Fréttablaðið - 18.06.2006, Síða 83
SUNNUDAGUR 18. júní 2006 39
D-riðill:
PORTÚGAL-ÍRAN 2-0
1-0 Deco (62.), 2-0 Cristiano Ronaldo (víti 79.).
STAÐAN
PORTÚGAL 2 2 0 0 3 0 3 6
MEXÍKÓ 2 1 1 0 3 1 2 4
ANGÓLA 2 0 1 1 0 1 -1 1
ÍRAN 2 0 0 2 1 5 -4 0
E-riðill:
ÍTALÍA-BANDARÍKIN 1-1
1-0 Alberto Gilardino (22.). 1-1 Cristian Zaccardo
(sjálfsmark 27.).
TÉKKLAND-GHANA 0-2
0-1 Asamoah Gyan (2.), 0-2 Sulley Muntari (82.).
STAÐAN
ÍTALÍA 2 1 1 0 3 1 2 4
TÉKKLAND 2 1 0 1 3 2 1 3
GHANA 2 1 0 1 2 2 0 3
BANDARÍKIN 2 0 1 1 1 4 -3 1
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Það er allt opið í E-riðli á
HM eftir 2-0 sigur Ghana á Tékk-
um í gær. Asamoah Gyan skoraði
sneggsta mark HM í Þýskalandi
til þessa eftir eina mínútu og átta
sekúndur en hann brenndi auk
þess af vítaspyrnu í leiknum sem
markar endalok níu sigra Tékka í
öllum keppnum.
Sulley Muntari kláraði leikinn
undir lokin en Petr Cech hafði í
nógu að snúast í tékkneska mark-
inu. „Sem þjálfari er maður alltaf
með dótið sitt í töskunum, tilbúinn
til að halda heim á leið. Það er
hluti af starfinu og í Afríku snýst
þetta um miklar tilfinningar. Ef
kóngurinn deyr kemur nýr kóngur
en nú er ég orðinn að hetju í
Ghana,“ sagði Ratomir Dujkovic,
þjálfari Ghana eftir leikinn. - hþh
Þjálfari Ghana eftir sigur í gær:
Ég er orðinn að
hetju í Ghana
HANDBOLTI „Ég er alveg búinn á
taugum enda var þetta mjög erfið-
ur leikur og Svíarnir mættu vel
undirbúnir. Niðurstaða einvígisins
er sæt og þetta er stórkostleg
stund. Strákarnir sýndu mikinn
karakter og gríðarlegt sjálfs-
traust,“ sagði Alfreð Gíslason
landsliðsþjálfari en röddin var
ekki eins sterk og áður eftir öskr-
in á leiknum.
„Sóknarleikurinn hjá okkur fór
ekki í gang í fyrri hálfleik. Það var
allt of hæg hreyfing á liðinu og
menn ekki alveg á fullum krafti.
Svensson varði eins og brjálaður
og það hjálpaði ekki mikið. Varn-
arleikurinn var annars mjög góður
og Svíarnir fengu ekki mörg opin
færi. Mér fannst markverðirnir
báðir góðir þó það hafi þurft að
bíða eftir markvörslunni.“
Alfreð var uppnuminn af
umgjörð leiksins og stemning-
unni. „Þetta var alger draumur og
strákarnir nutu þess út í gegn. Að
sjá allt fánahafið fyrir leik var
ótrúlegt og ég átti hreinlega erfitt
með mig í þjóðsöngnum,“ sagði
Akureyringurinn magnaði sem
fær það skemmtilega verkefni að
stýra liðinu á HM í Þýskalandi.
- hbg
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari var sigurreifur eftir leikinn í Höllinni:
Þetta er stórkostleg stund
LÍFLEGUR Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari lét vel til taka á hliðarlínunni í gær en hannbrosti
breitt eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Á HNJÁNUM Ljubomir Vranjes var oft á
hnjánum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI „Ég bara trúi þessu
ekki, það eru ótrúleg vonbrigði að
komast ekki á HM. Ég óska Íslandi
þó alls hins besta í Þýskalandi,“
sagði Stefan Lövgren, leikmaður
Svía. „Við spiluðum mjög vel í
þessum leik en einvíginu töpuðum
við heima í Globen. Ísland er með
frábært lið sem refsar alltaf fyrir
hver mistök og við mættum ein-
faldlega ofjörlum okkar að þessu
sinni,“ sagði Lövgren.
Ég verð að viðurkenna að þetta
eru gríðarleg vonbrigði fyrir
okkur og sænskan handknattleik í
heild sinni. Ísland spilaði mjög vel
og meira er ekki um málið að
segja. Ég veit ekki hvaða áhrif
þetta hefur á sænskan handbolta
en útlitið er mjög dökkt, því er
ekki að neita,“ sagði Ljubomir
Vranjes. - hþh
Stefan Lövgren og Vranjes:
Við mættum
ofjörlum okkar
FÓTBOLTI Það var allt vitlaust í leik
Ítala og Bandaríkjamanna á HM í
Þýskalandi í gær en leiknum lauk
með 1-1 jafntefli. Alberto Gilardi-
no kom Ítölum yfir eftir 23. mínút-
ur en Bandaríkjamenn jöfnuðu
nokkrum mínútum síðar þegar
Cristian Zaccardo skoraði einkar
klaufalegt sjálfsmark.
Þrír menn voru reknir út af í
leiknum. Fyrstur til að fjúka af
velli var Daniele De Rossi sem gaf
Brian McBride ljótt olnbogaskot,
þá var það Bandaríkjamaðurinn
Pablo Mastraono sem fékk einnig
beint rautt spjald fyrir ljótt brot
og síðastur var það Eddie Pope
sem fékk sitt annað gula spjald í
upphafi síðari hálfleiks.
Jafntefli varð að lokum nið-
urstaðan. - hþh
Leikur Ítala og Bandaríkjanna:
Jafntefli í blóð-
ugri orrustu
RAUTT Úrugvæski dómarinn Jorge Larrionda
hafði í nógu að snúast. NORDICPHOTOS/AFP
Undankeppni HM:
ÍSLAND-SVÍÞJÓÐ 25-26 (10-12)
Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefánsson 6 (12),
Róbert Gunnarsson 4 (7), Guðjón Valur Sigurðs-
son 4 (5), Snorri Steinn Guðjónsson 4/2 (6/2),
Alexander Petersson 2 (5), Arnór Atlason 2 (7),
Sigfús Sigurðsson 1 (1), Markús Máni Michaels-
son 1 (3).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 7, Hreiðar
Guðmundsson 6.
Hraðaupphlaup 8: (Guðjón 4, Sigfús, Markús,
Snorri, Alexander).
Fiskuð víti 2: (Róbert, Ólafur).
Markahæstir hjá Svíum: Marcus Ahlm 6, Kim
Andersson 4, Fredrik Lindahl 4.
Varin skot: Tomas Svensson 12, Peter Gentzel 12.
TÖLFRÆÐIN