Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 20
Sólarhring eftir að nýr meiri-hluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við
völdum í Reykjavík setjumst við
niður í Ráðhúsinu. Björn Ingi við-
urkennir fúslega að rata ekki um
þetta mikla völundarhús en segir
starfsfólkið hjálplegt og sýna sér
umburðarlyndi. Og þessum sólar-
hring eftir meirihlutaskiptin er
hann enn sannfærðari en áður um
að það hafi verið rétt ákvörðun að
ganga til samstarfs við sjálfstæð-
ismenn. „Þetta er samstiltur hópur
og ég skynja að mörgum finnast
breytingar góðar. Hér er nýr
meirihluti og fólk komið til valda
sem vill láta hendur standa fram
úr ermum og sanna sig.“
Vel hefur farið á með Birni
Inga og Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni
borgarstjóra þar sem þeir hafa
sést saman og báðir hafa lagt ríka
áherslu á traust og einingu sín á
milli. Björn Ingi vísar á bug kenn-
ingum um að meirihlutaviðræður
þeirra hafi ekki verið jafn sléttar
og felldar undir niðri og þeir vilja
vera láta. „Viðræðurnar gengu
mjög vel og ég er ánægður með
hvernig til tókst. Því var haldið
fram að við framsóknarmenn
værum að fá allt of mikið og meðal
annars hélt formaður Samfylking-
arinnar heilan flokksstjórnarfund
þar sem hún talaði um einhvern
sex prósenta mann sem væri
búinn að hrifsa til sín völdin í
borginni. Við létum okkur þetta í
léttu rúmi liggja. Hér ríkja ekki
helmingaskipti. Það er hins vegar
eitt sem flokkarnir skipta jafnt á
milli sín og það er pólitísk ábyrgð.
Og það skiptir máli. Það er metn-
aðarmál mitt að Vilhjálmur
blómstri í starfi.“
Björn Ingi sest nú í fyrsta sinn
í borgarstjórn og telur sig óbund-
inn af ákvörðunum forvera sinna í
Framsóknarflokknum. Hann bend-
ir á að hann hafi ekki verið spurð-
ur álits á einstökum ákvörðunum
Reykjavíkurlistans síðustu tólf
árin og eins og gangi líki honum
sumt sem gert var og annað ekki.
Manneskjan í öndvegi
Málefnaáherslur nýs meirihluta
voru kynntar á þriðjudag og Björn
Ingi hlakkar til að hefjast handa
við að framkvæma. Enda eru eink-
unarorð meirihlutans: hugsum
stórt, horfum langt og byrjum
strax. „Mér finnst okkur hafa tek-
ist vel að samþætta áherslur flokk-
anna og ég held að þeir sem töldu
að áherslur okkar framsóknar-
manna myndu ekki skila sér sjái
hið gagnstæða. Það er mannlegt
yfirbragð á þessum áherslum, við
leggjum meiri áherslu á mann-
eskjuna en steinsteypuna.“ Í því
sambandi nefnir Björn Ingi að
strax verði hafið samráð við eldri
borgara og ýmislegt gert í málefn-
um fjölskyldufólks, til dæmis
verði frístundakortunum komið á.
En þó að manneskjan verði í
öndvegi er ekki þar með sagt að
ekkert eigi að steypa. Meðal ann-
ars á að gera gatnamót Kringlu-
mýrar- og Miklubrautar mislæg
sem er umfangsmikil og kostnað-
arsöm framkvæmd. Þá mæla ýmis
rök gegn því að mislæg gatnamót
eins og þau þekkjast í Reykjavík
verði lögð á þessum stað. Björn
Ingi varar við áhyggjum. „Mislæg
gatnamót eru ekki bara þessi hefð-
bundnu stóru slaufugatnamót. Það
er hægt að fara ýmsar leiðir og ég
er sannfærður um að við munum
finna leið til að fara sem mest með
þetta neðanjarðar. Ég bið því íbúa
um að hafa ekki áhyggjur af að
þetta muni sprengja allt utan af
sér.“
Björn Ingi rifjar svo upp að í
raun sé nokkuð um liðið síðan ráð-
ast átti í framkvæmdina. „Það voru
settir peningar í flýtiframkvæmd-
ir í vegamálum og þessi mislægu
gatnamót áttu að vera hluti af því.
Borgin var hins vegar ekki tilbúin
með framkvæmdina og því var
ráðist í færslu Hringbrautar. Ef
þetta hefði verið tilbúið væru þessi
gatnamót komin en ekki nýja
Hringbrautin. Ég er viss um að
margir hefðu viljað skipta.“
Stöndum vörð í efnahagsmálum
Ekki liggur fyrir hve mikið helstu
stefnumál meirihlutans munu
kosta og segir Björn Ingi að eftir
sé að kafa ofan í fjárhagsstöðu
borgarinnar og meta hana upp á
nýtt. Hann bendir þó á að kostnað-
arsöm verkefni á borð við hugsan-
lega færslu flugvallarins og bygg-
ingu samgöngumannvirkja séu
sameiginleg verkefni borgar og
ríkis. En hann óttast hvorki að
borgin fari á hausinn við þessi
verkefni né að þau hafi umtals-
verð áhrif á efnahagslíf þjóðar-
innar. „Ég held raunar að mörgum
þyki þetta hófstilltur málefna-
pakki og við ætlum að gæta
aðhalds og standa vörð í efnahags-
málunum. Reykjavík er stærsta
sveitarfélagið og þarf að fara á
undan með góðu fordæmi. Verk-
efnunum verður raðað niður með
ábyrgum hætti en við áskiljum
okkur líka rétt til að láta hendur
standa fram úr ermum. Og því má
ekki gleyma að það sem við hyggj-
umst gera fer af stað þegar niður-
sveifla verður í stærstu fram-
kvæmdunum á vegum ríkisins.“
Guðlaugur boðaði til viðræðna
Daginn eftir kosningar hófust
þreifingar um myndun meirihluta
í borginni. Fulltrúar Samfylking-
ar, vinstri grænna, frjálslyndra og
Framsóknarflokks hittust á fundi,
en eins og fram hefur komið ósk-
aði Ólafur F. Magnússon eftir mat-
arhléi og hélt svo til fundar við
sjálfstæðismenn. Björn Ingi seg-
ist hafa tekið þátt í viðræðunum af
fullum heilindum þó frjálslyndir
hafi áður lýst yfir að samstarf við
Framsóknarflokkinn kæmi ekki
til greina. Áður hafði Björn Ingi
raunar greint sjálfstæðismönnum
frá því að hann væri reiðubúinn til
viðræðna við þá og eftir að við-
ræðum þeirra og Ólafs lauk settist
hann niður með Vilhjálmi og hans
fólki. „Í pólitíkinni er það þannig
að þú færð ekki annað tækifæri og
við gátum ekki beðið eftir að Ólafi
þóknaðist að hefja aðrar viðræð-
ur, slíta þeim og byrja aftur. Það á
ekki að vera lengi á reiki hverjir
verða í meirihluta í stærsta sveit-
arfélagi landsins og þetta varð
niðurstaðan.“
Það var þingmaðurinn og borg-
arfulltrúinn fyrrverandi, Guð-
laugur Þór Þórðarson, sem hafði
samband við Björn Inga og boðaði
hann til fundar. „Guðlaugur Þór
hringdi í mig og bað mig um að
koma heim til sín. Þegar ég kom
þangað voru Vilhjálmur, Gísli
Marteinn og Hanna Birna þar og
þau buðu strax upp á formlegar
viðræður með það fyrir augum að
klára dæmið fljótt. Þau voru
greinilega búin að gera upp við sig
hvað þau vildu og það var þetta
sem þau vildu.“
Ætlar að reyna að stýra vinnutím-
anum
Það mæðir mikið á Birni Inga í
meirihlutasamstarfinu. Hann er
eini borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins og situr því í fjölda ráða,
nefnda og stjórna. Meðal helstu
embætta má nefna formennsku í
borgarráði, íþrótta- og tómstunda-
ráði, stjórn Faxaflóahafna, vara-
formennsku í stjórn Orkuveitunn-
ar og stjórnarsetu í Sorpu. Hann
segist alla tíð hafa haft mikið að
gera og bendir á að það sé ekkert
rólegheitadjobb að vera aðstoðar-
maður ráðherra og formanns
flokks. „Ég vona að ég sé ekki að
færast of mikið í fang. Það voru
reyndar uppi hugmyndir um að ég
tæki enn meira að mér en ég vildi
það ekki.“
Björn Ingi er kvæntur og á tvo
unga syni og er að auki formaður
fjölskyldunefndar ríkisstjórnar-
innar. Í því ljósi er vert að spyrja
hvort þessar miklu annir stríði
ekki gegn hugmyndum hans um
heilbrigt fjölskyldulíf. „Það fer
eftir því hvernig á það er litið.
Konan mín er alltaf að reyna að
segja mér að ég geti stundum
slökkt á símanum og ég viður-
kenni að í kosningabaráttunni
hegðaði formaður fjölskyldu-
nefndar ríkisstjórnarinnar sér
ekki nægilega vel sem slíkur. En
fjölskyldan mín er umburðarlynd
og vissi að þetta var átaksverkefni
og ég ætla að reyna að stýra vinnu-
tíma mínum þannig að hann verði
eins og hjá venjulegu fólki.“
Lagði sjálfan sig í sölurnar
Björn Ingi er varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi norður. Hann var í
öðru sæti framboðslistans, á eftir
Jónínu Bjartmarz, en hefur – ólíkt
flestum öðrum fyrstu varaþing-
mönnum – aldrei sest á þing.
„Þingmaður kjördæmisins hefur
aldrei forfallast og annir mínar á
Alþingi því ekki verið íþyngjandi,“
segir hann og hlær. „Ég er vara-
maður og á að hlaupa í skarðið en
það hefur ekki verið óskað eftir
því.“ Björn Ingi segir afskiptum
af landsmálunum nú lokið enda
eigi borgarmálin hug hans allan.
En það var ekki aðeins af
óslökkvandi löngun til að takast á
við málefni Reykjavíkurborgar
sem hann afréð að taka þátt í próf-
kjöri Framsóknarflokksins í lok
janúar. Aðrar hvatir bjuggu að
baki. „Ég taldi þetta nauðsynlegt
fyrir flokkinn. Þetta leit illa út og
við vorum með rúm tvö prósent í
skoðanakönnunum. Ég taldi þurfa
að leggja mikið undir því það hefði
orðið mikið áfall fyrir Framsókn-
arflokkinn að eiga ekki rödd í
borgarstjórninni. Ég gat ekki
hugsað mér slíka stöðu og var til-
búinn að leggja sjálfan mig í
sölurnar. Ég hefði ekki þurft að
gera þetta og það var margt upp-
lagðara en að fara í kosningabar-
áttu við þessar aðstæður. Ég held
hins vegar að ég hafi grætt mikið
á þessu persónulega og þetta sýnir
að hafi maður trú á einhverju og
er til í að berjast fyrir því, jafnvel
þó útlitið sé dökkt, þá kemst maður
að lokum á leiðarenda.“
Halldór hefur gert skyldu sína
Birni Inga er staða Framsóknar-
flokksins hugleikin, eins og svo
mörgum öðrum. Hann segir að of
mikið hafi verið deilt í flokknum
og að vandinn sé fyrst og fremst
heimatilbúinn. Auðvelt sé hins
vegar að bregðast við. „Pólitíkin
gengur í hæðum og lægðum og
þegar illa gengur er mikilvægt að
bregðast við alveg eins og það er
mikilvægt að ofmetnast ekki
þegar vel gengur.“ Björn Ingi veit
ekki hvaða áhrif brotthvarf Hall-
dórs Ásgrímssonar úr for-
mannsembætti mun hafa og þó að
hann hefði viljað að Halldór lyki
kjörtímabilinu í embætti virðir
hann ákvörðun hans. „Ég tel
reyndar að margir séu að átta sig
á að Halldór Ásgrímsson var ekki
vandamál Framsóknarflokksins.
18. júní 2006 SUNNUDAGUR20
Lagði sjálfan sig í sölurnar
fyrir Framsóknarflokkinn
Björn Ingi Hrafnsson, nýkjörinn formaður borg-
arráðs, ætlaði að hætta afskiptum af stjórnmálum
næði hann ekki kjöri í borgarstjórn. Í samtali við
Björn Þór Sigbjörnsson segist hann hafa boðið sig
fram í prófkjöri Framsóknarflokksins því hann
hafi talið það nauðsynlegt fyrir flokkinn. Þá
upplýsir Björn að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi
boðað hann til fundar um myndun meirihluta
með sjálfstæðismönnum.
BJÖRN INGI HRAFNSSON „Ég var ákveðinn í að hætta í
stjórnmálum ef ég næði ekki kjöri í borgarstjórn. Ég leit
svo á að þar með hefði ég prófað að leiða lista og þyrfti
ekki að gera það aftur,“ segir Björn Ingi meðal annars.
Hann segir að sér hafi boðist störf við fjölmiðlun og á
vettvangi útrásar. Honum finnist stjórnmálin hins vegar
meira spennandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
TIMAMÓT Björn Ingi pakkaði saman á skrifstofu sinni í forsætisráðuneytinu í vikunni sem
leið. Farsælu samstarfi hans og Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, er
lokið. Fréttablaðið/Hörður
Í pólitíkinni er það
þannig að þú færð ekki
annað tækifæri og við
gátum ekki beðið eftir að
Ólafi þóknaðist að hefja
aðrar viðræður, slíta
þeim og byrja aftur.