Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 65
SUNNUDAGUR 23. júlí 2006 29
Dagur Tími Lið Völlur
19:15 ÍA – Kefl avík Akranesvöllur
19:15 KA – Þróttur Akureyrarvöllur
19:15 Valur – Víkingur Laugardalsvöllur
19:15 KR – ÍBV KR-völlur
8 LIÐA ÚRSLIT
Sunnudagur
23. júlí 2006
Mánudagur
24. júlí 2006
GOLF Tiger Woods er með eins
höggs forystu fyrir síðasta hring-
inn á opna Breska meistaramótinu
í golfi sem leikinn verður á Hoyla-
ke-vellinum í dag. Woods lék
öruggt golf á þriðja hringnum í
gær og lauk keppni á einu höggi
undir pari, líkt og Ernie Els, en
þeir léku saman í gær. Báðir höfðu
þeir bætt vallarmetið á Hoylake-
vellinum á öðrum degi, þegar þeir
notuðu aðeins 65 högg til að klára
holurnar átján.
Woods er einu höggi á undan
Els, sem einnig lék á 71 höggi í
gær, og þeim Sergio Garcia og
Chris DiMarco. „Ég var að slá
nokkuð vel en það var alls ekki
gott að þrípútta á einni holunni.
Það er mjög jákvætt að vera í
efsta sæti fyrir lokahringinn og ég
vona að ég nái að nýta mér það,“
sagði Woods eftir hringinn í gær.
Suður-Afríkumaðurinn Els var
nokkuð sáttur við niðurstöðu sína í
gær. „Ég byrjaði illa en hugsan-
lega hefur það haft áhrif á spila-
mennsku Tiger Woods, sem náði
ekki að fá marga fugla, en þetta
var erfiður dagur á skrifstofunni.
Við náðum reyndar að sýna betri
takta undir lokin,“ sagði Els.
Ástralinn John Senden gerði
sér lítið fyrir og fór holu í höggi á
þrettándu holu vallarins í gær.
„Þetta var mjög sérstakt fyrir mig
og ég mun aldrei gleyma Hoylake-
vellinum,“ sagði Senden. - hþh
Spennan er mikil fyrir lokahringinn á opna Breska meistaramótinu í dag:
Tiger Woods heldur forystunni
EFSTU MENN Woods og Els kveðjast að leik
loknum í gær. NORDICPHOTOS/AFP
GOLF Enski kylfingurinn Nick
Faldo hefur samið við Golfklúbb
Reykjavíkur um að halda golfmót
hér á landi eftir þrjár vikur. Mótið
verður fyrir unglinga og verður
eitt af mörgum mótum í mótaröð
Faldo sem nefnist Faldo Series.
Þetta er mikill heiður fyrir
Ísland, en þetta verður fyrsta
mótið í mótaröðinni sem haldið er
utan Englands. Leikið verður á
Korpúlfsstaðavelli dagana 7. til 9.
ágúst.
Faldo stendur í ströngu þessa
dagana á opna Breska meistara-
mótinu en hann náði sér ekki á
strik þar og komst ekki í gegnum
niðurskurð mótsins.
- hþh
Nick Faldo:
Stendur fyrir
móti á Íslandi
FÓTBOLTI Átta lið eru eftir í VISA-
bikar karla og í kvöld ræðst það
hvaða þrjú lið af fjórum leika til
undanúrslita á Laugardalsvellin-
um. Þrír leikir fara fram í kvöld en
KR og ÍBV mætast í síðustu viður-
eigninni í Frostkaskjóli annað
kvöld. Allir fjórir leikirnir hefjast
klukkan 19.15.
Keflvíkingar sækja Skaga-
menn heim en Suðurnesjaliðið
komst áfram með sigri á Leikni og
ÍA vann Framara í framlengdum
leik í Laugardalnum. Liðin hafa
fjórtán sinnum mæst í bikar-
keppninni og hafa Skagamenn
haft gott tak á Keflavík og unnið í
níu skipti auk þess sem liðið vann
þá bláklæddu á heimavelli þeirra
fyrr í sumar.
Í Laugardalnum taka Valsmenn
á móti Víkingum en búast má við
hörkuleik þar, sem og í 1. deildar-
slagnum á Akureyri þar sem KA
tekur á móti Þrótti. - hþh
Átta liða úrslit VISA-bikarsins:
Hefjast í kvöld
TEKINN FÖSTUM TÖKUM Úr leik Vals og
Víkings fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Hollendingurinn Dennis
Bergkamp spilaði í gær sinn síð-
asta leik fyrir Arsenal á hinum
nýja og glæsilega Emirates-leik-
vangi. Bergkamp spilaði allan
leikinn með Arsenal gegn Ajax,
sem skartaði stjörnum á borð við
Marco van Basten og Frank
Rijkaard. Bergkamp náði ekki að
skora í leiknum en var hylltur af
sínum gömlu vinum í leikslok.
„Á tíma mínum með Arsenal
var ég svo heppinn að spila með
frábærum leikmönnum á borð við
Tony Adams, Thierry Henry og
Ian Wright. En Dennis Bergkamp
toppar þá alla. Ásamt Gianfranco
Zola er hann besti erlendi leik-
maðurinn í sögu ensku úrvals-
deildarinnar,“ sagði Lee Dixon um
sinn gamla vin. - hþh
Dennis Bergkamp:
Kvaddi í gær
KVADDUR MEÐ VIRKTUM Dennis Bergkamp
þakkar ásamt ellefu ára gömlum syni
sínum þeim 56 þúsund áhorfendum sem
sungu nafnið hans hástöfum á Emirates-
leikvanginum í gær. NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Íslenska körfuknatt-
leikslandsliðið skipað leikmönn-
um 18 ára og yngri náði ekki að
fylgja frábærum sigri á Evrópu-
meisturum Frakka eftir á Evrópu-
mótinu í Portúgal í gær. Liðið beið
lægri hlut fyrir Lettum, 98-78, og
eins og tölurnar gefa til kynna var
sigur andstæðinganna nánast
aldrei í hættu.
Brynjar Björnsson var stiga-
hæstur í íslenska liðinu með 21 stig
en þrír leikmenn skoruðu fjórtán;
þeir Þröstur Jóhannsson, Hörður
Axel Vilhjálmsson og Hjörtur Ein-
arsson. Næsti leikur liðsins er á
morgun gegn Slóvenum. - hþh
U18 ára landslið Íslands:
Tapaði stórt
fyrir Lettum