Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 8

Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 8
8 18. júní 2006 SUNNUDAGUR FJÖLMIÐLAR Lestur fyrsta fríblaðs landsins, Fréttablaðsins, jókst mun meira í fyrstu mælingunum á lestri þess en lestur Blaðsins. Lestur Fréttablaðsins nánast tvöfaldaðist samkvæmt fyrstu fimm fjölmiðla- könnununum sem gerðar voru eftir stofnun þess. Lestur á Blaðinu, frí- blaði landsins númer tvö, stóð hins vegar nánast í stað. Þetta kemur fram í Fjölmiðlakönnun IMG Gallup. Fjölmiðlakönnunin sýnir að lest- ur Fréttablaðsins jókst úr 38 pró- sentum í 62 prósent í fyrstu fimm mælingunum sem gerðar voru á tímabilinu frá október 2001 fram í mars 2003. Lestur Blaðsins jókst hins vegar aðeins úr 29 prósentum í 33 prósent í fyrstu fimm fjöl- miðlakönnunum eftir að Blaðið byrjaði að koma út. Birgir Guðmundsson, lektor við Háskólann á Akureyri, telur þrjár ástæður kunna að vera fyrir litlum lestri Blaðsins. Í fyrsta lagi hafi Fréttablaðið ákveðið forskot því að það hafi verið stofnað fyrr og landsmenn verið búnir að venja sig á að lesa það. Í öðru lagi komi Blaðið alltaf svo seint út á daginn og rit- stjórnarstefna þess hafi ekki tekið nógu mikið mið af því að Blaðið fari fyrst í prentun og komi síðast til fólks. „Blaðið getur ekki keppt við Moggann og Fréttablaðið um ferskar fréttir en ritstjórnar- stefnan tekur ekki nógu mikið tillit til þess. Blaðið er með svipað fréttamat og efnistök og hin blöðin og reynir að vera í þessum hefð- bundna slag á morgunmarkaði en það er búið að metta markaðinn af þessari tegund af ritstjórnarstefnu og þeir hafa ekki markað sér nógu mikla sérstöðu,“ segir Birgir. DV skildi eftir sig tómarúm þegar það hvarf af markaði sem dagblað. „DV sagði fólki ekki sams konar fréttir og hin dagblöðin. DV var bara önnur vara. Lesendum DV er hreinlega ekki sinnt af hinum dagblöðunum,“ segir hann. „Enginn af þessum fjölmiðlum reynir að taka þá markaðshillu sem DV hafði. Það er að minnsta kosti ekki komið neitt annað blað sem sinnir þessu,“ segir hann. Birgir telur að stjórn Blaðsins hljóti að velta alvarlega fyrir sér að „breyta efnistökum og áhersl- um til þess að gefa fólki ástæðu til að lesa Blaðið þegar það kemur eftir hádegið. Ég held að það sé líka að það séu ekki nógu margir kaupendur að DV þannig að þeir þurfi að grípa eitthvað líka ef þeir vilja nálgast þá.“ ghs@frettabladid.is París UTANRÍKISMÁL Náðst hefur sam- komulag milli Íslands og Indónes- íu um loftferðir, sem mun veita íslenskum flugfélögum tækifæri til að stunda flug til og frá þremur borgum í landinu með tengingum við flug til annarra staða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Samkomulagið tekur gildi nú þegar en stefnt er að því að loft- ferðasamningur milli Íslands og Indónesíu verði formlega undir- ritaður á næstu misserum. Samn- ingurinn er svipaður þeim sem Ísland hefur gert undanfarin ár við mörg ríki meðal annars í Asíu og Mið-Austurlöndum. - sþs Ísland og Indónesía: Samkomulag um loftferðir SKELFISKUR Hafrannsóknastofnun- in varar fólk við því að tína skel- fisk í Hvalfirði sér til matar næstu vikurnar. Ástæðan er mikið magn eitraðra svifþörunga en fjöldi svo- nefndra Dinophysis spp-skoruþör- unga er mjög mikill og við slíkar aðstæður er hætta á DSP-eitrun í skelfiski. Ef kræklingur sem inniheldur DSP-eitur er borðaður er hætta á að fólk veikist og lýsa veikindin sér í uppköstum og niðurgangi og geta áhrif eitursins varað dögum saman. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Hafrannsóknastofnun- arinnar, www.hafro.is. - gþg Hafrannsóknastofnunin: Varað við skel- fiski í Hvalfirði Laxeldi Laxeldismenn í Chile virðast hafa mætt ákveðnum mótbyr og fram- leiðslan af eldislaxi hefur ekki vaxið eins hratt og ráð var fyrir gert. Markmiðið var að skjóta Norðmönnum ref fyrir rass á árinu 2005 og taka forystuna sem helsta laxeldisland veraldar. CHILE HEILBRIGÐSMÁL Starfsfólk Heilsu- verndarstöðvar mótmælir fyrir- huguðum flutningi stöðvarinnar í Mjódd. Starfsfólkið hitti Siv Frið- leifsdóttur heilbrigðisráðherra á fimmtudag og afhenti ráðherran- um undirskriftalista. Geir Gunnlaugsson barna- læknir lýsti áhyggjum sínum og sagði að eðlilegt hefði verið að finna annað viðeigandi húsnæði áður en húsnæði Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur var selt. Við afhendinguna kom fram að nöfn sextíu af áttatíu starfsmanna Heilsuverndarstöðvar væru á undirskriftalistanum. Í tilkynn- ingu frá starfsfólki Heilsuvernd- arstöðvar kemur fram að það hefði í takmörkuðum mæli verið haft með í ráðum varðandi annað og hentugt húsnæði fyrir starf- semina og að nýtt húsnæði stæðist ekki þær faglegu kröfur sem starfsfólk gerði til þess. Heilbrigðisráðherra sagði að sala Heilsuverndarstöðvarinnar hefði verið að frumkvæði fjár- málaráðuneytisins og húsnæðið við Barónsstíg væri nú farið úr höndum ríkisins. Siv sagðist þó ætla að gera sitt besta til að tryggja góða framtíð Heilsuvernd- arstöðvarinnar. - hs Starfsfólk Heilsuverndarstöðvar mótmælir: Segir nýtt húsnæði ófullnægjandi HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Tók við undir- skriftum sextíu starfsmanna Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur. BANDARÍKIN, AP Vísindamenn í Alaska ráku upp stór augu á dög- unum þegar hvíthvalshræ fannst í þarlendri á, um 1.600 kílómetrum frá náttúrulegum dvalarstað teg- undarinnar. Þeir telja ólíklegt að hræinu hafi verið komið þangað af mannavöldum og dettur helst í hug að hvalurinn, sem mældist tveir og hálfur metri á lengd, hafi synt upp ána í leit að mat en mjög óalgengt er að hvalir sem þessir syndi svo langt frá heimaslóðum sínum. Útivistarmenn á kanóum fundu hræið, en farið var með það á safn þar sem það verður úrbeinað og beinagrindin höfð til sýnis. - sþs Hvíthvalur með ævintýraþrá: Synti um 1.600 kílómetra leið HVALSHRÆIÐ Furðu vekur hversu langt frá heimaslóðum hvalurinn fannst. Hvalborgarar Ungt fólk í Japan er hvatt til að borða meira hvalkjöt og er nú hægt að fá hvalborgara, sem bornir eru fram með sama hætti og hamborg- arar, og hvalkjötspylsur á veitingastöð- um. JAPAN Ókeypis í sund Sundfélag Hafnar- fjarðar og Hafnarfjarðarbær bjóða öllum ókeypis í sund á sunnudögum í sumar. Í dag verður kennsla í skriðsundi í Sundhöll Hafnarfjarðar klukkan 11-12 og í Suðurbæjarlaug klukkan 14-16. HAFNARFJÖRÐUR FJÁRSVIK Dæmi eru um að svika- hrappar hafi hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjöl- skylduhjálp Íslands sem er líknar- félag í þágu þeirra sem minna mega sín í Reykjavík. Svikahrapp- arnir bjóðast til að koma heim til fólks og sækja féð. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar Íslands, segist hafa fengið þrjár ábending- ar seinasta mánuðinn um þessa svikastarfsemi. „BM-ráðgjöf sér alfarið um fjársöfnun félagsins með sölu geisladiska og móttöku á styrkjum og það fer allt í gegnum bankakerfið.“ Ásgerður segir að ef fleiri svona tilkynningar berist muni félagið leggja inn kæru. - sdg Svikastarfsemi gegnum síma: Safna fé undir fölsku flaggi ATVINNUMÁL Stefna Landspítala - háskólasjúkrahúss þess efnis að yfirmenn hjá sjúkrahúsinu séu í 100 prósenta starfshlutfalli og sinni ekki öðrum lækningastörf- um þess utan mun standa óbreytt í máli Tómasar Zoëga læknis, sem og annarra á spítalanum. Reynt verður að fá Tómas til að starfa áfram. Þetta segir Magnús Pétursson, forstjóri LSH, um viðbrögð spít- alans við nýföllnum dómi Hæsta- réttar í máli Tómasar, sem fluttur var úr starfi yfirlæknis í stöðu sérfræðings á spítalanum. Hér- aðsdómur dæmdi þessa ákvörðun LSH ógilda, en Hæstiréttur taldi hana ólögmæta. Magnús kveðst munu skrifa Tómasi bréf um hvernig spítalinn meti þá stöðu sem upp er komin og hvað LSH telji hægt að gera miðað við aðstæður nú. „Við metum störf Tómasar mjög mikils og viljum mjög gjarn- an að hann starfi hér,“ segir Magnús. „Hins vegar hefur stjórnin sett tiltekna stefnu í störfum yfirlækna. Dómurinn fjallar hvorki um þá stefnu né véfengir hana. En ég vil vita hvort hægt er að búa Tómasi einhverjar þær aðstæður á spítalanum sem hann getur unað við. Ég vil ræða það við hann.“ - jss Forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss skrifar Tómasi Zoëga lækni bréf: Vill leita að samstarfsfleti SLYSAVARNIR Tveir ferðalangar á ferð um Vestfirði tilkynntu til lög- reglu að þeir hefðu fundið notuð blys við neyðarskýli Slysavarna- félagsins Landsbjargar í Hornvík á Hornströndum. Varðstjóri lögreglunnar á Ísa- firði, Jón Svanberg, lítur málið alvarlegum augum, þar sem um öryggisbúnað er að ræða sem ein- göngu á að nota í neyðartilvikum. Lögreglan vill brýna fyrir fólki að snerta ekki öryggisbúnað nema brýna nauðsyn beri til. - æþe Öryggisbúnaður misnotaður: Blys eyðilögð LANDSPÍTALINN Forstjóri Landspítalans segir stefnu spítalans standa um að yfirlæknar séu í fullu starfi og vinni ekki annars staðar. FJÖLSKYLDUHJÁLPIN Þrjár ábendingar hafa borist félaginu um sviksamlega söfnun. VEISTU SVARIÐ? 1Hvaða sýning var valin best á Grímuhátíðinni? 2Hvað heitir framkvæmdastjóri NATO? 3Hvað heita nýstofnuð samtök áhugafólks um framtíð Íslands? SVÖR Á BLS. 42 BIRGIR GUÐMUNDSSON Lestur á Blaðinu hefur aukist aðeins úr 29 prósentum í 33 prósent í fyrstu fimm mælingunum á lestri þess. „Þeir hljóta að velta alvarlega fyrir sér að breyta efnistökum og áherslum,“ segir Birgir Guð- mundsson, lektor við Háskólann á Akureyri. Dagblöðin fylla ekki tómarúmið eftir DV Lestur Fréttablaðsins jókst meira í fyrstu fimm mælingunum á lestri blaðsins en lestur Blaðsins. Dagblöðunum hefur ekki tekist að fylla upp í tómarúm DV. Blaðinu hefur ekki tekist að marka sér sérstöðu, að mati lektors. LESTUR FRÍBLAÐA Samkvæmt fyrstu fimm fjölmiðla- könnunum eftir stofnun þeirra 38% 29% 33% 62% 27% 52% JÚNÍ 2005 MAÍ 2006 OKTÓBER 2001 MARS 2003 OKTÓBER 2005 OKTÓBER 2002 ÞRÓUN Í LESTRI BLAÐANNA Júní 2005 til maí 2006 Heimild: Fjölmiðlakönnun IMG Gallup 16% 29% 49% 67% 68% 54% 33% 15% 06/2005 09/2005 10/2005 01/2006 05/2006

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.