar til hún fór heim á kvöldin, neyddist hún til þess að láta sér lynda ýmisiegt af þessu tagi, enda þótt hana hryllti alltaf við því. Meðan hún bjó hjá Brashearshjónunum hafði hún þó alltaf getað um frjálst höfuðstrokið á nóttunni. EN nú . . Vatnið var af skornum skammti, og aðeins einn óhreinn og brotinn stampur, sem hægt var að þvo sér úr. Nærfötin var engin tök að þvo, því að í þeim urðu þær að sofa á nóttunni. Ekki var heldur kostur á að þvo hárið. „Er eins vond lykt af hárinu á mér og þér?" spurði Etta. „Er eins vond lykt af hárinu á mér og hinum stelp- unum?" spurði Súsanna. ,,Ekki alveg", svaraði Etta hughreystandi. Með herkjubrögðum tókstþeim að koma málum sínum svo, að þær gátu þvegið sér að einhverju leyti einu sinni i viku, þó ekki án þess að verða f yrir ónæði — en þvi vönd- ust þær fljótt. Blygðunarsemin, sem Súsanna hafði áður verið mjög haldin af og einnig hafði náð tökum á Ettu, rénaði og hvarf. Þeim stóð orðið alveg á sama, þótt Danni svæfi í sama herbergi og þær. Þær sáu hann, föður hans og ann- að heimilisfólk hálfstrípað og alstrípað gera þær þarf ir sínar, sem annars er ekki venja að gera fyrir allra aug- um, og á sama hátt urðu þær að gera sínar þarf ir í aug- sýn Cassattafólksins. Hjá því varð ekki komizt, fremur en sneytt varð hjá óværunni, sem krökt var af í rúminu og rifum á lofti, veggjum og gólfi. Cassattsfólkið hafði fyrir fám mánuðum verið vel stætt iðnaðarfólk. En svo dundi yf ir það hvert óhappið af öðru, eins og altítt er í þjóðfélögum okkar á erf iðleika- tímum. Það var komið á kaldan klakann áður en varði. Þá, sem góðu eru vanir, skortir þrek og reynslu til þess að koma undir sig fótunum eftir skyndileg og óvænt áföll. Á undraskömmum tíma hafði allt siðferðisþrek Cassattsfólksins lamazt. Húsbóndinn hafði lagzt í drykkiuskap til þess að bæta sér upp það áfall, sem sjálfstrausf hans hafði beðið, og svæfa áhyggjurnar út af framtíð f jölskyldunnar. Konan var ekki húsmóður- störf unum vaxin fremur en þorri kvenna í hvaða þjóðfé- lagsstétt sem er. Hún stóð þess vegna ráðalaus and- spænis hinu nýja viðhorf i. Hún gaf st algerlega upp, var á sifelldu flökti, kámug og tötraleg, með óhreinar hár- flétturnar lafandi niður á bak. ,, Hvers vegna festirðu ekki f létturnar upp, mamma?" spurði Danni sonur hennar, sem eitthvert hugboð hafði um það, hvort þokkalegra myndi vera. „Hvaða gagn væri að því?" sagði gamla konan. „Hvaða gagn er yfir leitt að nökkrum sköpuðum hlut?" Dóttirin sextán ára gamla, Kata var afgreiðslustúlka í stórri búð. Kaup hennar, sex dalir á viku, voru hinar einu föstu tekjur þessarar fjölskyldu. Hún hafði áður verið mjög smekklega klædd, miðað við það, sem algengast var um stúlkur af hennar stigum. Hún var ákaflega glysgjörn, sem ekki var heldur að undra, því að hún starfaði i búð, þar sem ekki var talað eða hugsað um annað en skart frá morgni til kvölds. Hún hnuplaði, þegar hún gat komið því við, og verzlaði svo með þýf ið við aðrar stúlkur, sem höf ðu á boðstólum eitthvað annað, sem henni kom betur. En nú var búið að tæma spari- sjóðsbók heimilisföðurins, og það varð ekki hjá því kom- izt að fara með ailt þýf ið beint til veðlánarans. Þvi meir sem að kreppti, þeim mun skapverri varð Kata. Áður fyrr hafði það verið á orði haft, hve ástúðleg hún var og auðunnin með góðu atlæti. Orbrigðin hafðj æst upp verstu og eigingjörnustu hvatir hennar. „Taktu bara eftir þeim Lornu og Ettu", var móðir hennar vön að segja. „Hvernig á ég aö vita hvernig . mér dettur allt þetta I hug. Ég sem veit ekki einu sinni hvernig . ég varö til.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.