Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 72

Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 72
 18. júní 2006 SUNNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli Þú kemur heim með mér! ...og eftir það varð allt svart! Svona svona, hvíldu þig núna! F í t o n / S Í A Röð atburða síðasta árs hefur gert mér betur og betur grein fyrir því að ég sé að verða gömul. Skrýtið hvað þetta bara gerist allt í einu og án þess að maður fái nokkra við- vörun. Mér finnst ég ennþá vera unglingur eða að minnsta kosti ekki alveg fullorðin. Það rann upp fyrir mér um daginn að ég er farin að taka þátt í iðju sem bara fullorðnir stunda. Ég á mína eigin íbúð og er byrjuð að spá í gardínum og hnífa- parasettum. Ég fer ein á kaffihús og les blöðin, ég drekk alltof mikið kaffi, og hárgreiðslumaðurinn minn gerðist svo vænn um daginn að benda mér á nokkur grá hár. Ég hef áhyggjur af reikningum og fæ svitakast þegar ég sé gluggapóst liggja við hurðina. Ég horfi á fréttir af mikilli athygli og rökræði stjórn- mál við foreldra mína. Ég er ekki alveg nógu ánægð með þessa hröðu þróun. Maður ætti að fá bréf með tilkynningu og leið- beiningum um það hvernig maður á að bera sig að þegar komið er í fullorðinna manna tölu, til að klúðra engu. Fullorðinsfræðslu. Stutt er síðan ég hugsaði um fót- boltamenn sem miðaldra karlmenn og núna eru þeir bara stráklingar, fegurðardrottningar eru ekki leng- ur glæsilegar konur heldur stelpu- skjátur allt að fjórum árum yngri en ég. Ég fer í Bónus einu sinni í viku og geymi mat í frystinum af því að það er hagstæðara. Skyndi- lega er ég að fá eitthvað húsmóður- element í mig sem ég hélt að væri jafn útdautt og risaeðlur. Óþægi- legt að horfa til baka og skilja ekki alveg hvenær þetta byrjaði. Hver gaf mér leyfi til að vera fullorðin? Ég hef alltaf verið örlítið hrædd við að fullorðnast. Ég fæ kvíðakast vegna þess að hvert barnið á fætur öðru er að fæðast í vinahópnum og pressan á mig eykst ef ég ætla að taka þátt í mömmuleiknum. Ég hugsa ekki um mig sem konu, en ég er heldur ekki stelpa. En ég veit að ég verð að fara að ákveða mig í hvorum flokknum ég vil vera og af öllu áðursögðu að dæma þá held ég að ég verði að bíta í það súra epli að ég er orðin fullorðin. STUÐ MILLI STRÍÐA: Fullorðinsfræðsla ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR VILL EKKI KLÚÐRA NEINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.