Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 29. júlí 2006 3
Ragnar Róbertsson tekur þátt
í torfærumótum um land allt.
Hann segir töluverðan kostn-
að geta farið í að halda úti
torfærujeppa.
Ragnar segir áhugann fyrir tor-
færunni hafa vaknað þegar hann
fór að fylgjast með keppnum og
ekki hafi liðið á löngu þar til hann
settist sjálfur undir stýri. „Ég tók
fyrst þátt í einni torfærukeppni
árið 1997, nokkrum keppnum árin
1998-99 og hef keppt reglulega
eftir það.“
Það er misjafnt hvað Ragnar
tekur þátt í mörgum keppnum á
ári, enda mismörg mót í boði. Í
fyrra keppti hann þrisvar sinn-
um, en stefnir á níu mót í sumar.
Næst tekur hann þátt í móti á
vegum AIFS sem haldið verður á
Blönuósi 12. ágúst.
Aðspurður segir Ragnar ógern-
ing að æfa beinlínis fyrir mót, þar
sem engin æfingasvæði séu fyrir
hendi. „Við höfum raunverulega
engin svæði til að æfa okkur á.
Keppnishaldarar leigja yfirleitt
malarnámur undir mót af verk-
tökum,“ útskýrir hann. „Þetta fer
yfirleitt fram í gryfjum á meðan
vinna er ekki í gangi. Hella er
undantekning þar sem Flugbjörg-
unarsveitin heldur keppnina og
útvegar svæðið.“
Ragnar bætir við að eitt besta
ráð til að undirbúa sig fyrir mót
sé að fylgjast vel með keppnum.
„Maður getur lært ótal margt af
því og eins af akstrinum sjálfum.
Segja má að æfingin skapi meist-
arann.“
Sjálfur keyrir Ragnar heima-
smíðaðan bíl sem hann líkir við
Willis. Hann segir mikinn tíma
fara í viðhald á bílnum og bætir
við að viðhaldskostnaður á tor-
færubílum geti verið töluverður.
„Ég hef heyrt að átta milljónir hafi
farið í viðhald á einum bíl yfir árið.
Þetta er náttúrulega há upphæð,
en þegar haft er í huga að aðeins
eitt dekk kostar 90.000 kr. sést
hversu fljótt þetta týnist saman.“
Ragnar segir þátttökugjald og
ferðalög hins vegar ekki vera svo
kostnaðarsöm. Þátttökugjald
fyrir næstu keppni sé til að mynda
7.500 kr. „Þó er gott að hafa
styrktaraðila á bak við sig, enda
ekki allir í aðstöðu til að bera
kostnað af þessu sjálfir,“ bætir
hann við í lokin.
roald@frettabladid.is
Torfæran er kostnaðarsöm
Ragnar heldur úti heimasíðunni www.4x4.is þar sem finna má ýmsan fróðleik um torfæru-
akstur. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Taka tvö
Það hefur örugglega komið fyrir
okkur öll að við höfum gert mis-
tök sem við sjáum eftir. Hvort
það var að svara vitlaust á prófi,
gera grín að yfirmanninum
meðan hann stóð rétt hjá eða
nota pipar í staðinn fyrir hveiti
þegar við bökum piparkökur...
það skiptir ekki öllu, við þekkj-
um tilfinninguna.
Þess vegna er svo frábært að
yfirleitt getum við reynt aftur og
gert betur næst. Við fáum annað
tækifæri. Svolítið eins og taka
tvö í bíómynd. Þannig er það oft-
ast á okkar eigin valdi hvað verð-
ur úr lífi okkar. Ef illa tekst til í
fyrstu er bara að reyna aftur og
hafa gaman af öllu saman.
Í umferðinni verðum við að
gleyma þessum annars ágætu
lífsreglum og leggja alla áherslu
á að spila rétt úr því sem við
höfum á hendi, strax frá upphafi.
Þar er nefnilega ekki víst að
tækifærin verði fleiri. Þar spil-
um við upp á líf og dauða.
Á þessum árstíma fer alltaf
um mig smá óhugur. Ég minnist
fyrri verslunarmannahelga og
þeirra slysa sem orðið hafa í
umferðinni á þessari mestu
ferðahelgi ársins. Ég get því ekki
ítrekað það nógsamlega við þig
að fara varlega. Gefðu þér tvær
mínútur í upphafi helgar til að
hugleiða skynsamlegustu leiðina
til að komast frá helginni án þess
að þurfa að stóla á annað tæki-
færi.
Slepptu öllum hraðakstri.
Hann skilar þér kannski fimm
mínútum fyrr á áfangastað en
tekur margfalt meiri tíma af lífi
þínu sökum streitu. Ef þú kemst
þá á áfangastað.
Akstur og áfengi? Ég þarf nú
ekki einu sinni að benda þér á
hversu heimskulegt það er. Vona
bara að þú passir upp á vinina
líka.
Og mér er líka alveg sama
hversu óþægilegt það er að vera
með bílbelti. Hefur þú einhvern-
tíma flogið í gegnum framrúðu á
bíl, eða lent undir honum í veltu?
Það er óþægilegra, trúðu mér.
Hvort sem þú ert undir stýri
eða farþegi þá er það í þínum
höndum að standa vörð um þitt
líf og þeirra í kringum þig. Ekki
láta skemmtilegustu helgi ársins
enda með fórn á köldu altari göt-
unnar. Þú hefur annað og meira
við líf þitt að gera.
Því miður er ekki alltaf nóg að
passa sjálfan sig. Í umferðinni
þurfum við líka að vera vakandi
fyrir öðrum vegfarendum og
allra helst þegar umferð er mikil
eins og raunin verður um næstu
helgi. Passaðu því upp á bilið á
milli bíla og gættu þín á umferð
úr gagnstæðri átt og á vegamót-
um.
Í sem fæstum orðum: farðu
varlega um næstu helgi. Ekki
taka áhættu. Ekki giska á svarið
eða slumpa á uppskriftina.
Kannski færðu ekki annað tæki-
færi. Kannski verður engin taka
tvö.
Hluti af þeirri tækni sem BMW notar til að leggja sjálfur í stæði er þegar til staðar í 7-lín-
unni.
Tæknin á markað innan
þriggja ára.
Án þess að það sé algjörlega ljóst af
hverju, þá hefur BMW lýst því yfir
að innan þriggja ára verði boðið upp
á búnað sem sér um að leggja bíl
sjálfkrafa í stæði, án þess að manns-
höndin komi þar nærri. Bílstjórinn
þarf ekki einu sinni að vera í bílnum
á meðan.
Hluta af þeirri tækni sem búnað-
urinn mun styðjast við er til dæmis
að finna í 7-línunni frá BMW í dag.
Viðbótin felst meðal annars í lítilli
linsu sem komið er fyrir við bíla-
stæðið eða inni í bílskúr. Lítil mynda-
vél í stuðara bílsins sér svo um að
reikna stöðu og fjarlægð bílsins frá
linsunni og stýrir stjórntækjum
bílsins eftir þeim upplýsingum.
Allt sem bílstjórinn þarf að gera
er að ýta á einn hnapp og bíllinn sér
um afganginn.
Leggur sjálfur í stæði
Nýr Hyundai Coupe kynntur
Fyrstu myndirnar
af hinni nýju 2007
árgerð af Hyundai
Coupe voru kynntar
nýlega. Bíllinn, sem er
þekktur sem Hyundai
Tiburon í Bandaríkj-
unum, mun að sögn
fyrirtækisins fara fyrst í
sölu í Evrópu og síðar
í Ameríku. Tveggja lítra
vél verður staðal-
búnaður í bílnum en
einnig kemur bíllinn
með 2,7 lítra V6 vél og
þá með sex gírum.