Fréttablaðið - 18.06.2006, Síða 80
18. júní 2006 SUNNUDAGUR36
TITLAR BARCELONA:
Spænskur meistari: 18 sinnum
1928-29, 1944-45, 1947-48, 1948-49, 1951-
52, 1952-53, 1958-59, 1959-60, 1973-74,
1984-85, 1990-91, 1991-92, 1992-93, 1993-
94, 1997-98, 1998-99, 2004-05, 2005-06
Bikarmeistari á Spáni: 24 sinnum
1909-10, 1911-12, 1912-13, 1919-20, 1921-
22, 1924-25, 1925-26, 1927-28, 1941-42,
1950-51, 1951-52, 1952-53, 1956-57, 1958-
59, 1962-63, 1967-68, 1970-71, 1977-78,
1980-81, 1982-83, 1987-88, 1989-90, 1996-
97, 1997-98
Evrópumeistari meistaraliða: 2 sinnum
1992, 2006
Evrópumeistari félagsliða: 4 sinnum
1979, 1982, 1989, 1997
*Auk margra annarra minni titla
FÓTBOLTI Eiður Smári er fremsti
íþróttamaður Íslendinga í dag.
Hann fæddist 15. september árið
1978 og verður því 28 ára gamall
síðar á árinu. Eiður er af mikilli
knattspyrnufjölskyldu kominn en
faðir hans, og nú umboðsmaður, er
Arnór Guðjohnsen, einn fremsti
knattspyrnumaður Íslands í árar-
aðir. Arnór átti farsælan feril, þá
helst hjá Anderlecht í Belgíu.
Móðir Eiðs heitir Ólöf Einarsdótt-
ir
Eiður fæddist í Reykjavík en
ólst að mestu upp í Belgíu þar sem
hann sást varla án þess að hafa
fótbolta við hönd. Hann æfði með
drengjaliðinu Brussegemi og fór
strax að sýna undraverða hæfi-
leika með knöttinn. Eiður var
markaskorari mikill og Arnór lýsti
því yfir að hann dreymdi um að
spila með Eiði. Það gerðist þó
aldrei.
Fyrsta lið Eiðs Smára á Íslandi
var ÍR en hann færði sig um set til
Vals þegar hann var fjórtán ára
gamall og ári síðar byrjaði hann
að spila með meistaraflokki félags-
ins. Eiður var 15 ára og 250 daga
gamall þegar hann lék fyrsta leik
sinn í efstu deild á Íslandi, þann
23. maí 1994. Hann varð þar með
yngsti leikmaður til að spila í efstu
deild og var valinn efnilegasti
leikmaður Íslandsmótsins það ár.
Barcelona var eitt af liðunum
sem sýndi Eiði Smára áhuga þegar
hann var 16 ára en hann kaus að
ganga til liðs við PSV Eindhoven í
Hollandi. Eiður komst fljótlega í
aðallið stórliðsins og skoraði sitt
fyrsta mark í öðrum leik sínum
með PSV. Aðalframherji PSV á
þeim tíma var Brasilíumaðurinn
Ronaldo sem nú leikur með Real
Madrid og stendur í ströngu með
heimsmeisturum Brasilíu á HM í
Þýskalandi.
Draumur þeirra feðga um að
spila saman var nálægt því að ræt-
ast þann 24. apríl 1996 þegar þeir
voru báðir valdir í íslenska lands-
liðið sem lék gegn Eistum í Tallin.
Þá hafði dreymt um að spila saman
en Arnór var kallaður af velli fyrir
Eið og því spiluðu þeir aldrei
saman. Stuttu síðar gerðist afdrifa-
ríkt atvik sem átti eftir að hafa
mikil áhrif á feril Eiðs.
Hann var þá í leik með íslenska
ungmennalandsliðinu sem mætti
Írum, í leik sem Eiði var bannað af
spila af PSV. Eiður Smári meiddist
í leiknum eftir slæma tæklingu og
eftir ítarlega skoðun kom í ljós að
hann var ökklabrotinn og með slit-
in liðbönd. Eiður Smári fór í fjölda
aðgerða vegna meiðslanna og var
frá í tvö ár.
Eiður gekk til liðs við KR árið
1998 en lék aðeins sex leiki með
liðinu og verður það seint talinn
frægðartími á hans ferli. Eiði
Smára hafði þó verið boðið út til
æfinga með enska liðinu Bolton en
þá voru bæði Guðni Bergsson og
Arnar Gunnlaugsson hjá 1. deild-
arfélaginu á Englandi. Fljótlega
náði Eiður upp góðu leikformi og
stóð sig ágætlega á tímabilinu með
Bolton.
Á næsta tímabili var svo komið
að Eiði Smára að skína. Hann stóð
sig frábærlega og skoraði tuttugu
mörk fyrir Bolton í öllum keppn-
um. Þrátt fyrir að vera meðal
bestu manna liðsins neyddist
félagið til að selja Eið eftir aðeins
tvö tímabil, þar af nánast aðeins
eitt þar sem hann gat spilað af
fullum krafti.
Enska úrvalsdeildarliðið Chel-
sea festi kaup á Eiði Smára fyrir 4
milljónir punda og gerði hann
fimm ára samning við félagið sem
var stýrt af Ítalanum Gianluca
Vialli. Chelsea var stórt lið á ensk-
an mælikvarða en ekki nálægt því
sem það er í dag. Eiður spilaði sinn
fyrsta leik fyrir félagið gegn
Manchester United og vann þegar
sinn fyrsta titil með félaginu.
Claudio Ranieri tók fljótlega við
af landa sínum en það breytti
stöðu Eiðs ekki mikið. Eiður spil-
aði mikið fyrir Chelsea og skoraði
þrettán mörk á tímabilinu.
Svipað og gerðist hjá Bolton sló
Eiður svo í gegn á sinni annarri
leiktíð. Hann náði vel saman með
Jimmy Floyd Hasselbaink í sókn-
inni þar sem þeir töluðu oft á
tíðum saman á hollensku til að
rugla varnir andstæðinganna.
Eiður skoraði 24 mörk á sínu besta
tímabili með Chelsea.
Næsta tímabil hrjáðu meiðsli
Íslendinginn sem skoraði tíu mörk
í mun færri leikjum en hann spil-
aði árið áður. Chelsea var mjög
illa statt fjárhagslega en náði þó
með naumindum að vinna sér inn
sæti í Meistaradeild Evrópu á
tímabilinu 2003-2004. Sumarið
2003 keypti milljarðamæringur-
inn Roman Abramovich svo félag-
ið og breytti þar með knattspyrnu-
heiminum.
Með innkomu allra þeirra pen-
inga sem Abamovich hafði yfir að
ráða gat Chelsea keypt nánast
hvaða leikmann sem þeir vildu.
Eiður Smári fór þó ekki frá liðinu
eins og margir leikmenn og enn
meiri breytingar voru gerðar árið
2004 þegar Jose Mourinho tók við
liðinu. Eiður Smári hélt þó alltaf
sæti sínu annað en margir sem
hurfu á braut.
Á tímabilinu 2004-2005 skoraði
Eiður Smári sextán mörk, mörg
hver mjög mikilvæg, en hann var
þó ekki fastur byrjunarliðsmaður.
Samkeppnin um stöður í Chelsea
liðinu var gríðarlega hörð en Eiður
náði samt alltaf að skora sín mörk
og fyrir það var hann mikils met-
inn hjá stuðningsmönnum Chelsea
sem varð Englandsmeistari á
tímabilinu.
Á tímabilinu 2005-2006 fékk
Eiður svo nýtt hlutverk hjá Jose
Mourinho þegar hann var færður
aftar á völlinn, á miðjuna. Það
sýndi sig strax í því að Eiður skor-
aði mun minna en hann náði aðeins
að skora þrjú mörk á tímabilinu,
tvö í deildinni og eitt í bikarkeppn-
inni. Hann hefur aldrei skorað
jafn fá mörk á einu tímabili og
nú.
Eitt helsta vopn Eiðs er útsjón-
arsemi hans og auga fyrir spili.
Auk þess kemur hann boltanum
mjög vel frá sér og nýttist þessi
hæfileiki hans mjög vel á miðj-
unni en hann lagði upp mörg mörk
en náði ekki frekar en fyrri dag-
inn að vinna sér inn fast sæti í
byrjunarliðinu. hjalti@frettabladid.is
Á vit draumanna til Barcelona
Fremsti knattspyrnumaður Íslands í dag, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur samið við spænska stórliðið
Barcelona til þriggja ára, en félagið er Spánar- og Evrópumeistari. Þar með lýkur sex ára veru Eiðs Smára
hjá Chelsea þar sem hann átti farsælan feril en hann varð í tvígang Englandsmeistari með félaginu.
STOLTIR FEÐGAR Eiður og sonur hans Aron
Sveinn halda hér á nýrri treyju Eiðs. Hver
veit nema Aron feti í fótspor föður síns.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MEÐ SJÖUNA Á BAKINU Eiður Smári mun leika í treyju númer 7 hjá Barcelona og hann sýndi Íslendingum stoltur treyjuna góðu á blaða-
mannafundi sem hann hélt hér á landi á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓTBOLTI FC Barcelona var stofnað
árið 1899 af hópi svissneskra,
breskra, spænskra og katalónskra
knattspyrnumanna með Joan
Gamper í forsvari. Klúbburinn er
stolt Katalóníuhéraðs og er metn-
aður félagsins að hafa allflesta
leikmenn liðsins innanhéraðs-
menn. Það er ekki að ástæðulausu
að slagorð félagsins er: Barca er
meira en klúbbur!
Alls eru 140.000 manns með-
limir í klúbbnum sem er ekki bara
þekktur fyrir knattspyrnu heldur
einnig handbolta, körfubolta og
ýmsar fleiri íþróttir.
Barcelona hefur aldrei haft
auglýsingar framan á búningnum
sínum þar sem litir á treyju
Barcelona-liðsins eru tákn Katal-
óníuhéraðsins. Katalóníumenn
troðfylla hinn 100.000 manna
Camp Nou-leikvöll í hvert sinn
sem Barcelona keppir á heima-
velli. - hþh
Barcelona:
Byggist upp á
Katalóníustolti
KATALÓNÍUBÚAR Skap þeirra á mánudög-
um ræðst á því hvernig Barcelona spilaði
þá helgina. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Eiður Smári spilaði með
Chelsea í sex ár og greinilegt er
hversu erfitt það er fyrir hann að
yfirgefa félagið. Eiður var mikils
metinn hjá félaginu og var meðal
annars í fyrirliðaþríeyki með John
Terry og Frank Lampard, sem
segir sitt um hlutverk hans utan
vallar hjá liðinu. Eiður var spurður
að því á blaðamannafundinum
hvernig hann myndi fagna ef hann
skoraði mark fyrir Barcelona í leik
við Chelsea.
„Ég held að ég myndi ekki
fagna. Chelsea hefur verið það stór
hluti af ferlinum og lífi mínu að ég
hugsa að ég hefði það ekki í mér að
svekkja áhangendur Chelsea með
því að fagna mótlæti þeirra. Auð-
vitað myndi ég samt sem áður,
gleðjast með mínu nýja liði og
sjálfum mér,“ sagði Eiður áður en
spurningin var endurtekin, ögn
kryddaðri, og spurt hvort hann
myndi fagna ef hann skoraði gegn
þeim í úrslitum meistaradeildar-
innar. „Jahá, ætli ég myndi ekki
fagna eitthvað aðeins. Ég myndi
samt passa mig á því að fagna
þannig að engin vanvirðing væri til
staðar,“ sagði Eiður brosandi.
- hþh
Eiður Smári Guðjohnsen:
Fagnar ekki
gegn Chelsea
FÉLAGAR Eiður og John Terry, fyrirliði
Chelsea, eru góðir vinir.
BYRJAÐI SNEMMA AÐ SPARKA Í BOLTA Eiður Smári var ekki gamall þegar hann fór að sýna
lipra takta með boltann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STOLTIR FORELDRAR Foreldrar Eiðs Smára, Arnór og Ólöf Einarsdóttir, sjást hér stolt með
Eið Smára nokkura vikna í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EK