Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.07.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 31.07.2006, Qupperneq 2
2 31. júlí 2006 MÁNUDAGUR Opið: Alla virka daga kl. 9:00 -18:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS TOYOTA AVENSIS SOL EXE Nýskr 12.05 - ssk, ek. 8 þús. km. Verð á ður: 3. 090.00 0,- Tilboð : 2.880. 000,- 50.000 kr. af bensíni fylgja öllum notuðum bílum Engir þvengir Borgarstjórnin í París hefur ákveðið að banna þvengbikiní og berbrjósta sólböð á sumarhátíðinni Strendur Parísar. Ekki er fyllilega ljóst hvers vegna bannið var sett á núna en hátíðin, sem stendur yfir í mánuð, hefur verið haldin um fimm ára skeið. FRAKKLAND SAMRÁÐ Kjaranefnd barst ekki beiðni frá embætti ríkissaksókn- ara um heimild fyrir aukinni yfir- vinnu vegna rannsóknar á samráði olíufélaganna samkvæmt Guðrúnu Zoëga, formanni kjararáðs, sem áður hét kjaranefnd. Aðeins einn starfsmaður ríkissaksóknara hefur unnið að rannsókn málsins seinustu mánuði en hann er nú í sumarfríi og því liggur rannsókn málsins niðri. Í Fréttablaðinu á laugardag sagði Helgi Magnús Gunnarsson, sá lögfræðingur sem unnið hefur að málinu, að ríkissaksóknari hefði sent kjararáði beiðni um heimild til að vinna frekari yfirvinnu vegna rannsóknar á málinu, en þeirri beiðni hafi verið hafnað. Formaður kjararáðs segir þetta ekki rétt. „Kjaranefnd barst beiðni frá Helga Magnúsi Gunnarssyni um viðbótargreiðslur vegna málsins, og hún var afgreidd þannig að ákvörðun skyldi tekin þegar mál- inu væri lokið. Það er í samræmi við afgreiðslu kjaranefndar á svip- uðum málum,“ segir Guðrún. „Kjaranefnd hefur ekkert með heimildir til vinnu að gera en hún ákveður hins vegar hvernig greitt er fyrir vinnuna. Í þessu tilviki var það afgreitt þannig að málið skyldi skoðað að þessari törn lokinni.“ - sþs Kjaranefnd fékk ekki yfirvinnubeiðni vegna rannsóknar á olíusamráðinu: Ráða engu um vinnuheimild BENSÍNI DÆLT Guðrún Zoëga segir kjara- nefnd hafa ekkert með heimildir til vinnu að gera, það sjái formaður embættisins um. LÖGREGLUMÁL Betur fór en á horfð- ist þegar maður beit hluta af eyra af öðrum manni í átökum þeirra á milli á Bergstaðastræti snemma í gærmorgun. Lögreglumenn hand- tóku árásarmanninn á vettvangi en fórnarlambið var flutt á slysa- deild Landspítalans. Að sögn varð- stjóra tókst læknum að sauma eyrað saman. Árásarmaðurinn var látinn sofa úr sér í fangaklefa. Hann var yfirheyrður í gær en mun ekki hafa viðurkennt brot sitt. Fórnar- lamb árásarinnar hafði síðdegis í gær ekki lagt fram kæru á hend- ur árásarmanninum. Rannsókn málsins heldur áfram. - vör Lögregla skarst í leikinn: Eyrnabítur tek- inn höndum KINSHASA, AP Kosningar voru haldn- ar í gær í Kongó, hinu austara, í fyrsta sinn í fjörutíu ár. Kosning- arnar þykja marka tímamót og vonir standa til þess að friðsam- legri tímar séu í vændum í þessu landi, þar sem átök og spilling hafa sligað allt mannlíf áratugum saman. „Þetta er sögulegur dagur fyrir okkur. Við höfum ekkert haft neitt nema stjórnarbyltingar og einræð- isherra í þessu landi, draugastjórn- ir,“ sagði Jean-Pierre Shamba, 44 ára verkfræðingur, eftir að hann hafði greitt atkvæði í bænum Bunia í gær. „Núna fáum við stjórn fólks- ins. Ég þakka guði fyrir það.“ Joseph Kabila, hinn ungi forseti landsins, þykir sigurstranglegast- ur af 33 frambjóðendum til forseta- embættisins, en í hópi þeirra eru fyrrverandi uppreisnarleiðtogar sem hann barðist við á sínum tíma. Fyrir þremur árum var gert friðarsamkomulag, sem fól í sér að bráðabirgðastjórn tók við völdum þar sem Kabila var for- seti en uppreisnarleiðtogarnir varaforsetar. Meira en níu þúsund manns eru í framboði til löggjafarþings lands- ins, sem verður skipað fimm hundr- uð þingmönnum. Íbúar landsins eru 58 milljónir og af þeim eru 25 milljónir á kjörskrá. - gb KJÓSENDUR Á KJÖRSTAÐ Í KINSHASA Kjósandi stingur kjörseðli sínum í kjörkassann, en á bak við má sjá kjörklefana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Miklar vonir bundnar við fyrstu kosningarnar í Kongó í fjóra áratugi: Kabila þykir sigurstranglegur WASHINGTON, AP Mun algengara er að fangar séu misnotaðir kynferð- islega en tilkynningar um slík brot gefa til kynna. Þetta er niðurstaða nýrrar bandarískrar rannsóknar á vegum dómsmálaráðuneytisins. Tæplega þrír af hverjum þús- und föngum tilkynna um slík brot gegn sér, en talið er að þau séu mun algengari. Kannanir hafa meðal annars sýnt að tíu prósent karlkyns fanga í Miðvesturríkjun- um hafi verið nauðgað. Þeir veigri sér þó mjög oft við að segja frá því. Þá er sagt frá því að nauðganir í fangelsum séu ekki bara vanda- mál fangelsanna, því þeir sem verði fyrir misnotkun þar brjóti oft af sér á sama hátt þegar þeir losna út. - sh Nauðganir tíðar í fangelsum: Misnotaðir fangar þegja VERSLUN Nokkuð óvenjuleg sjón blasti við þeim sem leið áttu í Jóns- búð á Reykhólum á laugardag en þá voru flugmenn að setja bensín á fleygan fararskjóta sinn. Flug- brautin á Reykhólum er ekki nema um hundrað metrum frá Jónsbúð. „Ég sá manninn draga flugvél- ina hingað inn á plan hjá okkur og ég hugsaði bara, vá,“ segir Ingi- björg Sæmundsdóttir sem afgreiddi flugmennina. „Það koma margar flugvélar hingað á Reykhóla en aldrei koma þær upp á plan. Reynd- ar höfum við einu sinni afgreitt mann sem kom hingað með fisvél,“ segir Ingibjörg. - jse Jónsbúð á Reykhólum: Fyllti á tankinn FLUGVÉL VIÐ JÓNSBÚÐ Það var skrautlegt planið við Jónsbúð þegar flugvél og fjögur myndarleg vélhjól stóðu þar meðan eig- endur fylltu á fararskjóta sinn. MYND/HLYNUR ÞÓR MAGNÚSSON ÖRYGGI Nokkuð er um að fyrirtæki láti starfsmenn sína vinna á lyft- ara án þess að þeir hafi tilskilin leyfi eða próf. Starfsmannastjórar og öryggisfulltrúar hjá Aðföngum, Eimskip og Rúmfatalagernum segja að þótt þeir reyni að sjá til þess að allir sem stýri lyfturum séu með réttindi þá komi fyrir að minni lyftarar séu notaðir af mönn- um sem hafi ekki lyftarapróf. „Ég get fullyrt að við reynum okkar besta,“ segir Eyþór Ólafs- son, öryggisstjóri hjá Eimskip. „Á stærri lyfturunum eru allir með réttindi, en á hinum geta verið nýbyrjaðir starfsmenn sem eru í þjálfun.“ Hann segir að það taki alltaf einhvern tíma fyrir menn að fara í gegnum námið og á meðan vinni þeir undir leiðsögn kennara á minnstu lyfturunum. Á þriðjudaginn var lést fransk- ur verktaki í vinnuslysi við Hellis- heiðarvirkjun. Maðurinn stóð á göfflum lyftara í sjö til níu metra hæð þegar jörðin undan lyftar- anum seig, með þeim afleiðingum að hann valt á hliðina. Við það féll maðurinn til jarðar og hlaut höfuð- högg sem dró hann til dauða. Að mati Vinnueftirlitsins var öryggis- ráðstöfunum ekki fylgt þegar slys- ið varð. Lögreglan á Selfossi gefur ekki upp hvort ökumaður lyftar- ans hafi verið með lyftararéttindi eða ekki. Samkvæmt reglum Vinnueftir- litsins sem heyra undir lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum verður stjórnandi lyftara að hafa réttindi til að nota hann. Mismunandi reglur gilda um mismunandi stærðir á lyftur- um, en réttindi þarf til að stýra bæði minni og stærri lyfturum. „Það sem ég heyri oftast er að það sé erfitt að halda þessum reglum í lagi varðandi minnstu tækin,“ segir Magnús Guðmundsson, deildarstjóri á vinnuvéladeild Vinnueftirlitsins. „Það er þá vegna mikillar starfs- mannaveltu, fyrirtækin séu að skipta svo oft um starfsmenn að þau hafi ekki undan að senda þá á námskeið.“ Hann segir þessa flokkun á réttindum í endurskoðun hjá Vinnueftirlitinu. „Það er mat manna að það sé fullmikið af minni tækjum í þessum réttinda- flokki sem væri óþarfi að gera kröfur um réttindi á. Það eru alltaf að koma fjölbreyttari tæki á markaðinn og með endurskoð- uninni á að reyna að flokka þetta betur.“ salvar@frettabladid.is Reglur um lyftara- réttindi oft brotnar Fyrirtæki sjá ekki alltaf til þess að þeir sem stýra lyfturum séu með tilskilin próf. Oftast eru það stjórnendur minni lyftara sem eru próflausir, en það er brot á reglum. Vinnueftirlitið segir reglur varðandi minni lyftara í endurskoðun. LYFTARI Öryggisstjóri hjá Eimskip segir fyrirtækið gera sitt besta til að sjá til þess að allir séu með réttindi sem stýra lyftara. Þó komi fyrir að starfsmenn stýri minni lyfturum án prófs. LÖGREGLUMÁL Töluverð ölvun var á bæjarhátíðinni Á góðri stund sem lauk á Grundarfirði í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar á Snæfells- nesi voru um tvö þúsund manns á hátíðinni og þurftu lögreglumenn að hafa nokkur afskipti af fólki. Nokkuð var um minniháttar pústra manna á millum og voru nokkrir ólátabelgir fluttir á lög- reglustöð. Einn var tekinn grunað- ur um að aka ölvaður í gærmorg- un. Hann taldi sig vera kominn í ökuhæft ástand eftir gleði nætur- innar. - vör 2.000 gestir á Grundarfirði: Töluverð ölvun meðal gesta SPURNING DAGSINS Dagur, er þetta eitthvað sem þú hefur alltaf þráð? „Ég þráði þetta fyrir löngu síðan en gleymdi því svo en er nú aftur að taka upp þráðinn.“ Samfylkingin lagði fram tillögu í borgarráði í liðinni viku um að kannaðar yrðu leiðir til að koma á þráðlausri nettengingu um alla Reykjavíkurborg. Dagur B. Eggertsson er oddviti Samfylkingar. LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru handteknir um helgina í heima- húsi á Sauðárkróki. Annar mann- anna var með lítilsháttar magn af hassi. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu en talið er víst að hass- ið hafi verið ætlað til einkaneyslu. Á hinum manninum fundust sjö grömm af hassi og smáræði af amfetamíni. Þá fundust töluverðir fjármunir í fórum hans og leikur grunur á að peningarnir séu ágóði eiturlyfjasölu. Báðir mennirnir hafa áður gerst brotlegir við lög. Þeir játuðu báðir við yfirheyrslur. - vör Fíkniefnamál á Sauðárkróki: Tveir menn handteknir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.