Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 4
4 31. júlí 2006 MÁNUDAGUR
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
��������������
�������������
��������������
�����������������
�������������
���������������
���������������
���������������
�����������
�����������
���������������
���������������
���������������
���������������
��������������
�������������
����������
������������
�������������� ����� ���
� ������� ������������� ���
����� ����������� � ��
���������� ����������� ��
������������� �������
������������ ������� ��
��������� ��������
���� ����������� �
���� ����������������
������������� ��� �����
������ ��������������
� ����������������������
��� ������������ ����
������������������ ��
����� �������������
�����������
�����������
��������� ��������� ��
�������� ������������
���������������� ��������
��������� �������� ���
������������� ������
�������������������������������������
�������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
��
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
����
��
��
��
��
��
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 28.7.2006
Bandaríkjadalur 72,85 73,19
Sterlingspund 135,38 136,04
Evra 92,33 92,85
Dönsk króna 12,375 12,447
Norsk króna 11,735 11,805
Sænsk króna 9,996 10,054
Japanskt jen 0,6301 0,6337
SDR 107,67 108,31
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
127,9599
Gengisvísitala krónunnar
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Slagsmál á Borðeyri Tveir voru
fluttir í fangaklefa fyrir ölvun og óspektir
á Borðeyrarhátíð aðfaranótt sunnudags.
Um það bil 300 manns voru saman-
komin við hátíðarhöldin. Þá liggur annar
mannanna undir grun fyrir fíkniefnamis-
ferli. Báðir voru vel við skál og voru þeir
vistaðir á lögreglustöðinni á Blönduósi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Þung umferð á Búðardal Fjórir
voru teknir fyrir hraðakstur og einn
fyrir ölvunarakstur nálægt Búðardal
aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu
var mikil umferð á svæðinu enda veður
með eindæmum gott og nokkur stór
ættarmót haldin á svæðinu. Umferð gekk
greiðlega og engin slys á fólki.
VIÐSKIPTI Straumur-Burðarás fjár-
festingabanki hefur fest kaup á
helmingshlut í breska ráðgjafa-
fyrirtækinu Stamford Partners í
London. Breska fyrirtækið sér-
hæfir sig í ráðgjöf fyrir matvæla-
og drykkjarvörufyrirtæki og eru
þekkt fyrirtæki í þeim geira meðal
viðskiptavina þess. Jafnframt
hyggst Straumur opna útibú og
hefja útlánastarfsemi í London
síðar á árinu.
Seljendur eru stofnendur fyrir-
tækisins og lykilstarfsmenn. Þeir
munu allir starfa áfram hjá fyrir-
tækinu. „Við erum að fara inn á
áhugaverðan og mikilvægan mark-
að og gerum það með kaupum á sér-
hæfðu fyrirtæki sem náð hefur frá-
bærum árangri og sjáum möguleika
í að samhæfa ráðgjöf og fjármögn-
un,“ segir Friðrik Jóhannsson, for-
stjóri Straums-Burðaráss.
Markmið Straums með kaupun-
um er að koma sér fyrir á breska
markaðnum sem er skilgreindur
sem einn af kjarnamörkuðum
bankans.
Guðmundur Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
bankans, segir seljendurna sjá,
eins og Straumur, mikil tækifæri í
því að tengja saman ráðgjöfina og
lánagetu Straums. „Þeim finnst
spennandi við þessi kaup að geta
boðið sínum viðskiptavinum upp á
fjölbreyttari þjónustu en þeir geta
í dag.“
Guðmundur segir kaupin lið í
þeirri stefnu sem var mörkuð við
sameiningu Straums og Burðaráss,
þegar stefnan var sett á að bankinn
yrði leiðandi fjárfestingabanki á
Norðurlöndunum og í Bretlandi.
Straumur hefur þegar hafið starf-
semi í Danmörku með því að
byggja upp frá grunni. Hann segir
London erfiðan markað þar sem
mikil samkeppni ríki. „Við völdum
því þá leið að kaupa fremur en að
byggja upp frá grunni. Það að við
kaupum fyrirtæki sem þjónar þess-
um tilteknu atvinnugreinum, hefur
enga merkingu í sjálfu sér.“ Þeir
segja tækifærin liggja í að koma
sér fyrir á markaði með öflugu
samstarfi og breikka verkefnaval-
ið út frá því.
Stjórnendur Stamford Partn-
ers hafa áratuga reynslu af ráð-
gjöf í matvæla- og drykkjar-
vörugeiranum og höfðu fyrir
stofnun fyrirtækisins unnið hjá
fjárfestingabönkum að slíkum
verkefnum um árabil. Meðal við-
skiptavina má nefna fyrirtæki
eins og Northern Foods, Barilla
og Cadbury Schweppes.
Þeir segja gríðarleg tækifæri í
sameiningarverkefnum í matvæla-
geiranum, en markmiðið sé að ná
fótfestu á markaðnum og breikka
tekjugrunn bankans, þannig að
hann verði leiðandi fjárfestinga-
banki í Norður-Evrópu.
Stamford Partners er ekki stórt
fyrirtæki í starfsmönnum talið en
leiðandi á sínu sviði. Að kröfu selj-
enda eru ekki gefnar upp tölur um
kaupverð og veltu. Þeir segja þó
leitun að félagi sem skili jafn miklu
á starfsmann og að félagið njóti
mikillar virðingar, kaupin styrki
því Straum-Burðarás verulega á
þessum markaði. Hugmyndin að
kaupunum hafi komið upp þegar
Straumur-Burðarás vann með Stam-
ford fyrr á árinu. haflidi@frettabladid.is
UPPHAFSSKREF Á BRESKA MARKAÐNUM Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður
Straums-Burðaráss, og Friðrik Jóhannsson forstjóri. Bankinn hefur stigið fyrsta skrefið á
breska markaðnum með kaupum á reyndu og virtu ráðgjafarfyrirtæki.
Straumur kaupir
ráðgjafa í London
Straumur-Burðarás hyggst opna útibú í London. Fyrstu skrefin að innkomu
á breska markaðinn hafa verið stigin með kaupum á helmingshlut í hinu
virta ráðgjafarfyrirtæki Stamford Partners.
ÍSRAEL Sautján ára Íslendingur,
Yousef Ingi Tamimi, var í haldi
landamæravarða á flugvellinum í
Tel Aviv í 13 klukkustundir í gær.
Hann fékk hvorki vott né þurrt í
tíu klukkustundir og vissi aldrei
hvenær eða hvort hann yfirleitt
kæmist inn í landið.
Yousef var á leið ásamt ísra-
elskum frænda sínum í mánaðar-
heimsókn til föðursystur sinnar í
Jerúsalem. Flugvél hans lenti í Tel
Aviv klukkan fimm að morgni að
staðartíma, eða klukkan tvö að
íslenskum tíma. Eftirlitsmönnum
á flugvellinum þótti hann grun-
samlegur og trúðu ekki sögunni
um að hann væri á leið til frænku
sinnar. Vegabréfið var því tekið af
honum til skoðunar, en frænda
hans var hleypt inn í landið. Þegar
vegabréfið var tekið af honum var
honum sagt að athugunin gæti
tekið frá fimm mínútum til sólar-
hrings.
„Vegabréfið kemur þegar það
kemur, sögðu þeir. Samt lá það á
borði hjá þeim allan tímann. Þeir
voru bara að reyna að brjóta mig
niður á einhvern hátt,“ sagði
Yousef þegar hann var kominn til
frænku sinnar í gær. „Ég held að
þetta hafi verið fyrirfram ákveð-
ið. Þeir ætluðu bara að láta mig
vera þarna í tólf tíma.“
Yousef, sem átti allt eins von á
því að vera sendur til baka, fékk
loks eitthvað að borða eftir tíu
tíma dvöl á flugvellinum, og var
þá orðinn sársvangur. Honum var
loksins hleypt inn í landið klukkan
þrjú að íslenskum tíma.
Salman Tamimi, faðir Yousefs,
segir svona hegðun landamæra-
varða í Ísrael engin nýmæli. „Það
er alltaf látið svona við fólk, sér-
staklega þegar það er vitað að það
er á leiðinni í arabíska hlutann.
Þeir reyna að gera þetta eins leið-
inlegt og hægt er svo fólk vilji
örugglega ekki koma aftur.“
Yousef segir þetta atvik þó alls
ekki fæla hann frá því að heim-
sækja landið. „Ef maður trúir á
málstaðinn þá bara kemur maður
oftar til að sýna þeim það að það
er ekki hægt að brjóta mann auð-
veldlega niður.“ - sh
Sautján ára Íslendingur laus úr haldi landamæravarða á flugvellinum í Tel Aviv eftir þrettán klukkustunda dvöl:
Lætur ekki brjóta sig auðveldlega niður
YOUSEF INGI TAMIMI Landamæraverðir
stöðvuðu för Yousefs og héldu honum
föngnum í þrettán klukkustundir.
LÖGREGLUMÁL Ungur ökuþór á Sel-
fossi stakk lögreglu af í fyrri-
nótt, ók yfir hringtorg þar sem
hann affelgaði eitt hjól bílsins og
endaði ferðina loks inni í garðin-
um heima hjá sér.
Lögreglumenn höfðu ætlað að
stöðva manninn fyrir reykspól
þegar hann brást svona við. Hann
var á Camaro-bíl sem hann hafði
í láni og segir lögreglan bílinn
sennilega vera nokkurra milljóna
króna virði. Nú lítur allt út fyrir
að hann verði að kaupa bílinn,
sem skemmdist töluvert.
Maðurinn var allsgáður og
hafði ekki mörg umferðarlagabrot
á skrá. Hann var þó sviptur öku-
réttindum fyrir athæfið. - vör
Ökuníðingur á Selfossi:
Staðnæmdist í
eigin húsgarði
Í GARÐINUM HEIMA Maðurinn affelgaði
bílinn í hamaganginum.
SJÓFERÐIR Stór floti gúmmíanda
sem féll af flutningaskipi árið
1992 fer brátt að koma að landi, en
um tíu þúsund slíkar endur hafa
siglt um heimshöfin síðustu fjór-
tán ár. Þetta kemur fram á frétta-
vefnum Sunday Mirror.
Endurnar féllu í Kyrrahafið
ásamt froskum og skjaldbökum úr
gúmmíi, en talið er að endurnar
hafi yfirgefið hópinn ári seinna og
haldið inn Beringssund. Þar frusu
þær í ís og ferðuðust norður fyrir
til Atlantshafsins. Að lokum lenda
þær í Golfstraumnum sem ber
þær til Bretlands.
Vísindamenn hafa fylgst með
ævintýri andanna til að fræðast
betur um hafstrauma. - sþs
Fjórtán ára ferðalagi lýkur brátt:
Gúmmíendur
sigla um höfin
GÚMMÍÖND Þegar ferðalaginu lýkur hafa
endurnar siglt yfir þrjátíu þúsund kílómetra.
LÖGREGLUMÁL Mönnunum fimm
sem handteknir voru fyrir grófa
líkamsárás á Selfossi aðfaranótt
laugardags hefur verið sleppt úr
haldi. Yfirheyrslum yfir þeim lauk
í fyrrakvöld.
Mennirnir réðust á tvo aðra
með bareflum, meðal annars keðju
sem lögreglan hefur undir hönd-
um. Ekki liggur fyrir hvað árásar-
mönnunum gekk til en fórnar-
lömbin eru talsvert meidd, annað
höfuðkúpubrotið.
Málið er enn í rannsókn lög-
reglunnar á Selfossi. - sh
Fólskuleg árás á Selfossi:
Árásarmönnum
sleppt úr haldi