Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 21
Hann hefur gert skyldu sína og
rúmlega það. Hann hefur raunar
gert miklu meira en nokkur gat
ætlast til af honum. Hann sjálfur
er sannfærður um að þetta sé fyrir
bestu, hann axlar ábyrgð og það
finnst mér djarfmannlegt, ekki
síst í ljósi þess að fyrir því er ekki
rík hefð í íslenskum stjórnmál-
um.“
Margar sögur komust á flot í
tengslum við ákvörðun Halldórs
um að hverfa af sviðinu og sam-
kvæmt einni þeirra brast trúnað-
ur milli Halldórs og Björns Inga.
„Ég hef heyrt þetta en þetta er
rangt. Það er mjög sérstakt og
náið samband á milli okkar og á
það hefur ekki fallið skuggi. En
eins og gengur eru sögur settar af
stað en það er ekkert hæft í þess-
ari.“
Það var raunar hrifning Björns
Inga á Halldóri og hans pólitík
sem, með öðru, varð til þess að
Björn gekk í Framsóknarflokkinn
fyrir nokkrum árum. Frami hans
hefur þótt skjótur – of skjótur að
sumra mati. „Ég hef gripið þau
tækifæri sem hafa gefist. Þegar
menn koma hratt inn eru þeir oft
sakaðir um að stíga á tær en nú
þegar ég hef lýðræðislegt umboð
frá fólkinu er staða mín önnur.“
Hefði hætt í stjórnmálum
Fylgi Framsóknarflokksins mæld-
ist afar lítið framan af kosninga-
baráttunni og lengst af var útlit
fyrir að Björn Ingi næði ekki kjöri.
Hann segir að hefði svo farið hefði
hann kvatt pólitíkina fyrir fullt og
allt. „Ég var ákveðinn í að hætta í
stjórnmálum ef ég næði ekki kjöri
í borgarstjórn. Ég leit svo á að þar
með hefði ég prófað að leiða lista
og þyrfti ekki að gera það aftur.“
Hann segir að sér hafi boðist tæki-
færi til að söðla um og reyna fyrir
sér á öðrum sviðum, til dæmis í
fjölmiðlun og á vettvangi útrásar
íslensku fyrirtækjanna. „Ég hef
hins vegar talið pólitíkina meira
spennandi og það þó vinir mínir
sem eru í slíkum störfum hafi mun
hærri laun, mun betri vinnutíma
og þurfi ekki að lesa um sjálfa sig
og kosti sína og galla í blöðunum.“
En Björn Ingi er ekki að hætta í
stjórnmálum – þvert á móti er nýtt
upphaf hjá honum. Og í stað þess
að tala fyrir skoðunum og gjörð-
um Halldórs Ásgrímssonar, líkt og
hann hefur gert síðustu ár, mun
hann tala um eigin pólitík. „Þetta
er ný staða. Það er enginn afslátt-
ur gefinn af því að vera aðstoðar-
maður og einn af talsmönnum for-
sætisráðherra. Nú viðra ég mínar
eigin pólitísku skoðanir.“
■ Fæddur: „5. ágúst 1973.“
■ Eiginkona: „Hólmfríður Rós
Eyjólfsdóttir hjúkrunarfræðingur.“
■ Börn: „Hrafn Ágúst, sjö ára og
Eyjólfur Andri, tveggja ára.“
■ Bókin á náttborðinu: „All too
Human eftir George Stephanopou-
los, fyrrverandi ráðgjafa Bills Clinton.
Athyglisverð og þrælskemmtileg bók
um ár hans með Clinton. Auk þess
eru hinir og þessir bæklingar um
borgarkerfið og innviði, sem ég þarf
að kynna mér starfsins vegna.“
■ Diskurinn í geislaspilaranum:
„Platan Hjálmar með samnefndri
hljómsveit. Alveg frábær diskur.“
■ Myndin í DVD-spilaranum:
„Brokeback Mountain eftir Ang Lee.
Virkilega áhrifamikil mynd.“
■ Útvarpsstöðin: „Ég hlusta aðallega
á útvarp í bílnum. Ef ég er einn stilli
ég á NFS en ef drengirnir eru með er
það Útvarp Latibær. Stundum er
tekist hart á.“
■ Mesti áhrifavaldurinn: „Björk
Gunnarsdóttir, móðir mín. Heilög
kona í lífi mínu eins og sjálfsagt
mæður flestra vel upp alinna
drengja.“
Björn Ingi í
hnotskurn
Efnahagurinn hér á Kúbu er flókið
fyrirbæri. Sérstaklega fyrir fólkið
sem þarf að búa við hann. Ég
myndi ganga svo langt að segja að
það versta við Kúbu væri matur-
inn og efnahagurinn. Á meðan
Sovétríkin voru og hétu var gott
að búa á Kúbu og fólk talar um þá
tíma með mikilli eftirsjá. Þó að
byltingarstjórnin hafi hugmynda-
fræðilega séð lifað af fall Sovét-
ríkjanna þá tóku þau kúbanskan
efnahag með sér í fallinu.
Kúba var á kúpunni og tíundi
áratugurinn einkenndist af því að
það var ekkert til. Þetta tímabil
er kallað el Periodo Especial eða
Sérstaka tímabilið og er landið
enn að hrista af sér þynnkuna. Til
að mynda eru almenn laun enn
mjög lág, í kringum þúsund krón-
ur á mánuði, en verðlagið hefur
hækkað svo um munar með túr-
ismanum. Ofan á þetta bætist að
öll sjálfsbjargarviðleitni er ólög-
leg, en þrátt fyrir harðar refsing-
ar og sektir fyrir allt og ekkert,
blómstra hér hinar ýmsu tegund-
ir svartamarkaðsbrölts. Það eru
kallaðar uppfinningar og fólk
selur föt, mat, skó, skart og allt
þar á milli.
Sem dæmi um uppfinningar
þekki ég konu sem gafst upp á að
vinna fyrir enga peninga hjá rík-
inu og selur nú kaffi á götunni.
Með því móti vinnur hún sér inn í
kringum 5.000 krónur á mánuði.
Þetta, sem og svo margt annað,
telst til andbyltingarlegs athæfis
og ef hún væri tekin af lögregl-
unni yrði hún sektuð. Á Kúbu er
nefnilega bannað að bjarga sér.
Það er því ekkert skrítið að fólk
reyni að flýja úr landi, en í þeim
efnum sem öðrum eru Kúbverjar
ótrúlega uppfinningasamir. Þá er
notast við bíla sem breytt er í báta,
gúmmítuðrur og í raun allt sem
flýtur. Nú ætla ég að taka mér
heimamenn að fyrirmynd og flýja
land, en þó ekki í uppfinningagleð-
inni því ætli ég láti ekki nægja að
fara bara með flugvél.
KÚBUÆVINTÝRI TINNA ÞÓRUDÓTTIR ÞORVALDSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ HAVANA
Á kúpunni á Kúbu
Tinna Þórudóttir Þórarinsdóttir á Kúbu.
SUNNUDAGUR 18. júní 2006 21
www.toyota.is
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Hiace
Verð frá 2.050.000 kr.
Íslenskir atvinnubílstjórar hafa aðeins góða reynslu
af Hiace, enda þjónar hönnunin þeim tilgangi að
draga úr óeðlilegu álagi á líkamann. Fjölbreytilegar
aðstæður kalla á fjölhæfan bíl, lipran, háan, breiðan,
stöðugan, öruggan og umfram allt meðfærilegan.
Þetta færðu allt með Hiace.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
32
90
3
0
6/
20
06
Vinnustaður á hjólum
Toyota Austurlandi
Miðási 2
700 Egilsstaðir
Sími: 470-5070