Fréttablaðið - 23.07.2006, Side 10
23. júlí 2006 SUNNUDAGUR10
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér fyrir neðan má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
MERKISATBURÐIR
1829 William Austin Burt fær
einkaleyfi fyrir fyrstu ritvél-
inni í Bandaríkjunum.
1951 Frímúrarareglan á Íslandi er
stofnuð.
1952 Kola- og stálbandalag
Evrópu er stofnað en það
var fyrsti vísirinn að Evrópu-
sambandinu.
1967 Óeirðir byrja í Detroit í
Michigan en þetta eru
einhverjar verstu óeirðir í
sögu Bandaríkjanna.
1984 Í fyrsta skipti þurfti ungfrú
Ameríka, Vanessa Williams,
að skila titlinum til baka
eftir að nektarmyndir
birtust af henni í tímaritinu
Penthouse.
2001 Örn Arnarson lenti í öðru
sæti í hundrað metra
baksundi á heimsmeistara-
mótinu í Japan.
RAYMOND CHANDLER (1888-1959)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Mjög góðir leynilögreglu-
menn giftast aldrei.“
Raymond Chandler var bandarískur
spennusagnarithöfundur.
Á þessum degi árið 1997 varð Slobodan Milos-
evic forseti sambandslýðveldisins Júgóslavíu, sem
samanstóð af Serbíu og Svartfjallalandi,
en hann hafði verið forseti Serbíu frá árinu
1989. Milosevic var á móti markaðshag-
kerfinu, hann beitti sér fyrir miðstýrðu
hagkerfi og vildi að sjálfstjórnarhéruðin
Vojvodina og Kosovo færu aftur undir
stjórn Serba. Sem forseti Serbíu fylgdi
hann stefnu þjóðernissinna og stuðlaði
þar með að upplausn Júgóslavneska sam-
bandsríkisins. Árið 1991 lýstu Slóvenía,
Króatía og Makedónía öll yfir sjálfstæði
en Milosevic studdi serbneska herliða
sem börðust fyrir sameiningu Bosníu og Króatíu
við Serbíu. Serbum tókst ekki að yfirbuga bosnískar
og króatískar hersveitir og eftir þriggja ára stríð var
króatíski herinn búinn að drepa nánast alla Serba
í Króatíu. Á þessum tíma var efnahagur Serba í
rúst, meðal annars vegna viðskiptabanns Samein-
uðu þjóðanna á Serbíu. Því var létt árið 1995 og
Milosevic samdi frið.
Árið 1998 hófust átök á milli Serba og
Albana í Kosovo og um vorið ári síðar var
serbneski herinn sendur af stað til þess að
bæla uppreisnina niður. Atlantshafsbanda-
lagið brást við með því að hefja loftárásir
á Júgóslavíu með þá von að Milosevic
drægi herlið sitt til baka og í júní samdi
Milosevic um frið við bandalagið.
Hann gat ekki haldið forsetaembætti
sínu í Serbíu þriðja kjörtímabilið í röð en
fékk sambandsþingið til þess að kjósa
sig sem forseta Júgóslavíu árið 1997. Árið 1999 var
hann síðan kærður fyrir stríðsglæpi og árið 2001
tapaði hann forsetastól sínum í kosningum. Réttar-
höldin hófust árið 2002 en þeim lauk aldrei þar sem
hann dó í mars á þessu ári.
ÞETTA GERÐIST 23. JÚLÍ 1997
Slobodan Milosevic verður forseti
Í dag hefst fyrirlestraröð í
Sögusetrinu á Hvolsvelli
sem ber heitið „Njála með
sunnudagskaffinu“. Fyrir-
lesturinn sem verður fluttur
í dag ber heitið „Nýjustu
fréttir af mér og Njálu,“ en
Einar Karl Haraldsson mun
flytja hann.
Sigrún Ragnheiður Ragn-
arsdóttir, forstöðumaður
Sögusetursins, segir þetta
vera annað árið sem fyrir-
lestrarnir um Njálu eru
haldnir. „Menn vinna þetta
út frá bókinni, allir fyrirles-
ararnir hafa gert það,“ segir
Sigrún. „Grunnurinn að
Sögusetrinu var að setja upp
einhvers konar sýningu um
Njálu og svo stækkaði hún í
meðförum,“ segir Sigrún, en
á setrinu er meðal annars
hægt að fræðast um víkinga
og verslun á fyrri öldum og
einnig er gallerí á staðnum.
Spurð um aðsóknina í
fyrra segir Sigrún hafa
gengið vel. „Það kom fólk úr
öllum áttum og fólk var líka
að koma úr bænum,“ segir
Sigrún og bætir við að sumir
hafi jafnvel komið tvisvar
eða þrisvar.
Fyrirlesturinn hefst
klukkan hálf fjögur í dag í
Sögusetrinu og umræður
verða að lestrinum loknum.
Fyrirlestrarnir eru sex tals-
ins og aðgangseyrir er þús-
und krónur en nánari upp-
lýsingar er að finna á www.
njala.is.
Njála með sunnudags-
kaffinu á Hvolsvelli
UPPSKERA Apríkósuuppskeran er
í fullum gangi í Gyoengyoespata
í Ungverjalandi en uppskeran á
býlinu í ár er um fimmtíu þúsund
kíló af ávöxtum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SÖGUSETRIÐ Á HVOLSVELLI Sögu-
setrið var sett á laggirnar fyrir níu
árum síðan en „Njála með sunnu-
dagskaffinu“ er nú haldið í annað
sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AFMÆLI
Sveinbjörg Stef-
ánsdóttir er níræð
í dag.
Sindri Freysson er
36 ára.
Í dag er Kristján Arason, fyrrverandi
handboltakappi, 45 ára en hann var
staddur úti á landi þegar blaðamaður
Fréttablaðsins náði tali af honum. „Ég
er í sumarfríi núna, var að koma frá
Akureyri og svo vorum við á Hofi í
Álftafirði fyrir austan,“ segir Kristján
en hann var staddur í Ölfusi með fjöl-
skyldu sinni.
Spurður um frekari ferðalög segir
Kristján allt vera óráðið en hann von-
ast eftir betra veðri seinni hluta sum-
ars. „Það verður nú bara eitthvað lítið
með fjölskyldunni. Annars erum við
bara voða róleg yfir þessu, það er aðal-
lega dóttir mín sem á afmæli á laugar-
daginn og verður þriggja ára, svo verð-
ur strákurinn sjö ára viku seinna,
þannig að mitt afmæli fellur í
skuggann,“ segir Kristján en ljóst er
að nóg verður að gera í kökubakstrin-
um á heimilinu á næstunni.
„Maður hefur það nú í minningunni
að það hafi alltaf verið sól þegar maður
átti afmæli og maður var bara úti í
kúrekaleik, þá var Hafnarfjörður
meiri óbyggðir, miklu meira um hraun
en er í dag, þannig að það var virkilega
skemmtilegt á sumrin þegar maður
var lítill í Hafnarfirði,“ segir Kristján
en hann hefur lengst af búið í Hafnar-
firði.
„Ég hélt upp á fertugsafmælið, það
var bara heima á Tjarnarbrautinni og
það var rosalega vel heppnað. Við
tjölduðum yfir garðinn og það var
mikil gleði frameftir, það eru mjög
skemmtilegar minningar frá því,“
segir Kristján.
Þegar Kristján er spurður að því
hvort hann sé eitthvað í handboltanum
svarar hann því til að lítill tími hafi
gefist fyrir það seinni ár. „Þegar Þor-
gerður fór í ríkisstjórn og ráðherrann
hætti ég í handboltanum, eitthvað varð
að gefa eftir, þannig að ég er bara á
fullu hjá KB banka og það er svo sem
alveg nóg.“
„Við ætlum að fara um Borgarfjörð-
inn og hitta hestahóp, en þau eru að
enda ferð sína á föstudaginn í Borgar-
firðinum og við ætlum að keyra á móti
þeim og taka eina stutta dagleið,“ segir
Kristján að lokum. gudrun@frettabladid.is
KRISTJÁN ARASON: 45 ÁRA Í DAG
Alltaf sól á afmælinu
KRISTJÁN ÁSAMT DÓTTUR SINNI KATRÍNU ERLU Hélt upp á fertugsafmælið sitt þar sem gleðin stóð fram á nótt en í ár ætlar hann að láta sér nægja köku-
boð fyrir fjölskylduna. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Systir okkar,
Kristín Jóhanna Pálsdóttir
Hringbraut 50, áður Selvogsgrunni 11,
Reykjavík,
lést 8. júlí 2006. Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð,
Ásmundur Pálsson
Hermann Pálsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hermanía Kristín
Þórarinsdóttir
Skálagerði 11, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn
24. júlí kl. 13.00.
Andrea Danielssen Páll Ragnarsson
Sigurþór Charles Málfríður Sjöfn
Guðmundsson Hilmarsdóttir
Bjarni Ólafur Guðmundsson Martina Guðmundsson
Þórarinn Guðmundsson Guðbjörg Ívarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Örn J. Petersen
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
25. júlí kl. 13.00.
Berglind Ólafsdóttir
Sandra Bragadóttir Mikael Jörgensen
Hrafnhildur Arna Arnardóttir
Arnór Dan Arnarson
Karen Arnardóttir
Heiðdís Arnardóttir
Ágústa Marý