Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 24
 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR24 Það er ekki boðið upp á soja-kaffi á kaffihúsinu við Aust-urstræti svo Emilíana pantar sér te, sem er í svo framandi umbúðum að hún kallar á þjón sér til aðstoðar. Að lokum kemur hún tepokanum ofan í rjúkandi bollann og getur veitt blaðamanni alla sína athygli. „Ég spilaði í eitt og hálft ár, fór svo beint að semja en tók mér svo frí,“ segir Emilíana um farir sínar frá því platan Fisher- man’s Woman kom út fyrir rösk- um tveimur árum við góðan orð- stír. „Ég reyni bara að vera sem mest úti við þegar ég er í fríi, sitja upp á einhverjum hól. Eða hanga á eBay,“ segir hún og hlær. Borgarfjörður eystri í uppáhaldi Á fimmtudag héldu hún og Skot- arnir í Belle and Sebastian vel heppnaða tónleika á NASA við Austurvöll og í kvöld endurtaka þau leikinn á Borgarfirði eystri, en Emilíana söng þar reyndar í fyrra líka þegar hún fór í stutta tónleikaferð um landið. „Þetta er uppáhalds staðurinn minn á landinu. Ég var þarna allltaf hjá ömmu á sumrin sem barn og vantaði bara afsökun til að fara þangað,“ segir hún hlær. „Ég var líka orðin þreytt á að spila bara í Reykjavík þegar ég kem hingað og ákvað að gera það að reglu að fara líka mikið út á land. Mér finnst skrýtið hvað íslenskir tónlistarmenn túra lítið um landið sitt. Svo fara þeir út að meika það en hafa ekki einu sinni spilað fyrir fólkið heima sem er búið að vera þarna frá byrjun.“ Auk þess segir Emilíana að margt spennandi gerist á tónleik- unum úti á landi sem myndi ekki gerast annars staðar. „Þegar ég spilaði á Ísafirði vantaði alla lýs- ingu á sviðið þannig að tónleika- gestir komu með lampa að heiman og þeim var raðað á sviðið. Á Borg- arfirði eystri spiluðum við í gömlu bræðslunni, þar sem var búið að koma tveimur trillum fyrir inni. Í annarri kom hljóðmaðurinn sér fyrir og ljósamaðurinn í hinni og við fylltum bræðsluna af lækn- ingarjurtum úr garðinum hennar ömmu og kertum. Svo skein mið- nætursólin inn um rifur og nagla- göt á húsinu og birtan inni var undursamleg.“ Pólitískur náttúrusjúklingur Þar sem Emilíana metur Borgar- fjörð eystri og svæðið í kring mikils og lýsir sér þar að auki sem „náttúrusjúklingi“ líst henni illa á að mikið landflæmi fari undir vatn þegar hleypt verður á Hálsalón í tengslum við Kára- hnjúkavirkjun í haust. „Þessi virkjun er algjört rugl. Mér finnst þetta algjör óþarfi því það er ekki verið að gera þetta til að búa til rafmagn handa fólki held- ur stóriðju. Það er alveg hægt að fara aðrar leiðir,“ segir hún og bætir við að það sé öllum hollt að vera dálítið pólitískir. „Sérstaklega þegar það snertir eitthvað mikilvægt á borð við nátt- úruna. Sjálf er ég meðvituð um umhverfisvernd og tek þátt í henni eins og ég get; labba frekar eða hjóla í stað þess að keyra, ég endur- vinn, nota allan lífrænan úrgang í Emilíönu Torrini vantaði afsökun til að fara á Borgarfjörð eystri og ákvað því að halda þar tónleika í annað sinn á jafnmörgum árum. Í þetta sinn dró hún kunningja sína frá Skotlandi með. Bergsteinn Sigurðsson forvitnaðist um hvað hefði drifið á daga söngkonunnar síðan síðast. Ég er engin gangandi dúlla EMILÍANA TORRINI „Höfuðborgarsvæðið hefur breyst svo mikið á hálfum áratug að ég fyllist stundum óöryggiskennd. Það er búið að reisa heilu bæina liggur við og ég rata ekki neitt lengur. Hvaðan kemur allt þetta fólk?“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TÓNLISTIN Í EYRUNUM: Heil ósköp, allt frá Yoko Ono og Grace Jones til TV on the Radio. Fer algjörlega eftir skapinu sem ég er í. MYNDIN Í TÆKINU: Ég horfi lítið sem ekkert á sjónvarp og fer sjald- an í bíó. Síðasta mynd sem ég sá var Capote með Philip Seymour Hoffman og mér fannst hún virkilega góð. BÓKIN Á NÁTTBORÐINU: Sagnfræðingurinn eftir Elizabeth Kostova. Hún er ekkert sérstök en ég er þannig úr garði gerð að ég drösla mér alltaf í gegnum allt þótt það sé leiðinlegt; klára til dæmis alltaf að horfa á bíómyndir sen ég byrja að horfa á sama hversu leiðinlegar þær eru. ÁHRIFAVALDAR: Í tónlistinni eru það tvímælalaust Nick Cave og Tom Waits. Ég veðraðist alveg upp þegar ég frétti að Waits væri að fara að leika í mynd eftir Dag Kára. Dagur sagði mér að hann vantaði ein- hvern til að leika róna í myndinni og ég bauð mig fram. Emilíana í hnotskurn Ég er óttalegur sveimhugi og á stundum erfitt með að halda fókus, þannig að það verður alltaf einhver að vera með svipuna bak- við mig til að halda mér við efnið, annars væri ég komin út í sveit að rækta kartöflur. garðinn, vel matvörur, til dæmis kjöt, vandlega og svo framvegis.“ Ratar ekki í Reykjavík lengur Emilíana býr í bænum Brighton, í grennd við London, og þrátt fyrir að vera á miklu flakki tónlistarinn- ar vegna segist hún hafa skotið þar rótum. „Þetta er smábær sem segja má að sameini það besta frá London og Reykjavík.“ Gatwick-flugvöllur er aðeins steinsnar frá sem gerir það að verkum að hún kemst oftar heim til Íslands til að slá á sárustu heim- þrána. „Ég gríp þau tækifæri sem ég get. Það hefur verið skrýtið að fylgjast með þróuninni heima utan frá. Höfuðborgarsvæðið hefur breyst svo mikið á hálfum áratug að ég fylllist stundum óöryggis- kennd. Það er búið að reisa heilu bæina liggur við og ég rata ekki neitt lengur. Hvaðan kemur allt þetta fólk? En það eru líka ánægjulegar breytingar. Það er mikill kraftur í listalífinu til dæmis og fullt af fólki að gera nýja og skemmtilega hluti. Ég reyni að fylgjast með hvað er á seyði í tónlistinni, fer reglulega í 12 Tóna og tæmi búð- ina. Það er gott að eiga góða vini þar,“ segir hún og hlær. Emilíana hefur þó lítið fylgst með umtalaðasta tónlistarmanni Íslands um þessar mundir og besta syni Borgarfjarðar eystri, Magna Ásgeirssyni, og frammistöðu hans í Rockstar: Supernova. „Ég horfi svo lítið á sjónvarp, allra síst raun- veruleikaþætti. Ég fæ bara kjána- hroll. Það er búið að taka alla dul- úðina úr rokkinu, eiginlega snúa því upp í andhverfu sína, og þá missi ég áhugann.“ Kröfurharðari við sjálfa sig Emilíana flutti út rétt fyrir alda- mót til að einbeita sér að tónlist- inni og hefur á þeim tíma tekið út mikinn þroska sem tónlistarmað- ur, eins og Fisherman’s Woman ber með sér. „Helsti munurinn eftir að ég flutti út er auðvitað sá að ég fór að semja tónlist og eftir því sem ég hef náð meira valdi á því verð ég þeim mun harðari við mig og vandlátari á það sem ég skila af mér. Þetta er ekki níu til fimm vinna sem er ágætt þótt ég óski þess stundum að það væri meiri regla á vinnunni. Ég er ótta- legur sveimhugi og á stundum erfitt með að halda fókus, þannig að það verður alltaf einhver að vera með svipuna bakvið mig til að halda mér við efnið, annars væri ég komin út í sveit að rækta kartöflur. Þess vegna finnst mér betra að vinna með öðrum frekar en ein.“ Núna stendur hún frammi fyrir þeirri pressu í fyrsta sinn að útgáfufyrirtæki hennar vill fá nýja plötu ekki seinna en á næsta ári. „Ætli ég eigi nokkuð eftir að standa við það,“ segir hún og hlær. „En það er best að láta þessa menn fá á til- finninguna að þeir ráði einhverju.“ Saknar sundlauganna Hvort hún stefni í nýjar áttir á næstu plötu segir Emilíana það óráðið. „Ég læt það bara gerast sem verða vill.“ Hún stekkur hins vegar upp á nef sér spurð um hvort hún líti á sig sem merkisbera krúttkynslóðarinn- ar. „Hvaða krúttkynslóð er þetta eiginlega? Þetta hugtak fór algjörlega framhjá mér. Sem betur fer því mér finnst þetta ömurlegt orð. Ég er engin gang- andi dúlla!“ Emilíana verður á landinu fram á miðvikudag. Hún ætlar að taka með sér vini að utan aust- ur á land og fara með þeim í úti- legu á leiðinni aftur í bæinn. „Við ætlum að stoppa í einhverj- um fallegum lundi, tjalda og grilla. Ég reyni alltaf að komast út í náttúruna þegar ég kem heim. Til þess kem ég. Svo fer ég líka alltaf í sund. Mér finnst best að fara í sund að vetri til þegar það eru fáir á ferli og láta mig fljóta og finna snjóflyksurnar lenda á augnlokunum á mér. Auð- vitað fæ ég stöku sinnum heim- þrá en ég kem nógu oft heim til að verða ekki eirðarlaus.“ Hún sér ekki fram á að snúa heim fyrir fullt og allt í bráð, jafnvel nokkurn tímann. „Draum- urinn er að verða bóndakona uppi í sveit einhvern tímann. Eða kór- stjóri einhvers staðar í Austur- Evrópu. Ég sé bara til. Það gerist ábyggilega eitthvað.“ ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.