Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 81

Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 81
SUNNUDAGUR 18. júní 2006 37 ALLT VÖRU- OG ÞJÓNUSTUSKRÁIN ER KOMIN Í ÖLL HÚS Á LANDINU Þú gætir auðveldlega unnið ferð til Evrópu og fullt af öðrum frábærum vinningum ef þú tekur þátt í Allt leiknum. Skelltu þér inn á www.allt.is og svaraðu fimm laufléttum spurningum sem þú finnur á síðu 351 í bókinni. Svörin eru öll í Allt bókinni. Meðal vinninga eru: Ferð út í heim með Iceland Express, Vodafone Live! Nokia 6101 símar, Fríkort á Grensásvídeó og Pizzur frá Villson’s Pizza. ALLT er ný vöru- og þjónustuskrá á netinu á www.allt.is, í síma 1850 og núna í handhægri bók sem dreift hefur verið á öll heimili. Bókin er sneisafull af upp- lýsingum og skemmtilegu efni, allt frá húsráð- um og handhægum mælieiningum til næringar- upplýsinga og götukorta. Þú finnur allt sem þig vantar í ALLT bókinni. Taktu þátt í skemmtilegum leik Wi 15. SEPTEMBER 1978: Eiður Smári fæðist í Reykjavík 23. MAÍ 1994: Fyrsti leikur í efstu deild á Íslandi 15. ÁGÚST 1994 Semur við PSV Eindhoven til 3. ára 24. APRÍL 1996 Leikur sinn fyrsta A-landsleik 7. MAÍ 2006: Meiðist illa í leik með U21 liðinu 16. MAÍ 1998: Fer til KR að láni frá PSV Eindhoven 4. ÁGÚST 1998: Fer í frjálsri sölu til Bolton á Englandi 16. SEPTEMBER 1998: Leikur sinn fyrsta leik fyrir Bolton 4. SEPTEMBER 1999: Skorar sitt fyrsta A-landsliðs- mark 20. JÚNÍ 2000: Seldur til Chel- sea fyrir 4 m. punda 1. SEPTEMBER 2000: Skorar fyrsta markið fyrir Chelsea 7. JÚNÍ 2003: Gerður að landsliðsfyrirliða 1. JÚLÍ 2003: Roman Abramovich kaupir Chelsea 3. JANÚAR 2005 Valinn íþróttamaður ársins 2004 30. APRÍL 2005: Englandsmeistari með Chelsea 3. JANÚAR 2006: Valinn íþróttamaður ársins 2005 29 APRÍL 2006: Englandsmeistari með Chelsea 22. JANÚAR 2006 Skorar síðasta markið fyrir Chelsea 15. JÚNÍ 2006 Skrifar undir hjá Barcelona ferill » EIÐS SMÁRA GUÐJOHNSEN FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen fær ekki öfundsvert hlutverk hjá Barcelona þegar kemur að því að berjast um sæti í byrjunarliðinu. Eiður greindi frá því á blaða- mannafundi sínum á föstudaginn að Frank Rijkaard sæi hann fyrir sér framar á vellinum en hjá Chel- sea spilaði Eiður á miðjunni undir lokin. „Rijkaard sér mig fyrir sér framar á vellinum en ég spilaði undir lokin hjá Chelsea og tók það skýrt fram. Hann sagði mér að hann væri með fimm leikmenn sem væru að berjast um þrjár stöður, Ronaldinho, Samuel Eto´o, Lionel Messi, Ludovic Giuly og mig. Þetta eru ágætis nöfn til að blanda sér í,“ sagði Eiður og brosti breitt. „Rijkaard gerði mér grein fyrir því að ég myndi ekki labba beint inn í byrjunarliðið en tók það fram að allir fengu sín tækifæri. Það var í raun það eina sem ég þurfti að heyra frá honum. Í stórklúbbum í dag kemst maður ekki hjá því að lenda í sam- keppni, ég kem til Barcelona frá stórklúbbi þar sem samkeppnin var mikil og ég er alveg tilbúinn til að takast á við hana aftur,“ sagði Eiður. - hþh Eiður Smári Guðjohnsen þarf að taka á honum stóra sínum næsta vetur á Spáni: Fimm heimsklassaleikmenn berjast um þrjár stöður í liði Barcelona FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen gerði fjögurra ára samning við Barcelona en Arnór, faðir hans og umboðsmaður, greindi frá því að samningur Eiðs væri sá besti sem hann hefði gert á ferlinum. Barce- lona setti í samning Eiðs að hann þyrfti að læra katalónsku. „Við ætlum að hella okkur út í það að læra bæði spænsku og katalónsku, það er hefð fyrir því. Í samningum mínum stóð: Eiður þarf að læra katalónsku og kynn- ast því hvað það þýðir að spila fyrir Barcelona. Fólkinu í Katal- óníu er til að mynda nánast alveg sama um spænska landsliðið, það vill helst stofna sitt eigið landslið og það eina sem skiptir máli er það hvernig Barcelona gengur,“ sagði Eiður Smári. „Skap fólksins í borginni fer bara eftir því hvernig liðið spilaði um helgina. Ég fann mjög mikið fyrir því hversu sterkt þetta var hjá forseta Barcelona-liðsins og fólkinu í kringum klúbbinn,“ bætti Eiður við. - hþh Ýmis furðuleg ákvæði í samningi Eiðs Smára við Barcelona: Gert að læra katalónsku FÓTBOLTI Johan Cruyff er goðsögn hjá Barcelona en hann lék með lið- inu á árunum 1973 til 1978. Hann var kjörinn besti leikmaður Evr- ópu árin 1971, 1973 og 1974. Cru- yff tók síðan við liðinu árið 1988 og stýrði liðinu til fjögurra Spán- armeistaratitla auk fyrsta Evr- ópubikars félagsins árið 1992. Hann er enn nokkurs konar ráðgjafi Joan Laporta forseta félagsins, sem hann hjálpaði að ná kjöri í embættið en hefur engan formlegan starfstitil. Hollending- urinn Cruyff hrósaði komu Eiðs Smára sérstaklega í spænskum fjölmiðlum í gær. „Ég hef þekkt til Eiðs Smára frá því hann var hjá PSV Eind- hoven. Hann virkaði ávallt mjög vel á mig og mér hefur líkað vel við hann síðan þá. Ég man vel þegar hann meiddist illa en hann fór síðan til Englands og stóð sig mjög vel þar,“ sagði Cruyff. - hþh Johan Cruyff: Hef lengi verið aðdáandi Eiðs VIRTUR Johan Cruyff sést hér með Pelé. ENGIN SMÁ SAMKEPPNI Brasilíumaðurinn Ronaldinho og argentínska undrið Lionel Messi eru á meðal þeirra manna sem munu berjast við Eið um sæti í byrjunarliði Barca næsta vetur. Þeir sjást hér á æfingu með Portúgalann Deco á milli sín. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FJÖLSKYLDUMAÐUR Eiður sést hér með unnustu sinni, Ragnhildi Sveinsdóttur og nýfæddum syni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EIÐUR SMÁRI Þarf að læra katalónsku í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.