Fréttablaðið - 29.07.2006, Qupperneq 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������
���������������
60 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is
ÚTSÖLUNNI
lýkur á morgun
Rýmum fyrir nýjum vörum.
Yfir 1000 vörur á útsölu.
Einn léttur
ÍSKALDUR!
Á morgun segir sá lati er gamalt máltæki í íslensku. Fjölmörg
önnur íslensk máltæki gefa skýrt til
kynna að atorka, dugnaður og fljót
afgreiðsla erfiðra og stórra fram-
kvæmda og úrlausnarefna sé Íslend-
ingum að skapi. Margir verkamenn
hafa fengið orð í eyra frá verkstjór-
um sínum í gegnum tíðina fyrir að
gera ekki hluti strax og ekkert fer
jafnmikið í taugarnar á foreldrum
og þegar börn þeirra nenna ekki að
gera eitthvað, eins og að taka til í
herberginu sínu eða fara út með
ruslið.
SVO langt hefur hinn rótgróni dugn-
aður meirihluti þjóðarinnar gengið
að jafnvel þegar rólyndismenn hafa
talið óhætt að slaka á, til dæmis
vegna óveðurs, þá hafa hinir man-
ísku dugnaðarforkar alltaf fundið
eitthvað annað fyrir fólk að gera inn-
andyra. Ekki þykir tilhlýðilegt að slá
slöku við. Menn geta sofið í gröf-
inni.
MEÐAL annars af þessum sökum
er ég fullur tortryggni út í allt tal um
að nú eigi að slá mörgum fram-
kvæmdum hér á landi á frest. Hörku-
tólin munu alltaf finna sér eitthvað
annað að gera þó svo vegarspotti
fyrir vestan bíði nokkra mánuði eða
tónlistarhús rísi fimm mánuðum
síðar en áætlað var. Ég sé ekki að
kaffipásur muni lengjast eða frídög-
um fjölga á Kanarí.
KANNSKI munu iðnaðarmenn til
dæmis snúa sér að því að sinna fólk-
inu sem hefur verið á biðlistum eftir
þeim um nokkurra missera skeið,
henda upp skolplögnum og dytta að
þakrennum. Í þessu öllu er ærinn
starfi. Á meðan geta peningamenn
sem hafa samþykkt að fjármagna
stórar framkvæmdir, sem nú er
frestað smá, látið fjármunina velta
aðeins lengur inni á feitum banka-
reikningum og margfaldað auð sinn
enn frekar.
FRESTUN framkvæmda er því lík-
lega tapað spil. Eina von stjórnvalda
um að slá á þenslu felst í því að
reyna enn frekar að halda hinum
sauðsvarta almúga niðri, til dæmis
með því að minnka möguleika hans
á því að fá lán til að kaupa fasteign-
ir. Þegar hafa verið stigin skref í
þessa átt með því að bankarnir hafa
minnkað lánshlutfallið. Og viðbrögð-
in hafa verið samkvæmt bókinni:
Dregið hefur úr hækkun á fast-
eignaverði.
EN þetta er líklega tapað spil líka.
Þeir sem eiga nóga peninga og þurfa
ekki lán geta núna bráðum farið að
valsa um þjóðfélagið til þess að
kaupa eignir á spottprís. Múgurinn
er tímabundið úr leik vegna efna-
hagsaðgerða. Það eru góðar fréttir
fyrir auðmenn.
KANNSKI ættum við að stíga skref-
ið alla leið. Auðmenn eru hvort sem
er stikkfrí. Ef eina leiðin til að slá á
þenslu er að almennir borgarar séu
látnir fresta því að kaupa sér hús, er
rökrétt næsta skref að neyða þá til
að fresta ýmsu öðru, eins og til
dæmis að kaupa í matinn, fara í
klippingu eða keyra bíl. Þá yrðu end-
anlega tvær þjóðir í landinu: Önnur
síðhærð í slæmum húsum, fótgang-
andi. Hin á Hummer. Báðar iðuðu í
skinninu, eins og Íslendinga er siður,
að fara að gera eitthvað. Önnur
mætti það ekki. En hin mætti.
Tvær þjóðir