Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 68
18. júní 2006 SUNNUDAGUR24
Hapro farangurskassi
er snjöll lausn til að koma öllum farangrinum fyrir í bílnum.
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Sterku kerrurnar frá
Camp-let í mörgum stærðum
Fortjöld frá Isabella fyrir fellihýsi,
ferðabíla og hjólhýsi. Örugglega
bestu fortjöld sem fáanleg eru.
Verð frá 19.900
Farangurs
kassar
Það sem upp á vantar
Hestakerrur frá Camp-let sem bera af Ný hentug skjóltjöld í garða
frá Isabella. Verð frá 24.900 kr.
Liður í þessari viðleitni forsetans
var alþjóðlegt málþing um orku-
gjafa framtíðarinnar og aðgerðir
gegn aukinni losun gróðurhúsaloft-
tegunda, sem haldið var í Reykja-
vík á miðvikudag. Þingið er það
þriðja í röð samráðsþinga sem
Jarðarstofnun Kolumbíaháskóla
stendur fyrir. Þingið var sótt af
fulltrúum stórfyrirtækja, háskóla
og vísindastofnana og markmið
þess er metnaðarfullt; að finna leið-
ir til að ná samstöðu um hvaða leið-
ir séu vænlegar til að mæta orku-
þörf komandi kynslóða á þann hátt
að hvorki loftslagi né lífríki jarðar
sé ógnað. Tilefni samráðsþingsins
hér var undirritun samkomulags á
milli Háskóla Íslands og Jarðar-
stofnunarinnar um samstarf í rann-
sóknum og kennslu á þessu sviði
ásamt ráðstefnu á vegum Háskól-
ans um endurnýjanlega orkugjafa.
Hvað er sjálfbær þróun?
Sjálfbær þróun er skilgreind á eft-
irfarandi hátt: „Að mæta þörfum
nútímans án þess að stofna í hættu
getu komandi kynslóða til að mæta
þörfum sínum.“ Þessa skilgrein-
ingu mætti kalla orðræðu stjórn-
málanna en líklegri hugtök til að
vekja almenning til vitundar um
mikilvægi þess að ná sjálfbærni í
heiminum eru þó til dæmis alheims-
farsóttir, náttúruhamfarir, eyðing
skóga, þurrkar, aldauði dýrateg-
unda, hækkandi sjávarborð – sem
allt býr í framtíð mannkyns í aukn-
um mæli ef lausnir sjálfbærrar
þróunar eru virtar að vettugi. Á
grundvelli þessarar framtíðarsýn-
ar var Jarðarstofnunin
við Kolumbíaháskóla
stofnuð undir forstöðu
Jeffreys D. Sachs próf-
essors sem er helsti sam-
starfsmaður forseta
Íslands við að vekja
athygli stjórnvalda og
almennings á nauðsyn
þess að bregðast við hlýn-
un jarðar án tafar.
Einn virtasti hagfræðingur heims
Jeffrey D. Sachs er prófessor í
sjálfbærri þróun við Kolumbíahá-
skóla og var nýverið útnefndur
einn af 100 áhrifamestu leiðtogum
heims af Time-tímaritinu. Hann er
heimsþekktur fyrir ráðgjöf til
ýmissa ríkja um efnahagslegar
umbætur og baráttu sína með
alþjóðlegum stofnunum og sam-
tökum. Hann er einnig ráðgjafi
Kofis Annan, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna um áætlun samtakanna
til að draga úr fátækt, heilsubresti
og hungri í heiminum fram til árs-
ins 2015. Sachs telur að Íslending-
ar hafi margt að bjóða til að sporna
við loftslagsbreytingum og nefnir
endurnýjanlega orkugjafa sérstak-
lega í því sambandi. Hann telur að
margar af þjóðum heims geti tekið
Ísland sér til fyrirmyndar til að
leysa mörg af sínum
vandamálum. „Ísland er
lítið land en hefur þrátt
fyrir það byggt upp eitt
af bestu hagkerfum
heims. Ísland veitir einn-
ig öðrum innblástur og
hér er uppspretta tækni
og hugmynda sem er gott
dæmi um hvað er hægt að
gera á stuttum tíma. Ég
hef oft verið gestur smá-
ríkja um allan heim og þar er oft
spurt hvort smæðin standi ekki í
vegi fyrir því að bæta hag íbúanna.
Mitt svar er gjarnan: „Sjáið Ísland
og hvað hefur verið gert þar á
stuttum tíma.“ Ég útskýri síðan að
þetta hafi Íslendingum tekist með
því að ná tökum á tækni í fiskveið-
um, iðnaði, orkuframleiðslu og líf-
tækni. Þessi aðferð getur verið fyr-
irmynd að því sem er mögulegt.“
Prófessor Sachs er þeirrar
skoðunnar að alþjóðastjórnmál séu
ekki hentugur vettvangur til að
leysa vandamál eins og að draga úr
loftslagsbreytingum og þróun
tækni til að bregðast við þeim.
Hann segir að nauðsynlegt sé að
mynda nýtt alþjóðlegt tengslanet
háskóla og rannsóknastofnana um
heim allan í samstarfi við við-
skiptasamfélagið. Þaðan muni
koma nýjar hugmyndir, raunhæfar
lausnir og meiri skilningur á þeim
vanda sem við er að glíma í heim-
inum í dag. Vitundarvakning er
lykilorðið.
Íslenska leiðin
Vetnisknúnir strætisvagnar vekja
ekki sérstaka athygli Íslendinga
lengur. Þeir eru orðnir hluti af
íslenskum veruleika. Þrátt fyrir
það eru þeir birtingarmynd þeirr-
ar tækni sem hugsanlega getur
leikið stórt hlutverk í að gera jörð-
ina byggilega. Vetnissamfélag er
hugtak sem Jón Björn Skúlason,
framkvæmdastjóri Nýorku, notar
yfir þá framtíðarsýn að innan fárra
ára muni til dæmis venjulegir
fólksbílar verða knúnir vetni. Í
erindi sem hann hélt á málþingi
Háskóla Íslands um orkugjafa
framtíðarinnar kom fram að marg-
ir af helstu bílaframleiðendum
heims fullyrði að tækniþróun sé
svo hröð að ekkert sé því til fyrir-
stöðu
að byrja
á fjölda-
framleiðslu vetn-
isknúinna ökutækja. Stefna
þessara fyrirtækja er að vetni leysi
jarðefnaeldsneyti af hólmi innan
skamms. Stærstu iðnríki heims líta
til vetnisvæðingar sem framtíðar-
lausnar og efnahagslegur ávinn-
ingur Íslands getur verið mikill
þegar horft er til þess að draga má
verulega úr innflutningi á jarð-
efnaeldsneyti. Ekki má heldur
gleyma að framleiðsla eigin elds-
neytis styrkir mjög sjálfstæði
þeirrar þjóðar sem hefur yfir slíkri
tækni að ráða.
Meðal þeirra verkefna sem
miklar vonir eru bundnar við er
hvort hægt sé að binda kolefni í
berggrunninum. Aðferðin felst í
því að dæla koltvísýringi í fljót-
andi formi niður í berg-
grunninn þar sem efna-
breytingar eiga sér stað
og valda því að kalsíum
skilur sig úr berginu og
blandast koltvísýringn-
um og myndar steind
ekki ósvipaða íslenska
silfurberginu. Ef björt-
ustu vonir íslenskra og
bandarískra vísinda-
manna, sem hafa unnið
að rannsóknum á þessari aðferð
um árabil, rætast, má með þessari
aðferð minnka koltvísýringsmeng-
un í heiminum verulega eða að
öllu leyti. Sigurður Reynir Gísla-
son, jarðefnafræðingur hjá Jarð-
vísindastofnun háskólans, kynnti
verkefnið á málþingi Háskólans
og telur að ef vel takist til verði til
þekking sem nýst getur öðrum
þjóðum og að mögulegt verði að
binda mikið af því sem kemur af
koltvísýringi frá íslenskri stóriðju
og orkuverum. Hann reifaði einn-
ig aðra aðferð byggða á sömu lög-
málum þar sem koltvísýrðu vatni
er dælt í gegnum pípur sem fyllt-
ar hafa verið af hinum basaltríka
svarta sandi sem víða er mikið af
á Íslandi. Í sandinum myndu efni
sem verða til við álframleiðslu
eins og kol-
díoxíð, flúor
og brennisteinsdí-
oxíð, hvarfast líkt og
koltvísýringur gerir í basaltinu í
berggrunninum.
Að veiða koltvísýring
Hugmyndir um að binda koltvísýr-
ing ná samt enn lengra. Dr. Klaus
Lackner, prófessor við jarð- og
umhverfisverkfræðideild Kolumb-
íaháskóla, vinnur nú við að þróa
aðferð til þess að „fanga“ koltvísýr-
ing úr andrúmsloftinu sem svo
verður eytt, til dæmis með aðferð-
inni sem hér á undan var lýst. Með
þessu er ekki einungis hægt að
halda í horfinu heldur vinna til
baka það umframmagn koltvísýr-
ings sem nú þegar er í lofthjúpi
jarðar. Í viðtali við Fréttablaðið
sagði Dr. Lackner að eftir fimm ár
vonaðist hann til að búið
væri að þróa búnað sem
gerði þetta mögulegt. Allt
sé það svo háð því hvern-
ig alþjóðasamfélagið
bregðist við, því verkefni
eins og þetta sé ekki þess
eðlis að hópur manna geti
drifið það áfram heldur
sé um sameiginlegt átak
að ræða. Einnig sé þessi
aðferð aðeins hugsuð sem
hluti af lausn þess vanda sem losun
koltvísýrings veldur og hafa verði
jafnframt aðrar aðferðir og lausnir
í huga.
Ólafur Ragnar Grímsson er
óhræddur við að segja að þær hug-
myndir sem unnið er með nú, bæði
af íslensku og erlendu vísinda-
mönnunum, gefi tilefni til mikillar
bjartsýni og möguleikar Íslendinga
séu nær því takmarkalausir.
„Jákvæð niðurstaða myndi hafa
byltingarkennd áhrif á alla umræðu
í veröldinni, efnahag heimsins en
umfram allt vistkerfi jarðarinnar
og möguleika okkar sem mann-
kyns. Framlag Íslands, ef vel tekst
til, myndi hljóta slíka athygli og
styrkja orðspor okkar með þeim
hætti að erfitt er að lýsa því með
nægilega sterkum orðum.“
Jörðin þvegin upp úr
svörtum sandi
JEFFREY D. SACHS
KLAUS LACKNER
Þungamiðja umræðunnar um sjálfbæra þróun færðist til Íslands í lið-
inni viku en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur beitt sér fyrir
samráði áhugafólks, vísindamanna og sérfræðinga í loftslagsbreytingum
og að tengja Ísland við lausnir á því sviði. Þar er lögð sérstök áhersla á að
vinna gegn hlýnun jarðar og koma í veg fyrir þau ógnvænlegu vandamál
sem loftslagsbreytingar munu koma til með að hafa ef ekkert er að gert.
Svavar Hávarðsson lagði við eyrun.
Sjálfbær þróun er skilgreind á eftirfarandi hátt: „Að
mæta þörfum nútímans án þess að stofna í hættu
getu komandi kynslóða til að mæta þörfum sínum.“
FRÁ UNDIRRITUN SAMSTARFSSAMNINGS Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, og Jeffrey D. Sachs,
forstöðumaður Jarðarstofnunar Kolumbíuháskóla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A