Fréttablaðið - 18.06.2006, Blaðsíða 32
HVERNIG VERÐUR MAÐUR...
NETAGERÐAMAÐUR?
ATVINNA
10 18. júní 2006 SUNNUDAGUR
Námið
Netagerð er löggilt iðn-
grein. Netagerðamenn
hanna og búa til veiðar-
færi fyrir allar fiskveið-
ar í atvinnuskyni. Þeir
þurfa að reikna út og
teikna margs konar teg-
undir af veiðarfærum, til
dæmis í hringnót, lag- og
reknet, dragnót og flot-
og botnvörpur. Netagerð
er mikið handverk og
nota þeir aðallega netanál
og hníf við vinnu sína
ásamt öðrum handverk-
færum og mælitækjum.
Netagerðamenn þurfa
einnig að búa veiðarfærið
réttum fylgihlutum og
búnaði svo sem keðjum,
köðlum, lásum, floti og
þyngingum. Netagerða-
menn fara oft um borð í
skip og aðstoða áhöfn við
notkun veiðarfæra og
annars búnaðar sem þarf
til fiskveiða.
Um námið
Námið tekur þrjú ár og er
samningsbundið. Það er
um 56 einingar og tekur
2-3 annir í skólanum.
Netagerð er einungis
kennd í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja sem er
kjarnaskóli greinarinnar.
Sá sem lýkur sveinsprófi
fær heimild til að bera
starfsheitið netagerða-
maður.
Helstu námsgreinar
Kenndar eru almennar
greinar eins og íslenska,
enska og danska, eðlis-
fræði, stærðfræði og
grunnteikning. Þá eru
kenndar sérgreinar eins
og efnisfræði, fagleg
netagerð þar sem farið er
yfir helstu gerðir fiski-
neta, skilgreiningu þeirra
og framleiðslu, haf- og
fiskifræði, iðnteikning,
enska veiðarfæra, raf-
magnsfræði og veiðar- og
veiðarfærafræði.
Framhaldsmenntun
Að loknu sveinsprófi
gefst netagerðamanni
kostur á meistaranámi í
iðngreininni.
Einnig gefst sveini
kostur á að fara í tækni-
eða háskólanám eftir að
hafa lokið 45 eininga
námi í almennum grein-
um til viðbótar við neta-
gerðanámið.
Handverk með nál og hníf
Netagerðamenn þurfa að reikna út og teikna margs konar tegundir af
veiðarfærum.
Sendibílstjóri
Vantar bílstjóra, meirapróf æskilegt
Næg vinna fyrir góða menn.
Upplýsingar veitir Pétur Einars. í síma 822-4437 eða peture@eykt.is
SUNDSAMBAND ÍSLANDS
ÓSKAR AÐ RÁÐA STARFSMANN
Á SKRIFSTOFU SAMBANDSINS.
Starfið er laust frá 1. ágúst 2006 eða eftir nánara
samkomulagi. Um fullt starf er að ræða.
Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt
og í nánu samstarfi við stjórn og nefndir SSÍ
og verkefnisstjóra landsliða.
HÆFNISKRÖFUR:
Þekking á markaðsmálum
Innsýn í málefni íþróttahreyfingarinnar
Góð tölvukunnátta
Vald á ensku eða frönsku og einu norðurlandamáli.
Umsókn ásamt ferilskrá berist Skrifstofu SSÍ, Engjavegi 6,
104 Reykjavík fyrir 5. júlí 2006.
Upplýsingar veita Hörður J. Oddfríðarson formaður SSÍ
í síma 821-4597 og Ásdís Ó. Vatnsdal gjaldkeri SSÍ
í síma 898-3552.