Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 8

Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 8
8 31. júlí 2006 MÁNUDAGUR UTANRÍKISMÁL EFTA-ríkin og Perú undirrituðu nýlega samstarfsyfir- lýsingu sem miðar að því að auka samstarf á sviði viðskipta- og efna- hagsmála. Yfirlýsing af þessu tagi er gjarnan undanfari samninga- viðræðna um fríverslun. Sett verður á fót sameiginleg nefnd ríkjanna sem mun funda reglu- lega um viðskiptamál. Í yfirlýsingunni er einnig lögð áhersla á að auka viðskiptafrelsi milli landanna, einkum með því að ryðja úr vegi tæknilegum við- skiptahindrunum, lækka tolla, stuðla að góðum vinnubrögðum við tollaafgreiðslu og fleira. - sdg Samstarfsyfirlýsing undirrituð: Aukin viðskipti EFTA og Perú NEYSLA Fiskneysla hefur minnkað um þrjátíu prósent á seinustu árum, mest meðal ungs fólks, og mun það hafa neikvæð áhrif á markaðssetningu og sölu fisk- afurða í framtíðinni. Aðstandendur rannsóknarverkefnis um hvernig auka megi vinsældir fiskafurða vilja bregðast við þessari þróun og segja fræðslu um fiskupp- skriftir og hráefni sárvanta. Ýmsar niðurstöður úr umræð- um við rýnihópa ungs fólks komu mjög á óvart, að sögn aðstandenda verkefnisins. Til að mynda þótti ungu fólki umræða um fisk á Íslandi vera í neikvæðari kantin- um, aðallega væri talað um kvóta- kerfið og hvað fiskur væri dýr. Að sama skapi væri fiskur ekkert auglýstur og öll þekking ungs fólks á fiski kæmi frá foreldrum. Hvað varðar matreiðslu á fiski töldu fæstir sig kunna að undirbúa og elda fisk, hvað þá þekkja fersk- leika, gæði eða mun á fisktegund- um. Flestir sögðu þó að afstaða sín mundi breytast í kjölfar barneigna og með stofnun fjölskyldu. Í haust munu niðurstöður verkefnisins liggja fyrir, en Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, Háskóli Íslands, Landspítali - háskólasjúkrahús og Icelandic Services eru aðilar að rannsókn- inni. - sgj Niðurstöður rannsóknar á fiskneyslu og viðhorfi ungs fólks verða kynntar í haust: Kunna ekki að matreiða fisk GLÆSILEGIR FISKRÉTTIR Samkvæmt rannsókninni kýs ungt fólk frekar fisk sem heilsutengt fæði en skyndibita. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HREINSUN Tæplega tvö hundruð bílar voru fjarlægðir úr bíla- kirkjugarði á Garðsstöðum við Ísafjarðardjúp á dögunum, en það er liður í hreinsunarátaki Súðavíkurhrepps. Í janúar var gerður samningur milli hreppsins og Þorbjarnar Steingrímssonar, eiganda bílanna, um að pressa þá og flytja á brott, en um fjögur hundruð bílar eru nú eftir. Að sögn Ómars Más Jónssonar, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps, olli mikil rigningatíð því að ekki náðist að klára flutningana í ár eins og vonast var til, en áætlað er að þeim ljúki næsta vor. - sþs Fækkun í bílakirkjugarði: Tvö hundruð bílar fjarlægðir BÍLHRÆ VIÐ BÆINN Um sex hundruð bílar voru við bæinn þegar mest var, en nú hefur þeim fækkað um þriðjung. FRAMKVÆMDIR Landspítali-háskóla- sjúkrahús, LSH, er á rúmlega tut- tugu stöðum á höfuðborgarsvæð- inu með alls um 150 þúsund fermetra undir starfsemi sína. Stærsta einingin er gamli Land- spítalinn við Hringbraut með um sjötíu þúsund fermetra í nokkrum byggingum, um þrjátíu þúsund fer- metrar eru í Fossvogi, Kleppsspít- ali er um átta þúsund fermetrar að stærð, sex til sjö þúsund fermetrar eru í Landakoti og Grensásdeild hefur um þrjú til fjögur þúsund fermetra til umráða. Aðrar eining- ar eru smærri. „Það er óvenjulegt að starfsem- inni sé dreift svona mikið og við finnum mjög fyrir því. Með þess- um hætti verður allt erfiðara. Það er dýrara og erfiðara að reka litlar einingar úti um allan bæ. Bæði þarf að senda sjúklinga og upplýs- ingar á milli og svo þarf að halda utan um þetta allt. Einingarnar ættu að liggja saman. Það myndi vinnast mikið með því,“ segir Aðal- steinn Ingólfsson, sviðsstjóri tekna og eigna hjá LSH. Aðalsteinn segir að ekki verði hægt að sameina alla starfsemi háskólasjúkrahússins á einn stað því að alltaf verði eitthvað um lang- legudeildir og heimiliseiningar ann- ars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar sé æskilegt að sameina sem mest, helstu deildir spítalans, skrifstofur og rannsóknarstofur á spítalasvæðið, og þá losni um eignir víða í borginni. „Þetta gengur að hluta til út á það að skipta út eignum, losa hús- næði og byggingarland fyrir aðra starfsemi,“ segir hann og bendir á að margar af þessum eignum séu á góðum stöðum. Þannig eigi ríkið til dæmis Vífilsstaði og landið umhverfis, meðal annars landið undir golfvellinum og allt að nýrri verslun Ikea í Garðabæ. Ingólfur Þórisson verkefnis- stjóri telur að tvær eignir ríkisins í umsjón LSH séu verðmætastar, Vífilsstaðir og spítalinn í Fossvogi, og giskar á að verðmæti þeirra nemi samtals minnst um tíu millj- örðum króna en samkvæmt verð- mati frá 2001 nemur það sjö millj- örðum króna. Þessar eignir væri hægt að selja til að fjármagna nýtt húsnæði fyrir háskólasjúkrahúsið. Ingólfur segir að undirbúningur að háskólasjúkrahúsi gangi í sam- ræmi við áætlanir. Ekki fáist mikið með því að fresta undir- búningi því aðeins séu 200 milljónir ætlaðar í hann á næsta ári. Fram- kvæmdir við bygginguna eigi að hefjast árið 2009. ghs@frettabladid.is Landspítalinn er á rúmlega 20 stöðum Starfsemi Landspítala-háskólasjúkrahúss er á tuttugu og tveimur stöðum á höfuð- borgarsvæðinu. LSH gæti selt tvær dýrustu eignirnar, Vífilsstaði og byggingarnar í Fossvoginum, fyrir minnst tíu milljarða króna til að fjármagna háskólasjúkrahús. STARFSEMI LANDSPÍTALA-HÁSKÓLA- SJÚKRAHÚSS LSH er með starfsemi á um 20 stöðum í borginni. Rannsóknarstofur, skrifstofur og deildir eru dreifðar hingað og þangað. Hagstætt væri að flytja sem flestar einingar á einn stað. VEISTU SVARIÐ? 1 Hvers lenskur var bóndinn sem fékk nýtt andlit ágrætt? 2 Hvar fór hátíðin Á góðri stund fram um helgina? 3 Í hvaða landi er Hrókurinn að kynna skáklistina í fjórða skipti? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 ÚT UM BORG OG BÝ Landspítali-háskólasjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu Sambýli og íbúðir fyrir aðstandendur Vífilsstaðir (eru í eign ríkisins en LSH er þar ekki með neina starfsemi lengur) JAFNRÉTTI Kærunefnd jafnréttis- mála hefur komist að þeirri niður- stöðu að Eimskipafélag Íslands hafi ekki brotið ákvæði jafnréttis- laga þegar karlmaður var ráðinn í tímabundið starf tækjastjóra hjá félaginu á síðasta ári. Annar karlmaður sem sótti um starfið kærði ráðninguna á þeim forsendum að kona hefði fengið starf hjá félaginu áður, án þess að gerðar væru sömu hæfniskröfur til hennar og gerðar voru við þessa ráðningu. Komst kærunefndin að þeirri niðurstöðu að þar sem annar karl- maður hefði verið ráðinn í starfið gæti kynferði ekki hafa haft áhrif á ráðninguna sem kærð var. - öhö Eimskipafélag Íslands: Braut ekki á karlmanni GÁMASVÆÐI EIMSKIPA Eimskip braut ekki á karlmanni með ráðningu annars manns. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Ísafirði stöðvaði um helgina eftirlitslausa útilegu þriggja unglinga í Dagverðardal skammt frá Ísa- firði. Voru ungmennin mjög ölvuð og flutti lögregla tvo pilta heim en þeir eru báðir fæddir árið 1989. Þriðja ungmennið, sem er fjórtán ára gömul stúlka, var sótt af foreldrum sínum. Lögreglan á Ísafirði brýnir fyrir foreldrum að fylgjast með ferðum barna sinna, sérstaklega nú þegar styttist í mestu ferða- helgi ársins. - öhö Eftirlitslaus í útilegu: Lögregla tók ölvaða unglinga BANDARÍKIN, AP Nektardansmær í New Jersey, Bandaríkjunum, hefur verið kærð fyrir ólöglega varðveislu á líkamsleifum, en lög- regla fann sex hauskúpur og afhöggna hönd við leit á heimili hennar. Dansarinn, Linda Kay, ætlar að lýsa yfir sakleysi sínu og heldur því fram að ekkert ólöglegt sé við þetta safn hennar. Samkvæmt fyrrverandi her- bergisfélaga hennar var höndin gjöf frá læknanema, og móðir hennar segir Lindu hafa keypt hauskúpurnar úr póstlista. Lög- fræðingur hennar bíður nú eftir að saksóknari ákveði hvort glæpur hafi verið framinn. - sþs Nektardansmær í New Jersey: Með stórt safn af líkamsleifum KAUPMANNAHÖFN Þegar fárið út af dönsku skopmyndunum af Múhameð spámanni stóð sem hæst í byrjun febrúar munaði minnstu að fjórum dönskum konum hefði verið rænt á Vestur- bakkanum í Palestínu. Hending ein varð til þess, í öll fjögur skiptin, að konurnar sluppu. Þrjár kvennanna voru ekki heima hjá sér þegar vopnaðir menn réð- ust inn á heimili þeirra, en sú fjórða bjargaði sér með því að gefa snögg- lega í botn þegar reynt var að draga hana út úr bíl sem hún ók. Frá þessu skýrir danska dag- blaðið Jótlandspósturinn, sem vitnar í skýrslu danska utanríkis- ráðuneytisins um málið. „Eitt atvikið átti sér stað í Nablus, þar sem ung dönsk kona bjó í húsi vinar síns,“ segir Rolf Holmboe, yfirmaður dönsku ræðis- mannsskrifstofunnar á Vestur- bakkanum, í viðtali við Jótlands- póstinn. „Konan hafði yfirgefið svæðið fáeinum klukkustundum fyrr þegar tólf grímuklæddir og vopnaðir menn réðust inn í húsið og kröfðust þess að fá hana afhenta.“ Skopteikningarnar af Múhameð spámanni birtust í Jótlandspóstin- um síðastliðið haust og vöktu mikla reiði meðal múslima víða um heim nokkrum mánuðum eftir að þær birtust. - gb DÖNSKU TEIKNIMYNDUNUM MÓTMÆLT Þessi mynd er tekin í Nasaret í byrjun febrúar þegar mótmælin stóðu sem hæst. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Reiði múslima vegna Múhameðsteikninga Jótlandspóstsins: Nærri lá að konum yrði rænt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.