Fréttablaðið - 23.07.2006, Qupperneq 55
SUNNUDAGUR 23. júlí 2006 19
ATLI STEFÁN YNGVASON Verslunarstjóri Cintamani.
MÖRÐUR ÁRNASON Mörður hefur búið við
Laugaveginn hálfa ævina.
ELVA DÖGG ARNARDÓTTIR Eigandi Glamúrs.
MEKKA „SECOND HAND“-AÐDÁENDA Um
miðjan Laugaveg er að myndast þyrping
verslana með notuð föt og glingur. Versl-
unin Spútnik sneri aftur á Laugaveginn
eftir smá dvöl á „cult“-götunni Klapparstíg
og Glamúr, sem áður var á Skólavörðustíg,
flutti á Laugaveg 41 í apríl. Fyrir var „second
hand“-búðin Rokk og rósir. „Það er bara
tilviljun að þessar búðir eru á svipuðum
slóðum. Við fluttum því það var kominn
tími til að stækka við okkur. Það er mikið líf
á Laugaveginum og margt að sækja,“ segir
Elva Dögg Arnardóttir, eigandi Glamúrs.
Hún segir að mikið sé að gera í búðinni
og að viðskiptavinir séu bæði útlendingar
og Íslendingar. „Það er rosalega stór hópur
sem verslar alltaf á Laugaveginum. Fólk
kemur alveg sérstaklega í svona búðir, þú
finnur þetta ekki í verslunarmiðstöðvun-
um.“
Tíðindi í Vikivaka Söluturninn Vikivaki á
Laugavegi 5 hefur verið starfræktur í um
tuttugu ár en í mars gerðust þau stórtíðindi
að nýir eigendur tóku við og innleiddu
kreditkortatæknina í sjoppunni, en Vikivaki
var frægur fyrir að vera eina verslunin á
Laugaveginum sem ekki var með posa.
„Þetta var það fyrsta sem við gerðum.
Fólk er ennþá að koma og segja, ‚já, þið
takið ekki kort‘. En það hefur verið mikil
ánægja með þetta þó að einn og einn vilji
halda í gamla tímann,“ segir Anna Dóra
Ármannsdóttir sem rekur sjoppuna. Eig-
endurnir nýju brydduðu einnig upp á þeirri
nýbreytni að hafa opið til tíu á kvöldin og
frameftir nóttu laugardag og sunnudag, en
fyrir nokkrum mánuðum var engin sjoppa
starfrækt á þeim tíma á Laugaveginum.
„Þetta gengur mjög vel, við fáum mikið
af ferðamönnum og svo fastagesti. En við
erum háð veðri, það er gaman ef veðrið
er gott en annars er minna af fólki á ferli,“
segir Anna.
Auglýsingar japanska bílafram-
leiðandans Nissan með leikkon-
unni Kim Cattrall, úr þáttunum
Beðmál í borginni, hafa verið
teknar úr umferð í Nýja-Sjálandi
þar sem þær þykja of klúrar.
Í þáttunum fór Cattrall með
hlutverk hinnar vergjörnu
Samönthu Jones. Í auglýsingunni
virðist hún álíka útbær á blíðu
sína og í þáttunum og fór það
fyrir bjóstið á mörgum Nýsjá-
lendingum með fyrrgreindum
afleiðingum. Í auglýsingunni sést
hvar Cattrall ekur um á nýjum
Nissan og hreinlega malar af
ánægju. „Af hverju var mér ekki
sagt að hann væri svona stór? Ég
var ekki reiðubúinn fyrir þetta,“
segir Kim meðal annars á munúð-
arfullan hátt. „Nissan Tiida lætur
manni svo sannarlega líða vel
inni,“ bætir hún við og klykkir
svo út með því að segja sölumanni
að þetta hafi verið „frábær reið“.
Sjónvarpseftirlit Nýja-Sjá-
lands samþykkti auglýsinguna
áður en hún var sýnd en ákveðið
var að hætta að sýna hana eftir að
fjölmargir sjónvarpsáhorfendur
þar í landi hringdu í sjónvarps-
stöðvar og lýstu yfir vandlætingu
sinni. Bílaframleiðandinn sjálfur
hefur ákveðið að sýna auglýsing-
arnar ekki áfram og þarf sjón-
varpseftirlitið því ekki að setjast
á rökstóla á ný og endurskoða
ákvörðun sína.
Spekúlantar úr auglýsinga-
bransanum í Nýja-Sjálandi hafa
lýst yfir furðu á að auglýsingin
hafi farið fyrir brjóstið á svo
mörgum þar sem margar auglýs-
ingar sem hafa verið bannaðar
annars staðar eru sýndar þar í
landi.
Cattrall of klúr fyrir Nissan
KIM CATTRALL Kom á
óvart hvað nýja Nissan-
bifreiðin var stór.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES