Tíminn - 15.12.1977, Síða 7
Fimmtudagurinn 15. desember 1977
7
Pyrsta bók
ungrar
skáldkonu:
Augað í
fjallinu
Út er komin fyrsta ljóöabók
ungrar skáldkonu, Elísabetar
Þorgeirsdóttur, en bókin heitir
Augað i fjallinu. Bókin er 84 bls,
og ljóðin 56 að tölu.
A bókarkápu segir: „Elisabet
Þorgeirsdóttir er ung skáldkona,
ættuð frá Isafirði. Hún yrkir um
viðfangsefni og vandamál ungs
fólks, innileg ljóð, en einnig
„hversdagsleg”. Haf og fjöll eru
viða nálæg i ljóöum hennar, og
gleði og sorg ungrar konu. Þó má
vera að menntaskólaljóð hennar I
nýjum stil veki mesta athygli les-
andans við fyrstu sýn”.
Ljóðhús gefa bókina út, en
Prentsmiðjan Oddi prentaöi.
Sj álf sþekking
Yoga fyrir vestræna nema
Út er komin bókin Sjálfsþekk-
ing, Yoga fyrir vestræna nema,
eftirdr. Laurence J. Benditi þýð-
ingu Sverris Bjarnasonar. Útgef-
andi er bókaútgáfan Þjóðsaga.
Bókin er i smáu broti, 134 bls.
Abókarkápu segir svo um höf-
und bókarinnar: „Höfundur
þessa rits er brezkur sálkönnuð-
ur, sem lengi hefur kannaö leynd-
ardóma mannshugans bæði frá
sjónarmiði austrænna yoga-vis-
inda og djupsálarfræði nútimans.
Eiginkona hans, sem þekkt er
fyrir mikla dulskyggnihæfileika,
hefur og aöstoöað hann við þessar
rannsóknir.
Dr. Bendit trúir þvi, að unnt sé
að þróa yogaaðferð, sem byggð sé
á vestrænni þekkingu, og með að-
stoð hennr geti menn uppgötvað
sérstæðileika sinn i hæfileikum og
lifsskilningi. 1 umfjöllun sinni um
leið sjálfsþekkingarinnar ræöir
Dr. Bendit um sálræna reynslu
ýmiss konar, svo sem drauma,
dulræna reynslu, innsæi, hugboð
ogskapandiimyndun.Hann ræðir
einnig spurninguna, hvort raun-
verulega sé unnt að öðlast and-
lega reynslu með hjálp ofskynj-
unarlyfja —eða hugopnunarlyfja.
Dr. Bendit og kona hans Phoebe
Payne, eru heimskunn fyrir rit-
verk sin um sálarfræði og dular-
skynjun”.
Fá-
ein
Ijóð
Ný ljóðabók
Sigfúar
Daðasonar
Fáein ljóð heitir nýútkomin
ljóðabók eftir Sigfús Daðason, og
er hún þriðja ljóðabók skáldsins.
Helgafell gefur bókina út. Bókin
er 34 bls. og hefur inni að halda 18
ljóð.
Sigfús Daðason er löngu vfð-
kunnur fyrir ljóð sin og hefur not-
ið viðurkenningar sem eitt
fremsta núlifandi ljóðskáld Is-
lendinga. A bókarkápu segir
Kristján Karlsson um Fáein ljóð:
„Meðal sinnar kynslóðar
stendur Sigfús Daðason sér fyrir
það hvernig ljóð hans sameina
heimspekilega hugsun og myndir
kiassiskum skýrleik í máli. öll
ljóð hans bera vitni miklu vand-
læti um sannleiksgildi máls, og
um leið benda þau lesanda,
stundum beinum orðum á það,
hvernig ekki beri að segja hlut-
ina. Hið siðferðilega viðhorf sem
oft kemur fram í ljóðunum á ein-
mitt sannfæringarkraft sinn
undir þessari ögun. Það kemur
heim og sáman að Sigfús notar
myndir i fullum tilgangi. En I
þessari nýju bók eru ýmis ljóð
sem geyma nýstárlegri myndir
tengdar ástriðufyllri hugsun en
ég skynja i fyrri bókum hans”.
Tæknilegar
Magnari
6—IC 33 transistorar
23 díóður, 70 wött
Útvarp
örbylgja (FM 88-108 megarið
Langbylgja: 150-300 kilórið
Miðbylgja: 520-1605 kilórið
Stuttbylgja: 6—18 megarið
Segulband Hraði: 4,75 cm/s
Tiðnisvörun venjulegrar kass-
ettu (snældu) er 40-80000 rið.
Tiðnisvörun Cr. 02 kassettu er
40—12.000 rið. Tónflökt og -blakt
(wow & flutter) betra en 0.3%
RMS Timi hraðspólunnar á 60
min. spólu er 105 sek. Upptöku-
kerfi: AC bias, 4 rása stereo Af
þurrkunarkerfi AC afþurrkun.
upplýsingar
Plötuspilari
Full stærð, allir hraðar, sjálf-
virkur eða handstýröur. Ná-
kvæm þyngdarstilling á þunga
nálar á plötu. Mótskautun mið-
flóttans sem tryggir litið slit á
nál og plötum ásamt fullkom-
inni upptöku.
Magnetiskur tónhaus.
Hátalarar
Bassahátalari 20 cm af koniskri
gerð. Mið- og hátiðnihátalari 7.7
cm af kóniskri gerð.
Tiðnisvið 40—20.000 rið
Aukahlutir
Tveir hátalarar
Tveir hljóðnemar
Ein Cr 02 kasetta
FM loftnet
Stuttbylgju ioftnetsvir.
BUÐIN
7
Á horni Skipholts og Nóatúns
simi 29800 (5 línur)