Fréttablaðið - 31.07.2006, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 31. júlí 2006 15
Kastali í Bútan.
Kastali í Carcassonne í Frakklandi. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Orðið kastali kemur af latneska orð-
inu castrum sem þýðir víggirtur
staður. Kastali er skilgreindur sem
bygging, sérstaklega hönnuð til að
verjast óvinum, og yfirleitt miðstöð
hersins á því svæði sem kastalinn
stendur á. Kastali er frábrugðinn
venjulegu virki að því leyti að bygg-
ingin er eins konar stjórnarráð
svæðisins og í henni býr fólk.
Kastalar gamla tímans fylgdu
vissum hefðum hvað hönnun og
uppbyggingu varðar. Í miðjunni
stóð varðturn sem var helsta stjórn-
stöð kastalans. Sumir kastalar sam-
anstóðu af turninum einum saman
en flestir höfðu þó einhvers konar
veggi umhverfis og best var að hafa
jafnframt síki þar fyrir utan.
Á síðari hluta sextándu aldar
hættu kastalar að mestu leyti að
gegna varnarhlutverki og urðu nán-
ast alfarið að lúxúshúsnæðum hins
ríka aðals. Við það breyttust bygg-
ingarnar og ekki var lengur nauð-
synlegt að hafa síki, brú eða sér-
staka turna, nema þá í
fagurfræðilegum tilgangi.
mariathora@frettabladid.is
Hernaðarleg glæsibýli
Kastala er að finna víða um heim. Áður fyrr gegndu þeir hlutverki varnar en í dag er gildi þeirra
helst sögu- og fagurfræðilegt.
Neuschwanstein-kastalinn í Bæjaralandi í Þýskalandi.
Malbork-kastalinn í Póllandi.Oberhoffen-kastalinn í Sviss.
Kastalinn Himeji-jo í Japan.
Eignamiðlun Suðurnesja
Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali
Reynir Ólafsson, löggiltur fasteignasali
Víkurbraut 46
240 Grindavík
Sími 426 7711
Hafnargötu 20
230 Keflavík
Sími 421 1700
www.es.is
Baðsvellir 13
Einbýli ásamt bílskúr alls 151,9 ferm. Húsið er mikið endurnýjað frá 1999 m.a. allar inn-
réttingar. Þak endurnýjað og þakkantur, allir ofnar endurnýjaðir, heitt og kalt vatn ásamt
skolplögnum. Gluggar teknir í gegn. Forhitari. Mjög fallegt útsýni í bakgarði, en það
verður ekki byggt meira á bak við húsið. Verð: 25.800.000,-
Hólavellir 12
Gott 3ja herbergja raðhús. Húsið skiptist í stofu, eldhús, baðherb. og 2 svefnherb.
Geymsla yfir hluta af íbúð. Verð: 13.900.000,-
Suðurhóp 8 og 10
Parhús í byggingu úr timbri klætt með standandi vatnsklæðningu. Skilast tilbúin undir
tréverk. Slípuð gólfplata með hita í gólfi. Búið að steypa vegg fyrir pall að aftan. Stutt í
íþróttahús og sundlaug. Nýr skóli er fyrirhugaður rétt hjá. Verð: 19.900.000,-
Austurhóp 1 og 43
Glæsileg viðhaldslítil einbýli í byggingu 208,2 ferm. ásamt 42,1 ferm. bílskúr. Skilast
rúmlega fokheld, fullbúið að utan með frágengnu bílaplani og stétt skv. teikningu,
ásamt grófjafnaðri lóð. Hús klætt með liggjandi álbáru, ljósgrátt að lit. Þak verður stall-
að aluzink og tilbúið til einangrunar. Innkeyrsla og stétt verða hellulögð með snjó-
bræðslukerfi. Hitaveitu- og rafmagnsinntök verða komin inn í hús. Möguleiki er að gera
5. herb. úr sjónvarpsholi. Afhending í feb. 2007. Verð: 26.500.000,-
Túngata 5
Gott einbýlishús 155,9 ferm.hæð og ris, ásamt bílskúr 36,9 ferm. klætt með garðastáli.
5 svefnherb. Lóðin er girt og ræktuð. Búið er að endurnýja hluta af lögnum. Rúmgóð
eign með mikla möguleika. Hluti af gluggum neðri hæðar er nýlegur Verð: 19.200.000,-
Efstahraun 26, Grindavík
Fallegt einbýlishús á góðum stað177,6 ferm. ásamt 45,5 ferm. bílskúr. 5 svefnherb.
Búið að endurnýja vatnslagnir. Nýjir gluggar í stofu, holi og einu herb. Stór sólpallur
ásamt heitum potti. Verð: 29.000.000,-
Glæsivellir 20B, Grindavík
Mjög gott og vel staðsett parhús 109,6 ferm. ásamt bílskúr 25 ferm. 3 svefnherbergi.
Grunnur að sólstofu er kominn. Gott geymsluloft í bílskúr. Verð: 22.900.000,-
Staðarvör 2, Grindavík
Gott 135,8 ferm. einbýli. Baðið er nýlega endurnýjað. Búið að endurnýja alla ofna, for-
hitari. Skóli og leikskóli í ca. 200 m fjarlægð. LAUST FLJÓTLEGA. Verð: 18.500.000,-
Fr
um