Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 6
6 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR
Bavaria, hollenskur gæðabjór:
Kom best út
í blindprófun
Bavaria bjórinn kom best út í könnun sem hollenska
dagblaðið De Telegraaf gerði á dögunum.
10 vinsælar tegundir af bjór voru prófaðar með
blindprófi og fékk Bavaria bjórinn hæstu einkunn.
LÉTTÖL
SLYS Stúlka um tvítugt var flutt
slösuð á Landspítalann í Fossvogi
á öðrum tímanum í fyrrinótt eftir
að bíl var ekið upp á hringtorg á
gatnamótum Hringbrautar og
Suðurgötu með þeim afleiðingum
að hann hafnaði á tré. Að sögn lög-
reglu ók ökumaðurinn, sem var
um tvítugt líklega heldur geyst og
missti stjórn á bílnum. Ekkert far-
þegasæti var frammi í bílnum og
kastaðist stúlkan, sem sat í aftur-
sætinu, á mælaborðið.
Hún hlaut talsverða höfuð-,
andlits- og brjóstáverka, en að
sögn læknis á Landspítalanum var
hún aldrei í lífshættu. - sh
Ung stúlka í umferðarslysi:
Slasaðist þegar
bíll lenti á tré
SAMRÁÐ Enginn starfsmaður rík-
issaksóknara vinnur að rannsókn
á samráði olíufélaganna, eins og
mál standa nú, en Ríkislögreglu-
stjóri sendi málið frá sér til emb-
ættisins 17. nóvember á síðasta
ári.
Eini starfsmaðurinn sem unnið
hefur að málinu, Helgi Magnús
Gunnarsson lögfræðingur, er í
sumarfríi til 21. ágúst og á meðan
verður ekki unnið að framgangi
málsins, samkvæmt upplýsingum
frá embætti ríkissaksóknara.
Helgi Magnús segir ríkissak-
sóknara hafa óskað eftir því að fá
leyfi til þess að leggja meiri kraft
í rannsókn málsins, með því að
vinna meiri yfirvinnu, en þeirri
beiðni var hafnað. „Það var óskað
eftir rýmri heimild til að vinna
lengri vinnudaga til þess að geta
flýtt rannsókn málsins en því var
hafnað af kjaranefnd. Það eru
allir starfsmenn embættisins
hlaðnir verkum þannig að það
gefst einfaldlega ekki tækifæri á
því að sinna rannsókninni af meiri
krafti. Ég býst við því að niður-
staða, af hálfu okkar, verði ljós á
haustmánuðum.“
Helgi Magnús vildi ekki láta
uppi hversu margir einstaklingar
væru til rannsóknar vegna máls-
ins, en í Fréttablaðinu 1. febrúar
á þessu ári var haft eftir Helga
Magnúsi að 34 einstaklingar
hefðu réttarstöðu sakbornings í
málinu. Það kann að hafa breyst
eftir því sem á rannsókn málsins
hefur liðið.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
samkeppniseftirlitsins, telur
brýnt að samráðsmál af þeirri
stærðargráðu sem nú er til rann-
sóknar hjá ríkis-
saksóknara fái
eins skjóta með-
ferð og kostur
er. „Það er
almennt viður-
kennt að sam-
ráðsmál af
þessu tagi geta
verið alvarleg
fyrir samfélag-
ið og varða
almannahagsmuni. Það er því
mjög brýnt að unnið sé að fram-
gangi rannsókna á slíkum
málum, af eins miklum hraða og
kostur er.“
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra vildi ekki svara því
hvort hann teldi að unnið væri að
rannsókn á samráði olíufélaganna
að nægilegum krafti, og beindi
spurningum til „ríkissaksóknara
til að svara þessu erindi“.
Rannsókn samkeppnisyfir-
valda á samráði olíufélaganna
hófst með húsleit í aðalskrifstof-
um félaganna 18. desember 2001.
Hinn 28. október 2004, eftir að
rannsókn á vegum eftirlitsins
lauk, sektaði samkeppnisráð olíu-
félögin um 2,6 milljarða fyrir brot
gegn samkeppnislögum. Áfrýjun-
arnefnd samkeppnismála gaf út
úrskurð sinn 29. janúar 2005 og
lækkar sektir félaganna um rúman
milljarð, í 1,5 milljarða.
magnush@frettabladid.is
Enginn að vinna að
rannsókn á samráði
Eini starfsmaður ríkissaksóknara sem vinnur að rannsókn á samráði olíufélag-
anna er í sumarfríi og liggur vinna við rannsóknina því niðri til 21. ágúst. Kröfu
um heimildir til fleiri vinnustunda við málið var hafnað af kjaranefnd.
SAMSTARF OLÍUFÉLAGANNA Einn starfsmaður ríkissaksóknara hefur unnið að rannsókninni
á samráði olíufélaganna, frá því embættið fékk málið frá Ríkislögreglustjóra 17. nóvember
á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
KJÖRKASSINN
Ert þú fylgjandi eyðingu máva?
Já 47%
Nei 53%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ert þú fylgjandi birtingu
álagningaskráa?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
FRÉTTABLAÐIÐ Miklar breytingar
verða gerðar á dreifikerfi Frétta-
blaðsins á næstunni. Á höfuðborgar-
svæðinu verður blaðið nú borið út á
nóttunni en ekki milli sex og sjö að
morgni eins og nú. Talsverð upp-
stokkun verður í blaðberahópnum á
þeim svæðum sem þessar breyting-
ar ná til þar sem bannað er að ráða
unglinga til starfa um nætur.
Á næstu dögum verður auglýst
eftir fullorðnu fólki í fullt starf við
að bera út frá klukkan eitt að nóttu
til sjö. Stjórnendur Pósthússins,
sem annast dreifingu Fréttablaðs-
ins, telja breytingarnar óhjákvæmi-
legar vegna aukinna krafna um
áreiðanleika. - sþs
Dreifing Fréttablaðsins:
Blaðið borið út
að nóttu til
LEIKSKÓLAR Nemendur við Háskóla
Íslands sem eiga börn eru í mikl-
um vandræðum með að koma þeim
fyrir á leikskólum Félagsstofnun-
ar stúdenta. Stofnunin rekur þrjá
leikskóla og tekur við rekstri eins,
Leikgarðs, hinn 1. september næst-
komandi. Þá verður rekstri leik-
skólans við Efrihlíð hætt svo leik-
skólar stofnunarinnar verða enn
þrír.
Að sögn Guðrúnar Björnsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Félags-
stofnunar stúdenta, eru biðlistar á
leikskóla stofnunarinnar algengir.
„Varðandi Leikgarð er bara
ekki enn ljóst hversu mörg pláss
losna þegar við tökum við leikskól-
anum í haust. Því þurfa margir
enn að bíða eftir svari.“
Sigurður Örn Hilmarsson,
formaður Stúdentaráðs Háskóla
Íslands, segir ekki nýtt að stúdent-
ar eigi erfitt með að koma börnum
sínum inn á leikskóla en Félags-
stofnun stúdenta hafi gert sitt
besta til að mæta þeirri þörf. Hann
segist ánægður með að stofnunin
hafi tekið við rekstri Leikgarðs,
þar sé verið að mæta þörfum for-
eldra með yngstu börnin. Tölu-
verðrar óánægju varð vart meðal
starfsfólks Leikgarðs þegar ljóst
varð að Félagsstofnun stúdenta
tæki við rekstrinum en Guðrún
segir búið að leysa vandann. - sþs
Háskólastúdentar sem eiga börn eru í vanda:
Biðlistar eru á öllum leikskólum
LEIKGARÐUR Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir ekki enn ljóst hversu mörg
pláss losni þegar stofnunin tekur við rekstri Leikgarðs í haust.
MÓTMÆLI Samtök herstöðvaand-
stæðinga efndu til mótmælastöðu
fyrir framan bandaríska sendiráð-
ið við Laufásveg í Reykjavík
vegna stríðsins í Líbanon í gær.
Á fundinum létu um 200 íslensk-
ir friðarsinnar í ljósi andstöðu sína
við stuðning Bandaríkjanna við
árásarstefnu Ísraelsríkis á hendur
nágrönnum sínum. Kröfðust þeir
þess að íslensk stjórnvöld skipuðu
sér í raðir þeirra ríkja sem krefjast
friðar í Líbanon og að alþjóðalög
yrðu virt. Mótmælastaðan fór frið-
samlega fram í alla staði þótt mönn-
um hefði verið heitt í hamsi. - shá
Herstöðvaandstæðingar:
Kröfðust friðar
í Líbanon
MÓTMÆLASTAÐA Mönnum var heitt í
hamsi í mótmælastöðu herstöðvaandstæð-
inga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FETAOSTUR Osta- og smjörsalan
hefur sakað Mjólku um að herma
eftir umbúðum fetaosts fyrirtæk-
isins og krefst þess að Mjólka
hætti sölu síns fetaosts án tafar.
Í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að nýverið hafi
Mjólka byrjað að nota sexhyrndar
krukkur með hvítu loki undir sinn
fetaost, sem heitir Feti, en feta-
ostur Osta- og smjörsölunnar hafi
verið seldur í þannig krukkum í
mörg ár. Einnig séu umbúðir feta-
osts Mjólku sláandi líkar umbúð-
unum sem notaðar eru undir
fetaost Osta- og smjörsölunnar.
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta-
og smjörsölunnar, segir að til-
gangur Mjólku sé að rugla neyt-
endur í ríminu.
Ólafur Magnússon, forstjóri
Mjólku, þvertekur fyrir að um
eftirlíkingu sé að ræða. „Við erum
stoltir af okkar vörumerki og
merkjum krukkurnar vel með
merki Mjólku. Það að fetaostur sé
seldur í sexhyrndum krukkum er
ekkert nýmæli enda er það komið
frá Grikkjum, sem eiga nafnið
feta. Okkar vörumerki, Feti, er
lögverndað, sem er annað en Osta-
og smjörsalan getur sagt.“
Hann segir þessa kröfu enn
eina tilraun Osta- og smjörsöl-
unnar til að drepa samkeppni
með öllum tiltækum ráðum. - sþs
Osta- og smjörsalan krefst þess að Mjólka hætti sölu á fetaosti sínum:
Sakaðir um blekkingarleik
FETAOSTAR FYRIRTÆKJANNA Fetaostur
Osta- og smjörsölunnar er í miðjunni en
fetaostur Mjólku er á endunum. Osta-
og smjörsalan segir Mjólku herma eftir
umbúðum sínum.
TÓNLEIKAR Rafmagnskaplar hafa
verið grafnir niður í göngustíga á
Klambratúni til að sjá tónleikum
Sigur Rósar á morgun fyrir
rafmagni. Að sögn Svanhildar
Konráðsdóttur, forstöðumanns
Höfuðborgarstofu, munu raf-
magnskaplarnir verða í túninu um
ókomna tíð. Þannig sé þeim mögu-
leika haldið opnum að fleiri hljóm-
sveitir geti haldið tónleika á svæð-
inu á komandi árum.
Búist er við mörgum gestum á
tónleikana, sem eru hluti af ferða-
lagi Sigur Rósar um Ísland, og
segist Svanhildur hafa heyrt af
því fregnir að fólk hafi jafnvel
frestað utanlandsferðum til að
missa ekki af tónleikunum. - sh
Rafmagnskaplar í Klambratúni:
Túnið rafvætt
fyrir Sigur Rós
KLAMBRATÚN Unnið var hörðum höndum
að undirbúningi tónleikanna í gær.
SAMGÖNGUMÁL Tengivagnar ættu
að vera bannaðir við olíu- og vöru-
flutninga, að mati Guðmundar Hall-
varðssonar, formanns samgöngu-
nefndar Alþingis. „Þetta verðum
við að gera þar til vegakerfið er
komið í staðlað form, og vegirnir
verða sjö og hálfs metra breiðir,“
segir Guðmundur. „Ef sjóflutning-
ar lognast af verður að stoppa þessi
ósköp þar til vegakerfið er komið í
lag. Sveitarfélög og ríki þurfa að
taka á þessum hafnarmálum, því
svona tengivagnar geta verið stór-
hættulegir, það þekkja allir sem
hafa ekið um þjóðvegina,” segir
Guðmundur. - sgj
Formaður samgöngunefndar:
Tengivagnar
verði bannaðir