Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 6

Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 6
6 31. júlí 2006 MÁNUDAGUR www.lyfja.is - Lifið heil FLJÓTVIRKT VERKJALYF VIÐ M.A. TÍÐAVERKJUM. INNIHELDUR ENGIN ÁVANABINDANDI EFNI. Voltaren Dolo FÆST ÁN LYFSEÐILS ÍS LE N SK A AU G L† SI N G AS TO FA N /S IA .I S L YF 3 32 04 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgu- eyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfja- fræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. KJÖRKASSINN Ætlar þú á útihátíð um verslun- armannahelgina? Já 31% Nei 69% SPURNING DAGSINS Í DAG Fórst þú á tónleika Sigur Rósar í gær? Segðu skoðun þína á Vísi.is LISTAVERK Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sitjandi forsætis- og menntamálaráðherra, segir ástæðulaust að finna listaverk- um í eigu Ríkisútvarpsins nýjan stað á safni. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu fyrir skömmu taldi Hilmar Einarsson, forvörð- ur í Morkinskinnu, sem vann að mati á listaverkunum, að far- sælast væri að finna listaverk- unum stað á Listasafni Íslands. Listaverkin eru samkvæmt mati Hilmars metin á tæpar 52 milljónir króna. Þorgerður segir listaverkin sóma sér vel á veggjum útvarps- hússins við Efstaleiti. „Ég held að það sé ástæðulaust að finna verk- unum stað á Listasafni Íslands, þar sem þau glæða menningarlega ásýnd Ríkisútvarpsins miklu lífi og gefa stofnununni mikilvæga menningarlega ásýnd. Auk þess er ég þeirrar skoðunar að það sé íslenskri menningu til hagsbóta að jafn glæsileg listaverk og þau sem eru í eigu RÚV séu fyrir augum þeirra fjölmörgu sem sækja höf- uðstöðvar Ríkisútvarpsins heim.“ Ólafur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Íslands, sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir skömmu að listrænt gildi þriggja verka Gunn- laugs Scheving, sem metin eru á rúmar 40 milljónir, gæfi tilefni til þess að koma verkunum fyrir innan veggja Listasafns Íslands. Hann sagðist þó vel skilja það sjónarmið að verkin væru hluti af mikilvægri menningarlegri ásýnd RÚV. - mh Menntamálaráðherra segir verk í eigu RÚV sóma sér vel innan stofnunarinnar: Óþarft að færa listaverkin ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Segir listaverkin glæða RÚV menningarlegu lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HOUSE OF FRASER Áreiðanleikakönnun er á lokastigi. VIÐSKIPTI Baugur er að leggja loka- hönd á 47 milljarða yfirtökutilboð í House of Fraser (HOF) sem lík- lega verður lagt fram um miðjan ágúst. Áreiðanleikakönnun er á lokastigi að sögn Daily Telegraph og þykir jafnvel líklegt að tilboðið liggi fyrir í þessari viku. Don McCarthy, sem var meðal fjárfesta og stjórnenda í Rubicon Retail sem tískuverslunarkeðjan Mosaic Fashions keypti á dögun- um, verður stjórnarformaður HOF, gangi áformin eftir. Philip Mountford, forstjóri herrafatakeðjunnar Moss Bros, þykir líklegur að taka við stjórnar- taumunum í HOF en ekki er úti- lokað að núverandi forstjóri, John Coleman, haldi starfi sínu. FL Group og Kevin Stanford munu einnig koma að yfirtökunni ásamt bankanum HBOS. - eþa Tilboð í House of Fraser: Lagt fram á næstu dögum Stakk lögreglu af Lögreglan í Reykja- vík mældi vélhjólamann á 148 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi á laugardags- kvöldið. Lögregla veitti vélhjólamannin- um eftirför en tókst ekki að ná honum þar sem hann keyrði í burtu á um það bil 160 kílómetra hraða. LÖGREGLUFRÉTTIR LÍBANON, AP Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallað saman á neyð- arfund í gær vegna loftárása ísra- elska hersins á þorpið Kana í Líbanon í fyrrinótt. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði við upphaf fundarins að ráðið verði að grípa til aðgerða nú þegar, „áður en mikið fleiri börn, konur og menn falla í átökum sem þau hafa enga stjórn á“. Að minnsta kosti 56 manns féllu í loftárásinni, sem gerð var í fyrri- nótt. Þrjátíu og fjórir hinna látnu voru á barnsaldri. Björgunar- starfsmenn og íbúar unnu að því fram eftir öllum degi að bjarga fólki úr rústunum og grafa upp lík hinna látnu. Ísraelar réttlæta árásina með því að hundruðum flugskeyta hafi verið skotið frá Kana yfir landa- mærin til Ísraels. Þeir segjast einn- ig hafa varað íbúana við árásunum bæði með útvarpstilkynningum og dreifimiðum. Fáir íbúanna ákváðu þó að flýja borgina, þrátt fyrir þessar viðvaranir. Fólk leitaði frek- ar skjóls í kjöllurum, sem dugði skammt þegar húsin hrundu. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Ísraelar væru „ekkert að flýta sér“ að koma á vopnahléi. Fyrst vilji þeir ljúka því verkefni, að afvopna Hizbollah- samtökin. Hann sagði við Condoleezzu Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, að þeir þyrftu tíu til fjórtán daga í viðbót til þess að ljúka því sem þeir ætla að gera í Líbanon. Rice var stödd í Ísrael þegar fréttir bárust af árásinni á Kana og ákvað þá að snúa strax heim til Washington. Hún sagðist vilja að vopnahlé kæmist á sem allra fyrst, og hefur ekki fyrr tekið jafn afdráttarlaust til orða um það. Fyrir tíu árum gerðu Ísraelar einnig harða árás á Kana og drápu þá meira en hundrað líbanska borg- ara sem höfðu leitað þar skjóls í bækistöðvum Sameinuðu þjóð- anna. Sú árás, sem iðulega er nefnd „fjöldamorðin í Kana,“ vakti hörð viðbrögð um heim allan og átti sinn þátt í að Ísraelar hættu árásum sínum á Líbanon. Þessar síðustu árásir hafa nú staðið yfir frá 12. júlí og kostað meira en 510 manns í Líbanon lífið, og voru langflestir þeirra almennir borgarar í landinu. Meira en 750 þúsund Líbanar hafa flúið að heiman vegna átakanna. gudsteinn@frettabladid.is BJÖRGUNARMAÐUR MEÐ EITT BARNSLÍKANNA Í KANA Að minnsta kosti 34 börn fundust látin í rústunum í Kana í gær eftir árásir Ísraela. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Tugir barna meðal hinna látnu í Kana Að minnsta kosti 56 manns, flestir konur og börn, létu lífið í loftárásum á líbönsku borgina Kana í fyrrinótt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallað á neyðarfund. Ísraelar segjast ekki vera að flýta sér að koma á vopnahléi. LONDON, AP Sviðsmynd nýrrar kvikmyndar um njósnara hennar hátignar, James Bond, gereyði- lagðist í miklum eldsvoða í gær- morgun. Verið var að fjarlægja leikmuni úr Pinewood Studios- kvikmyndaverinu í Buckingham- skíri á Englandi þegar mikill eldur blossaði upp og sviðsmyndin varð fljótt alelda. Rúmlega fimmtíu slökkviliðs- menn á átta dælubílum börðust við eldinn og eldtungur teygðu sig tugi metra í loft upp. Gríðar- mikinn reyk lagði yfir nágrennið upp um þak kvikmyndaversins sem hrundi að mestu. Þeir þrír sem í húsinu voru þegar eldurinn kviknaði sluppu heilu og höldnu. Nýja kvikmyndin, Casino Royale, er 21. Bond-myndin í röð- inni, og sú fyrsta sem skartar breska leikaranum Daniel Craig í aðalhlutverkinu. Myndirnar hafa oftar en ekki verið teknar upp í Pinewood-kvikmyndaverinu, en það var reist árið 1935. Fyrsta Bond-myndin, Dr. No, var tekin þar upp árið 1962. Tökusalurinn þar sem eldurinn kviknaði hafði að geyma eftir- mynd af Feneyjum, en sami salur brann til grunna árið 1984 við tökur á annarri Bond-mynd, The Spy Who Loved Me, og var endur- reistur fyrir tveimur árum. - sh Yfir fimmtíu slökkviliðsmenn börðust við eld í kvikmyndaveri á Englandi í gær: Bond-sviðsmynd eldi að bráð DANIEL CRAIG SVARTUR MÖKKUR Mikinn reyk lagði yfir nágrenni kvikmyndaversins, en þak þess hrundi í hitanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SLYS Harkalegur árekstur varð við Svignaskarð um sex leytið í gær, með þeim afleiðingum að fjórir slösuðust. Tveir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Báðar bifreiðarnar eru óöku- færar eftir áreksturinn en lög- regla telur líklegt að annar bíllinn hafi verið á öfugum vegarhelm- ingi þegar þeir rákust saman. Hvorugur ökumaðurinn er grun- aður um að hafa ekið of hratt eða undir áhrifum áfengis. - sþs Árekstur við Svignaskarð: Tveir á sjúkra- hús eftir slys UPPGRÖFTUR Rústir miðaldakirkju hafa fundist við uppgröft á Gásum í Eyjafirði. Er um að ræða rústir af þremur kirkjum sem stóðu á sama kirkjustæðinu á mismun- andi tímabilum og er sú yngsta frá því eftir 1300. „Þetta hefur verið gríðarlegt mannvirki á þeim tíma og sett mikinn svip á staðinn,“ segir Orri Vésteinsson fornleifafræðingur. Talið er að kirkjan hafi þjónað erlendum kaupmönunnum sem stunduðu viðskipti á Gásum. Þetta er sjötta og jafnframt síðasta árið sem unnið er að uppgrefti á Gásum. - öhö Uppgröftur á Gásum: Fundu rústir miðaldakirkju KIRKJURÚSTIR Þrjár kirkjur stóðu á kirkju- stæðinu, sú síðasta upp úr 1300. SJÁVARÚTVEGUR Togarinn Þórunn Sveinsdóttir fékk trollið frá Bylgju VE í skrúfuna í fyrradag þegar togararnir voru á veiðum um níu sjómílum vestur af Sand- gerði. „Til allrar hamingju fór vírinn ekki í skrúfuna því þá hefði líklega þurft að draga tog- arann í land,“ segir Sigurður Stefánsson kafari, sem losaði veiðarfærin úr ásamt öðrum kafara. Björgunarsveitarmenn frá Sigurvon komu köfurum á hrað- báti fljótt á vettvang en svo fylgdi björgunarskipið Hannes Haf- stein á eftir og var í viðbragðs- stöðu ef draga þyrfti skipið. - jse Togarinn Þórunn Sveinsdóttir: Fékk troll í skrúfuna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.