Fréttablaðið - 31.07.2006, Síða 20

Fréttablaðið - 31.07.2006, Síða 20
[ ] Til eru menn sem sérhæfa sig í hurða- og gluggagerð. Hólmar Tryggvason í Smíðafélaginu í Reykjanesbæ er einn þeirra. „Það er brjálað að gera, vægast sagt, en ég hef trú á því að þetta sé vertíð,“ segir Hólmar sem gefur sér þó smástund til að spjalla. Hann hefur rekið Smíðafélagið síðan 1998 en segir það byggt á gömlum merg. „Í þessu húsi hefur verið framleiðsla á hurðum og gluggum í tuttugu ár en ég hef breytt fyrir- tækinu og tölvuvætt það,“ segir Hólmar og sýnir forláta tölvu- stýrða vél sem sníður niður efnið. Segir hann þá tækni hafa breytt miklu í framleiðslunni, meðal ann- ars aukið nákvæmnina. En hvað um gluggana sjálfa, skyldi vera eitthvað nýtt á ferðinni þar? „Við byggjum nú einkum á því sem hefur virkað hér í gegnum tíðina og erum ekkert alltof spenntir þegar við sjáum einhverjar inn- fluttar nýjungar. Okkur finnst þær ekki taka því fram sem gert er hér á landi,“ segir hann og útskýrir það nánar. „Við höfum þróað glugga, hurðir og þéttingar miðað við okkar aðstæður og þeirri reynslu verður ekkert kastað út um gluggann, einn tveir og þrír. Við erum til dæmis ekki hrifnir af fölskum póstum eins og er verið að flytja inn frá Kanada. Viljum ekki sjá svoleiðis gervidót. Bara alvöru íslenska framleiðslu í hæsta gæðaflokki.“ Hann segir furu langmest not- aða efnið í glugga sem fari undir málningu en í opnanleg fög noti hann bara oregon-furu eða mahóní enda sé það viður sem hafi reynst vel. „Það sem við erum alltaf að glíma við hér á landi er svignunin á efninu, bæði vegna roks og ekki síður vegna hitamismunarins úti og inni.“ Hólmar segir mikinn endingar- mun á gluggum eftir því hvaða litur sé á þeim. „Þeir gluggar sem eru málaðir dökkir endast mun verr en ljósmálaðir. Gæti trúað að það munaði fimmtán árum. Dökku gluggarnir springa í sólinni og svo þegar rigningin lemur á þeim þá hefur vatnið greiðan aðgang,“ lýsir hann. Þó smíði glugganna sé í föstum skorðum segir Hólmar ýmsar breytingar hafa orðið á frágangi þeirra. „Áður fyrr var alltaf verið að velta fyrir sér hvernig ætti að þétta gler þannig að vatnið kæmist ekki inn. Nú er farið að þétta það þannig að vatn- ið komist út,“ nefnir hann sem dæmi. Hlær svo er hann bætir við að lokum: „Þetta er dálítið merki- leg speki.“ gun@frettabladid.is Tilbúinn gluggi í nýtt hús. Séð inn á verkstæðið í gegnum glugga- karm. Byggjum á því besta sem staðist hefur tímans tönn „Ég hef aldrei gert annað en að smíða,“ segir Hólmar glaðlega og gægist út um einn smíðisgripinn. „Við notum einungis oregon-furu og mahóní í laus fög. Það er viður sem hefur reynst vel,“ segir Hólmar. Eitt af verkefnum Smíðafélagsins var að smíða hurðir og glugga í félagsheimilið í Sandgerði þegar það var gert upp. Gluggar í frönskum stíl skreyta margar hurðir. Það þarf ekki að vera leiðinlegt að slá garðinn Þetta er fín líkamsrækt og það er alltaf góð tilfinning að rækta garðinn sinn. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir ���������������� �������������������� ��������������������������� ��������������������� ������������������������������ ������������������������ ����������������������� ���������������������� ���������������������� ��������������� ��������� ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� �

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.