Fréttablaðið - 18.06.2006, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 18.06.2006, Blaðsíða 80
 18. júní 2006 SUNNUDAGUR36 TITLAR BARCELONA: Spænskur meistari: 18 sinnum 1928-29, 1944-45, 1947-48, 1948-49, 1951- 52, 1952-53, 1958-59, 1959-60, 1973-74, 1984-85, 1990-91, 1991-92, 1992-93, 1993- 94, 1997-98, 1998-99, 2004-05, 2005-06 Bikarmeistari á Spáni: 24 sinnum 1909-10, 1911-12, 1912-13, 1919-20, 1921- 22, 1924-25, 1925-26, 1927-28, 1941-42, 1950-51, 1951-52, 1952-53, 1956-57, 1958- 59, 1962-63, 1967-68, 1970-71, 1977-78, 1980-81, 1982-83, 1987-88, 1989-90, 1996- 97, 1997-98 Evrópumeistari meistaraliða: 2 sinnum 1992, 2006 Evrópumeistari félagsliða: 4 sinnum 1979, 1982, 1989, 1997 *Auk margra annarra minni titla FÓTBOLTI Eiður Smári er fremsti íþróttamaður Íslendinga í dag. Hann fæddist 15. september árið 1978 og verður því 28 ára gamall síðar á árinu. Eiður er af mikilli knattspyrnufjölskyldu kominn en faðir hans, og nú umboðsmaður, er Arnór Guðjohnsen, einn fremsti knattspyrnumaður Íslands í árar- aðir. Arnór átti farsælan feril, þá helst hjá Anderlecht í Belgíu. Móðir Eiðs heitir Ólöf Einarsdótt- ir Eiður fæddist í Reykjavík en ólst að mestu upp í Belgíu þar sem hann sást varla án þess að hafa fótbolta við hönd. Hann æfði með drengjaliðinu Brussegemi og fór strax að sýna undraverða hæfi- leika með knöttinn. Eiður var markaskorari mikill og Arnór lýsti því yfir að hann dreymdi um að spila með Eiði. Það gerðist þó aldrei. Fyrsta lið Eiðs Smára á Íslandi var ÍR en hann færði sig um set til Vals þegar hann var fjórtán ára gamall og ári síðar byrjaði hann að spila með meistaraflokki félags- ins. Eiður var 15 ára og 250 daga gamall þegar hann lék fyrsta leik sinn í efstu deild á Íslandi, þann 23. maí 1994. Hann varð þar með yngsti leikmaður til að spila í efstu deild og var valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins það ár. Barcelona var eitt af liðunum sem sýndi Eiði Smára áhuga þegar hann var 16 ára en hann kaus að ganga til liðs við PSV Eindhoven í Hollandi. Eiður komst fljótlega í aðallið stórliðsins og skoraði sitt fyrsta mark í öðrum leik sínum með PSV. Aðalframherji PSV á þeim tíma var Brasilíumaðurinn Ronaldo sem nú leikur með Real Madrid og stendur í ströngu með heimsmeisturum Brasilíu á HM í Þýskalandi. Draumur þeirra feðga um að spila saman var nálægt því að ræt- ast þann 24. apríl 1996 þegar þeir voru báðir valdir í íslenska lands- liðið sem lék gegn Eistum í Tallin. Þá hafði dreymt um að spila saman en Arnór var kallaður af velli fyrir Eið og því spiluðu þeir aldrei saman. Stuttu síðar gerðist afdrifa- ríkt atvik sem átti eftir að hafa mikil áhrif á feril Eiðs. Hann var þá í leik með íslenska ungmennalandsliðinu sem mætti Írum, í leik sem Eiði var bannað af spila af PSV. Eiður Smári meiddist í leiknum eftir slæma tæklingu og eftir ítarlega skoðun kom í ljós að hann var ökklabrotinn og með slit- in liðbönd. Eiður Smári fór í fjölda aðgerða vegna meiðslanna og var frá í tvö ár. Eiður gekk til liðs við KR árið 1998 en lék aðeins sex leiki með liðinu og verður það seint talinn frægðartími á hans ferli. Eiði Smára hafði þó verið boðið út til æfinga með enska liðinu Bolton en þá voru bæði Guðni Bergsson og Arnar Gunnlaugsson hjá 1. deild- arfélaginu á Englandi. Fljótlega náði Eiður upp góðu leikformi og stóð sig ágætlega á tímabilinu með Bolton. Á næsta tímabili var svo komið að Eiði Smára að skína. Hann stóð sig frábærlega og skoraði tuttugu mörk fyrir Bolton í öllum keppn- um. Þrátt fyrir að vera meðal bestu manna liðsins neyddist félagið til að selja Eið eftir aðeins tvö tímabil, þar af nánast aðeins eitt þar sem hann gat spilað af fullum krafti. Enska úrvalsdeildarliðið Chel- sea festi kaup á Eiði Smára fyrir 4 milljónir punda og gerði hann fimm ára samning við félagið sem var stýrt af Ítalanum Gianluca Vialli. Chelsea var stórt lið á ensk- an mælikvarða en ekki nálægt því sem það er í dag. Eiður spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Manchester United og vann þegar sinn fyrsta titil með félaginu. Claudio Ranieri tók fljótlega við af landa sínum en það breytti stöðu Eiðs ekki mikið. Eiður spil- aði mikið fyrir Chelsea og skoraði þrettán mörk á tímabilinu. Svipað og gerðist hjá Bolton sló Eiður svo í gegn á sinni annarri leiktíð. Hann náði vel saman með Jimmy Floyd Hasselbaink í sókn- inni þar sem þeir töluðu oft á tíðum saman á hollensku til að rugla varnir andstæðinganna. Eiður skoraði 24 mörk á sínu besta tímabili með Chelsea. Næsta tímabil hrjáðu meiðsli Íslendinginn sem skoraði tíu mörk í mun færri leikjum en hann spil- aði árið áður. Chelsea var mjög illa statt fjárhagslega en náði þó með naumindum að vinna sér inn sæti í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu 2003-2004. Sumarið 2003 keypti milljarðamæringur- inn Roman Abramovich svo félag- ið og breytti þar með knattspyrnu- heiminum. Með innkomu allra þeirra pen- inga sem Abamovich hafði yfir að ráða gat Chelsea keypt nánast hvaða leikmann sem þeir vildu. Eiður Smári fór þó ekki frá liðinu eins og margir leikmenn og enn meiri breytingar voru gerðar árið 2004 þegar Jose Mourinho tók við liðinu. Eiður Smári hélt þó alltaf sæti sínu annað en margir sem hurfu á braut. Á tímabilinu 2004-2005 skoraði Eiður Smári sextán mörk, mörg hver mjög mikilvæg, en hann var þó ekki fastur byrjunarliðsmaður. Samkeppnin um stöður í Chelsea liðinu var gríðarlega hörð en Eiður náði samt alltaf að skora sín mörk og fyrir það var hann mikils met- inn hjá stuðningsmönnum Chelsea sem varð Englandsmeistari á tímabilinu. Á tímabilinu 2005-2006 fékk Eiður svo nýtt hlutverk hjá Jose Mourinho þegar hann var færður aftar á völlinn, á miðjuna. Það sýndi sig strax í því að Eiður skor- aði mun minna en hann náði aðeins að skora þrjú mörk á tímabilinu, tvö í deildinni og eitt í bikarkeppn- inni. Hann hefur aldrei skorað jafn fá mörk á einu tímabili og nú. Eitt helsta vopn Eiðs er útsjón- arsemi hans og auga fyrir spili. Auk þess kemur hann boltanum mjög vel frá sér og nýttist þessi hæfileiki hans mjög vel á miðj- unni en hann lagði upp mörg mörk en náði ekki frekar en fyrri dag- inn að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu. hjalti@frettabladid.is Á vit draumanna til Barcelona Fremsti knattspyrnumaður Íslands í dag, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur samið við spænska stórliðið Barcelona til þriggja ára, en félagið er Spánar- og Evrópumeistari. Þar með lýkur sex ára veru Eiðs Smára hjá Chelsea þar sem hann átti farsælan feril en hann varð í tvígang Englandsmeistari með félaginu. STOLTIR FEÐGAR Eiður og sonur hans Aron Sveinn halda hér á nýrri treyju Eiðs. Hver veit nema Aron feti í fótspor föður síns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MEÐ SJÖUNA Á BAKINU Eiður Smári mun leika í treyju númer 7 hjá Barcelona og hann sýndi Íslendingum stoltur treyjuna góðu á blaða- mannafundi sem hann hélt hér á landi á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓTBOLTI FC Barcelona var stofnað árið 1899 af hópi svissneskra, breskra, spænskra og katalónskra knattspyrnumanna með Joan Gamper í forsvari. Klúbburinn er stolt Katalóníuhéraðs og er metn- aður félagsins að hafa allflesta leikmenn liðsins innanhéraðs- menn. Það er ekki að ástæðulausu að slagorð félagsins er: Barca er meira en klúbbur! Alls eru 140.000 manns með- limir í klúbbnum sem er ekki bara þekktur fyrir knattspyrnu heldur einnig handbolta, körfubolta og ýmsar fleiri íþróttir. Barcelona hefur aldrei haft auglýsingar framan á búningnum sínum þar sem litir á treyju Barcelona-liðsins eru tákn Katal- óníuhéraðsins. Katalóníumenn troðfylla hinn 100.000 manna Camp Nou-leikvöll í hvert sinn sem Barcelona keppir á heima- velli. - hþh Barcelona: Byggist upp á Katalóníustolti KATALÓNÍUBÚAR Skap þeirra á mánudög- um ræðst á því hvernig Barcelona spilaði þá helgina. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Eiður Smári spilaði með Chelsea í sex ár og greinilegt er hversu erfitt það er fyrir hann að yfirgefa félagið. Eiður var mikils metinn hjá félaginu og var meðal annars í fyrirliðaþríeyki með John Terry og Frank Lampard, sem segir sitt um hlutverk hans utan vallar hjá liðinu. Eiður var spurður að því á blaðamannafundinum hvernig hann myndi fagna ef hann skoraði mark fyrir Barcelona í leik við Chelsea. „Ég held að ég myndi ekki fagna. Chelsea hefur verið það stór hluti af ferlinum og lífi mínu að ég hugsa að ég hefði það ekki í mér að svekkja áhangendur Chelsea með því að fagna mótlæti þeirra. Auð- vitað myndi ég samt sem áður, gleðjast með mínu nýja liði og sjálfum mér,“ sagði Eiður áður en spurningin var endurtekin, ögn kryddaðri, og spurt hvort hann myndi fagna ef hann skoraði gegn þeim í úrslitum meistaradeildar- innar. „Jahá, ætli ég myndi ekki fagna eitthvað aðeins. Ég myndi samt passa mig á því að fagna þannig að engin vanvirðing væri til staðar,“ sagði Eiður brosandi. - hþh Eiður Smári Guðjohnsen: Fagnar ekki gegn Chelsea FÉLAGAR Eiður og John Terry, fyrirliði Chelsea, eru góðir vinir. BYRJAÐI SNEMMA AÐ SPARKA Í BOLTA Eiður Smári var ekki gamall þegar hann fór að sýna lipra takta með boltann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STOLTIR FORELDRAR Foreldrar Eiðs Smára, Arnór og Ólöf Einarsdóttir, sjást hér stolt með Eið Smára nokkura vikna í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.