Tíminn - 15.12.1977, Page 2

Tíminn - 15.12.1977, Page 2
2 mmm Fimmtudagurinn 15. desember 1977 erlendar fréttir Dollarinn fellur stöðugt London/Reuter. Bandarikja- stjórn virðist þurfa að grfpa til skjótra aðgerða til að styrkja stöðu dollarsins en hann er á stöðugri niðurleið á gjaldeyris- mörkuðum Evrópu. Engar til- kynningar hafa enn borizt frá Washington þess efnis að reynt verði að stöðva sigið. Hans-Otto Thierbach, sem á sæti f stjórn Þýzkalandsbanka sagði að ef ekki yrði að gert lækkaði verð dollars- ins niður fyrir 2,10 mörk. Bandarikjastjórn hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að varpa öllum aðgerðum á aðrar þjóðir sem hafa orðið að kaupa svim- andi upphæðir dollara til að styrkja gjaldmiöilinn. Sig dollarsins orsakast einkum af miklum viöskiptahalla Banda- rikjanna en sigið minnkar hall- ann vegna lækkaðs verös á bandariskum útflutningsvörum. Bretar vilja ekki hlutfallskosningar til Evrópuþingsins Menachem Begin Strassborg/Reuter. Fulltrúar, sem sæti eiga á Evrópuþinginu, hafa látið i Ijós vonbrigði sln með úrslit kosninganna I neðri mál- stofu brezka þingsins, þar sem felld var tillaga þess efnis að 410 fulltrúar á Evrópuþingið yröu kosnir beinni hlutfallskosningu I öllum löndum Efnahagsbanda- lagsins samtimis. Hinar fjölþjóð- legu kosningar áttu að fara fram I mai eða júni á næsta ári, en þeim mun nú seinka að minnsta kosti um eitt ár. Á Evrópuþinginu eiga nú sæti 198 fulltrúar tilnefndir af stjórnum Efnahagsbandalags rlkjanna. Frjálslyndi flokkurinn í Bret- landi studdi hlutfallskosningu til Evrópuþingsins ákaft, en flokk- urinn hefur átt hvaö drýgstan þátt I aö halda Verkamanna- flokknum við völd. Nú er ljóst að Frá Evrópuþinginu I Sírassborg að minnsta kosti 100 þingmenn Verkamannaflokksins greiddu atkvæði gegn hlutfallskosning- unni. Leiötogi frjálslynda flokks- ins, David Steel, gekk á fund James Callagan til að ræða úrslit atkvæðagreiðslunnar. Framá- menn flokksins hafa látið svo um mælt, að enginn grundvöllur sé fyrir frekari stuðningi við stjórn Verkamannaflokksins nema gengið verði til móts við aðrar kröfur frjálslyndra, svo sem lækkun skatta. Talsmaður vestur-þýzku stjórnarinnar sagði I gær, að von- ast væri til að frestun kosning- anna yrði ekki langvarandi. Frakkar uröu að vonum fyrir miklum vonbrigöum með úrslitin I gær, en þeir voru fyrstir til að samþykkja beinar kosningar til Evrópuþingsins. BEGIN RÆÐIR VIÐ CARTER Tel Aviv/Reuter. Menachem Begin forsætisráðherra tsraels flaug til Washington I dag til fundar við Carter Bandarikjafor- seta og dró um leiö athygli tsraelsmanna frá friðarvið- ræðunum I Kairó um stund. Opin- berlega var tilkynnt um brottför Begins um miðja nótt, nokkrum klukkustundum áður en hann lagði af stað. Begin neitaði að skýra frá erindi slnu, en fullviss- aði fréttamenn um að hann færi með tillögur sem væru I beinum tengslum við aögerðirnar, sem stefna að friði I Miðausturlönd- um. Eftir að forsætisráðherrann hélt á brott neituðu opinberir ráðamenn að svara nokkrum spurningum og þar meö gat sjón- varp og útvarp snúið sér aftur að Kairófundinum. Begin gaf þó þær upplýsingar fyrir brottförina, að hann hefði farið fram á fundinn i Washington þegar Cyrus Vance var staddur i Jerúsalem á ferð sinni um Miðausturlönd. Aharon Barak lögfræöingurer i för með Begin, og hefur það kom- ið af staö þeim sögusögnum, að lögfræðilegan ráðgjafa þurfi til aö aðstoða við gerð uppkasts að friðarsamningi sem sýnt yrði Carter forseta. Þegar Begin var spurður um þetta sagði hann, að rætt yrði um hvers konar vanda- mál varöandi friðarsamninga, og að sjálfsögðu væri það mál að miklum hluta lagalegs eðlis. Annar fylgdarmaður Begins er Shmuel Katz, sem lengi hefur Tokyo/Reuter. Japanir ætla aö fella niður innflutningstolla af 124 vörutegundum þar á meðal bif- reiðum og tölvum. Þessar aö- gerðir eru þáttur i þvi að lækka gifurlegan viðskiptahagnað Japana að þvi er stjórnvöld til- kynntu I dag. Bankastjóri Japansbanka Teiichiro Morinaga hefur spáð þvi aö viðskipta- verið náinn samstarfsmaöur hans, og talinn fylgja mjög harðri afstöðu gagnvart yfirráðum Israelsmanna yfir vesturbakka Jórdan, sem hertekinn var 1967. hagnaöur Japana á þessu fjár- hagsári nái 10 miiljörðum dollara (bandariskra). Tillögur um tollalækkanir verða nú lagðar fyrir þingið og áætlað er að lækkanirnar gangi i' gildi i april næstkomandi. Engir tollar verða þá á innfluttum bil- um i Japan. Bandarikjamenn hafa að undanförnu'beitt Japana þrýstingi og krafizt lækkunar tolla á bilum, litfilmum og tölvum sem fluttar eru til Japan. Viðskiptahalli Bandarikjanna gagnvart Japan mun á þessu ári vera nálægt sjö milljörðum bandariskra dala. 1 tilkynningu japönsku stjórnarinnar i dag sagði að að- gerirnar væru hluti af áætlun sem þegar hefur verið skýrð fyrir Bandarikjamönnum. Japan: Hyggjast auðvelda innflutning Mál Palestínuaraba efst á baugi á Kairófundinum Kairó/Reuter. í gær kom enn berlega í Ijós árgrein- ingur Israelsmanna og Egypta vegna mála Palestinuaraba, er sezt var niður til viðræðna um frið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar heita því þó að vinna að lausn þrjátiu ára gamallar deilu, sem leitt hefurtil fjögurra styrjalda milli Israelsmanna og Araba. Opinberar yfirlýs- ingar málsaðila virðast þó ekki bera vott um að af- staða þeirra til helztu atriða deilunnar hafi breytzt til muna. Palestinudeilan komst þegar i sviðsljósið þegar leiðtogar sendi- nefnda tsraelsmanna og Egypta tóku að ræða u.m þær þjóöir er ekki senda fulltrúa til fundarins i Kairó. Esmat Abdel Maguid for- maður egypzku nefndarinnar tal- aði jafnan um Frelsishreyfingu Palestinuaraba á meðan Eliahu Ben Elissar, formaður israelsku nefndarinnar, ræddi um „hæfa fulltrúa Palestinumanna”. Palestinuarabar eru i augum Israelsmanna aðeins þeir, sem búa á herteknu svæðunum I Gaza og á vesturbakka Jórdan. Arabar viðurkenna hins vegar Frelsis- hreyfingu Palestinuaraba, PLO, sem fulltrúa Palestinuaraba, en stöðvar hreyfingarinnar eru utan þessa svæðis. Af þessum sökum reyndist ekki unnt að merkja auða stóla Palestinuaraba og var þvi horfið frá öllum merkingum við fundar- boröið. Rauður, grænn, hvitur og svartur fáni Palestinu blakti við hún fyrir utan húsið þar sem fundirnir eru haldnir en fáninn er ekki eingöngu tákn PLO. Egyp. hafa verið undir stöö- ugri gagn.ýni Araba og Sovét- manna allt frá þvi aö Sadat hélt til Jerúsalem. Sagt hefur verið að Egyptar hafi vikið frá stefnumið- um Araba og hunzað Genfarráð- stefnuna. Ráðstefnan i Genf stóð aðeins stutta stund og var frestað skömmu eftir að striðið milli Araba og tstaelsmanna brauzt út i október 1973. Formaður egypzku nefndarinn- ar, Meguid, hefur lagt áherzlu á ,,að virða verði rétt Palestinu- araba, svo friöur og réttlæti fái rikt i Miðausturlöndum”. Hann hefur einnig krafizt áþreifanlegs árangurs á Kairófundinum og ságt, að ástand þar sem hvorki rikir strið né friður sé ógnun við heimsfriðinn. tsraelski fulltrúinn Ben Elissar hefur greint frá helztu markmið- um tsraelsmanna, sem eru: að koma á friði, koma á stjórnmála- sambandi, og verzlunarviðskipt- um milli landanna, efla alþjóö- lega samvinnu. Ennfremur hefur Ben Elissar nefnt, að leyfa verði Israelsmönnum siglingar um Súezskurð, og að þjóðirnar tvær vinni að sameiginlegri aðstoð á öllum .sviðum þjóðmála.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.