Fréttablaðið - 18.06.2006, Síða 27

Fréttablaðið - 18.06.2006, Síða 27
Laus störf hjá Olíudreifingu ehf Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða áhugasama og vandvirka einstaklinga í eftirtalin störf í Reykjavík. Um framtíðarstörf er að ræða. Störfin standa báðum kynjum til boða. Járniðnaðarmaður / vélvirki / pípari Leitað er að járniðnaðarmanni til almennrar járnsmíða- og lagnavinnu á verkstæði og utan verkstæðis. Um fjölbreytt starf er að ræða í viðhaldi, nýsmíði og uppsetningu tækja. Starfsvettvangur er allt landið, æskilegt er að starfsmaður geti farið út á land þegar þannig háttar. Bílaverkstæði Leitað er að bifvélavirkja, vélvirkja eða einstaklingi vönum viðgerðum á stórum tækjum. Um fjölbreytt starf er að ræða í viðhaldi og viðgerðum á bifreiðum og flutninga- og afgreiðslutækjum ásamt búnaði. Til greina kemur að ráða nema sem búinn er með grunnnám í bæði störfin. Allar nánari upplýsingar veita: Birgir Pétursson í síma 550-9957 Skúli Sigurðsson í síma 550-9960 Olíudreifing ehf. sér um dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olíufélagið ehf. og Olíuverzlun Íslands hf. Félagið hefur starfað frá 1. janúar 1996 Sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.oliudreifing.is Kennari Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða spænskukennara næsta skólaár. Um er að ræða hlutastarf (ca.70%). Hæfniskröfur: • Háskólapróf í spænsku. • Reynsla af kennslu á framhaldsskóla stigi æskileg. • Hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum: • Góða vinnuaðstöðu. • Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Ingi Ólafsson aðstoðarskólastjóri, sími 5 900 600 eða ingi@verslo.is. Umsóknarfrestur er til 22. júní og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til Verzlunarskóla Íslands, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík eða á netfangið ingi@verslo.is. Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1200 nemendur. Skólinn er bekkjarskóli en nemendur ljúka prófum í viðkomandi námsáfanga um jól og vor. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Hægt er að taka stúdentspróf eftir þrjú ár af tveimur brautum. Verzlunarskólinn er mjög tæknivæddur og er aðstaða til náms og kennslu öll hin besta. SÖLUSTJÓRI Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu. Við erum í öflugri sókn og sækjumst eftir einstaklingum til að taka þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum. Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki sem tekur þátt í harðri samkeppni á alþjóðamarkaði. Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi, leiðandi í markaðssetningu á Internetinu og í fremstu röð í þróun upplýsingatækni. Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að velgengni félagsins. Hjá Icelandair starfa um þúsund manns af mörgum þjóðernum í tíu löndum. Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn félagsins séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Icelandair leggur áherslu á þjálfun starfsmanna og símenntun, hvetur starfsmenn til heilsuræktar og styður við félagsstarf starfsmanna. Icelandair er reyklaust fyrirtæki. Við erum ein áhöfn með sameiginlegt, skýrt markmið, berum virðingu fyrir viðskiptavinum og samstarfsmönnum og höfum gaman að því sem við gerum. Við leitum að öflugum starfsmanni í stjórnunarstörf á Íslandi sem hefur reynslu af markaðs- og sölumálum og almennum stjórnunarstöfum. STARFSSVIÐ: • Greining á sölutölum og markaðsupplýsingum • Þróa markaðsáætlanir og stýra framkvæmd þeirra • Útbúa markaðs- og söluskýrslur • Ábyrgur fyrir Internetsölu • Ábyrgur fyrir markaðssamskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila • Útbúa auglýsingaáætlanir HÆFNISKRÖFUR: Við leitum eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi með háskólamenntun í markaðs- og sölufræðum. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og brennandi áhuga á að ná góðum árangri í starfi. Hér er um krefjandi og spennandi starf að ræða í heimi ferðamála og alþjóðlegrar markaðssetningar. Reynsla í markaðs- og sölumálum er nauðsynleg. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði. Hér er um framtíðarstarf að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að flytjast milli starfa og vera tilbúnir að starfa um tíma erlendis hjá Icelandair. VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR? Skriflegar umsóknir óskast sendar inn á veffang Icelandair www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 25. júní. ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S IA .IS IC E 3 3 1 6 4 0 6 /2 0 0 6 ATVINNA SUNNUDAGUR 18. júní 2006 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.