Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 6

Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 6
6 18. júní 2006 SUNNUDAGUR FJARÐABYGGÐ Lára Eiríksdóttir á Eskifirði byrjaði að þrífa í fyrir- tækjum á kvöldin árið 2003, en í dag hefur fyrirtæki hennar 21 starfsmann á launaskrá, þar af fjórtán í fastri vinnu. „Ég var að vinna við þrif í rækjuverksmiðj- unni þegar henni var lokað, og þá vantaði mig aukavinnu með vinnu minni í byggingavöruverslun. Til að byrja með var ég bara ein að vinna á kvöldin og næturnar en fljótlega var orðið svo mikið að gera að ég hætti í aðalvinnunni og vann eingöngu við þrifin. Svo hélt þetta bara áfram að stækka eftir það,“ segir Lára. „Þegar ég byrjaði datt mér ekki í hug að þetta yrði svona núna, þetta gerist svo rosalega hratt að maður áttar sig ekkert á því. Það liggur við að fjöldinn á launaskrá aukist í hverjum mán- uði.“ Lára segir að þakka megi Kárahnjúkavirkjun þessa vel- gengni að vissu leyti en það sé nú ekki aðalástæðan. „Ég hefði ekki getað gert þetta án þess að hafa frábært starfsfólk. Það er alveg númer eitt.“ Í kjölfar byggingar Kára- hnjúkavirkjunar hefur atvinnulíf- ið í bæjarfélögunum víða á Aust- urlandi vaxið og dafnað. Þar sem áður var atvinnuleysi og lokanir er nú fjöldi nýrra fyrirtækja og atvinnutækifæri á hverju strái. Sú bjartsýni sem fylgir uppgangin- um kemur einnig fram í aukinni uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Á Eskifirði hélt fyrirtækið Eddu- Borgir opinn fund nýlega til að kynna áform sín um byggingu þriggja íbúðablokka á Eskifirði. Reiknað er með að blokkirnar taki fimmtán mánuði í byggingu. Tvær fyrstu blokkirnar sem byggðar verða eru með átján íbúðum hvor en sú þriðja verður með 23 íbúðum. Íbúðirnar verða á stærðarbilinu 65 til 114 fer- metrar. Guðmundur Bjarnason, bæjar- stóri í Fjarðabyggð, segir að fólk á Austurlandi brosi út að eyrum þessa dagana. „Það er verið að byggja í öllum byggðakjörnunum hérna. Menn búast líka við mikilli fólksfjölgun á næstunni því byrj- að er að ráða í störf hjá álverinu.“ Guðmundur hefur það eftir eig- endum fasteignasala í Fjarða- byggð og á Egilstöðum að þeir finni mjög fyrir auknum áhuga á íbúðarhúsnæði á síðustu misser- um. „Þetta eru spennandi tímar hjá okkur og búið að leggja í gríð- arlegar fjárfestingar. Það er búið að stækka alla grunnskólana og byggja við leikskólana, komin ný sundlaug á Eskifirði og við erum að opna íþróttahöll á Reyðar- firði.“ Salvar@frettabladid.is Ný fyrirtæki spretta upp við hvert fótmál Atvinnulíf í Fjarðabyggð blómstrar þessa dagana og uppbyggingar sér víða merki. Búist er við mikilli fólksfjölgun sem sést í mikilli aukningu íbúðarhús- næðis. Fólk brosir út að eyrum, segir bæjarstjórinn í Fjarðabyggð. LÁRA EIRÍKSDÓTTIR RÆSTITÆKNIR Kveðst mjög ánægð með uppbygginguna á Austurlandi. Hún þakkar Kárahnjúkavirkjun hversu hröð uppbyggingin hefur verið. MYND/HELGI GARÐARSSON. ESKIFJÖRÐUR Bæjarstjórinn segir Austfirð- inga brosa út að eyrum þessa dagana. FÁLKAORÐAN Ellefu Íslendingar voru sæmdir riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Á meðal þeirra sem hlutu orðuna voru Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fyrir störf að velferð og réttindum kvenna, Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, fyrir störf í þágu kirkju og samfélags og Þórhildur Þorleifsdóttir, leik- stjóri, fyrir störf í þágu menning- ar og leiklistar. Fálkaorðan er að jafnaði veitt tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní, en rúmur tugur manna fær orðuna í hvert sinn sem hún er veitt. Árlega veitir forseti einnig nokkr- um erlendum ríkisborgurum orð- una. Svokölluð orðunefnd fer yfir umsóknir og metur hverjum sæmir að hljóta heiðurinn. -sgj Ellefu Íslendingar sæmdir riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu í gær: Falleg athöfn á Bessastöðum AFHENDING FÁLKAORÐUNNAR Á BESSASTÖÐUM Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga riddarakrossinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN HANDHAFAR RIDDARAKROSS FÁLKAORÐUNNAR 17. JÚNÍ Ahn-Dao Tran, kennslufræðingur og verk- efnisstjóri Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta Gunnar Kvaran, prófessor og sellóleikari Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur Jóhannes Bergsveinsson, fv. yfirlæknir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri og fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar Ólafur Ragnarsson, útgefandi Sigurður Sigurðarson, dýralæknir Vilhjálmur Einarsson, ólympíumethafi og fv. skólameistari Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri BRUSSEL Leiðtogar Evrópusam- bandsins samþykktu á fundi sínum í Brussel í gær að styðja áform Rúmena og Búlgara um að ganga í sambandið um næstu áramót, en þeir áminntu stjórnvöld í löndun- um tveimur um að hraða umbót- um sem þau hafa skuldbundið sig til að hrinda í framkvæmd áður en af aðildinni verður. Samkvæmt mati framkvæmda- stjórnar ESB á undirbúningi Búlg- ara verða þeir að gera sýnilegt átak í baráttunni gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi. Rúm- enar voru áminntir um að hraða umbótum í landbúnaðarmálum og bæta skilvirkni stjórnsýslunnar. Lokamat verður lagt á aðildar- hæfni landanna í haust. - aa Stækkun Evrópusambandsins: Umbótum verði hraðað STJÓRNMÁL Markmið meirihluta- samstarfs Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks í Sveitarfélaginu Árborg er að byggja upp fjöl- skylduvænt sveitarfélag. Fram kemur í nýkynntum málefnasamn- ingi þeirra að foreldrum þeim sem kjósa að vera heima með börn sín frá níu til átján mánaða aldurs bjóðist valgreiðsla að upphæð 20.000 krónur á mánuði. Ennfremur er stefnt að því að öllum börnum frá átján mánaða aldri verði tryggð leikskólavist á kjörtímabilinu. - khh Kjarabót í Árborg: Foreldrar fái eingreiðslu KJÖRKASSINN Ætlarðu að sækja hátíðahöld í tilefni 17. júní? Já 38% Nei 62% SPURNING DAGSINS Í DAG Ætlarðu á sólarströnd í sumar? Segðu þína skoðun á Vísi.is EFNAHAGSMÁL Aðkoma ríkisstjórn- arinnar að endurskoðun kjara- samninga byggist að hluta eða öllu leyti á ákvörðun um lækkun á tekjuskattinum í staðinn fyrir lægra skattþrep. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að til álita kæmi að lækka tekjuskattinn um eitt prósent og fresta opinberum framkvæmdum. Skattleysismörkin eru rúmar 79 þúsund krónur en ættu að vera um 130 þúsund krónur ef þau hefðu haldið verðgildi sínu frá því þau voru ákveðin í lok níunda áratugarins. Grétar Þorsteins- son, forseti Alþýðusambands Íslands, segir ákveðinn ótta vera við skattleysismörkin. „Reynslan sýnir að skattleysismörkin rýrna hægt og hljótt þó að ekki fari mikið fyrir því í umræðunni,“ segir Grétar. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir að niðurstaða hafi fengist í vinnumarkaðsmálum. Samkeppnisstaða fyrirtækja verði tryggð og farið eftir lögum og reglum þegar erlendir starfs- menn koma til starfa. Ekki sé verið að búa til neinn kostnað eða gera eðlisbreytingar. „Mikið verður gert til að kerf- ið virki og eftirlit á vinnumark- aði verði markvissara og skil- virkara,“ segir Vilhjálmur og segir þetta fyrst og fremst snúa að Vinnumálastofnun og skattyf- irvöldum. - ghs VILHJÁLMUR EGILSSON, FRAM- KVÆMDASTJÓRI SA GRÉTAR ÞORSTEINS- SON, FORSETI ASÍ Aðilar vinnumarkaðarins hafa náð niðurstöðu í viðræðum um vinnumarkaðinn: Kerfið verður skilvirkara ÞÝSKALAND, AP Um sunnanvert Þýskaland og í Austurríki standa leitarmenn í ströngu við að finna bjarndýr sem er á flótta. Björninn var næstum unninn aðfaranótt föstudags, en komst naumlega undan í náttmyrkrinu. Upphaflega átti að skjóta bangsa en dýravinir brugðust skjótt við og komu í veg fyrir það. Nú eru einungis svefn- lyf í byssunum. Leitarmennirnir njóta aðstoðar finnskra sporhunda og segjast vera hársbreidd frá því að kló- festa dýrið, sem hefur verið nefnt Brúnó. Þetta er fyrsta villta bjarn- dýrið sem heimsækir Þýskaland síðan á fyrri hluta nítjándu aldar, en björninn er ítalskur og er ætt- aður úr Alpafjöllunum. - kóþ Eftirlýstur ítalskur innflytjandi: Bangsi á flótta BANGSI Brúnó varð næstum fyrir bíl í síðustu viku, en myndin tengist ekki efni fréttarinnar með beinum hætti. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Liðlega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa í ágúst í fyrra lagt úr höfn á haf- færislausu skemmtiskipi, Söndru RE, með fjórtán farþega. Í ákærunni kemur fram að ein- ungis hafi verið einn fjögurra manna björgunarbátur um borð. Landhelgisgæslan stöðvaði för skipsins þar sem það var á suður- leið skammt vestur af Viðey. - æþe Haffærislaus skemmtibátur: Sigldi úr höfn með 14 farþega KÖFUN Það er orðið að vana austur á Seyðisfirði að Árni Kópsson og föruneyti kafi niður að El Grillo, olíu- og flutningaskipinu, á þjóð- hátíðardaginn. Þaðan var fjarlægð fallbyssa fyrir tveimur árum og nú á að ná í festingar sem tilheyra henni í skipið. Við köfun á föstudag fundust tvær sprengikúlur, sem Árni segir að séu virkar. „Þær eru ekkert fyrir okkur og okkur stafar engin bein hætta af þeim ef við komum ekki nálægt þeim,“ segir Árni. Sprengjudeild Landhelgisgæsl- unnar kemur til með að farga sprengjunum á næstu dögum. - æþe Kafað niður að El Grillo: Tvær sprengi- kúlur fundust DANMÖRK Anders Fogh Rasmus- sen, forsætisráðherra Danmerkur, er hneykslaður á því að 56 tyrkneskir borgar- og bæjarstjór- ar, sem sendu honum bréf, skuli nú af þeim sökum sæta sakarann- sókn af hálfu yfir- valda í Tyrklandi. Í bréfinu er Fogh hvattur til að verða ekki við kröfum tyrk- neskra stjórn- valda um að kúrdískri sjónvarps- stöð, sem rekin er í Danmörku, verði lokað. Bæjarstjórarnir segja að ekki beri að taka tyrknesk yfir- völd alvarlega um að stöðin sé mál- pípa fyrir bönnuð skæruliðasam- tök aðskilnaðarsinnaðra Kúrda, PKK. Sá sem er fundinn sekur um slíkt í Tyrklandi á allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér. - aa Bæjarstjórar skrifa Fogh: Kúrdasjónvarp veldur deilum ANDERS FOGH RASMUSSEN Flug til Indlands Loftferðasamningur milli Íslands og Indlands var samþykktur á fundi ríkisstjórnar Indlands í fyrradag. Varnarmálaráðherra Indlands, Pranab Mukherjee greindi blaðamönnum frá þessu eftir fundinn. INDLAND Hóta verkfalli Ítalskir járnbrautar- starfsmenn hóta því að fara í sólar- hringsverkfall næsta þriðjudag. Þeir krefjast þess að farið verði vandlega yfir öryggismál lestarkerfisins, en nokkuð hefur verið um slys upp á síðkastið. ÍTALÍA PALESTÍNA, AP Utanríkisráðherra Palestínu, Mahmoud Zahar, segir að stjórnvöld þar í landi muni halda áfram að flytja fjármagn handvirkt inn í landið en ráða- menn Hamas-samtakanna, sem nú fara með völd, hafa gripið til þess ráðs að koma fjármagni til lands- ins með því að flytja það sjálfir í ferðatöskum. Ríkið er á barmi gjaldþrots því Evrópusambandið hætti í vor fjár- stuðningi við yfirvöld í landinu og hafa Bandaríkjamenn beitt sér fyrir því að fé sé ekki millifært enda séu Hamas-samtökin skráð sem hryðjuverkasamtök á alþjóð- legum listum bankastofnana. - khh Örþrifaráð ráðamanna: Með útgjöldin í ferðatöskum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.