Fréttablaðið - 18.06.2006, Qupperneq 4
4 18. júní 2006 SUNNUDAGUR
NFS Í BEINNI
Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími 550 5000.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 16.6.2006
Bandaríkjadalur 74,74 75,1
Sterlingspund 138,58 139,26
Evra 94,61 95,13
Dönsk króna 12,691 12,765
Norsk króna 12,048 12,118
Sænsk króna 10,213 10,273
Japanskt jen 0,6499 0,6537
SDR 110,46 111,12
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
131,2253
Gengisvísitala krónunnar
LÖGREGLA Lögreglan á Akureyri
tók tæplega þrjátíu ökumenn fyrir
of hraðan akstur í gær. Þrír voru
einnig teknir fyrir minniháttar
fíkniefnabrot og þrjátíu útköll
voru síðasta sólarhring sem tengd-
ust skemmtanahaldi og ölvun.
Að sögn lögreglunnar er alltaf
mikill erill hjá embættinu á 17.
júní og kemur þar margt til. Bíla-
klúbbur Akureyrar stendur fyrir
fornbílasýningu og götuspyrnu-
keppni þennan dag eins og undan-
farin ár. „Þessir viðburðir hleypa
upp töluverðri spennu innan þessa
hóps og þess vegna erum við með
sérstakan viðbúnað til að koma í
veg fyrir hraðakstur,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar. shá
Erill hjá lögreglunni á Akureyri:
Tugir teknir
fyrir hraðakstur
HRAÐI MÆLDUR Lögreglan á Akureyri tók
fjölda ökumanna fyrir hraðakstur í gær.
UMHVERFISMÁL Umhverfisráðherra
hefur ákveðið að friðlýsa kúluskít,
sem er sérstakt vaxtarform græn-
þörungsins vatnaskúfs. Þetta vaxt-
arform, þéttar og stundum stór-
vaxnar kúlur sem mynda sérstakt
samfélag, fyrirfinnst einungis á
tveimur stöðum á jörðinni, í
Mývatni og í Akanvatni í Japan.
Einnig var ákveðið að friða
blesgæs. Fyrirhuguð er kynning á
friðuninni, sem lýtur ekki síst að
því að kenna veiðimönnum að
greina blesgæs frá öðrum tegund-
um gæsa og benda þeim á hvar
helst megi vænta blesgæsa svo
þeir geti forðast þau svæði eða
sýnt sérstaka aðgát þar. - sdg
Umhverfisráðuneytið:
Friðar blesgæs
og kúluskít
Launalaust leyfi Forsætisráðherra,
Geir H. Haarde, hefur orðið við beiðni
Jóns Sigurðssonar, bankastjóra
Seðlabanka Íslands, um launalaust
leyfi frá störfum frá og með 15. júní
2006 til 31. ágúst 2006. Staðgengill
Jóns verður Ingimundur Friðriksson,
aðstoðarbankastjóri.
STJÓRNMÁL
SÓMALÍA, AP Sheikh Sharif Sheikh
Ahmed, stjórnarmaður Íslömsku
dómstólanna, samtaka íslamista í
Sómalíu, segir að Eþíópíski herinn
hafi farið yfir landamæri Eþíópíu
og inn í Sómalíu klukkan átta í
gærmorgun.
Háttsettur ráðgjafi forseta
Eþíópíu, Bereket Simon, hefur
neitað þessu, en staðfesti þó að
herinn væri við landamæri þjóð-
anna. Hann minnti á að „Eþíópía
hefur fullan rétt til að gæta landa-
mæra sinna“, en tjáði sig ekki að
öðru leyti.
Eþíópíski herinn hefur áður
gripið inn í gang mála í Sómalíu í
því skyni að hægja á sigurgöngu
íslamista og gegndi lykilhlutverki
í myndun bráðabirgðastjórnar
2004. Abdullahi Yusuf, núverandi
forseti Sómalíu og fyrrverandi
stríðsherra, var þá studdur til
valda af Eþíópíumönnum og þykir
líklegt að aukinn viðbúnaður
Eþíópíu vegna Sómalíu sé til þess
að verja bráðabirgðastjórnina
fyrir íslamistum, en stjórnin hefur
aðsetur í Baidoa. Sharif Sheikh
Ahmed aftekur að íslamistar hafi í
hyggju að ráðast á Baidoa, en
bætti við að ef almenningur bæði
um inngrip íslamista, myndu þeir
svara kallinu.
Öll spjót standa nú á íslamist-
um, en velgengni þeirra kemur
illa við Bandaríkja- og Eþíópíu-
menn og hina valdalausu bráða-
birgðastjórn Sómalíu. Hins vegar
hefur vænkast hagur nokkurra
stríðsherra sem hafa fengið aukin
fjárframlög frá Bandaríkjunum
vegna velgengni íslamista, en
Bandaríkjamenn telja íslamista
líklega til að vera hlynntir al-
Kaída. Tveir stríðsherranna eru
þó sagðir hafa flúið land um helg-
ina og með því dregið mátt úr
bandalagi stríðsherranna, en þetta
bakslag þeirra gæti skýrt afskipti
Eþíópíumanna að einhverju leyti.
Íslamistarnir vilja koma á sjar-
íalögum kóransins, en afneita
tengslum við al-Kaída. Þeir segj-
ast eingöngu hafa áhuga á að koma
á stöðugleika í landinu, en upp-
lausnarástand hefur verið í Sómal-
íu síðan 1991. Íslamistarnir þykja
vel skipulagðir og hafa lagt undir
sig hverja borgina á fætur ann-
arri, oftast við fögnuð almennings.
Þeir segja núverandi ríkisstjórn
„ólögmæta“, en því eru Samein-
uðu þjóðirnar, Bandaríkin, Evr-
ópusambandið og nágrannaríki
Sómalíu ekki sammála. - kóþ
Eþíópíski herinn við
landamæri Sómalíu
Líklegt þykir að herinn sé kominn til að vega á móti íslamistum og til varnar
bráðabirgðastjórn landsins. Íslamistarnir vinna hvern sigurinn á fætur öðrum
og hafa stökkt tveimur stríðsherrum á flótta.
EÞÍÓPÍSKIR HERMENN Embættismenn í Eþíópíu hafa staðfest að hermenn þeirra séu við landamæri Sómalíu. NORDICPHOTOS/AFP
ÚKRAÍNA, AP Kjörstjórn Úkraínu
sakaði í gær stjórnarandstöðu-
flokk um að falsa undirskriftir til
að þvinga fram þjóðaratkvæði-
greiðslu um fyrirætlaða NATO-
aðild landsins. Að sögn kjörstjórn-
ar voru sumar undirskriftirnar á
listunum nöfn fólks sem er dáið og
aðrar hreinlega falsaðar. Þessi
afglöp hafi ekki verið óviljandi.
Viktor Júsjenkó, forseti Úkra-
ínu, hefur haft aðild að NATO að
meginmarkmiði, en margir lands-
menn eru andvígir henni og hrifn-
ari af samstarfi til austurs. Sam-
kvæmt úkraínskum lögum þarf 100
þúsund undirskriftir til að knýja
fram þjóðaratkvæðagreiðslu. - sgj
Þjóðaratkvæði vegna NATO:
Kjörstjórnin
skoðar falsanir
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri var stunginn í kviðinn
með hnífi á veitingastað ofarlega
við Laugaveg aðfaranótt laugar-
dags. Hann var fluttur á slysa-
deild Landsspítalans í Fossvogi og
voru sár hans svo alvarleg að hann
var lagður inn á gjörgæsludeild.
Árásarmaðurinn, sem er piltur
á tvítugsaldri, var handtekinn og
yfirheyrður í gærdag. Að beiðni
lögreglunnar í Reykjavík úrskurð-
aði Héraðsdómur Reykjavíkur
manninn í gæsluvarðhald til föstu-
dagsins 23. júní næstkomandi.
Tildrög hnífstungunnar eru
ókunn og að sögn lögreglu er ekki
talið að málið tengist fíkniefnum.
Ekki fengust upplýsingar hjá lög-
reglu í gær hvort mennirnir þekkt-
ust eða hvert tilefni árásarinnar
var. Þá vildi lögregla ekki upplýsa
hvort maðurinn hefði játað verkn-
aðinn. Árásarvopnið fannst ekki á
piltinum eftir að hann var hand-
tekinn en hnífur fannst við leit á
veitingastaðnum. Öruggt er talið
að þessum hníf hafi verið beitt í
árásinni.
Að sögn vakthafandi læknis á
gjörgæsludeild Landspítalans
var ástand mannsins stöðugt í
gærkvöldi. Hann þurfti ekki að
gangast undir aðgerð og var vak-
andi. Talið er að hann nái sér að
fullu. - shá
Piltur á tvítugsaldri úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna hnífaárásar í miðbænum:
Stunginn með hnífi í kviðinn
Á LAUGAVEGI Ungur maður situr í gæslu-
varðhaldi eftir að hafa stungið mann í
kviðinn á skemmtistað á laugardagsnótt.
AUSTUR-TÍMOR, AP Forseti Austur-
Tímor, Xanana Gusmao, reyndi að
lægja öldur í gær með yfirlýsingu
um að Alfredo Reinaldo, leiðtogi
uppreisnarhóps, sé ekki ástæða
skálmaldar og stjórnmálaóróa í
landinu. Reinaldo hefur barist
fyrir því að forsætisráðherra
landsins, Mari Alkatiri, verði sett-
ur af, en sá hafði rekið hann, ásamt
600 öðrum hermönnum, fyrir að
fara í verkfall. Í kjölfarið voru
átök uppreisnarmanna Reinaldos
og herafla landsins tíð.
Menn Reinaldos afhentu á
föstudag friðargæsluliðum vopn
sín og virðist það marka lok mestu
átakanna. -sgj
Forseti Austur-Tímor:
Ver leiðtoga
uppreisnar
Gassprengja í húsi Minnst tveir
fórust og sex slösuðust þegar gas-
sprenging varð í fjölbýlishúsi í Moskvu í
gærmorgun. Hrundu veggir hússins við
sprenginguna, en talið er að mistök við
innsetningu nýrrar gasleiðslu hafi valdið
sprengingunni. Sautján slökkviliðsbílar
og níu björgunarsveitarhópar tóku þátt í
björgunarstarfseminni.
RÚSSLAND
Ísland í sjónvarpinu Finnska ríkis-
útvarpið Yleisradio helgaði sjónvarps-
dagskrá sína Íslandi á þjóðhátíðardegi
Íslendinga í gærkvöldi. Yleisradio sýndi
heimildarmynd um íslenskt tónlistar-
líf, Screaming Masterpiece frá 2005,
og myndina 101 Reykjavík í leikstjórn
Baltasar Kormáks.
FINNLAND