Fréttablaðið - 23.07.2006, Side 14
23. júlí 2006 SUNNUDAGUR14
PS nefnist ný bók sem
Páll Stefánsson ljós-
myndari sendir frá sér
innan skamms. Sex ár
eru liðin frá því að Páll
sendi síðast frá sér bók
en þær eru orðnar æði
margar.
Ég held að þetta sé ellefta heildarverkið mitt en svo hef ég átt hluta í ýmsum
öðrum bókum,“ segir Páll. „Ég gaf
út bækur svolítið þétt á. Mig lang-
aði til að koma með eitthvað nýtt
enda voru margir ljósmyndarar
farnir að herma eftir því sem ég
hafði verið að gera.“
Páll gaf út bókina Panorama
árið 1997, Land árið 1999 þar sem
hann myndaði sex uppáhalds svæð-
in sín og svo 1881 km árið 2000 þar
sem hann keyrði hringinn í kring-
um landið og tók myndir á tuttugu
kílómetra fresti.
Páll segir að nýja bókin sé mun
persónulegri en þær fyrri. Veðrið
er verra, meira abstrakt og í stað
þess að taka myndir af stórum
svæðum sýni hann lítinn hluta - af
ám, hverum eða landsvæðum svo
dæmi séu tekin.
Páll segist fyrst og fremst vera
tímaritaljósmyndari og tekur
meðal annars myndir fyrir Iceland
Review og Atlantica. „Svo hef ég
haldið sýningar og viðað að mér
efni. Auðvitað liggur svona bók
alltaf í undirmeðvitundinni og ég
er kannski að reyna að finna nýjan
tón í landlagsljósmyndum. Flestar
myndirnar í nýju bókinni eru fer-
kantaðar. Teknar á Hasselblad
filmuvél sem hefur ótrúlegan kost
miðað við stafræna tækni. Film-
urnar ná meiri gæðum, fleiri smá-
atriðum og það er hægt að stækka
myndirnar endalaust upp,“ segir
Páll. „Það er kannski flóknara og
þyngra að vera með svona stóra
filmu á ferðalagi en kostirnir eru
svo miklu meiri. Filman nær líka
að festa þessa síbreytilegu birtu
okkar - hún spannar stærra svið en
stafræna tæknin.“
Páll ferðaðist út um allt land við
efnissöfnun. Hann sankaði að sér
efni í ein sex ár, en þó aðallega síð-
asta eina og hálfa árið. Það var því
úr nægu að velja. „Þessi bók er
svolítið eins og ljóðabók. Það eru
ekki alltaf bestu ljóðin sem detta
inn heldur þau ljóð sem ríma við
ljóðið á undan. Ég fékk síðan góða
hjálp frá Kristjáni B. Jónassyni,
ritstjóra bókarinnar, og Helgu Guð-
nýju Ásgeirsdóttur, sem hannaði
bókina, við að velja myndirnar.
Textinn í bókinni er af skornum
skammti. „Aftast í bókinni má lesa
ítarlega myndatexta þar sem sagan
á bak við hverja mynd er rakin. Ég
held að fólk geti haft dálítið gaman
af því,“ segir Páll ljósmyndari.
kristjan@frettabladid.is
Búlgaría
um Verslunarmannahelgi 3. ágúst
Frá kr. 59.990
**** sértilboð
Fjögurra stjörnu hótelgisting - frábært verð
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá
Íslendingum. Terra Nova býður nú frábært tilboð til þessa
vinsæla sumarleyfi sstaðar sem býður þín með frábæra strönd,
einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta
veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir, en fyrir
liggur að gistingin verður á fjögurra stjörnu hóteli og a.m.k.
morgunverður er innifalinn.
Frá kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi á 4* hóteli í viku. Flug, skattar,
gisting með a.m.k. morgunverði og fararstjórn.
VIÐ RAUÐFOSS „Þessi mynd er tekin við Rauðfoss að fjallabaki. Í staðinn fyrir að taka mynd
af fossinum sjálfum sný ég baki í hann. Birtan var svo mögnuð í þessa átt og þetta lítríka
líbarítgrjót sem liggur í árfarveginum er fallegt,“ segir Páll.
VIÐ KALDALÓN „Þetta er tekið í Kaldalóni í Ísafjarðardjúpi. Þessi mynd er svolítið tákngervingur bókarinnar, er lítill lækur sem ég búta niður
og lýsir þeim litum sem eru allsráðandi í íslensku sumri. Hún gæti í raun verið tekin hvar sem er - svona tilfinning og form.“
Ferköntuð eftirskrift Páls
BRÚARÁRFOSS „Þessi mynd er bæði í bókinni og kápa bókarinnar. Þetta er Brúarárfoss í
Biskupstungum og myndin er tekin á þessum sérkennilegu skilum þar sem vetrarbirta og
vorbirta mætast. Hún er blá, svona húm í henni. Ég gerði mér ferð þangað austur til að
fanga þetta. Eftir svona langan tíma sem ljósmyndari er ég farinn að þekkja birtuna og
hvað er hægt að kreista út úr henni.“
POLLUR „Ég hef áður séð þessar tjarnir
uppi á miðjum Vatnajökli og ég einsetti
mér það að leita einn pollinn uppi. Þessi
mynd er tekin úr flugvél í hálfs kílómetra
hæð. Það er erfitt að átta sig á skalanum
í þessu en maður sér túrkisbláa litinn og
öskuna úr þeim nýlegu gosum sem hafa
verið í Vatnajökli.“
HRAFNTINNUSKER „Þetta er einn af þessum
ótrúlegu stöðum í lýðveldinu þar sem eldur
og ís mætast. Þetta er óskaplega ómerki-
legur heitur pollur með grjóti. Það er í raun
ekkert merkilegt við þessa mynd, ég beini
myndavélinni bara niður og smelli af.“
FJALLSÁRLÓN „Þetta er Fjallsárlón í sunnan-
verðum Vatnajökli. Myndin var tekin í byrj-
un júní, klukkan tvö að morgni í þessum
endalausi degi sem íslenskt sumar er.“
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI