Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 2
2 18. júní 2006 SUNNUDAGUR
5 100 300 www.apollo.is
Langferðir ehf., Holtasmára 1, 201 Kópavogur
Útsala
í sólina
Búlgaría 20. júní, 1 eða 2 vikur
Verð frá 17.500 kr.
Netfargjald, með sköttum
Bókaðu
núna!
www.apo
llo.is
EFNAHAGSMÁL Gunnar Páll Pálsson,
formaður VR, leggur til að starf-
andi þingmönnum og æðstu emb-
ættismönnum verði boðið að velja
milli þess að hafa óbreytt ástand í
lífeyris- og launamálum eða að líf-
eyriskjör þeirra verði reiknuð til
launa, þeir fái hærri laun og greiði
í almenna lífeyrissjóði eins og
aðrir. Laun þingmanna myndu þá
líklega hækka um tæp 30 prósent
og ráðherra um 70 prósent. Núver-
andi þingmenn gætu valið á milli
en nýir þingmenn og embættis-
menn gengjust inn á nýja fyrir-
komulagið. Hugmyndin fær ágæt-
ar undirtektir hjá aðilum
vinnumarkaðarins.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir að þetta sé áhugaverð
hugmynd um lausn í málinu en
verkalýðshreyfingin hefur krafist
endurskoðunar á eftirlaunum
stjórnmálamanna og æðstu emb-
ættismanna í tengslum við þá end-
urskoðun kjarasamninga sem nú á
sér stað. „Þetta er innlegg í
umræðuna. Þarna kynni að vera
leið til lausnar ef það er vilji til að
skoða hana,“ segir hann.
„Mér finnst þetta alls ekki
óeðlileg hugmynd,“ segir Vil-
hjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, og
bætir við að hún hafi stundum
komið til umræðu hjá Samtökum
atvinnulífsins. Hann segir að
æskilegt sé að eftirlaunakjör ráð-
herra og æðstu embættismanna
séu sýnileg.
„Það er eðlilegt að það sé sjóðs-
bundið kerfi hjá stjórnmálamönn-
um eins og öðrum. Þegar það
kemur í ljós hvað þetta kostar
mikið held ég að það skapist
stemning hjá stjórnmálamönnum
til að hækka launin og vera með
lægri lífeyrisréttindi.“
„Þetta getur alveg komið til
greina,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður vinstri grænna.
„Auðvitað má segja að það væri til
nokkurs að vinna ef það yrði þá
meiri friður um þessi mál. Þessi
breyting er pólitískt og táknrænt
mál meira en að efnahagslegt
vægi þess sé svo mikið en það
hefur ekki staðið og mun ekki
standa á okkur að taka þátt í að
skoða þetta mál.“ ghs@frettabladid.is
Ráðherrar hækkuðu
um sjötíu prósent
Lagt er til að æðstu embættismenn og stjórnmálamenn þjóðarinnar fái
launahækkun og fari að greiða í almennan lífeyrissjóð. Laun ráðherra myndu
þá hækka um 70 prósent og þingmanna um tæp 30 prósent.
UMHVERFISMÁL Fullt var út úr
dyrum á stofnfundi samtakanna
Framtíðarlandið, félags áhuga-
fólks um framtíð Íslands, sem
haldinn var í Austurbæ í gær. „Við
gátum ekki hugsað okkur að fara í
skrúðgönguna án þess að sýna
sjálfstæði okkar í verki fyrst,“
sagði María Ellingsen, sem var
kynnir á fundinum ásamt Mar-
gréti Vilhjálmsdóttur, í upphafi
fundar.
Ósk Vilhjálmsdóttir myndlist-
armaður sagði Ísland vera orðið
land þar sem lítið er lagt upp úr
skapandi hugsun og ríkisstjórnin
stýrði atvinnulífinu eftir eigin
höfði. „Við erum land sem auglýs-
ir sig sem ódýra orkulind, þar sem
lágmarkskröfur eru gerðar um
umhverfisvernd,“ sagði hún í
ræðu sinni. „Framtíðin er í okkar
höndum. Það sem mestu skiptir er
að sjá möguleikana.“ Ósk minntist
í kjölfarið á hvernig hvalaskoðun
hefði þótt fáránleg hugmynd á
sínum tíma, en sé nú stór atvinnu-
grein á Íslandi.
Markmið samtakanna er að
sögn aðstandenda að hafa áhrif á
pólitíska umræðu í landinu og
komast að teikniborðinu um fram-
tíð Íslands.
Samtökin eru þverpólitísk og
er öllum frjálst að skrá sig í þau á
heimasíðu þeirra, framtidar-
landid.is. Landsþing verður haldið
í haust og stefnuskrá mótuð. - sgj
Stofnfundur Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands, haldinn:
Vilja móta framtíðarsýn
FJÖLMENNI HJÁ FRAMTÍÐARLANDINU Hvert sæti var skipað í Austurbæ um hádegisbil í
gær þegar stofnfundur Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands, fór fram.
JAPAN, AP Bandaríski sendiherrann
í Japan, Thomas Schieffer og utan-
ríkisisráðherra Japans, Taro Aso
hittust í gær í Tókýó til að ræða
málefni Norður-Kóreu. Eftir fund-
inn hvöttu þeir Norður-Kóreu-
menn til að hætta við tilraunir
sínar á langdrægum eldflaugum,
sem gætu náð til Bandaríkjanna
og sögðu að slíkar aðgerðir yrðu
Norður-Kóreu „í óhag“.
Japanskar og suðurkóreskar
fréttastofur höfðu greint frá því
að til stæði að gera tilraunir með
Taepodong-2 eldflaug um helgina
og að hylma ætti yfir tilraunina
með því að skjóta óekta gervi-
tungli á loft, en norðurkóresk yfir-
völd neita því alfarið.
Sendiherra Bandaríkjanna
sagðist vonast til að Norður-Kór-
eumenn framkvæmdu ekki þessa
„ögrandi aðgerð“, en vildi ekki tjá
sig um möguleg viðbrögð Banda-
ríkjanna við henni. Hann hvatti
Norður-Kóreumenn til að setjast
aftur að samningaborðinu með
Kína, Japan, Suður-Kóreu, Rúss-
landi og Bandaríkjunum.
Utanríkisráðherra Japans var
einnig óljós í tali, hann sagði
ástandið „alvarlegt“ og að við-
brögð Japana yrðu undir aðgerð-
um Norður-Kóreumanna komin.
Norður-Kóreumenn kannast ekk-
ert við málið, sem fyrr segir. - kóþ
Sendiherra Bandaríkjanna sendir Norður-Kóreumönnum tóninn:
Eldflaugatilraunum verði hætt
JAPÖNSK-BANDARÍSK SM-3 ELDFLAUG
Þessari eldflaug skutu Japanar og Banda-
ríkjamenn á loft í tilraunaskyni þann
áttunda mars í Kyrrahafinu.
NORDICPHOTOS/AFP
GÆTU FENGIÐ AÐ VELJA Formaður VR leggur til að þingmenn og ráðherrar fái að velja hvort
þeir verði áfram í því eftirlaunakerfi, sem nú gildir, eða fái launahækkun og greiði í staðinn
í almennan lífeyrissjóð.
SPURNING DAGSINS
Kristín, ætti ekki að vera
fjallkarl líka?
„Já, sleppum því að hafa fjallkonu og
höfum bara fjallkarl.“
Fjallkonan þótti glæsileg á 17. júní í gær, en
í þetta sinn voru þær tvær og talaði önnur
táknmál. Kristín Tómasdóttir stjórnar femín-
istaþættinum Óþekkt á NFS.
RÓM, AP Ítalski konungssonurinn,
Victor Emmanuel, var handtekinn
á föstudag vegna gruns um glæp-
samlegt athæfi. Er hann sakaður
um spillingu í tengslum við spila-
vítisrekstur í Sviss og fyrir að
hafa ráðið ítalskar vændiskonur
til starfa á vegum þess.
Emmanuel kveðst saklaus og
fjölskylda hans neitar öllum ásök-
unum. Hann titlar sig enn sem prins
þrátt fyrir að einveldi hafi verið
aflagt í landinu fyrir áratugum
síðan en faðir hans, Umberto II, var
krýndur konungur Ítalíu árið 1946
og starfaði sem slíkur í rúman
mánuð þar til borgarar landsins
kusu lýðveldi fram yfir einveldi.
Ítalskur prins í miklu klandri:
Kveðst saklaus
af hórmangi
STJÓRNMÁL Nýkjörinn félagsmála-
ráðherra, Magnús Stefánsson,
ræddi um jafnrétti á sínum fyrsta
ríkisstjórnarfundi á föstudag og
benti á að konur hefðu borið skarð-
an hlut frá borði í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum.
Mun ráðuneytið, undir forystu
Magnúsar, beita sér fyrir því að
jafna hlut kynjanna í sveitar-
stjórnum landsins, meðal annars
með því að efla upplýsingamiðlun
um hlutfall kynjanna í opinberum
störfum og endurskoða jafnréttis-
áætlun sem samþykkt var fyrir
tveimur árum. - khh
Hallar á konur í sveitarstjórnum:
Jafnréttisáætlun
endurskoðuð
SVÍÞJÓÐ Með tárin í augunum
hefur Hagamaðurinn, Niklas
Lindgren, beðið þrjú af sex fórn-
arlömbum sínum afsökunar á að
hafa ráðist á þau. Í einhverjum
tilfellum hefur hann brostið í
grát. Hagamaðurinn hefur viður-
kennt að hafa ráðist á sex konur
og er ákærður fyrir það.
Konum í hverfinu Haga í
Umeå var haldið í greipum óttans
í fjölda ára en Hagamaðurinn
byrjaði fyrst að ráðast á konur
árin 1999-2000, að sögn Aftonbla-
det. Ekkert bar svo á árásum í
fimm ár en í fyrra nauðgaði hann
konu og reyndi svo að drekkja
henni. - ghs
Hagamaðurinn í Svíþjóð:
Grét og baðst
afsökunar
FRANKFURT, AP. Yfir þúsund manns
tóku þátt í friðsömum mótmælum
gegn forseta Írans um helgina
þegar fótboltalandslið Írans lék
annan leik sinn á heimsmeistara-
mótinu í Þýskalandi. Styr hefur
staðið um forsetann, Mahmoud
Ahmadinejad, vegna ítrekaðra
ummæla hans í fjölmiðlum þar
sem hann hefur afneitar helför-
inni gegn gyðingum í síðari heims-
styrjöldinni og efast um tilveru-
rétt Ísraelsríkis.
Innanríkisráðherra Þýska-
lands, Wolfgang Schaueble, hefur
sagt að forsetinn megi heimsækja
landið og landslið sitt ef hann fýsir
svo en hann neitar að hitta starfs-
bróður sinn, Mostafa Pourmo-
hammadi, á meðan á keppninni
stendur. - khh
Mótmæli gegn Íran á HM:
Íransforseti fær
kaldar kveðjur
FRIÐSÖM MÓTMÆLI Í FRANKFURT Ummæli
Íransforseta vekja deilur. NORDICPHOTOS/AP
VILHJÁLMUR
EGILSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
GRÉTAR ÞOR-
STEINSSON
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON
ÞJÓÐHÁTÍÐ Talið er að á bilinu 50-60
þúsund manns hafi lagt leið sína í
miðbæinn í gær til þess að fylgj-
ast með hátíðardagskrá í tilefni
þjóðhátíðardagsins.
Að sögn Geirs Jóns Þórissonar,
yfirlögregluþjóns í Reykjavík, er
þetta nokkuð minni fjöldi en var í
fyrra. Veður var með ágætasta
móti í borginni og lítið rigndi eftir
hádegið. Tvær stórar skrúðgöngur
fóru niður í miðbæ, önnur úr Vest-
urbænum og hin frá Hlemmi. Allt
fór vel fram að sögn lögreglu en
hún fékk þó kvartanir vegna hunda
í miðbænum. Veður var áþekkt um
allt land og alls staðar gengu
hátíðahöld tíðindalítið fyrir sig.
17. júní hátíðahöld:
Tugþúsundir
við hátíðahöld
17. JÚNÍ Mikill mannfjöldi var í miðborg
Reykjavíkur í gær. Þangað sótti fólk á öllum
aldri og skemmti sér hið besta.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EIÐ
A
-khh