Fréttablaðið - 31.07.2006, Page 10
10 31. júlí 2006 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Innan við tíu
Íslendingar hafa verið valdir til
stofnfrumugjafar síðan Blóðbank-
inn hóf skipulega skráningu á
þeim sem tilbúnir eru til slíks en
rúmlega fjögur hundruð manns
eru alls á skránni.
Stofnfrumugjöf er tvenns
konar, frá blóði eða beinmerg, en
er ekki ýkja erfið eða sársaukafull
aðgerð. Þeir sem gefa verða þó að
fara til Noregs þar sem aðgerðin
fer fram á þarlendum spítala.
Stofnfrumugjöf úr blóði tekur
innan við viku og fylgja henni lítil
óþægindi en sé um stofnfrumu-
gjöf úr beinmerg að ræða finna
gjafarnir gjarnan fyrir sársauka í
baki eða mjaðmagrind í nokkra
daga eftir á.
Aðeins skráðir blóðgjafar hér á
landi koma til greina sem stofn-
frumugjafar og hefur þeim fjölg-
að talsvert á síðustu árum enda
Blóðbankinn lagt í talsvert kynn-
ingarstarf vegna þessa.
Stofnfrumugjöf er í vaxandi
mæli eina mögulega lækningin
fyrir sjúklinga með hvítblæði og
eitlakrabbamein auk margra
þeirra er hafa meðfædda efna-
skiptasjúkdóma. Er þá stofn-
frumum sjúkra skipt út fyrir
frumur úr heilbrigðum einstakl-
ingi en úr stofnfrumum koma
blóðfrumur að nokkrum vikum
liðnum. Vegna þess hve vefja-
flokkar manna eru mismunandi
þarf marga gjafa á skrá til að
auðvelda leitina að heppilegum
gjafa. - aöe
STOFNFRUMURÆKTUN Stofnfrumugjöf
er í mörgum tilfellum eina von margra
sjúklinga um betra líf. NORDICPHOTOS/AFP
Rúmlega 400 Íslendingar eru skráðir stofnfrumugjafar hjá Blóðbankanum:
Innan við tíu voru valdir
Mest sala á mánudegi Mest er selt
af fiski á fiskmörkuðum á mánudögum
af öllum vikudögum fyrstu sex mánuði
ársins. Aflaverðmæti hans er einnig
mest þann sama dag. Þetta kemur fram
í frétt frá Íslandsmarkaði. Salan dregst
saman það sem eftir lifir vikunnar og
nær lágmarki á laugardegi.
FISKMARKAÐIR
LISTIN OG LÍFIÐ Listamaðurinn Pricasso legg-
ur hér lokahönd á eitt verka sinna, en hann
sýnir á SEXPO-sýningunni í Sydney í Ástralíu.
Sýningin er haldin í tíunda sinn í ár.
NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Ögmundur Jónas-
son, þingmaður vinstri grænna
segir það fagn-
aðarefni að rík-
isstjórn Íslands
hafi farið þess á
leit við stjórn-
völd í Ísrael að
látið yrði af árás-
um og efnt til
vopnahlés. Hann
segir þó að mun
afdráttarlausar
hefði þurft að
kveða að orði í
bréfinu sem utanríkisráðherra
sendi stjórnvöldum í Ísrael.
„Í bréfinu er talað um að leitað
verði leiða til að koma á vopna-
hléi. Við aðstæður þar sem ein
milljón manna er komin á ver-
gang og búið að drepa mörg
hundruð óbreyttra borgara, er til-
efni til þess að setja fram afdrátt-
arlausar kröfur um vopnahlé
þegar í stað og skilyrðislaust,“
segir Ögmundur. - öhö
Ögmundur Jónasson:
Vill afdráttar-
lausa kröfu
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
HEILBRIGÐISMÁL Ófeigur Tryggvi Þor-
geirsson, yfirlæknir bráða- og slysa-
deildar LSH í Fossvogi, segir þeim
hafa fjölgað nokkuð sem komi á deild-
ina vegna líkamsáverka sem rekja
megi til ofbeldis. „Það hefur verið 10
til 11 prósenta aukning á ofbeldismál-
um á slysadeildinni milli ára eða um
2.000 tilfelli árlega.“
Alls koma 67 þúsund manns á
slysa- og bráðamóttöku LSH árlega,
þar af 44 þúsund á slysadeildina. „Af
þeim sem koma á bráðadeild koma
um 14 þúsund með sjúkrabílum en
þar eru veikindi eins og lungnabólga
og hjartabilanir algengastar.“ - hs
Aukin umsvif á slysadeild:
Æ fleiri koma
vegna ofbeldis
UTANRÍKISMÁL Sendiráð Íslands í
Washington og auðlindaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins stóðu nýlega
fyrir kynningarfundi um áform
Íslands um aukna nýtingu vetnis-
orku og jarðvarma.
Fundurinn fór fram í Banda-
ríkjaþingi í samstarfi við áhugahóp
fulltrúadeildar um vetni. Fundurinn
var vel sóttur, einkum af sérfræð-
ingum úr starfsliði bandarískra
þingmanna, ráðuneyta, fyrirtækja
og stofnana sem starfa á sviði
vetnisorku og jarðvarma. - sdg
Kynning í Bandaríkjaþingi:
Nýting vetnis
og jarðvarma
MAROKKÓ, AP Evrópusambandið og
Marokkó hafa gert samning sem
heimilar 119 bátum ESB-landa að
veiða á umráðasvæði konugsríkis-
ins í Atlantshafi næstu fjögur árin
gegn því að greiða samtals þrettán
milljarða í ríkiskassa Marokkó.
Svíþjóð og fjölmargir aðrir
hafa mótmælt samningnum, því
hann tekur jafnframt til svæðisins
undan ströndum Vestur-Sahara en
ekkert land í heimi viðurkennir
yfirráðarétt Marokkó yfir því.
Árið 2002 bönnuðu Sameinuðu
þjóðirnar Marokkó að ráðstafa
rétti til olíuleitar undan ströndum
Vestur-Sahara.
- smk
Atlantshaf við Vestur-Sahara:
Marokkó og
ESB leyfa veiðar
PHOENIX, AP Tveir fjöldamorðingjar
hafa sett líf íbúa Phoenix-borgar í
Arizona úr skorðum undanfarið ár.
Morðingjarnir tveir, sem talið er
víst að hafi myrt samtals 13 manns
og sært eða misþyrmt tæplega þrjá-
tíu til viðbótar, eru sagðir í einhvers-
konar drápskeppni hvor við annan.
Fyrsta morðið var framið í
ágúst á síðasta ári, en áður höfðu
nokkrir hestar og hundar fundist
skotnir á víð og dreif um borgina.
Lengi vel var talið að um einungis
einn mann væri að ræða og var sá
kallaður Baseline-morðinginn,
eftir götunni þar sem fyrsta
fórnarlambið fannst. Nú þykir
ljóst að annar maður ber ábyrgð á
hluta morðanna.
Baseline-morðinginn er talinn
hafa myrt samtals átta manns, þar
af sjö konur, og nauðgað og rænt
20 til viðbótar. Lögreglan hefur
sent frá sér mynd af ætluðum
sökudólgi sem teiknuð var eftir
lýsingum vitna. Hún sýnir blökku-
mann með svokallað „dreadlock“-
hár. Sú var þó sögð geta verið óná-
kvæm þar sem maðurinn klæddist
jafnan mismunandi dulargervum.
Hinn morðinginn gengur undir
heitinu „the Serial Shooter“, eða
raðskyttan. Hann skýtur fólk og
dýr handahófskennt úr launsátri
úr bíl sínum og er talinn hafa myrt
fimm og sært að minnsta kosti 17
aðra. Fólk hefur verið skotið aftan
frá þar sem það það hjólar um
borgina, ryksugar bílinn á bíla-
þvottastöð eða bíður eftir strætis-
vagni. Raðskyttan lætur yfirleitt
til skarar skríða undir kvöld á
meðan Baseline-morðinginn
athafnar sig á nóttunni. Flestir
borgarbúar eru sammála um að
mennirnir tveir séu í keppni, meðal
annars um fjölmiðlaathygli, og
þegar einn myrðir þá fylgi hinn
fljótlega í kjölfarið.
Atburðirnir hafa breytt hegðun
íbúa borgarinnar og nú þorir fólk
ekki lengur eitt út úr húsi á nótt-
unni. Samstarfsfólk gengur í
hópum út í bíla sína eftir vinnu-
daginn og foreldrar sleppa varla
sjónum af börnum sínum. Sjálfs-
varnarnámskeið hafa verið þétt-
setin og íbúar með farsíma og
neyðarflautur í hönd hafa tekið sig
saman um aukna hverfagæslu.
Leyniskyttumorðin í Phoenix
vekja upp slæmar minningar í
hugum margra Bandaríkjamanna
um samskonar morðöldu sem reið
yfir Washington árið 2002 þegar
tíu manns voru skotnir til bana úr
launsátri. Upp komst um mennina
tvo sem þar voru að verki fyrir
tilviljun og hlaut annar maðurinn
dauðadóm fyrir. stigur@frettabladid.is
Fjöldamorðingjar í
keppni um athygli
Tveir fjöldamorðingjar í Phoenix, sem talið er víst að hafi myrt samtals 13
manns, eru sagðir í drápskeppni hvor við annan. Annar skýtur fólk úr launsátri,
sem vekur upp minningar um samskonar morðöldu í Washington árið 2002.
BASELINE-MORÐINGINN Lögreglan í
Phoenix hefur birt myndir úr öryggismynda-
vél sem eiga að sýna Baseline-morðingjann.