Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 54
29. júlí 2006 LAUGARDAGUR34
FUGLAR Mikið fuglalíf er á svæðinu við
Borgarfjörð eystri. Birgir Ottósson heldur á
spóaunga sem hann hitti fyrir á leiðinni.
FERÐALANGAR Ferðalangar ganga á leið sinni úr Stórurð niður í Borgarfjörð þar sem lita-
samsetning landsins er stórkostleg.
KVÖLDLEIKFIMI Eftir erfiði dagsins er ástæða til að teygja og sveigja búkinn svo að harð-
sperrurnar nái ekki tökum á ferðamanninum.
URÐ OG GRJÓT Líparítið er í öllum regnbog-
ans litum og er það góður siður ferða-
mannsins að setja stein í vörðu á leiðinni.
Eyjólfur Árni Rafnsson sinnti skyldu sinni vel.
STAÐARFJALL Annað sérkenni sveitarinnar og var oft viðfangsefni Kjarvals í myndum hans. Í græna sverðinum sem konurnar á myndinni ganga í eru mjög sérkennilegar myndanir í jarðvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DYRFJÖLL Eitt helsta einkenni Borgarfjarðar eystri þar sem þau gnæfa yfir þorpið. Göngu-
hópurinn í snjóskaflinum er á leið í Stórurð.
Á litaslóðum forfeðranna
Í VÍKUNUM Þegar best lét samkvæmt manntali voru um 300 manns búsettir í víkunum suður af Borgarfirði eystri um aldamótin. Víða sjást
þess merki.
Borgarfjörður eystri er orðinn einn vinsælasti
ferðamannastaður landsins, jafnt fyrir gangandi
sem akandi. Litadýrðin í Borgarfirði er engri lík
þar sem sjónarspil náttúrunnar er meðal annars
myndað af líparítfjöllum og svörtum stöpum
Dyrfjalla. Saga forfeðra okkar gustar um svæðið
sem nú er grasi vaxið og blómahafið einstakt.
Vinahópur einn, sem hefur hist árlega undanfarin sumur og lagt land undir fót, hittist á Borgarfirði eystri og gekk yfir í Stórurð og síðar Brúnuvík, Breiðuvík og Húsavík. Gangan endaði í
Loðmundarfirði en í allt tók hún fjóra daga. Vinahópurinn naut mikillar
gestrisni Borgfirðinga sem fluttu varning á milli áfangastaða og sóttu
hópinn í Loðmundarfjörð og slógu upp veislu í lok síðasta dags. Finnur
Ingólfsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fer fyrir vinahópnum en hann
þykir feiknaduglegur útivistarmaður, bæði til göngu og á hrossum, eins
og frægt er orðið. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari slóst í för með
hópnum.