Fréttablaðið - 31.07.2006, Page 22
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR4
Unglingarnir í Vinnuskólanum
skila víða góðu verki í görðum
eldra fólks og öryrkja.
„Við byrjuðum fyrir fimm vikum
og förum garð úr garði,“ segir Guð-
rún Björg Sigurðardóttir, flokks-
stjóri yfir sex manna hópi sem er að
vinna skammt frá höfuðstöðvum
Fréttablaðsins í góðviðrinu. Sá
hópur reynist sinna tuttugu og átta
görðum fyrir eldri borgara og
öryrkja í Hlíða- og Háteigshverfi.
„Að slá og raka, reyta illgresi og
sópa eru þau verkefni sem lögð er
áhersla á,“ segir Guðrún Björg
aðspurð. „Hins vegar klippum við
ekki runna. Það gera aðrir.“
Hver og einn garður er heim-
sóttur þrisvar yfir sumarið. Í
fyrstu umferð er hann tekinn vel í
gegn, segja krakkarnir, og í seinni
umferðunum er grasið slegið og
beðin hreinsuð eftir því sem þörf
krefur. Guðrún Björg segir hreins-
unina minnka eftir því sem á líði ef
vel sé vandað til verka í upphafi þó
vissulega vaxi illgresið vel í rign-
ingartíð eins og ríkt hefur hér í
sumar. En skyldi ekkert vera erfitt
fyrir unglingana að vita hvað er ill-
gresi og hvað ekki? „Jú, sérstak-
lega fyrst en svo lærist það,“ er
svarað og í ljós kemur að flestir í
hópnum hafa verið í Vinnuskólan-
um áður og byrjendurnir fá ráð hjá
þeim reyndari.
En hvernig er sambandi þeirra
við garðeigendur háttað? „Við förum
í byrjun og tölum við þá og heyrum
hvort það er eitthvað sérstakt sem
þeir leggja áherslu á. Svo reynum
við að vinna samkvæmt því,“ segir
Guðrún Björg. Einhver bætir því
við að stundum komi eigendurnir að
heilsa upp á hópinn í garðinum og
jafnvel lauma að honum einhverju
góðgæti. Hópurinn er sammála um
að það sé skemmtilegra að vinna í
einkagörðum en á opnum svæðum
og almenningsgörðum borgarinnar
og einnig sé þar mun minna rusl.
„Svo er alltaf gaman að sjá hvernig
fólk hefur garðana sína. Fjölbreyti-
leikinn er svo mikill og hver og einn
garður hefur sinn svip,“ er niður-
staðan. En hvað skyldi krökkunum
þykja ánægjulegast við vinnuna,
fyrir utan það að vera úti þegar
veður er blítt. „Að slá,“ svarar einn
af drengjunum strax og blaðamaður
dregur þá ályktun að vélknúin tæki
séu í meira uppáhaldi en handverk-
færin. Þó segja krakkarnir vélina
svolítið þunga. „Hún er ekki á hjól-
um þannig að maður verður að vera
dálítið massaður til að slá,“ segir
stráksi og bætir við. „En maður
verður það nú fljótt.“
gun@frettabladid.is
Sláttur og rakstur eru fastir liðir í hirðingu
einkagarða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Daníel Björn og Helgi undirbúa flutninginn í næsta garð sem er skáhallt hinum megin við
götuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Daníel Björn Ingvarsson, Haukur Barri Símonarson, Helgi Brynjarsson, Aðalsteinn Hjörleifsson, Nikolína Hildur Sveinsdóttir og Bryndís
Helga Ellertsdóttir hjálpast að við garðvinnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hver garður hefur sinn svip
Guðrún Björg er röggsamur flokksstjóri enda hefur hún reynslu í garðyrkju.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Nikolína Hildur kann vel við sig í Vinnuskólanum, ekki síst þegar sólin skín. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN