Fréttablaðið - 31.07.2006, Síða 12
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR12
hagur heimilanna
MATUR Á MÁNUDEGI: GUÐJÓN SIGMUNDSSON (GAUI LITLI) ATHAFNAMAÐUR
Alinn upp við rónasteikina
Það kostar sitt að fara á útihátíð
um verslunarmannahelgina, og er
verðið æði mismunandi eftir hátíð-
um. Sumar hátíðir rukka aðeins
eitt gjald inn á svæðið, sem felur í
sér aðgang á tjaldsvæði og böll, en
aðrar rukka ekkert inn á sjálft
hátíðarsvæðið. Þar kostar hins
vegar oft inn á tjaldsvæði og ein-
stök böll.
Miði á Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum kostar 9.900 krónur en er
seldur á 8.500 krónur í forsölu.
Aðgangur að tjaldsvæði og á dans-
leiki er innifalinn í þessu verði.
Gestir þurfa að koma sér út í eyj-
una með einhverjum hætti og
kostar ein ferð með Herjólfi 1.800
krónur. Meðal helstu gesta í Eyjum
eru Todmobile, Bubbi, Stuðmenn
og Í svörtum fötum.
Á Akureyri er hátíðin Ein með
öllu, og kostar ekkert inn á sjálft
svæðið enda svæðið allur bærinn.
Að tjalda á tjaldsvæðum bæjarins
kostar milli 800 og 1.000 krónur
fyrir nóttina og miði á dansleiki,
sem eru meðal annars haldnir í
Sjallanum og í KA-heimilinu, kost-
ar 1.500 til 2.500 krónur. Fyrir
norðan spila Sálin hans Jóns míns,
Skítamórall, Páll Óskar og KK
ásamt fleirum.
Vímulaus fjölskylduhátíð verð-
ur haldin í Galtalæk sem áður, og
er svipað fyrirkomulag á verði
þar og í Eyjum. Aðeins er eitt
gjald inn á hátíðina, 5.800 krónur í
forsölu, og er bæði aðgangur á
tjaldsvæði og á dansleiki innifal-
inn í því. Stuðmenn, Skítamórall
og Paparnir eru meðal þeirra sem
stíga á svið í Galtalæk.
Á Neistaflug í Neskaupstað
kostar ekkert inn á svæðið og
tjaldsvæði eru ókeypis fyrir alla
fjölskylduna. Það eina sem þarf að
kaupa eru miðar á einstaka dans-
leiki, en þeir kosta 1.500 til 2.300
krónur. Hægt er að kaupa passa
sem gildir á alla dansleiki helgar-
innar. Stærstu nöfnin á Neista-
flugi verða Sálin hans Jóns míns,
Skítamórall og Í svörtum fötum.
Síldarævintýri verður á Siglu-
firði um verslunarmannahelgina
og kostar ekkert inn á sjálft svæð-
ið. Þeir sem vilja tjalda á tjald-
svæðum bæjarins borga 700 til
1.000 krónur fyrir nóttina, og inn á
böllin kostar frá 500 til 1.500 krón-
ur. Á Siglufirði spila Geirmundur
Valtýsson, Páll Óskar og Spútnik
ásamt fleirum.
Hátíðarhöld verða á mörgum
fleiri stöðum um verslunarmanna-
helgina, hér voru aðeins nefndar
fimm hátíðir sem hafa verið meðal
þeirra stærstu undanfarin ár.
salvar@frettabladid.is
76.912
130.503
HVAÐ KOSTAR Á ÚTIHÁTÍÐIRNAR?
Staður Inn á hátíðina Nóttin á tjaldsvæði Inn á böll
Eyjar 9.900 0 0
Neistaflug 0 0 1.500 - 2.300
Akureyri 0 800-1000 1.500 - 2.500
Galtalækur 5.800 0 0
Síldarævintýrið 0 700-1000 500 - 1.500
Öll verð eru í krónum og með virðisaukaskatti.
Misjafnlega
dýrar hátíðir
Mörg þúsund manns leggja leið sína á útihátíðir um
helgina. Aðgangseyrir á hverja hátíð er æði misjafn.
Fréttablaðið kannaði kostnaðinn við fimm af stærstu
hátíðunum.
EIN MEÐ ÖLLU Margir leggja eflaust leið sína á Akureyri um helgina, en þar verður hátíðin
Ein með öllu. Meðal annarra hátíða eru Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, Fjölskylduhátíð í
Galtalæk, Síldarævintýri á Siglufirði og Neistaflug í Neskaupstað.
Guðjón Sigmundsson, betur þekktur
sem Gaui litli, er að vinna í framleiðslu-
fyrirtækinu Basecamp. Gaui segir að
ekki sé haldið partí eða veisla nema
hann komi þar að og þegar blaðamaður
hafði sambandi við hann var hann
önnum kafinn við að undirbúa partí
fyrir Ölgerð Egils Skallagrímssonar.
Enn sem komið er lætur Gaui sér næja
rigninguna á suðvesturhorninu en segir
ferðinni heitið út fyrir landsteinana um
næstu mánaðamót.
„Það er fastur liður hjá mér að snæða
svokallaða rónasteik á mánudögum en
þetta er siður sem ég man eftir frá því
ég var að alast upp.“ En fyrir þá sem
ekki vita upplýsist það hér með að róna-
steik er kjötfars og brauð steikt saman.
„Nú í seinni tíð er ég farinn að nota gróft
heilsubrauð í rónasteikina og kjötfarsið,
og brauðið steiki ég á sitt hvorri hliðinni
og nota til þess ólífuolíu.“
Innihald:
200 grömm kjötfars
gróft brauð
sveppir
hvítlaukur
ólífuolía
„Kjötfarsinu smyr ég á báðar hliðar
brauðsins og finnst betra að steikja þær
þar til þær verða dálítið dökkar. Síðan
fínsaxa ég hvítlauk og fáeina sveppi og
steiki með.“ Gaui segist nota laukinn og
sveppina af því það sé ódýrasta græn-
metið í borðinu. „Með þessu verða mánu-
dagar hálfgerðir sparnaðardagar í leið-
inni.“ Gaui viðurkennir
að aðrir fjölskyldu-
meðlimir séu ekki
mjög hrifnir af róna-
steikinni og því snæði
hann hana einn. Þegar
Gaui er spurður um
hollustu rónasteik-
arinnar segir
hann hana mun
hollari en t.d.
djúpsteikta
ýsu í orlý
deigi sem
sumir
snæði á
mánudög-
um.
Síminn hefur sett á markað nýja þjónustu sem nefnd hefur verið Tölvusím-
inn. Með honum geta viðskiptavinir hringt, án þess að greiða mínútugjald,
í alla heimasíma innanlands hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Einnig er
mögulegt að hringja án þess að greiða mínútugjald í aðra Tölvusíma. Þjónustunni er ætlað
að koma til móts við þann hóp viðskiptavina sem óskar eftir föstum mánaðargjöldum og vill eiga
möguleika á lægri símgjöldum. Ekki er þörf á sérstöku símtæki til að geta hringt úr Tölvusímanum en mælt er
með að notast verði við höfuðheyrnartól með hljóðnema. Tölvusímann er mögulegt að nota með öllum tölvum sem
keyra Windows XP eða ME stýrikerfi og með háhraðatengingu við internetið. Ekki eru skilyrði um önnur viðskipti við Símann.
■ Verslun og þjónusta
Tölvusíminn - ný þjónusta frá Símanum
Heimild: Hagstofa Íslands
19
89
19
99
19
79
262.605
> Erlendir farþegar til Íslands
Fréttablaðið fór á stúfana á dögunum og lét kanna verð á þremur algengum en ólíkum vörum í heims-
borgunum London, Kaupmannahöfn og Reykjavík.
London 12.478 kr. 101.478 kr. 146 kr.
Kaupmannahöfn 9.939 kr. 108.372 kr. 155 kr.
Reykjavík 15.995 kr. 124.900 kr. 180 kr.
VERÐ Í ÞREMUR BORGUM
Öll verð eru með virðisaukaskatti og miðast við gengi gjaldmiðla þegar þau voru könnuð.
■ Að þessu sinni var borið
saman verð á Casio FX2.0
Algebra Plus grafískri reikni-
vél, Apple Macbook fartölvu
með 1.83GHz örgjörva og
dós af Magic. Öll verð eru
með virðisaukaskatti. Ekki
var leitað eftir lægsta verði
á hverri vöru.